Dagur - 03.09.1984, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 3. september 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI:. 24222
ÁSKRIFT KR. 150 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 22 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Afnám
launaskattsins
Ráðagerðir eru nú uppi um það að afnema tekju-
skatt af almennum launatekjum. Svo sem vonlegt-
er hafa skoðanir manna verið skiptar á þessum
hugmyndum, ef til vill fyrst og fremst vegna
þess að það er ekki sjálfgefið hvaðan ríkið á að
fá þær tekjur sem það verður af með því að af-
nema launaskattinn. Menn hafa einnig litið til
þess að með tekjuskattinum hefur verið hægt að
koma við tekjujöfnun í þjóðfélaginu, þar sem
hann er stighækkandi með auknum tekjum, en
ekki eins og útsvarið, sem er fast hlutfall af
tekjum, burtséð frá því hvort þær eru háar eða
lágar.
Þrátt fyrir þessa vankanta virðist svo sem
þeim hugmyndum, að afnema tekjuskattinn af
almennum launatekjum, vaxi fylgi. Ástæðan er
fyrst og fremst sú, að þrátt fyrir þær jafnréttis-
og jafnaðarhugmyndir sem að baki honum búa
að nokkru leyti, hefur þessi skattur verið ákaf-
lega ósanngjarn.
Fjöldi vel stæðra einstaklinga hefur komist
hjá því að greiða þennan skatt, á meðan fast-
launafólk á hinum almenna vinnumarkaði hefur
greitt tekjuskattinn samviskusamlega. Þar er
engrar undankomu auðið, því fyrirtækin draga
skattinn af launum fólks áður en þau koma til
útborgunar.
Vegna þessarar skattheimtu hefur þróast mik-
il svartamarkaðsstarfsemi á ýmsum sviðum
vinnumarkaðarins. Allir þekkja dæmi um það, að
þjónusta af einhverju tagi er boðin á lægra verði
ef samkomulag næst milli þess sem veitir þjón-
ustuna og hins sem kaupir hana um að gefa ekk-
ert upp um viðskiptin til skattayfirvalda. Sá sem
selur þjónustuna losnar þannig við að greiða
söluskatt og þarf ekki heldur að gefa upp tekjur
sínar af viðskiptum. Þeir sem hafa tekjur sínar
af öðru en föstum launum hafa með margvís-
legum hætti getað svikið þær undan skatti og
þetta er á allra vitorði.
Tekjuskattur af almennum launatekjum ein-
staklinga er ekki ýkja stórt hlutfall af heildar-
tekjum ríkisins, rétt ríflega tíundi hluti, á meðan
söluskattur nemur þriðjungi af heildartekjum
ríkisins. Því hefur jafnvel verið haldið fram að með
því að herða söluskattsinnheimtuna mætti auka
tekjur ríkisins um svipaða upphæð og nemur af-
námi launaskattsins. Ef til vill þyrfti að hækka
söluskattinn eitthvað lítillega til að vinna upp
tekjutap ríkissjóðs. Tekjujöfnun er eftir sem
áður hægt að ná með persónuafslætti og barna-
bótum.
í hnotskurn er málið það, að þeir sem best eru
stæðir losna við tekjuskattinn og því mismunar
hann þegnunum. Því ber að fagna þeim hug-
myndum að launaskatturinn verði afnuminn í
áföngum.
Það var fjölmenni í grillveislunni, enda kræsingar á boðstólum
Myndir: KGA
„Gengið framar
björtustu vonum“
- segir Guðbjörn Arngrímsson framkvæmda-
stjóri hátíðahaldanna á Ólafsfirði
Síðastliðna viku hafa Ólafs-
firðingar haldið upj) á 100 ára
afmæli byggðar í Olafsflrði og
var eitthvað um að vera á
hverju kvöldi alla vikuna.
