Dagur - 16.05.1984, Side 12
EIRRÖR -TENGI @ £
SMURKOPPAR Cj 1
Skyrtuverksmiðja flytur
starfsemi til Akureyrar
— sem hefst þar ekki síðar en í september í haust
„Ég flyt þetta fyrirtæki norður
til Akureyrar svo fljótt sem
verða má og ekki síðar en í
september,“ sagði Erling
Aðalsteinsson, klæðskeri, í
viðtali við Dag, en hann hefur
nýlega fest kaup á verksmiðju
í Reykjavík sem framleiðir
skyrtur, blússur, sportfatnað
og annan léttan fatnað. Fyrir-
tækið heitir G.A. Pálsson,
fatagerð, en því verður gefið
nýtt nafn þegar norður kemur.
„Ég fékk bjartsýniskast og sló
til. Það hefur alltaf blundað í mér
löngunin til að framleiða föt, en
til þess lærði ég í Svíþjóð á sínum
tíma. Við undirbúning þessa
máls hef ég notið aðstoðar Jóns
Sigurðarsonar, formanns at-
vinnumálanefndar Akureyrar og
Finnboga Jónssonar, hjá Iðn-
þróunarfélagi Eyjafjarðar. Ég
yfirtek fyrirtækið 1. júní og rek
starfsemina til að byrja með í
Reykjavík en fiyt hana norður
eins fljótt og kostur er.
Við þessa starfsemi hafa unnið
7-10 manns, en vélakostur býður
upp á fleiri starfsmenn, svo fremi
sem markaður verður fyrir fram-
leiðsluna. Framleitt hefur verið
fyrir fyrirtæki og stofnanir, sem
vilja sérsaumaðar flíkur s.s. ein-
kennisskyrtur eða blússur, auk
þess sem framleiðsian hefur farið
á almennan markað í verslunum.
Ég geri mér vonir um að geta
aukið framleiðsiuna verulega,
eða í 70-90 skyrtur á dag að jafn-
aði. Þá kemur einnig til greina að
auka vélakostinn til að geta boð-
ið upp á margbreyttari þjón-
ustu,“ sagði Erling að lokum.
HS.
Einvígi
aldar-
innar
Hallbjörn og
Johnny King
mætast á Húsavík
Það stcfnir allt í að það verði
einvígi aldarinnar á Norður-
landi á Húsavík á föstudags-
kvöld. Þá leiða saman hesta
sína kántrístjarna Húsvíkinga
Johnny King og hinn eini og
sanni Hallbjörn Hjartarson og
þá fæst líklega úr því skorið
hvor hefur betur konungur
kántrítónlistarinnar á íslandi
eða krónprinsinn á Húsavík.
Einvígið á Húsavík er liður í
hljómleikaferð Hallbjarnar og
Miðaldamanna frá Siglufirði um
Norðurland en fyrsti dansleikur-
inn verður í Félagsheimilinu á
Húsavík í kvöld. A laugardags-
kvöld verða kappar miðalda
ásamt Hallbirni í Víkurröst á
Dalvík og Sjallinn á Akureyri
verður svo endastaður ferðarinn-
ar en þar verður skemmtun á
sunnudagskvöld.
Þess má geta aö Hallbjörn
Hjartarson er nú nýbyrjaður
upptökur á þriðju sólóplötu
sinni, Kántrý 3 en þeim sem ekki
geta beðið eftir plötunni, skal
bent á að kántrýstjarnan mun
flytja nýtt efni á öllum hljómleik-
unum. - ESE.
Björn Snorrason lögregluþjónn við hina glæsilegu Volvo-lögreglubifreið
sem búin er hinum „afkastamikla“ radarmæli. Mynd: KGA
Nýja radarbyssan:
50 ökumenn hafa
verið „skotnir“
- fyrir of hraðan akstur
Byssan sem hæfir alla - svo
fremi sem þeir aka of hratt hef-
ur verið tekin í notkun hjá lög-
reglunni á Akureyri. Hér er
um að ræða radarbyssu sem
mælir hraða ökutækja og á
þeim þrem vikum sem byssan
hefur verið í notkun hafa um
50 ökumenn hætt sér inn á
skotsvið hennar.
Þessi nýja radarbyssa er að
sögn Ólafs Ásgeirssonar, aðstoð-
aryfirlögregluþjóns mjög full-
komin og að því leyti betri en
eldri tæki lögreglunnar að nú er
hægt að mæla úr lögreglubifreið
á ferð. Mælir þá radarbyssan
hraða þeirra ökutækja sem ekið
er á eftir eða hraða þeirra sem
nálgast lögreglubifreiðina.
Lögreglan hefur nú sent um 50
kærur frá sér vegna of hraðs
aksturs sem mælst hefur með
þessari einu radarbyssu síðan 27.
apríl og nái allar þessar kærur
fram að ganga ætti það að gefa
ríkissjóði um 70 til 80 þúsund
krónur í kassann. Meðal sektir
eru á bilinu 1000 til 1500 krónur
en ef ekið er hraðar en góðu hófi
gegnir mega menn búast við öku-
leyfissviptingu. Mesti hraði sem
mælst hefur með radarbyssunni
síðan henni var komið í skot-
stöðu er 138 km skammt fyrir
utan bæinn og var viðkomandi
ökumaður sviptur ökuleyfi um-
svifalaust. - ESE.
Tónleikar og skóla-
slit Tónlistarskólans
Á morgun, fimmfudaginn 17.
maí, verða síðustu tónleikar
Tónlistarskólans á Akureyri á
þessu starfsári og skólaslit
verða síðan í Akureyrarkirkju
á laugardag.
Tónleikarnir annað kvöld hefj-
ast kl. 20.30 og þeir verða í sal
Tónlistarskólans. Flytjendur
verða nemendur á efri stigum
hljóðfæraleiks. Skólaslitin hefjast
svo klukkan 15 á laugardag. Á
undan leikur Blásarasveit skólans
fyrir utan kirkjuna í 15-20 mínút-
ur, en einkunnaafhending fer
fram í skólanum að athöfn lok-
inni.
Veðurstofa íslands gaf
þær upplýsingar í morg-
un að í dag og á morgun
yrði norðanátt á
Norðurlandi og úrkoma
við sjávarsíðuna, og
nokkuð svalt. Á föstu-
dag verður hins vegar
hægviðri, breytileg átt
og þá á að fara að hlýna
ef upplýsingarnar frá í
morgun ganga eftir.
# Hugmynda-
ríkur ferða-
málafrömuður
Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum hyggst Örn Ingi,
myndlistarmaðurinn góð-
kunni (svona orðalag er al-
þekkt úr íþróttafréttum), hefja
rekstur veitingasölu í Lax-
dalshúsi í sumar. En hann
lætur ekki við það eitt sitja að
selja Akureyringum og ferða-
mönnum í bænum veitingar,
heldur verða myndlistasýn-
ingar gangandi í húsinu, auk
þess sem hann hyggst reka
útileikhús í tengslum við
húsið. Þá hefur einnig heyrst
að hann muni taka á leigu
stóran hraðbát og fara með
fólk í útsýnisferðir um Eyja-
fjörðinn. Margt er að skoða,
m.a. rústirnar að Gásum, þar
sem fyrsti verslunarstaður-
inn við Eyjafjörðinn reis.
Einnig er að finna huldu-
byggðir og ætlar hann að fá
kunnáttumenn í þeim
fræðum til að segja frá og
sýna fólki þær, að því er
sögur herma. Ef að líkum
lætur mun Örn Ingi ekki láta
staðar numið heldur má bú-
ast við ýmsu fleiru til að lífga
upp á bæjarbraginn. Hver
veit nema þessi starfsemi
Arnar Inga eigi eftir að verða
aðal ferðamanna-„attraksjón-
in“ á Akureyri þegarfram líða
stundir?
# Myndarlegir
Þingeyingar
Eins og kunnugt er hættu
„Foxararnir" við töku mynd-
arinnar „Enemy mine“ hér á
landi. Þetta olli miklum sár-
indum víða um land, ekki síst
meðal Þingeyinga, sem áttu
að leika statistahlutverk í
myndinni. Þeir fá því ekki að
sjá sjálfa sig á hvíta tjaldinu,
en um þetta segir í Víkurblað-
inu á Húsavík: „l' síðasta
mánuði kom hingað fulltrúi
frá kvikmyndafélaginu til að
velja nokkur eintök af Þingey-
ingum til að leika í myndinni.
Eftir því sem við komumst
næst munu þeir hafa átt að
leika einhverjar verur frá
öðrum hnetti. Þeir áttu að
vera um 190 cm á hæð, mjó-
slegnir með skúffukjaft, aula-
legt yfirbragð, útstæð eyru
og skósíða handleggi. Heyrst
hefur að fulltrúi kvikmynda-
félagsins hafi verið himinlif-
andi með árangur sinn í sýsl-
unni og fundið marga inn-
fædda sem falla undir áður-
nefnda lýsingu."