Dagur - 18.06.1984, Page 4
4 - DAGUR -18. júní 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÖSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI:. 24222
ÁSKRIFT KR. 150 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 22 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Árangur af verð-
bólgubaráttunni
Nú þegar þess hefur verið minnst með viðeig-
andi hátíðahöldum um land allt að íslenska
lýðveldið er orðið 40 ára er ekki úr vegi að
staldra aðeins við og athuga hvað ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar hefur orðið
ágengt í baráttunni við verðbólguna frá síð-
asta þjóðhátíðardegi. Það má alls ekki gleym-
ast að ein höfuðforsendan fyrir áframhald-
andi sjálfstæði íslensku þjóðarinnar er að
hægt sé að halda verðbólgunni í skefjum.
Áframhaldandi viðskiptahalli og aukin erlend
skuldasöfnun gætu orðið íslensku þjóðinni
erfiður ljár í þúfu.
Erlendur Einarsson forstjóri Sambandsins
ritar ávarp í Ársskýrslu Sambandsins og þar
fjallar hann um árangur ríkisstjórnarinnar og
framtíðarhorfur og segir m.a.:
„Á síðari hluta ársins 1983 sást í fyrsta
skipti í langan tíma árangur af baráttunni við
verðbólguna. Má segja að það hafi verið á ell-
eftu stundu, því að bæði var þjóðarbúið komið
í mjög alvarlega stöðu vegna erlendrar
skuldasöfnunar og eins blasti víða við óvið-
ráðanlegur vandi í atvinnurekstrinum. Slíkt
hefði óhjákvæmilega leitt til stöðvunar
margra fyrirtækja, og mikið atvinnuleysi hefði
fylgt í kjölfarið ef ekkert hefði verið aðhafst.
Ekki verður þó sagt að við íslendingar
séum komnir fyrir rætur efnahagsvanda okk-
ar því að enn er fyrir hendi mikill vandi, eink-
um í sjávarútvegi og landbúnaði. í sjávarút-
veginum urðum við að taka afleiðingum stór-
fellds aflasamdráttar í botnfiskveiðum og
áframhaldandi aflabrests á loðnuvertíðinni,
sem leitt hefur til mjög erfiðrar rekstrar- og
greiðslustöðu margra sjávarútvegsfyrirtækja.
í landbúnaðinum hefur mjög erfitt árferði
sl. þrjú ár, samfara rýrnandi þjóðartekjum tvö
ár í röð, bitnað mjög á tekjum bænda, sem
aftur hefur víða skapað erfiðleika fyrir kaup-
félögin. Auk þess hafa bændur tekið á sig
kjaraskerðingu með samdrætti í framleiðslu
búvara, m.a. með 20% skerðingu á sauðfjár-
rækt. Vandinn í þessum tveimur höfuðat-
vinnugreinum þjóðarinnar er ólíkur í eðli sínu,
og við honum verður því að bregðast með
mismunandi hætti. Er vonandi að úr rætist
þótt það geti kostað róttækar breytingar í
ýmsum greinum." ÁM.
Jón G. Sólnes afhendir Erni Inga lyklana að Laxdalshúsi.
„Petta voru hlýjar móttökur, það heimsóttu okkur um 1000 manns um helgina, en okk-
ur þótti slæmt að vera ekki betur í stakk búin til að taka á móti öllu þessu fólki, því það
vantar enn tæki sem týndust í kerfinu," sagði Örn Ingi, vert í Laxdalshúsi, í samtali við
Dag.
Laxdalshús, elsta hús Akureyrar, eða eitt það yngsta, eftir því hvernig á það er litið,
þar sem flestir viðir hússins hafa verið endurnýjaðir, var formlega opnað um helgina eft-
ir gagngerðar endurbætur. Par var mikið um dýrðir, leik, söng og hljóðfæraslátt, sem
gestir kunnu vel að meta. Að sögn Arnar verður húsið rekið sem kaffihús fram yfir
helgi, þar sem tækjakostur háir eldhúsinu enn sem komið er. En í gær var þjóðlegt kaffi
með lummum og pönnukökum.
Á laugardaginn var Þyrmskviða sýnd í uppfærslu leikhópsins Svartfugls og Edvard
Frederiksen og félagar hans héldu uppi léttri sveiflu. Einnig kom Jón Árnason, harmon-
ikuleikari úr Olafsfirði í heimsókn og að sjálfsögðu með nikkuna. Þá flutti Erla Sigur-
björnsdóttir, leikari frá Höfn í Hornafirði gamanmál.
Þá eru hestvagnarnir komnir til bæjarins og var annar þeirra reyndur á sunnudaginn.
Hér er um að ræða vagna fyrir tvo hesta, ætlaða fyrir fimm farþega. Þeir verða til reiðu
í útsýnisferðir um bæinn og bækistöð þeirra verður við Laxdalshús. Þar verður einni
bækistöð hraðbáts, sem hægt verður að fá í skemmtisiglingar um fjörðinn.
„Ég finn fyrir góðum anda í húsinu, innan þess sem utan og ég held að öllum þyki svo-
lítið vænt um það,“ sagði Örn Ingi. Myndirnar hér á síðunni eru teknar á opnunarhátíð
Laxdalshúss á laugardaginn af ljósmyndara Dags, Kristjáni G. Arngrímssyni. - GS. Finnsson seldi merki Laxdals-
Hreiðar Jónsson er fæddur í Lax-
dalshúsi og var því sæmdur merki
hússins.
„Tríó Laxdalshúss“, en meðlimir þess ganga jafnframt um beina.
Jóhann Már og Guðjón Pálsson mættu á svæðið.
Sigfríður Þorsteinsdóttir lýsti sögu
hússins.