Dagur - 25.07.1984, Side 1
67.árgangur
Akureyri, miðvikudagur 25. júlí 1984
84. tölublað
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR
1 AKUREYRI
CII flUIII
Alagningaskrá í Norðurlandsumdæmi eystra lögð fram á morgun:
Læknar og lyfsalar
hæstu gjaldendur
- Kaupfélag Eyfirðinga með langhæstu gjöldin af félögum
Nýrað
tekið úr
Ingva Steini
Nýrað sem grætt var í Ingva
Stein Ólafsson í byrjun mánað-
arins, var tekið úr honunt aftur
síðastliðinn föstudag.
Þrátt fyrir að ígræðslan hafi
tekist vel og notuð hafi verið ný
lyf sem þóttu lofa góðu, þá hafn-
aði líkami drengsins nýranu, sem
var úr móður hans. Aður hafði
hann hafnað nýra úr föður
sínum.
Ingvi Steinn hefur verið á
sjúkrahúsi í Boston í Bandaríkj-
unum síðan skömmu fyrir jól og
foreldrar hans eru ytra með
honum. Eins og sakir standa er
mál hans í biðstöðu, en læknar
Ingva Steins álíta ekki möguleika
á annarri aðgerð á næstunni.
_____________-GS/KGA
Harður
árekstur
Mjög harður árekstur varð á
gatnamótum Hörgárbrautar og
Undirhlíðar um hádegið í gær.
Þar var bíl ekið inn á Hörgár-
brautina í átt fyrir bíl sem ók þá
götu í norður. Varð árekstur bíl-
anna mjög harður og skemmdust
þeir verulega. Slys urðu hins veg-
ar ekki á fólki.
Samkvæmt álagningaskrá Norður-
landsumdæmis vestra 1984 sem
lögð verður fram í dag er heildar-
fjárhæð álagðra gjalda samtals kr.
295.981.127. Skiptingin er þannig
að félög greiða 57.009 milljónir en
einstaklingar 238.972 milljónir.
Meðaltalshækkun álagðra gjalda
Álagningaskrá opinberra
gjalda í Norðurlandskjördæmi
eystra var lögð fram í morgun.
Samkvæmt henni hefur 744
milljónum, 707 þúsundum og
237 krónum verið jafnað niður
á gjaldendur samkvæmt fram-
tölum. Á 18.509 einstaklinga
hafa verið lagðar 605.959.273
kr. og er það 30.92% hækkun
frá fyrra ári. Á 1.187 börn er
lagðar 1.720.061 kr. og 785 fé-
Iög fá 167.027.903 kr. í sinn
hlut, en það er 56.17% hækk-
un frá fyrra ári. Meðaltaks-
er 40,21% hjá einstaklingum en
54,2% hjá félögum.
Hæstu gjaldendur félaga eru
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðár-
króki sem greiðir 7.210 milljónir,
Þormóður Rammi Siglufirði
2.995 milljónir, Meleyri h.f.
Hvammstanga 2.590 milljónir,
hækkun álagðra gialda er
35.45%.
Hæstu gjaldendur af einstakl-
ingum eru Oddur C. Thoraren-
sen, lyfsali á Akureyri, en gjöld
hans eru 1.500.345., þar af
420.160 kr. í útsvar og aðstöðu-
gjöld. Dánarbú Ólafs Ólafsson-
ar, lyfsala á Húsavík, er annar
hæsti gjaldandinn með 853.739
kr. í gjöld, en síðan kemur Gauti
Amþórsson, yfirlæknir á Akur-
eyri, með 764.854 kr. í gjöld, þar
af 165.400 kr. í útsvar og að-
stöðugjöld. Næstir koma, Sigurð-
Kaupfélag Húnvetninga Blönd-
uósi 2.565 milljónir og Kaupfélag
V.-Húnvetninga Hvammstanga
1.664 milljónir.
Sigurður Jónsson lyfsali Sauð-
árkróki greiðir hæst gjöld ein-
staklinga 602 þúsund, Sveinn
Ingólfsson framkvæmdarstjóri
ur K. Pétursson, læknir Akur-
eyri, Baldur Jónsson, læknir á
Akureyri, Teitur Jónsson, tann-
læknir á Akureyri, Jón Aðal-
steinsson, Iæknir á Húsavík, Óli
Þ. Ragnarsson, lyfsali á Húsavík,
Sigurður Ólason, læknir á Akur-
eyri, Girish B. Hirlekar, læknir
á Akureyri, Júlíus Gestsson,
læknir á Akureyri, Baldur Ingi-
marsson, lyfjafræðingur á Akur-
eyri, Elías I. Elíasson, sýslumað-
ur og bæjarfógeti og 14. hæsti
gjaldandinn er Halldór Baldurs-
son, læknir.
Skagaströnd 597 þúsund, Er-
lendur Hansen rafvirkjameistari
Sauðárkróki 570 þúsund, Jón
Dýrfjörð vélvirki Siglufirði 521
þúsund og Guðjón Sigtryggsson
skipstjóri Skagaströnd 519
þúsund.
Kaupfélag Eyfirðinga á Akur-
eyri ber lang hæst gjöld af fé-
lögum, samtals 29.712.191 kr.
Næst kemur Manville hf. á Húsa-
vík með 8.443.985 kr. og Útgerð-
arfélag Akureyrar hf. er þriðji
hæsti gjaldandinn af félögum
með 6.803.959 kr. Síðan koma
Slippstöðin hf., Verksmiðjur
SÍS, Kaupfélag Þingeyinga og
Höldur sf. -GS
Glerárkirkja:
Híbýli hf.
með lægsta
tilboðið
„Tilboðin eru í athugun hjá
Verkfræðiskrifstofu Norður-
lands og þaðan koma niður-
stöður til okkar. Við munum
síðan taka það fyrir strax
hvaða tilboði verður tekið,“
sagði Ingi Þór Jóhannsson for-
maður sóknarnefndar Glerár-
prestakalls, en tilboð í bygg-
ingu 1. áfanga Glerárkirkju
hafa nú verið opnuð.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp
á 3 milljónir, 458 þúsund og 740
krónur, og lægsta tilboðið sem
kom frá Híbýli h.f. hljóðaði upp
á 76,3% af þeirri tölu eða kr.
2.640.455. SS-Byggir var með til-
boð upp á kr.2.688.500 eða
77,7%. Aðalgeir og Viðar með
kr 2.780.910 eða 80,4%, Norður-
verk með kr. 3.088.865 eða
89,3% og Ýr með kr. 3.329.235
eða 96,3%.
Að sögn Inga Þórs er áformað
að hafist verið handa við verkið
strax og samningar hafa tekist við
þann aðila sem það á að vinna og
skilafrestur verði 1. mars. Um er
að ræða uppsteipu á neðri hæð og
plötu. í ofangreindum tölum er
ekki innifalin steypa, en hana
kaupir sóknarnefndin beint.
Verð steypunnar er eitthvað á
aðra milljón króna að sögn Inga
Þórs. gk-.
Álagningaskrá í Norðurlandsumdæmi vestra:
Kaupfélag Skagfirðinga
hæsti gjaldandi félaga