Dagur - 29.08.1984, Blaðsíða 12
Akureyri, miðvikudagur 29. ágúst
RAFGEYMAR
[ BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VIÐHALDSFRÍIR
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Játaði
fljótt
og vel
Bílvelta var.ð við austustu brúna
yfir Eyjafjarðará nærri flugvelli
um helgina. Pegar lögreglan kom
á staðinn var ökumaður á bak og
burt, en fljótlega fannst hann og
viðurkenndi að hafa ekið undir
áhrifum áfengis.
F>á var um helgina brotist inn í
rakarastofu í Strandgötu á Akur-
eyri og þaðan stolið rakvélum og
myndavél. Greiðlega gekk að
hafa upp á þeim er þar var að
verki og játaði hann bæði fljótt
og vel.
Grímsey:
Vantar
vindinn
„Hún mallar fínt, en það vant-
ar bara meiri vind,“ sagði
Steinunn Sigurbjörnsdóttir í
Grímsey er við spurðum hana
hvernig ástatt væri með'vind-
mylluna þar á bæ.
„Það þarf þó varla að óttast
það þegar kemur fram á haustið
og veturinn að það verði ekki
nægur vindur hérna. Það virðist
loksins allt vera í fínu lagi með
relluna, hún hefur snúist nokkra
dagparta síðan gengið var frá
henni og hún var þá búin að hita
í yfir 20 gráður vatnið.
Hún virðist því loksins yera
komin í gott lag enda er búið að
vanda mikið til þessa verks. Það
komu margir gallar í ljós sem
búið er að laga svo nú vantar
ekkert nema vindinn. Ég veit þó
ekki hvort sjómennirnir ! okkar
eru á sama máli,“ sagði Stéinunn.
„Hann var geipifjörugur í
dræt t i,“ sagði Guðmundur
Hrafn Brynjarsson um makrfl
sem hann veiddi við bryggju á
Oddeyrartanga á sunnudag-
inn. Makrfllinn var 44 cm
langur og 860 grömm að þyngd
og er einn sá stærsti sem veiðst
hefur hér við land.
Þetta er sjaldgæfur fiskur við
ísland, helst verður hans vart í
torfum og hafa nokkrir veiðst úr
slíkum. Segja má að einsdæmi sé
að makríll veiðist við bryggju hér
á landi, en merkilegra er þó
hversu stór þessi fiskur var.
- KGA.
Guðmundur Hrafn með makrílinn. Þetta er óneitanlega fallegur fiskur.
Mynd: KGA.
Veiddi makríl
á stöng
- einn þann lengsta sem veiðst
hefur hér við land
Hátíðahöld í Ólafsfirði:
Troðfullt í
Tjarnarborg
„Þetta hefur gengið alveg
Ijómandi vel fram að þessu og
ég vona að það verði svo
áfram,“ sagði Guðbjörn Am-
grímsson formaður afmælis-
nefndarinnar í Ólafsfirði, en
Ólafsflrðingar halda nú mikla
hátíð og fagna 100 ára afmæli
byggðar í Olafsfjarðarhorni.
Hátíðahöldin hófust á laugar-
dag með leik Leifturs og Þórs frá
Akureyri í knattspyrnu og sigraði
1. deildarlið Þórs 2:1 í nokkuð
fjörugum leik. Hátíðin var svo
formlega sett á sunnudag og þá
um kvöldið var skemmtun í
Tjarnarborg og „alveg troðfullt
út úr dyrum“ eins og Guðbjörn
orðaði það.
Guðbjörn tjáði okkur að mikið
hefði verið af aðkomufólki í
Ólafsfirði, margir burtfluttir
Ólafsfirðingar hefðu mætt á stað-
inn og sumir þeirra komið langt
að. Hátíðahöldin í tilefni af-
mælisins standa yfir fram á að-
faranótt sunnudags og er skipu-
lögð dagskrá á hverj u kvöldi.
gk--
Skagaströnd:
Ný gerð
toghlera
Vélaverkstæði Karls Berndsen
á Skagaströnd hefur hannað og
hafið framleiðslu á nýrri gerð
rækjutoghlera.
Toghlerar þessir hafa fjórar
opnanlegar raufar og eru þeir
því mun léttari í drætti og hífingu
en venjulegir hlerar. Vinna um
borð í ræicjubátum gengur fljótar
fyrir sig en ella. Þessir toghlerar
frá Karli Berndsen vinna svipað
og flugvélavængir, þeir mynda
einhvers konar sig fyrir aftan sig
og hleypa sjónum í gegn. Sagði
Karl að byrjað hefði verið á
þessu á sl. vetri og væri eftirspurn
mikil. Mest hefðu þeir þó selt til
bátanna við Flóann og á Snæfells-
nes. - mþþ.
Hinn nýi toghleri sem framleiddur er á Skagaströnd.
Næsta sólarhringinn
verður norðaustangola
eða hægviðri í fyrstu og
norðaustangola eða
kaldi á miðum og ann-
esjum síðar í dag. Það
verður skýjað og skúrir
á stöku stað. Á morgun
verður svipað veður,
kannski heldur kaldara.
# Allar
túttubyssur
í ruslið!
Einhvers staðar stendur að
aldrei sé góð vísa of oft
kveðin og því vill S&S taka
undir með móðurinni sem
hringdf í Lesendahornið sl.
mánudag og var að vekja at-
hygli á þeirri hættu sem staf-
ar af leik barna með túttu-
byssur. Sonur hennar varð
fyrir því að fá skot úr túttu-
byssu í annað augað með
þeim afleiðingum að hann
missti sjónina á auganu. Sá
sem skaut ætlaði ekki að
meiða neinn en samt fór sem
fór. Því er það vinsamleg
ábending til allra barna sem
eiga túttubyssur að gefa
ruslafötunni túttubyssurnar
áður en eitthvert óhapp
hendir. Pabbar og mömmur
mega gjarnan hjálpa til við út-
rýminguna á túttubyssunum.
# Júving
olíufélagið
Frá því að okkar ástkæri Dall-
asþáttur hvarf af skjánum á
síðastliðnum vetri hafa sumir
vart gengið heilir til skógar,
enda hætti þátturinn á svo
viðkvæmum tíma. Miss Ellý
var að ná sér upp úr heilmiklu
þunglyndi og menn horfðu
fram á bjartari tíma. Þá var
allt rifið frá manni og yfirvöld
gáfu i skyn að við fengjum
ekkert meira að sjá. Við yrð-
um bara að fylgjast með i
gegnum slúðurdálka Reykja-
vfkurblaðanna, en þau hafa
verið nokkuð iðin við að
segja frá gangi mála á
Sáðfork. Við höfum t.d. frétt
að SuEllen hafi látið skrifa
sig út úr þáttunum og hverfur
hún að sjónarsviðinu á mjög
svo hetjulegan hátt. Eldur
kemur upp á búgarðinum og
sú stutta gerir sér Iftið fyrir
og bjargar JoðErrum í tveim-
ur eintökum, en verður sjálf
eldinum að bráð. Því er þetta
rifjað upp hér, að nú geta
landsmenn fengið Dallas-
þætti á videóspólum í
ákveðnu olíufélagi. Gárung-
arnir margfrægu voru ekki
lengi að skira viðkomandi
olíufélag. Júving olfufélagið
skal það heita. Videóeigend-
ur hugsa hlýtt til vetrarins, að
sjá litlu barbýdúkkurnar og
fylgjast með viðburðarrfku
Iffi þeirra.