Dagur - 30.04.1984, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - 30. apríl 1984
30. apríl 1984 - DAGUR - 9
„Þetta var
góð ferð“
„Þessi æfingaferð okkar til Englands var
mjög góð og ég tel að árangur af henni sé
þegar farinn að koma í ljós,“ sagði Gústaf
Baldvinsson þjálfari KA er við ræddum
við hann uin helgina.
„Það kom í Ijós að hópurinn hjá KA er
mjög samstilltur og það eru allir tilbúnir
til þess að leggja mikið á sig þannig að við
náum árangri.
Við spiluðum þrjá leiki í ferðinni. Sá
fyrsti var við utandeildarliðið Cambridge
City og töpuðum við þeim leik 2:4 og það
var Ásbjörn Björnsson sem skoraði bæði
mörk KA. í næsta leik sem var við Gray-
stone Town varð jafntefli 2:2 en við vor-
um yfir 2:0 í þeim leik þegar 7 mínútur
voru eftir. Þriðji leikurinn var svo við lið
Southend sem Bobby Charlton er stjóri
hjá en þetta er 3. deildar lið. Við unnum
þcnnan leik 2:0 og skoruðu Ásbjörn og
Hinrik mörk okkar.
Þetta var mjög góð ferð, og ég er viss
um að hún á eftir að skila góðum hlutum
þegar fram Ifða stundir,“ sagði Gústaf.
1 - X - 2
Vinningsröð á getraunaseðli helgarinnar var sem
hér segir:
Arsenal - Leicester 1
Luton - Watford 2
Man.Utd. - West Ham X
Norwich - Everton X
QPR - Tottenham 1
Southampton - Coventry 1
Sunderland - Birmingham 1
Wolves - WBA X
Carlisle - Grimsby X
Derby - Man.City 1
Huddersf. - Cardiff 1
Oldham - Portsmouth 1
Firmakeppni
^5 ■ ^^ ■
Firmakeppni Skíðaráðs Akureyrar verður
háð í Hlíðarljalli nk. laugardag og hefst
kl. 11.
Keppni þessi fer þannig fram að fyrir-
tækin sem taka þátt tefla fram sínum
starfsmönnum og verður keppt í boð-
göngu og flokkasvigi. Þrír verða í hverri
sveit.
Góð þátttaka hefur verið f þessari
keppni undanfarin ár, og eru þeir sem
hafa áhuga á að vera með að þessu sinni
beðnir um að tilkynna þátttöku fyrir 4.
maí til Skíðaráðs Akureyrar (sími 23008).
Akureyrar-
mót á morgun
Akureyrarmót í stórsvigi verður háð í
Hlíðarfjalli á morgun, 1. maí.
Keppnin liefst kl. 9 og verður keppt í
karlaflokki, kvennaflokki, flokki 13-14
ára og 15-16 ára flokki.
Svigkeppni Akureyrarmótsins verður
hins vcgar háð á föstudaginn og hefst
keppni þá kl. 17. Þá verður keppt í karla-
og kvcnnaflokki og i flokki 15-16 ára.
KA sigraði
Þrótlara 3:1
— 1:1 jafntefli f fyrri leik iiðanna
KA gerði jafntefli við Þrótt í
annarri viðureign liðanna á
KA-velli um helgina en vann
sigur í síðari leik liðanna.
Fyrri leikurinn sem fram fór á
laugardag var fremur slakur,
enda nokkuð mikill hliðarvindur
og erfitt að hemja boltann. Þrótt-
ararnir komust yfir f fyrri hálfleik
með marki Hauks Ólafssonar og
þannig var staðan þar til um 15
mínútur voru eftir. Þá kom Þor-
valdur Örlygsson inn á sem vara-
maður og hann hafði ekki verið
nema eina mínútu á vellinum
þegar hann hafði jafnað með
glæsilegu skallamarki.
í leiknum í gær voru það Þrótt-
arar sem komust yfir í fyrri hálf-
leik er Páll Ólafsson skoraði úr
vítaspyrnu. Hafþór Kolbeinsson
jafnaði metin með góðu marki í
fyrri hálfleik og í síðari hálfleik
bættu þeir Hafþór og Njáll Eiðs-
son tveimur mörkum við. Njáll
skoraði úr vítaspyrnu en Hafþór
komst einn innfyrir vörn Þrótt-
ara, lék á markvörðinn og skor-
aði auðveldlega.
Nú styttist óðum í að keppnin
á íslandsmótinu hefjist, ekki
nema um 3 vikur í fyrstu leikina.
Æfingaleikir KA gegn Þrótti
voru góð æfing fyrir liðið og
vissulega sáust kaflar í leikjum
KA sem lofa góðu þótt á sumum
hlutum hafi verið vorsvipur.
