Dagur - 30.04.1984, Blaðsíða 1
FERMINGAR-
GJAFIR
í MIKLU ÚRVALf
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
"N
fcoda*
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 30. aprfl 1984
50. tölublað
500 milljónum varið
til háþróaðs iðnaðar
var meðal tillagna á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins
Á aðalfundi miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins, sem haldinn
var á Akureyri um helgina, var
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, endurkjör-
inn formaður flokksins. Aðrir
stjórnarmenn voru einnig
endurkjörnir en þeir eru Guð-
mundur Bjarnason, ritari,
Halldór Ásgrímsson, vara-
formaður og Guðmundur G.
Þórarinsson, gjaldkeri.
Aðalefni fundarins voru at-
vinnumálin og varð umfjöllun um
þau ekki Iokið, en þau verða tek-
in sérstaklega fyrir í flokknum
síðar á árinu. Þá var samþykkt
stjórnmálaályktun, þar sem m.a.
kemur fram tillaga um að á næstu
árum verði veitt 500 milljónum
króna til þróunar, rannsókna og
uppbyggingar á ýmsum háþróuð-
um iðnaði, s.s. rafeindaiðnaði og
lífefnaiðnaði. Verði þessu verk-
efni gefinn forgangur í íslenskri
iðnþróun á næstu árum.
Steingrímur Hermannsson
ræddi einnig um atvinnumálin í
yfirlitsræðu sinni á fundinum.
Fjallaði hann m.a. um þann
mikla áróður sem dynur á land-
búnaðinum. Hann sagði síðan að
á næstu fimm árum verði skilyrð-
islaust að draga úr hinni hefð-
bundnu landbúnaðarframleiðslu,
þannig að hún fullnægi sem næst
okkar eigin þörfum en útflutning-
ur verði óverulegur og útflutn-
ingsbætur því óþarfar. Á sama
tíma verði nauðsynlegt að skipu-
leggja nýjar búgreinar þannig að
byggðaröskun verði sem minnst.
Nánar er fjallað um miðstjórn-
arfundinn ábls. 11,12 og 13. HS
Þegar Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, heimsótti Slippstöðina á Akureyri ásamt öðrum miðstjórnarfulltrúum
færði Benedikt Sigurðsson honum gjöf til þingflokksins, en það var nákvæm eftirmynd af íslandi, skorin út í þykka stálplötu. Mynd: HS.
„Ástandið betra en um
miðjan júní í fyrra“
- segir Stefán Skaftason, ráðunautur í Straumnesi í Aðaldal
Sund-
laugin
og
fatlaðir
- bls. 2
„Menn hljóta að vera mjög
ánægðir með ástandið því það
er allt tveimur mánuðum á
undan miðað við síðasta ár,“
sagði Stefán Skaftason ráðu-
nautur í Straumnesi í Aðaldal
er við ræddum við hann um
tíðarfarið og vorið sem verið
hefur á Norðurlandi undan-
farna daga.
„Ég er búinn að vera hérna
síðan 1961 og man ekki aðra eins
tíð, a.m.k. ekki hvað hlýindi
snertir,“ sagði Stefán. „Ástandið
er verulega betra núna heldur en
það var um miðjan júní í fyrra.
„Ég tel engar líkur á því að
það komi í ljós nýtt kal i túnum
núna, en það er auðvitað gamalt
kal til staðar. Það er hvergi jarð-
vatn á túnum þannig að þau eru
orðin þurr. Frost er svo að segja
farið úr jörðu og tún eru byrjuð
að grænka og lifna við.
Veðurfarið hefur verið mjög
gott og þótt að komi norðanátt
þá er hún ekki köld, meiri sjávar-
hiti fyrir Norðurlandi og hag-
stæðir vindar spila örugglega
stórt hlutverk hvað það snertir.
Það gengur því allt mjög áfalla-
laust eins og er.“
- En ef gerir áhlaup, þá er
gróður í meiri hættu en ella?
„Já, og sérstaklega ef gerir ein-
hverja hörku án þess að snjói
með, þá er allt í stórhættu. Ber
geta öll farið t.d. en í dag er útlit
fyrir mjög góða berjasprettu. En
það er óhætt að segja að það sé
hugur í mönnum og það styttist
óðum í það að menn fari í vor-
verkin og um leið og fer að
grænka meira geta menn farið að
bera áburð á tún,“ sagði Stefán.
gk-.