Dagur - 18.06.1984, Síða 9
Mljp
18. júní 1984- DAGUR-9
Árver hf. á Árskógsströnd — Árver hf. á Árskógsströnd
Eins og við skýrðum frá I Degi sl. föstudag hefur fyrirtækið Árver hf. hafið rækjuvinnslu
á Árskógssandi, en það fyrirtæki er eign á annað hundrað einstaklinga og fyrirtækja í Ár-
skógsstrandarhreppi. í fyrirtækinu munu starfa um 30 manns og er það gífurleg lyftistöng
fyrir atvinnulíf í hreppnum. Þar leggja nú upp fimm rækjubátar og er okkur bar að garði
sl. miðvikudag var vinnsla í fullum gangi. Fyrirtækið er nú til húsa í leiguhúsnæði fyrir-
tækisins Sólrúnar en áformað er að Árver hf. verði komið í eigið húsnæði innan tveggja
ára. Við spjölluðum við starfsfólk hjá Árveri hf. á miðvikudaginn.
„Breytir miklu að geta
stundað vinnu heima“
- segir Dagmar Kristjánsdóttir
„Dagmar Kristjánsdóttir var
önnum kafin við starf sitt, en
hún sér um það að taka rækj-
una þegar hún hefur verið fryst
„Ætli manni verði ekki að lít-
ast vel á það að fara á rækjuna.
Við erum svo til búnir með
þorskkvóta okkar svo það er
ekki um neitt annað að ræða,“
sagði Ingvar Guðmundsson
skipstjóri á Arnþóri frá Ár-
skógssandi er við hittum hann
um borð í bátnum þar á
staðnum.
Ingvar var ásamt skipverjum
sínum að gera klárt um borð sl.
miðvikudag því ætlunin var að
halda út þá um kvöldið á rækju-
veiðar. Hann sagði að afli rækju-
og vigta hana í neytenda-
pakkningar. Við trufluðum
hana skamma stund við starf
sitt.
bátana þar á staðnum að undan-
förnu hefði verið svona þokka-
legur. „Þeir eru að fá þetta upp í
6 tonn eftir fjóra sólarhringa,“
sagði hann.
- Hvernig líst þér á að hafa
fengið þessa rækjuvinnslu
hingað?
„Mjög vel, það var geysilega
gott fyrir þá sem hér búa að fá
þetta fyrirtæki í gang, fólk hefur
mikið þurft að sækja vinnu í
önnur byggðarlög og nú minnkar
það mjög verulega," sagði Ingv-
ar.
„Ég hef unnið í Hrísey tvö sl.
sumur vegna þess að enga vinnu
hefur verið að hafa hér fyrir mig
og því líst mér stórvel á að fá
þetta fyrirtæki hér. Það breytir
miklu að geta stundað vinnu
heima en ég hef dvalið hjá skyld-
fólki í Hrísey og verið í skóla á
veturna. Ég er mjög ánægð með
þetta,“ sagði Dagmar.
Guðlaug Carlsdóttir.
„Þurfum
að vera
hand-
fljótar“
- segir Guðlaug
Carlsdóttir
„Við þurfum að vera hand-
fljótar og hafa augun vel opin,“
sagði Guðlaug Carlsdóttir en
hún er ein þeirra sem sjá um
handpillun og snyrtingu á
rækjunni eftir að hún hefur
komið úr pillunarvélunum.
„Ég hef unnið í fiski áður en
ekki við rækjuvinnslu og mér lík-
ar þetta betur en önnur fiskvinna
sem ég hef kynnst. Það er líka
gaman að vinna rækju sem mað-
urinn minn hefur veitt, hann heit-
ir Elvar Jóhannesson og er skip-
verji á Víði Trausta."
- Guðlaug sagði að hún hefði
unnið í Hrísey sl. vetur vegna
þess að ekki var vinnu að hafa
heima, en hún er frá Hauganesi.
„Þetta fyrirtæki breytir miklu,“
sagði Guðlaug.
Dagniar Kristjánsdóttir.
„Erum búnir
með kvótann“
- segir Ingvar Guðmundsson
skipstjóri á Arnþóri
Brynjar Baldvinsson
„Mér líkar
þetta vel“
- segir Brynjar Baldvinsson
„Ég er nú bara að prófa þetta en
annars er ég sjómaður,“ sagði
Brynjar Baldvinsson, en hann er
„pillari" hjá Árveri ásamt Sveini
Gunnlaugssyni. Starf pillara felst
í því að koma rækjunni fyrir í
pillunarvélunum og sjá um að
þær gangi eðlilega. Eitt mikilvæg-
asta starfið í vinnslunni að sögn
Kristins Haraldssonar verkstjóra.
„Mér líkar þetta starf vel,“
sagði Sveinn. „Ég veit þó ekki
hvort ég ílendist í því, en þessi
verksmiöja er geysileg lyftistöng
fyrir atvinnulífið hérna í
hreppnum, það er ekki vafamál.“
„Mér líst vel
á þetta hér“
- segir Kristinn Haraldsson verkstjóri
„Það voru smá byrjunarerfið-
leikar eins og við var að búast
þar sem fólkið er óvant þessari
vinnslu og eins hitt að hér er
unnið í nýjum tækjum, en nú
erum við að komast yfir byrj-
unarerfiðleikana og mér líst
mjög vel á þetta,“ sagði Krist-
inn Haraldsson verkstjóri hjá
Árveri hf. er við ræddum við
hann.
Kristinn hefur séð um uppsetn-
ingu tækjanna hjá Árveri og mun
stýra rekstri þess fram eftir
sumri. Annars starfar hann sem
verkstjóri hjá Rækjuvinnslu
O.N. Olsen á Isafirði og er í leyfi
þaðan.
„Mér líst mjög vel á þetta
hérna. Tækin eru af fullkomn-
ustu gerð, og fólkið er mjög
samviskusamt og leggur greini-
lega áherslu á það að skila góðri
vinnu. Ég held því að ástæða sé
til bjartsýni varðandi framtíð-
ina,“ sagði Kristinn.
Kristinn Haraldsson.
Árver hf. á Árskógsströnd — Árver hf. á Árskógsströnd: