Dagur - 11.04.1984, Síða 3

Dagur - 11.04.1984, Síða 3
11. apríM 984 - DAGUR - 3 Hörð barátta er framundan Ólafur sigraði stórmeistara- kandidatinn! ill íÍÍ'Í'XvlvX llllilÍÍÉÍÍÍilÉÍlll« iiiliÍÍiíMiÍÍÍKVS buxiír tin sfttot • (ídtdfoufcapttór tti&figrf liÍÍÍÍÍIilÍilÍIÍÍÍIðÍi í|Í|Í|Í$Í^^: iitililii^jíii^^ipiiiii^gíiiiiifiiii AKUREÝRI - SÍMI (sé) 21.00 skrHTljnrð á fráþæru verði í Hrísalundi 5 fermingargjafa Seiko og 1 1 1| ii 'lálil f eru sambyggð og segulbönd HLJOM % DfiLD M Ólafur Kristjánsson frá Akur- eyri kom mjög á óvart á skák- móti á Sauðárkróki um síðustu helgi. Ólafur bar sigur úr být- um á mótinu en meðal and- stæðinga hans voru þeir Jó- hann Hjartarson, Sævar Bjarnason og Halldór G. Ein- arsson. Um síðustu helgi hélt Skákfé- lag Sauðárkróks skákmót í tengslum við Sæluvikuna. Var mót þetta nefnt Grohe-skákmót- ið. 26 keppendur tóku þátt í mót- inu og voru þar af sjö keppendur úr Reykjavík með Jóhann Hjart- arson, alþjóðameistara og sigur- vegara á tveim alþjóðaskák- mótum og Sævar Bjarnason ís- landsmeistara í broddi fylkingar. Fimm keppendur voru frá Akur- eyri og það var einmitt einn þeirra, Ólafur Kristjánsson sem vann frækinn sigur. Ólafur fékk 5.5 v. af 7 mögu- legum eða jafn marga vinninga og Jóhann Hjartarson en Ólafur sigraði hins vegar á stigum. í þriðja sæti varð Pálmi R. Péturs- son frá Akureyri, í fjórða sæti Bragi Halldórsson frá Sauðár- króki og fimmti varð Jakob Krist- insson frá Akureyri, Sævar Bjarnason varð sjötti til sjöundi ásamt Pálma Sighvatssyni frá Sauðárkróki. Vegleg verðlaun voru veitt fyr- ir bestu afrekin á mótinu. Fimm efstu menn fengu peningaverð- laun og Þýsk-íslenska verslunar- félagið gaf þrem efstu mönnum úr auk bikars til sigurvegarans. Einnig voru veitt verðlaun fyrir besta árangur heimamanns en þau féllu Braga Halldórssyni í skaut. - Aðalfundur LVBH lýsir yfir stuðningi við baráttu umhverfisverndunarfólks í Eyjafirði Húnavaka 5P O Æ - hefst á Blönduósi nk. föstudag Húnavaka ’84, menningar- og skemmtivaka Ungmenna- sambands A.-Húnvetninga hefst 13. apríl eða nk. föstu- dag. Mikið verður um að vera á Blönduósi þá daga sem Húnavaka stendur yfir og leggja margir hönd á plóginn til þess að gera Húnavöku sem fjölbreyttasta og mörg félög taka þátt í dagskráratriðum. Sýning verður á teikningum eftir Sigmund úr Vestmannaeyj- um og verður hún í Félagsheimil- inu á Blönduósi en þetta mun vera 3. einkasýning Sigmunds. í Héraðsbókasafninu á Blönduósi verður ljósmyndasýning en þar sýna tveir Blönduósingar þeir Unnar Agnarsson og Skarphéð- inn Ragnarsson. Leikfélag Biönduóss verður með þrjár sýningar á Húnavöku og sýnir gamanleikinn „Spansk- fluguna“ eftir Arnold og Bach. Leikstjóri er ungur Skagfirðing- ur, Eyþór Árnason. Á laugardag fyrir pálmasunnudag verður skemmtun grunnskólanema á Blönduósi, en þar koma fram um 150 nemendur á aldrinum 6-12 ára. Boðið verður upp á mjög fjölbreytta dagskrá. Á pálmasunnudag verður söngskemmtun þar sem koma fram tveir kórar, Samkórinn Björk flytur atriði úr „Gloríu“ eftir Antonio Vivaldi og fleiri lög og Grunnskólakórinn á Blöndu- ósi kemur einnig fram en stjórn- andi beggja kóranna er Sveinn Arne Korshamnen undirleikari Guðjón Pálsson frá Hvamms- tanga. Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi verður með skemmti- dagskrá - fjölskyldudagskrá - mánudagskvöldið 16. apríl. Verður heimatilbúið skemmti- efni á boðstólum og mikið um söng, en þetta er eitt af verkefn- um félagsins á 60. starfsári. Að kvöldi síðasta vetrardags verður „Húsbændavaka“ en þar verður boðið upp á mjög vand- aða dagskrá. Þar mun Ómar Ragnarsson, hinn landskunni skemmtikraftur koma. fram, Helgi Seljan alþingismaður mun rabba við samkomugesti, þeir bræður Jóhann Már og Svavar Jóhannssynir munu syngja við undirleik Guðjóns Pálssonar og einnig koma fram tveir ágætir söngvarar frá Skagaströnd og fluttur verður annáll. Kynnir á „Húsbændavöku“ verður Sveinn Kjartansson. Á sumardaginn fyrsta verður „Glens og gaman“ en það er barnaskemmtun og fjölbreytt dagskrá s.s. teiknimyndir og fleira. Á laugardag fyrir páska verður fjölbreytt söngdagskrá á vegum karlakórsins Heimis úr Skagafirði, stjórnandi kórsins er Jiri Hlavack. Dansleikir verða fimm á Húna- vöku, þar af einn unglingadans- leikur. Hljómsveitin Toppmenn frá Reykjavík leikur á fjórum þeirra en Miðaldamenn frá Siglu- firði leika á lokadansleik Húna- vöku ’84 að kvöldi 2. páskadags. Hinn síkáti kántrísöngvari Hallbjörn Hjartarson frá Skaga- strönd kemur fram á dansleik sem haldinn verður 13. apríl. Að venju verða góðar kvikmyndir á Húnavöku, myndirnar Hrafninn flýgur, ET og Svarti folinn. í tengslum við Húnavökuna kemur út ritið „Húnavaka". - GS. Aðalfundur Landverndarsam- taka vatnasvæða Blöndu og Héraðsvatna, haldinn í Yarmahlíðarskóla þ. 30. mars 1984, lýsir fullum stuðningi við baráttu umhverfisverndarfólks í Eyjafirði, gegn byggingu ál- vers við fjörðinn. Öll rök heil- brigðar skynsemi og rannsókn- ir sýna, að slík verksmiðja yrði öllu lífríki þar hættuleg, sökum staðhátta og loftstrauma. í ályktuninni segir ennfremur að álver myndi skapa tiltölulega fáum atvinnu, miðað við stofn- kostnað og draga fjármagn frá annarri heppilegri uppbyggingu. Eyjafjörður á ótæmandi mögu- leika til landbúnaðar, skógrækt- ar, fiskeldis, lífefnaiðnaðar og úrvinnslu margs konar afurða, auk annars iðnaðar, sem fyrir hendi er og efla mætti, og félli betur að landi, lífríki og lifnaðar- háttum fólks. Því væri það algjör- lega óverjandi, að velja þann kostinn, sem áhættusamastur er fjárhagslega, og sökum óæski- legra áhrifa, óþjóðhollur á allan hátt. Fundurinn skorar á ráða- menn að láta af álversáætlunum og snúa sér að öðrum ákjósan- legri valkostum. Ályktunin var samþykkt samhljóða með öllum gréiddum atkvæðum. Fundurinn var fjölmennur, umræður líflegar og málefnaleg- ar. Ellefu nýir félagar létu skrá sig og 4 konur frá Kvennafram- boðinu á Akureyri þáðu boð fundarins um heimsókn og inn- legg í umræðuna. Fluttu þær mál sitt af rökfestu og skörungsskap og unnu allra hylli, enda talað fyrir góðan málstað. Milli Bakkasels og Sesselju- búðar á vesturleið, lentu þær í rokstrengnum illræmda, þar sem bílar sátu fastir og útaf og seink- uðu för. En yfir brutust konurn- ar, með sinn kvenbílstjóra og mættu í tæka tíð. Til baka fylgdu þeim góðar óskir um að öll þeirra störf færu svo farsællega, þó á móti blési í bili. Væntum vér að Húnvetningar, Skagfirðingar og Eyfirðingar, láti ekki merki þjóðarstolts Þingey- inga niður falla, í þeirri hörðu baráttu sem framundan er, fyrir mannhelgi, mannréttindum og manneskjulegra umhverfi. Undir ályktunina ritar fyrir hönd Landverndarsamtaka vatna- svæða Blöndu og Héraðsvatna, Guðríður B. Helgadóttir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.