Dagur - 26.11.1984, Qupperneq 1
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 26. nóvember 1984
117. tölublað
„Það þarf spamaðarhvata
í sölukerfi veitunnar"
Hákon
Hákonarson,
formaður
stjórnar
Hitaveitu
Akureyrar
um tillögur
að breyttu
sölufyrirkomu-
lagi á vatninu
Ní /tt
hótel
íSk göi ipa- tu!
- Undirtektir hafa verið mjög
jákvæðar og það má segja að
ákvörðun um að ráðast í bygg-
ingu þessa hótels liggi nú fyrir.
Við munum alla vega reyna að
bjóða verkið út í vetur, sagði
Guðmundur Sigurðsson hjá
Klæðaverslun Sigurðar Guð-
mundssonar í samtali við Dag.
Hugmyndin er að hið nýja
hótel rísi á lóðinni Skipagata 16,
fyrir aftan núverandi verslunar-
húsnæði verslunarinnar við Hafn-
arstræti. Búið er að teikna bygg-
inguna og er gert ráð fyrir 32 her-
bergjum með svefnplássi fyrir 70
til 80 manns í rúmgóðum her-
bergjum. í fyrsta áfanga verða
byggð 19 herbergi en öll herberg-
in verða með baðkari. Ráðgert er
að hótelið verði byggt í sama
gamla stílnum og verslunin og
síðar verði hægt að tengja þessi
tvö hús saman með tengibygg-
ingu.
- Við byrjum á byggingunni
þegar fjármagn hefur verið trýggt
en miðað við þann stuðning og
undirtektir sem við höfum fengið
ætti það að ganga upp, sagði
Guðmundur Sigurðsson. - ESE
„Þegar borað var á Lauga-
landi, svo ég nefni dæmi,
fannst æð sem gaf 90 sekúndu-
lítra af rúmlega 90° heitu sjálf-
rennandi vatni. Þá var talið að
með dælingu gæfi Laugalands-
svæðið allt að 300 1/sek. í dag
er talið að dæla megi að há-
marki 45 1/sek. til að svæðið
haldist í jafnvægi og vatns-
- Þetta er orðið stórkostlegt
vandamál og lögin hafa bara
gert illt verra. Hér áður fyrr
gátu rétthafar þó höfðað
einkamál á hendur lögbrjótun-
um en nú strandar allt á borði
rannsóknarlögreglustjóra eða
ríkissaksóknara. Þetta vita eig-
endur videóleiganna og skáka
borðið lækki ekki. Köldustu
vikurnar í fyrravetur var með-
aldæling inn á kerfið 205 I/sek.
Þetta er vandamál hitaveitunn-
ar í hnotskurn og þar með allra
Akureyringa. Með öðrum orð-
um hafa upphaflegar áætlanir
um orkuöflun brugðist í veiga-
miklum atriðum. Við þennan
í því skjólinu.
Þetta sagði Jónatan Garðars-
son, hjá Steinum hf. í samtali við
Dag en Steinar hf. eru einn af
stærri rétthöfum á myndböndum
í landinu í dag.
Fyrir nokkru auglýsti ein
videóleigan á Akureyri í opnu-
auglýsingu í Degi nýkomna titla
vanda eru núverandi stjórn-
endur hitaveitunnar að kljást.“
Þannig komst Hákon Hákon-
arson, formaður hitaveitustjórn-
ar, að orði þegar Dagur innti
hann álits á fyrirhuguðum breyt-
ingum á sölufyrirkomulagi veit-
unnar, frá hemla- yfir í blandað
mæla- og hemlakerfi.
„Frá upphafi hafa verið borað-
en samkvæmt upplýsingum frá
rétthöfum eru flest af þessum
myndböndum leigð ólöglega.
- Ég get fullyrt að staða rétt-
hafa hefur aldrei verið verri en
hún er í dag, þrátt fyrir að mikið
hafi verið unnið í þessum málum
og að lög hafi verið sett. f verk-
fallinu á dögunum, á meðan toll-
skoðun lá niðri, fóru eigendur
myndbandaleiganna í stórum stíl
til útlanda og komu heim með
troðfullar töskur af ólöglegum
myndböndum. Það má segja að
lögin sem eiga að vernda rétthafa
gegn athæfi sem þessu hafi bara
gert illt verra. Við getum ekki
lengur höfðað einkamál og inni
á borði hjá rannsóknarlögreglu-
stjóra liggja þrjú prófmál sem
hann segist ekki geta sinnt vegna
manneklu. Þarna eru mál sem
snerta ólöglega myndbandaleigu,
grófar falsanir og ólögleg kapal-
kerfi en ekkert er gert, sagði
Jónatan Garðarsson. - ESE
ar 79 holur fyrir Akureyringa,
þar af 40 vinnsluholur. Tólf
þeirra hafa hitt á vatn, 9 verið
vinnsluhæfar en nú er aðeins dælt
úr 6 holum. Þetta hefur eins og
að líkum lætur kostað óhemju fé.
