Dagur - 14.05.1984, Qupperneq 1
FILMUhúsib akureyri
67.árgangur
Akureyri, mánudagur 14. maí 1984
55. tölublað
Stangaveiðifélag Reykjavíkur tekur Blöndu á leigu:
„Við verðum að kenna þeim
að veiða eins og menn“
- segja heimamenn, sem vanir eru veiði í þessari mestu „húkká“ landsins
Mikil ólga hefur verið meðal
stangaveiðimanna á Blönduósi
og Sauðárkróki að undanförnu
vegna þeirra vinnubragða sem
Veiðifélagið um Blöndu og
Svartá viðhafði er Blanda var
leigð. Stangaveiðifélögin á
Blönduósi og Sauðárkróki
hafa verið með ána á leigu
undanfarin ár en „óvænt“ yfir-
boð frá Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur breytti stöðunni.
- Það sem gerðist er það að
við buðum sömu upphæð í ána og
í fyrra á þeim forsendum að veiði
hefði farið stöðugt minnkandi í
ánni og fyrirhugaðar virkjunar-
framkvæmdir gætu enn dregið úr
veiðinni. Landeigendur ætluðu
að ræða þetta tilboð okkar og
fundur var ákveðinn að hálfum
mánuði liðnum. Það sem svo ger-
ist er það að formaður veiðifé-
lagsins fer suður til Reykjavíkur
til að semja við SVFR um veiði í
Svartá. í þessari ferð heldur hann
uppboð á Blöndu með tilboð
okkar í vasanum, sagði heimild-
armaður Dags úr röðum Stanga-
veiðifélags Sauðárkróks.
Eftir að SVFR hafði fengið ána
leigða fyrir 880 þúsund kr. þá
buðu þeir Blönduósingum og
Sauðkrækingum þriðjung veiði-
daga hvorum aðila. Þessu tilboði
höfnuðu Sauðkrækingar en
Stangaveiðifélag Blönduóss keypti
síðan helming veiðidaga af
SVFR.
Það er alkunn staðreynd að í
Blöndu hafa menn hingað til ekki
veitt með hefðbundnum aðferð-
um. Áin er „viðurkennd húkká“
og það kemur mönnum því
spánskt fyrir sjónir að SVFR þar
sem fluguveiðimenn - oft nefndir
aðall stangaveiðimanna, eru hvað
fjölmennastir vilji leigja ána.
Heimamenn telja þó ólíklegt að
nýir siðir fylgi nýjum herrum í
þessu tilviki og eins og einn orð-
aði það:
- Við verðum bara að kenna
þeim að veiða eins og menn.
Sjá nánar á bls. 3 - ESE
Ymsar blikur á lofti í rækjumálum:
Olafsfirðingar
fara sér hægt
- Við flýtum okkur ákaflega
hægt í þessu máli. Það eru
ýmsar blikur á iofti og margir
óvissuþættir í sambandi við
verð og markaði og við ætlum
okkur því ekki að flana að
neinu. En við erum ekki hættir
við að reisa þessa verksmiðju,
sagði Garðar Guðmundsson,
útgerðarmaður í Ólafsfirði er
hann var að því spurður hvað
stofnun rækjuverksmiðju Iiði.
Öll stærstu útgerðarfyrirtækin
í Ólafsfirði hafa að undanförnu
kannað möguleikana á stofnun
rækjuverksmiðju en síðustu frétt-
ir um undirboð Norðmanna á
mörkuðum og aðrar fréttir af
markaðsmálum hafa valdið því
að Ólafsfirðingar hafa viljað fara
hægt í sakirnar. Á Grenivík hafa
menn hins vegar hætt við öll
áform um rækjuverksmiðju í bili.
Að sögn Garðars þá hefur
Guðmundur Ólafur ÓF verið á
rækju undanfarnar þrjár vikur og
hefur veiðin yfirieitt verið þetta
11 til 15 tonn í veiðiferð. Rækjan
hefur veiðst í námunda Kolbeins-
eyjar og sagði Garðar að nýr
blettur hefði fundist á þessum
slóðum nýverið. Samtals hefur
Guðmundur Ólafur ÓF landað
um 45 tonnum en lagt er upp hjá
K. Jónsyni. - ESE
Akureyri:
Drengur
fyrir bíl
Tveggja ára drengur varö fyrir
bíl í Aöalstræti á Akureyri um
hádegisbilið í gær.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar bendir allt til
þess að drengurinn hafi hlaupið
út á götuna og orðið fyrir aðvíf-
andi bifreið. Bíllinn fór yfir
drenginn en svo virðist sem hann
hafi lent á milli hjóla. Drengur-
inn mun ekki hafa slasast alvar-
lega. - ESE.
Stöðvar
solua
raðsmíða-
bátunum
- Við vorum búnir að semja
um sölu á báðum raðsmíðabát-
unum, til Þórshafnar og Eski-
fjarðar en umsóknum um fyrir-
greiðslu var báðum hafnað í
Fiskveiðasjóði, sagði Sigurður
Ringsted, yfirverkfræðingur
hjá Slippstöðinni er hann var
spurður að því hvort búið væri
að selja umrædda báta.
Samkvæmt heimildum Dags er
Fiskveiðasjóður nú nánast tómur
og öllum umsóknum um lán því
hafnað sjálfkrafa og bent á fjár-
málaráðherra. Ráðherra mun
hins vegar ekki hafa neina fjár-
muni á lausu a.m.k. ekki á með-
an verið er að fylla upp í fjárlaga-
gatið og málefni sjóðsins eru því
í algjörri biðstöðu.
Varðandi atvinnumál í Slipp-
stöðinni er hins vegar það að
segja að næg atvinna verður hjá
fyrirtækinu í sumar við hefð-
bundin viðgerðarverkefni en at-
vinnuástand í haust er hins vegar
vægast sagt ótryggt.