Lið Reykjavíkur hlaut því 12
stig og vann alla sína leiki. í
næsta sæti kom lið Keflavíkur-
flugvallar og Akureyrarlöggan
með Óla Asgeirsson í farar-
Já þetta eru snilldartilþrif, Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn skallar boltann aftur fyrir sig að marki
andstæðinga.
Lið lögreglunnar í Reykjavík
reyndist ósigrandi á Islands-
móti lögregiumanna 35 ára og
eldri í innanhússknattspyrnu
sem fram fór á Akureyri um
helgina.
broddi hafnaði í 3. sæti.
Þegar keppni var lokið skund-
aði allur hópurinn í Smiðjuna þar
sem verðlaun voru veitt. Það
gerði Jón Helgason, dómsmála-
ráðherra.
Þótt um æfingaleik væri að ræða var ekkert gefið eftir í viðureignum KA og Þróttar um helgina.
Hörkuspennandi stigakeppni á íslandsmótinu í kraftlyftingum:
Akureyringar fagna sigri í sveitakeppni á íslandsmótinu i kraftlyftingum. Freyr Aðalsteinsson, formaður LRA
hampar farandverðlaununum. Frá vinstri á myndinni eru: Jóhanncs Hjálmarsson, Helgi Eðvarðsson, Víkingur
Traustason, Freyr Aðalstcinsson, Flosi Jónsson og Kári Elíson sem jafnframt sigraði í einstaklingskeppni mótsins.
Mynd: ESE.
KA og Vaskur
á Sanavelli
Rögnvaldur
var bestur
Kylfingar á Akureyri hafa ver-
ið fremur órólegir að undan-
förnu í góða veðrinu, og voru
sumir þeirra orðnir ansi þurf-
andi fyrir það að komast í
keppni þótt formlega eigi
mótahald ekki að hefjast fyrr
en um miðjan maí.
Því var ákveðið að hafa mót
um helgina og mættu yfir 20
keppendur galvaskir og fönguleg-
ir. Þeir léku 12 holur með 2/3 for-
gjöf og var um jafna keppni að
ræða. Rögnvaldur B. Olafsson
reyndist hafa náð bestum árangri
þegar upp var staðið, hann lék á
48 höggum nettó. í næstu sætum
voru Smári Garðarsson, Birgir
Marinósson og Björn Axelsson,
allir á 51 höggi nettó. Þeir fóru í
sérstaka aukakeppni og hlaut þá
Björn 2. sætið, Birgir það þriðja
en Smári datt út.
Annar Ieikurinn í Bikarmóti
Knattspyrnuráðs Akureyrar
verður háður á morgun, 1.
maí á Sanavelli og hefst hann
kl. 15.
Það verða KA og Vaskur sem
Undanúrslitin ■ Akureyrar-
mótinu í fimleikum verða háð
n.k. föstudag og hefjast kl.
16,30 í íþróttahöllinni.
Þar mun 41 stúlka á aldrinum 6-
16 ára keppa á gólfi, slá, tvíslá og
þar eigast við og verður að telja
KA-liðið sigurstranglegra. í eina
leik mótsins sem lokið er sigraði
Þór lið Vasks með 3:0 og eflaust
reyna KA-menn að gera betur.
hesti en 9 strákar á sama aldri
keppa á gólfi, tvíslá, hesti, svifrá
og bogahesti. 8 bestu í hverri
grein komast í úrslitin, en þau
verða á sunnudag kl. 14.
Fimleikamót
í Höllinni
Hart barist
á Andrésar
Andar-leikunum
— Keppni lýkur í dag
Keppni á Andrésar Andar-
leikunum hófst á föstudags-
morgun og hefur verið keppt
alla helgina. Reyndar stendur
mótið enn yfir því mótsslit og
verðlaunaafhending fyrir síð-
asta keppnisdag verður ld. 16 í
dag í Hlíðarfjalli.
Það hefur verið hart barist
um efstu sætin í mótinu um
helgina og óhætt er að segja að
þar hafí keppnisgleðin setið í
fyrirrrúmi. En hvað um það,
hér koma þrír efstu í hverri
grein. í blaðinu á föstudag
munum við síðan skýra frá úr-
i slitum í þeim greinum sem fram
fara í dag.
Stórsvig 7 ára drengir:
1. Magnús Sigurðsson, A 65,62
2. Elvar Óskarsson, A 68,06
3. Sveinn Bjarnason, H 68,39
Stórsvig 7 ára stúlkur:
1. Hjálmdís Tómasd., Nesk. 69,16
2. Brynja Þorsteinsd., A 71,51
3. Inga Hrönn Kristjánsd., A 73,73
Stórsvig 8 ára stúlkur:
1. Sæunn Bjömsd.,H 66,57
2. Hildur Ösp Þorsteinsd., A 66,61
3. Sigrún Haraldsd., Nesk. 67.01
Stórsvig 8 ára drengir:
1. Róbert Hafsteinsson, í 59,36
2. Þorleifur Karlsson, A 62,01
3. Sverrir Rúnarsson, A 62,88
Stórsvig 9 ára stúlkur:
1. Sísí Malmquist, A 62,89
2. Fanney Pálsd., í 64,27
3. Erna B. Sigurðard., H 65,92
Stórsvig 9 ára drengir:
1. Ólafur Ægisson, Ó 62,23
2. Sigurður Friðriksson, í 62,25
3. Ásbjörn Jónsson, R 62,69
Svig 11 ára stúlkur:
1. Hanna Mjöll Ólafsd., { 60,16
2. María Magnúsd., A 60,54
3. Harpa Kristjánsd., í 60,85
Svig 11 ára drengir:
1. Kristinn Björnsson, Ó 56,11
2. Sævar Guðmundsson, A 58,92
3. Gísli Reynisson, R 61,06
Svig 12 ára stúlkur:
1. Margrét Rúnarsd., í 66,40
2. Selma Kárad., R 71,03
3. Sigrún I. Kristinsd., R 71,08
Svig 12 ára drengir:
1. Jóhannes Baldursson, A 60,98
2. Sverrir Ragnarsson, A 62,77
3. Vilhelm Þorsteinsson, A 63,30
Svig 7 ára stúlkur:
1. Hjálmdís Tómasd., Nesk. 75,91
2. Helga B. Jónsd., A 80,82
3. Brynja Þorsteinsd., A 81,66
Svig 8 ára stúlkur:
1. Sæunn Björnsd., H 74,63
2. Theodóra Mathiesen, R 74,97
3. Sandra Björg Axelsd., Sey. 76,20
Svig 10 ára stúlkur:
1. Harpa Hauksd., A 63,84
2. Laufey Árnad., A 64,64
3. Linda B. Pálsd., A 64,69
Svig 9 ára stúlkur:
1. Sísí Malmquist, A 69,09
2. Ema B. Sigurðard., H 73,23
3. Fanney Pálsd., f 74,15
Stórsvig 11 ára stúlkur:
1. María Magnúsd., A 86,03
2. Anna S. Valdimarsd., B 87,40
3. Sóley Sigurðard., H 89,30
Svig 7 ára drengir:
1. Arnar Pálsson, í 73,41
2. Hjörtur Arnarsson, R 76,65
3. Magnús Sigurðsson, A 77,76
Svig 8 ára drengir:
1. Þorleifur Karlsson, A 69,51
2. Björn Þórðarson, S 71,12
3. Kristján Kristjánsson, R 71,83
Svig 9 ára drengir:
1. Birgir K. Ólafsson, Sey 68,04
2. Heiðar S. Þorvaldsson, H 69,15
3. Róbert Skarphéðinsson, H 70,52
Svig 10 ára drengir:
1. Hrannar Pétursson, H 63,43
2. Jónas G. Garðarsson, H 63,64
3. Gunnlaugur Magnússon, A 63,94
Stórsvig 11 ára drengir:
1. Arnar Bragason, H 80,70
2. Magnús H. Karlsson, A 82,47
3. Kristinn Björnsson, Ó 84,14
Stökk 12 ára drengja:
Grétar Björnsson, Ó, 195,6 stig (25,0 -
25,0 og 24,0 metra).
Björgvin Stefánsson, Ó, 185,1 stig (23,0 -
24,5 og 23,0 metra).
Steingrímur Walterson, R, 176,8 stig (21,5
- 23,5 og 22,5 metra).
Stökk 11 ára drengja:
Kristinn Bjömsson, Ó, 244,8 stig (27,5 -
28,0 og 29,5 metra).
Magnús Þorgeirsson, Ó, 194,8 stig (23,5 -
19,5 og 25,0 metra).
Sigurður S. Benónýsson, S, 164,2 stig
(18,5 - 21,0 og 21 metra).
Stökk 10 ára drengja:
Gunnlaugur Magnússon, A, 204,2 stig
(19,0 - 23,5 og 23,0 metra).
Alfreð Alfreðsson, S, 200,5 stig (19,5 -
21,0 og 23,5 metra).
Hjalti Egilsson, Ó, 179,9 stig (18,5 - 18,5
og 20,5 metra).
Stökk 9 ára og yngri:
Bjartmar Guðmundsson, Ó, 213,3 stig
(23,0 - 21,5 og 22,5 metra).