Inn í þetta mál blandast einnig að
þrátt fyrir einmuna tíð í sumar
runnu 110 1/sek. í gegnum kerfið
á viku að meðaltali. Eg tel útilok-
að annað en að hægt sé að spara
vatn yfir sumarmánuðina. Væn-
legasta leiðin til þess er að koma
sparnaðarhvata inn í sölukerfið,
sem ekki er í hemlakerfinu.
Seinni hluta ársins 1982 gerði
stjórn HA tillögur um grunn-
hækkanir á vatni hitaveitunnar
sem miðuðu að því að á árinu
1983 næðist ákveðið jafnvægi í
rekstri veitunnar - tekjur nægðu
fyrir greiðslu vaxta og reksturs.
Stjórnvöld bönnuðu hækkanir á
slíkri þjónustu á miðju ári 1983,
þannig að þessu jafnvægi var ekki
náð. Aætlaðar brúttótekjur veit-
unnar 1984 eru 150 millj. kr., en
þyrftu að vera um 200 millj. til að
áðurgreindu takmarki verði náð,
að óbreyttum aðstæðum.
Ákvörðun um gjaldskrá hefur
ekki verið tekin, en hún mun
væntanlega ráðast af þeim mark-
miðum sem menn setja sér varð-
andi rekstrarafkomu veitunnar.
Af ofangreindum ástæðum er
brýn nauðsyn fyrir Hitaveitu Ak-
ureyrar að spara vatnið og jafn-
framt að fá meiri tekjur. Okkur
hefur fundist sanngjarnast að
dreifa þessum byrðum þannig á
neytendur, að þeir geti þó alltént
haft áhrif á það sjálfir hversu
stóran hluta þeir axla. Það er
hægt með mælakerfinu og því
leggjum við til að sölukerfinu
veröi breytt,“ sagði Hákon að
lokum. HS
Samið
Sainningar hal'a tekist milli
Félags málmiðnaöarinanna á
Akureyri og viðsemjenda
þeirra um ASI samkomulagið
óbreytl. Voru þeir samþykktir
með öllum greiddum at-
kvæðum um helgina.
Þá hefur Félag verslunar- og
skrifstofufólks á Akureyri gert
samning við KEA, sem er að
því ieyti frábrugðinn ASÍ
samningnum að hann gildir
frá 22. október í stað 6. nóv-
ember. Fallið var frá kröfum
um persónuuppbætur í des-
ember.
Kaupmannafélag Akureyrar
taldi sig ekki hafa umboð til að
semja um þcssa breytingu, cn
að sögn Birkis Skarphéðins-
sonar, formanns félagsins,
mun rcynt að stuðla að því að
kaupmenn greiði eftir þessu
samkomulagi. Óvissa er því
um þetta atriði og ráðast þau
mál ekki fyrr en á reynir.
Hagkaup er með beina aðild
að VSÍ og ná þessir samningar
ekki til starfsmanna þar. - HS
Oraunsæjar hugmyndir?
„Á sama tíma og atvinnulíf á
landsbyggðinni á í vök að verj-
ast vegna efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar er óraunsæjum
stóríðjuhugmyndum haldið að
íbúum kjördæmisins,“ sagði í
ályktun kjördæmisþings Al-
þýðubandalagsins í Norðurlandi
eystra, sem haldið var í lok
október.
Þær hugmyndir sem uppi eru
um stóriðju í kjördæminu eru
aðeins álverksmiðja við Eyja-
fjörð, eftir að trjákvoðuverk-
smiðjan datt upp fyrir við Húsa-
vík, að því er virðist.
Finnbogi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar, segir í viðtali við
Dag að það væru mikil mistök
að hafna hugmyndum um ál-
verksmiðju við Eyjafjörð sem
hugsanlegri leið í framtíðarþró-
un atvinnulífs, áður en athugan-
ir liggja fyrír, en telur að álverk-
smiðja sé ekki raunhæfur kost-
ur til lausnar atvinnuvandanum
á allra næstu árum.
Sjá nánar bls. 3.
Já, það hressir Bragakafllð. Samvinnudagar voru haldnir í Félagsborg um helgina, en þar stóðu samvinnustarfs-
menn fyrir kynningu á framleiðsluvörum samvinnufyrirtækja á Akureyri, auk þess sem þeir stóðu fyrir tískusýningu,
kórsöng og leiksýningu. Eitthvað á annað þúsund manns mun hafa komið í Félagsborg, enda var oft þröng á þingi.
Mynd: KGA
Myndbandamarkaðurinn:
„Lögin gerðu illtverra"