Blaðamenn Dags komu við í
Ólafsfirði sl. föstudag og fylgd-
ust með gangi mála. Þótt ótrú-
legt megi virðast hittum við
formann undirbúningsnefndar
afmælishátíðarinnar Guðbjörn
Arngrímsson að máli, en hann
var mjög svo önnum kafinn
maður. Hann þeyttist um allan
fjörðinn að útvega hluti og
undirbúa heilmikla grillveislu
er halda átti um kvöldið.
Við spurðum Guðbjörn fyrst
hvernig hefði gengið.
„Aldeilis hreint ljómandi vel,
þátttaka hefur farið fram úr okk-
ar björtustu vonum. Ég hef orðið
var við að Ólafsfirðingar búsett-
ir á Akureyri og í Eyjafirði hafa
keyrt hingað á kvöldin og tekið
þátt í hátíðahöldunum með okk-
ur og það hefur verið óskaplega
gaman. Á mánudagskvöld vorum
við með harmonikukvöld sem
tókst frábærlega vel. Áhorfendur
um 150 og mikið fjör. Á eftir var
dansað og menn skemmtu sér
konunglega. Á þriðjudagskvöld
var kvöldvaka í umsjá slysavarn-
ardeildar kvenna, kirkjukórsins
og menningarmálanefndar. Hún
var vel heppnuð og viðtökur
áhorfenda frábærar. Síðan var
það á miðvikudagskvöldið sem
algjört aðsóknarmet var sett í
Tjarnarborg er þar var kabarett
sem Jón B. Gunnlaugsson, Siggi
Helgi og leikfélagið sáu um.
Þetta voru leiknir brandarar,
stuttir grínþættir, leiknar smá-
sögur og yfirleitt allt það sem
ekki gengur inn á hefðbundin
menningarkvöld. Þetta var ákaf-
lega skemmtilegt og eflaust lengi
í minnum haft. Pað þurftu margir
að standa því sæti voru ekki nóg,
en þetta tókst ljómandi vel og
menn voru ánægðir. Á fimmtu-
dagskvöldið voru kvikmynda-
sýningar, kl. 5 sýndum við Foot-
loose og kl. 9 var það stórmyndin
Ég lifi. Ég var svolítið óánægður
með hversu aðsókn að þeirri
mynd var léleg, en það getur staf-
að af því að menn hafi verið bún-
ir að sækja skemmtanir öll kvöld-
in í vikunni og hafi viljað vera
heima eitt kvöld.“
- Hvernig gekk undirbúning-
urinn?
„Það verður að koma fram að
ég hef ekki staðið einn að undir-
búningi, með mér í nefndinni eru
tvær ágætar konur, Klara Arin-
björnsdóttir og Guðrún E. Víg-
lundsdóttir, án þeirra væri ég lið-
ið lík. Þá má nefna að ýmis fé-
lagasamtök hafa lagt á sig
óhemju mikla vinnu, við þrjú
höfum ekki gert allt. Undirbún-
ingur stóð í alllangan tíma, tvo
mánuði eða svo, þannig að mikil
vinna liggur að baki þessum há-
tíðahöldum, enda eru þetta
stærstu og mestu hátíðahöld sem
Ólafsfirðingar hafa staðið í.
Það get ég sagt ykkur að það er
mikið andlegt álag að standa í
þessu, sérstaklega í dag, því aðal-
hátíðin er í kvöld (föstudag).
Maður tautar fyrir munni sér:
Hvernig verður veðrið? Ef hann
fer að rigna, þá fellur dagurinn
algerlega. í kvöld á að vera grill-
veisla og hana þýðir ekkert að
færa inn ef rignir, nú og flugelda-
sýningin fellur þá einnig niður,
þannig að við erum alveg á
nálum. En vonum það besta.“
Við sáum okkur ekki fært að
trufla Guðbjöm lengur, það var í
nógu að snúast. En við getum
upplýst lesendur Dags um það að
föstudagskvöldið tókst ákaflega
vel í Ólafsfirði. - mþþ.
Guðbjörn Arngrímsson mátti vart vera að því að stilia sér upp fyrir mynda-
töku.