Ásmundur Einarsson, S, 188,8 stig (20,5 -
19,5 og 18,5 metra).
Tómas Sigursteinsson, Ó, 170,6 stig (19,5
- 16,5 og 19,0 metra).
Akureyringar efstir!
Ein jafnasta og tvísýnasta
kraftlyftingakeppni sem háð
hefur verið í manna minnum,
fór fram í LaugardalshöII um
helgina. Barist var um íslands-
meistaratitla af jötunmóð en
mesta keppnin var þó á milli
félaga. Þegar keppni var Iokið
kom í Ijós að ÍBA og KR voru
jöfn að stigum. Þá var gripið til
þess ráðs að láta fjölda íslands-
meistara skera úr um sigurinn
en aftur voru félögin jöfn með
fjögur gull hvort félag. Það var
ekki fyrr en silfurverðlaunin
voru athuguð að í Ijós kom að
— Kári Elíson stigahæsti einstaklingurinn
ÍBA hafði unnið stigakeppn-
ina. Þrenn silfurverðlaun gegn
tveim silfrum KR-inga.
Auk stigakeppninnar þá fengu
Akureyringar fjóra íslandsmeist-
ara á þessu móti og Kári Elíson
sem sigraði í 67,5 kg þyngdar-
flokki varð að auki stigahæsti ein-
staklingur mótsins og bætti veg-
legum bikar við í verðlaunagripa-
safn sitt.
Kári Elíson lyfti samtals 630 kg
á mótinu, 225 kg í hnébeygju,
155 kg í bekkpressu og 250 kg í
réttstöðulyftu. Annar varð
Björgúlfur Stefánsson, ÍBV með
450 kg og þriðji varð Bjarni R.
Þórisson, KR með 430 stig. Stað-
an í stigakeppninni: ÍBA 5 stig,
ÍBV 3 stig og KR 1 stig.
f 75 kg flokki sigraði Halldór
Eyþórsson úr KR örugglega, lyfti
600 kg. Gunnar Hreinsson ÍBV
varð annar með 487,5 kg og
Bárður B. Olsen KR þriðji með
477,5 kg. Staðan: KR 6 stig, ÍBV
6 stig og ÍBA 5 stig.
í 82,5 kg flokki börðust þeir
Freyr Aðalsteinsson og Sverrir
Hjaltason sem báðir keppa fyrir
ÍBA, hatrammri baráttu. Svo fór
að lokum að Freyr sigraði. Lyfti
640 kg (235-145-260) en Sverrir
lyfti 632,5 kg. Staðan: ÍBA 13
stig, KR 6 stig og ÍBV 6 stig.
Flosi Jónsson, ÍBA varð ör-
uggur sigurvegari í 90 kg flokki.
Lyfti samtals 632,5 kg (245-
137,5-250). Annar varð Alfreð
Björnsson KR með 595 kg og
þriðji Magnús Steindórsson KR
með 557,5 kg. Staðan: ÍBA 18
stig, KR 10 stig, ÍBV 6 stig.
Mikil barátta var í 100 kg
flokki en þar sigraði Hörður
Magnússon á nýju íslandsmeti
817,5 kg. Setti að auki glæsilegt
íslandsmet í hnébeygju, 325 kg.
Hörður varð jafnframt annar
að-
að
100
í stigakeppni einstaklinga,
eins hársbreidd frá því
vinna Kára Elíson. Annar í
kg flokki varð Viðar Sigurðsson,
KR með 670 kg og Garðar Vil-
hjálmsson UÍA var þriðji með
590 kg. Staðan: ÍBA 18 stig, KR
18 stig, ÍBV 6 stig og UÍA 1 stig.
Jóhannes Hjálmarsson ÍBA
var einn í 110 kg flokki og vann
gullið af öryggi. Lyfti 615 kg
(220-125-270).
Staðan ÍBA 23 stig, KR 18
stig, ÍBV 6 stig og UÍA 1 stig.
Hjalti Úrsus Árnason KR vann
svo Víking Traustason ÍBA í 125
kg flokki. Hjalti lyfti 785 kg en
Víkingur var með 747,5 kg.
Staðan í keppni ÍBA og KR:
26:23 ÍBA í vil.
Torfi Ólafsson KR sigraði ör-
ugglega í 125+ flokknum. Lyfti
760 kg en Helgi Eðvarðsson ÍBA
varð annar með 575 kg.
Staðan var nú 29:29 og því
varð samkvæmt alþjóðlegum
reglum að aðgæta hvort félag
hefði hlotið fleiri gullverðlaun.
Aftur jafnt 4:4 en Akureyringar
höfðu þrenn silfurverðlaun gegn
tveim silfrum KR-inga og sigur-
inn var því ÍBA. - ESE