Dagur - 16.11.1984, Síða 3
16. nóvember 1984 - DAGUR - 3
Blóm og
kransar
ajþakkaðir
Sagan sem ég sagði ykkur í síðustu
viku, af slysförum „fyrir handan",
virðist hafa vakið víðáttumikla at-
hygli. Að minnsta kosti hafa blóm og
kransar streymt heim allt frá því að
blaðið kom út. En ekki til mín, ó,
sei, sei, nei; blómahafið hefur allt
verið eignað konunni - og með þeim
hafa ýmist fylgt hluttekningar- eða
samúðarkveðjur. „Ég hef nú lengi
vitað að hann væri tæpur,“ stóð á
einu kortinu, „en að hann væri orð-
inn svona slæmur datt mér ekki í
hug.“ „Aumingja stúlkan, það er
greinilegt að þú hefur þinn kross að
bera,“ sagði á öðru fallegu korti frá
gamalli guðhræddri konu í Innbæn-
um, sem sendi krans. „Geta læknarn-
ir ekkert gert við þessu? Ja, það veit
ég að honum Guðmundi Karli hefði
ekki orðið skotaskuld úr því að lemja
þessa vitleysu úr manninum. Og að
virðulegt blað eins og Dagur skuli
láta það eftir honum að birta þetta
rugl,“ sagði önnur gömul kona sem
lét sig nú hafa það að hringja, bless-
unin.
Já, það var greinilegt að þeir virt-
ust ekki margir sem lögðu trúnað á
sögu mína, en fleiri voru vissir um að
ég væri nú loksins orðinn algerlega
„klikk“, konu minni til mikillar
smánar. Samt sagði ég þessa sögu nú
sannleikanum samkvæmt - eins og
mér einum er lagið - nema hvað eitt-
hvað var örlítið ýkt og annað logið!
En það var saklaust.
Gunnar
ja-veíl
„Nú dugir sko ekkert helvítis ja-
vell,“ sagði Gunnar Ragnars, for-
stjóri Slippstöðvarinnar, þegar hann
var spurður um atvinnuhorfur hjá
stöðinni í samtali við Dag. Og Gunn-
ar lét ekki standa við orðin tóm, því
ráðamenn í Slippstöðinni hafa sópað
að sér verkefnum á undanförnum
vikum, enda vita útgerðarmenn að
það er ekkert fúsk á handbragði
Slippstöðvarmanna. En þetta „ja-
vell“ Gunnars var gripið á lofti í
Slippstöðinni og glymur nú þar frá
því snemma að morgni fram á kvöld.
En þó það kæmi nú ekki fram í
viðtalinu við Gunnar, þá vitnaði
hann í fræga sögu af „ja-vell“ setn-
ingu. Það var nefnilega þannig, að
eitt sinn kom virðuleg frú, vel yfir
miðjum aldri, til Péturs heitins Jóns-
sonar, læknis á Akureyri. Kvartaði
frúin sáran yfir manninum sínum,
hann væri varla orðinn til nokkurs
gagns í rúminu. Hafði frúin um þetta
mörg orð og lýsti getuleysi mannsins
grannt. Þegar ræðu frúarinnar lauk
sagði Pétur stundarhátt, „ja-vell“
eins og honum var gjarnt. Þá sagði
frúin í forundran: „En nú dugir sko
ekkert helvítis ja-vell, Pétur læknir,
þú verður að gera eitthvað frekar í
málinu.“
Lœknaglens
í bók frá
Skjaldborg
Á næstunni kemur á markað bók
sem hefur að geyma læknabrandara,
sem Ólafur Halldórsson, læknir, hef-
ur safnað saman, en Óttar Einarsson
búið til prentunar. Satt best að segja
á Dagur stóran hluta í þessari bók.
Þannig var, að ég sagði einhvern
tíma frá því í slúðurdálki, að slík bók
væri í smíðum og sagði Ólaf smiðinn.
Til að byrja með vildi Ólafur víst
ekkert kannast við verkið, en þetta
varð til þess að læknabrandararnir
streymdu til hans í stríðum straum-
um og úr varð bók.
Guðmundur heitinn Karl var
læknirinn minn. Ég fór eitt sinn til
hans og kvartaði yfir svimaköstum,
sem angruðu mig ef ég reisti mig
snöfurlega á fætur - (sem ég hef pass-
að mig á að gera ekki síðan). Pessi
svimaköst voru stundum svo slæm,
að ég steinlá. Sjúkdómsgreining
Guðmundar var á þessa leið: - Það
er svo sem ekki að undra, þú ert svo
andskoti stór drengur. Þess vegna er
blóðið svona lengi til höfuðsins! Eftir
þessi orð varð ég alheill og hef ekki
fundið fyrir svima síðan.
Þessi skemmtilega mynd hér aö ofan
er sögulegur minjagripur, sem ég
fann í rusli. Hún mun vera tekin 17.
júní eitt árið, að líkindum nálægt
1960, og sýnir lið akureyrskra
blaðamanna og leikara, sem áttust
við í knattspyrnu. Eins og að líkum
lætur var leikur liðanna eitt aðal-
skemmtiatriði dagsins. Á efri mynd-
inni eru blaðamennirnir, talið frá
vinstri: Þorsteinn Jónatansson, Sig-
urbjörn Bjarnason, Ingólfur Gunn-
arsson, Sverrir Pálsson, Árni Bjarn-
arson, Halldór Blöndal, Vilhjálmur
Vilhjálmsson, Gísli Bragi Hjartar-
son, Gísli Jónsson, Jón Samúelsson
og Jakob Ó. Pétursson.
í liði leikaranna eru f.v.: Kjartan
Ólafsson, Árni Böðvarsson, Jóhann
Ögmundsson, Oddur Kristjánsson,
Jón Ingimarsson, Kristján Jónsson,
en síðan koma tveir kappar sem við
erum ekki alveg vissir um hverjir
eru. Annar þeirra, sá með prjóna-
húfuna, gæti þó verið Magnús Krist-
insson, en hver er undir pípuhattin-
um vitum við ekki. En næstur honum
er Hafsteinn Porbergsson og síðan
er Níels Halldórsson í fullu veldi,
eins og hann var og hét, en nú er ekki
nema um helmingurinn eftir af þeim
Níelsi sem við sjáum á myndinni.
Nelli „feiti“ tilheyrir sem sé fortíð-
inni. Hann var dómari í þessum leik,
en línuverðir voru Eggert Ólafsson
og Jón Kristinsson. A baka til við
dómaratríóið standa Jóhannes Mika-
elsson, fvar Sigurjónsson og Einar
Haraldsson. Leikararnir eru flestir í
búningum sem tilheyrðu sýningu LA
á Munkunum frá Möðruvöllum, en
ekki vitum við gjörla hvaða sýningu
búningur blaðamanna tilheyrir.
STÍGIÐ SKREF FRAM
TIL MEIRA ÖRYGGIS
Eigum ávallt til
afgreiðslu
öryggisskó og
stígvél með stálplötu
í sóla og stálhettu
a ta.
ATLABÚÐIN
S. 96-22550, Akureyri