Dagur - 11.05.1984, Síða 13
11. maí 1984 - DAGUR -13
Jón Bjarnason frá Garðsvík skrifar
Þátturinn hefst með nokkrum
vísum um góuna:
Friðbjörn Guðnason kvað:
Ég vil allt mitt uppgjör hafa
ætíð hreint og rétt,
að ei þar leynist eftirkrafa,
það oftast reynist létt.
Ekki ergóa öllum kær
oft þó rófu dilli,
hefur mjó og horuð lær
með hélu og snjó á milli.
Pá koma þrjár vísur eftir Ingi-
björgu Sigfúsdóttur frá For-
sæludal:
Um reikning einn þó er í vafa
sem ég hér geta vil
að ei þar leynist eftirkrafa
og óglögg reikningsskil.
Er líður að því að lífið þrotni
leynt um hugskot fer,
hvort ég inneign á hjá drottni
eða hann hjá mér.
Þættinum lýkur með vísu af allt
öðrum uppruna:
Málefni ýmsa æsa ná,
þeiræpa oggnísta tönnum,
en það er skárra en skvaldrið hjá
skoðanalausum mönnum.
Jón Bjarnason.
Lætur flakka fönn um skeið,
fyllir slakka og móa.
Heldur blakkan hristir reið
hríðar - stakkinn góa.
Næsta morgun var bjartara yfir:
Góa mín þú geystist hart.
Geðið nær að hlýna
þegar sólarbrosið bjart
blíðkar ásýnd þína.
Þessi vísa er um góu á öðrum
vetri:
Kvíðiþróast þreyttum lýð,
þakin snjó er storðin.
Rosa nógan, regn og hríð
reiddigóa á borðin.
Áður en girðingar komu til sögu
urðu bændur að vaka yfir safn-
inu nóttina fyrir réttardaginn.
Hjálmar Stefánsson, Vagn-
brekku kvað:
Hefi ég á Hlíðarrétt
haft á fénu gætur,
marga vísu saman sett
sextán langar nætur.
Líklega er næsta vísa einnig
kveðin í Mývatnssveit. Hana
greip ég ófrjálsri hendi úr ágæt-
um útvarpsþætti Erlings Sigurð-
arsonar, um daglegt mál:
Enga þoldi auðargná
inni í sínu hreysi.
Var það fyrir vöntun á
vitsmunaskortsleysi.
Guðmundur frá Hrafnhóli
kvað;
Örðuggangan upp í mót
öldnum vekur kvíða - mestum.
Pó er margra meina bót
að mega stundum ríða - hestum.
Jóhannes Sigurðsson í Engimýri
var gamansamur og líklega ei-
lítið stríðinn. Eftirfarandi vísur
kvað hann í orðastað ungrar
stúlku:
Oft ergaman upp til fjalla
einkum þegar sólin skín.
Uppi á breiðum Britahjalla
bóndasonur kom til mín.
Hvað hann mælti man ég eigi,
má því ekki segja þér.
Ég varð ör af ástarlegi.
Allt var í þoku fyrir mér.
Eitthvað vildi hann afmér fala.
Ég man það, ég sagði já.
Annað þurfti ekki að tala.
Augun skildu beggja þrá.
Pað er ekki gott að gleyma
gamni því sem skeði þá.
Minninguna mun ég geyma
meðan hjartað fær að slá.
Sigurbjörn Benediktsson frá
Ártúni kvaó næstu vísur og
nefnir þær reikningsskil:
Raðhús - Dalvík
Til sölu er 4ra herb endaraðhúsíbúð ca. 113 fm.
Bílskúrsréttur. Laus nú þegar.
Upplýsingar í síma 91-33967 eftir kl. 19.00.
Aðalfundur
Krabbameinsfélags Akureyrar
verður haldinn á Hótel Varðborg þriðjudaginn 15.
maí 1984, kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
//// azs
:)///.
)/ O M/i ? / <r/
iV/ '/r-y//
Inntökupróf
Inntökuprof í Myndlistaskólann á Akureyri fyrir skólaár-
ið 1984-1985 verður dagana 28. maí til 1. júní. Um-
sóknarfrestur er til 22. maí.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu skólans, Glerárgötu 34, simi
24958. e, -, ....
Skolastjori.
Kardemommu-
bærinn
eftir Thorbjörn Egner
Föstudagur 11. maí kl. 20.00. - Hátíðarsýning.
Styrkveiting úr minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur.
Laugardagur 12. maí kl. 17.00.
Sunnudagur 13. maí kl. 17.00.
Miðasala opin alla virka daga frá kl. 15-18.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 13 og fram að sýningu.
Leikfélag Akureyrar.
Nauðsynlegar
upplýsingar
Jón minn, hvert eigum við að fara til að kaupa fötin
á börnin?
Gunna mín, það liggur í augum uppi hvar við kaupum
gallabuxurnar, strigaskóna og stígvéiin og ég veit líka
hvað gallabuxurnar kosta, þær kosta
aðeins 320 krónur.
Og hvar er þetta, spyr Gunna.
Auðvitað í Eyfjörö, því þar er verðið lægst og hagstæðast.
Opið á laugardögum 10-12.
Eyfjörð ^
Hjalteyrargötu 4 ■ simi 22275 ■■^■i
SÍBS og Samtök gegn
astma og ofnæmi
Kynningar- og fræðslufundur verður á Hótel KEA laugardag-
inn 12. maí kl. 14.
Björn Árdal, læknir spjallar um astma og ofnæmi, auk hans munu
fulltrúar fra SÍBS og Samtökum gegn astma og ofnæmi svara fyrir-
spurnum.
Foreldrar athugið:
Reynt verður að hafa ofan af fyrir börnunum með videói og fleiru.
Vinnuskóli Akureyrar
Starf forstöðumanns við Vinnuskóla Akureyrar er
laust til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi
hafi reynslu í verkstjórn, og menntun á garðyrkju-
sviði.
Vinnuskóli Akureyrar óskar einnig að ráða flokks-
stjóra til starfa í sumar. Reynsla og verkstjórn
æskileg.
Nánari upplýsingar gefur skrifstofa Garðyrkju-
deildar í síma 25601 frá kl. 9-12 daglega.
Skrifleg umsókn sendist til: Akureyarbær Garð-
yrkjudeild P.O.BOX 881, 602 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Garðyrkjustjóri.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
HÓLMGEIRS SIGURGEIRSSONAR
Völlum, Reykjadal.
Kristín Þorvaldsdóttir,
börn og fjölskyldur.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför
AUÐAR SIGURPÁLSDÓTTUR,
Ránargötu 28, Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Þorvaldsson,
Sigurlína Jónsdóttir,
Hildur Jónsdóttir, Jón Stefánsson,
Ólafur Jónsson, Marselía Gisladóttir,
Indíana Jónsdóttir, Gunnar Mattason,
Kristjana Jónsdóttir, Skarphéðinn Guðmundsson,
Guðrún Jónsdóttir, Guðni Þorsteinn Arnþórsson,
Sigurpáll Jónsson, Anna Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.