Dagur - 26.11.1984, Blaðsíða 6

Dagur - 26.11.1984, Blaðsíða 6
26. nóvember 1984 - DAGUR - 7 „Það er á við fjögur stig að vinna Haukana,“ sagði Helgi Ragnarsson þjálfari KA eftir að lið hans hafði malað lið Hauka í 2. deildinni um helg- ina. Úrslitin 26:18 fyr-ir KA sem hafði yfirburði. Helgi Ragnarsson er FH-ingur, og þá þarf væntanlega ekki að út- skýra nánar hvers vegna sigur gegn Haukum er honum svo Það hlaut að koma að því að Everton tapaði leik. Á óvart kom þó ósigurinn í Norwich. Fyrstu 50 mín. spilaði Everton fótbolta eins og hann gerist bestur en á tveggja mínútna kafla var Ever- ton komið tveimur mörkum undir. Fyrst skoraði John Deeh- an og strax á eftir bætti Louie Donowa öðru marki við fyrir Norwich. Sautján þúsund áhorf- endur á Carrow Road voru að vonum í sjöunda himni og stjór- inn þeirra Ken Brown brosti fram á sunnudag. Áður en hálf- leiknum lauk hafði Dale Gordon komið Norwich í 3:0. Grahme Sharp lagaði stöðuna fyrir Ever- ton með skallamarki. í síðari hálfleik náði Kevin Sheedy að minnka muninn og Everton gerði sig líklegt til að jafna leikinn. Norwich var hins vegar ekki á þeim buxunum að missa leikinn í jafntefli, Mike Channon sem átti stórleik fann John Deehan frían í vítateig Everton og Deehan skoraði fjórða mark Norwich. Þrátt fyrir að tap Everton hafi vakið mesta athygli á laugardag- 1 inn þá var leikur Sunderland og Manchester United sá söguleg- asti. Norman Whiteside byrjaði á því að skalla í þverslá strax á fyrstu mínútu. Fljótlega á eftir gerði markvörður Sunderland Chris Turner sig sekan um slæm mistök og Brian Robson nýtti sér það til fullnustu. Eftir 15 mín- útna leik laumaði Mark Huges sér inn fyrir vörn Sunderland og bætti öðru markinu við fyrir Un- ited. Þá fór að hitna í kolunum. Þeir David Hodgson og Mark Huges tóku smá „brýnu“ sín á milli og dómarinn sendi þá í bað. Nú snerist leikurinn heldur betur við. Clive Walker sem áður gerði garðinn frægan með Chelsea, skoraði þrjú mörk á hálftíma, þar af tvö úr vítum, öðru mjög um- deildu. United missti því af gullnu tækifæri að saxa á forskot Everton. Sjö urðu mörkin í leik WBA og Coventry. Fyrstur til að skora var Peter Barnes á 53. mínútu. Fyrrum Coventryleikmaður, Chris Thompson jafnaði metin og Carl Valentyne kom Albion yfir. Cyrille Regis sem áður lék með WBA jafnaði strax í byrjun síðari hálfleiks. Terry Gibson var þá rekinn út af hjá Coventry og einum fleiri fór leikmenn WBA í gang. Steve McKenzie, Tony Grealish og Derik Stagham bættu við mörkum og stórsigur WBA var staðreynd. Lundúnaliðin Tottenham og Chelsea tóku daginn snemma á laugardaginn og léku um morg- uninn til að forðast skrílslæti áhorfenda. Liðin skiptu stigunum bróðurlega á milli sín. Fyrst skor- aði hinn ótrúlega markheppni Dixon á 5. mín. fyrir Chelsea. Á 2. mín. síðari hálfleiks jafnaði Mark Falchoe og þar við sat. Seinna um daginn iéku QPR og Aston Villa í ausandi rigningu í Lundúnum. Rangers vann nú loksins sigur og það á óhemju- slöku liði Villa sem vel gæti end- að í 2. deild með sama áfram- haldi. John Gregory var réttur maður á réttum stað og skoraði eftir hornspyrnu. Garry Bannist- er laumaði síðan inn öðru marki, sínu 15. í vetur, eftir góðan undirbúning Simon Stainrod. Watford er á réttri leið og virð- Loksins sigur hjá Þórsurum 9 - Unnu Hauka með einu mariti Hlupu Um kl. 15 á föstudag í síðustu viku hófu 25 frjálsíþróttamenn úr Ungmennasambandi Eyja- fjarðar hlaup frá Reykjavík til Akureyrar. Var hlaupið boð- hlaup þessa vegalengd og til- gangurinn var að safna fé til reksturs frjálsíþróttadeildar- innar. Hlaupararnir voru á aldrinum 13-50 ára og hlupu á bilinu 2-7 km hver í einu. Tvær bifreiðar ast kaupin á John McClelland ætla að gera gæfumuninn. Ge- orge Reiiley kom Watford í 1:0 gegn Stoke. Luther Blissett bætti öðru marki við fyrir hlé. Wilf Roxtron gulltrvggði sigurinn er Ian Paintir lagaði stöðuna úr víti fyrir Stoke sem nú er kyrfilega staðsett á botninum, sjö stigum á eftir næsta liði. Liverpool, gamla stórveldið í enska boltanum, klifrar hægt og bítandi upp stigatöfluna. Á laug- ardaginn krækti liðið í fyrsta heimasigurinn með sigri gegn Ipswich. Leikurinn var mikill sigur fyrir fyrrum Ipswichmann- inn John Wark. Hann hefur verið mikið gagnrýndur og fyrir viku keypti Liverpool nýjan leikmann sem ætlað er að taka við hlut- verki Wark í liðinu. Wark skor- aði nú bæði mörk Liverpool á 42. og 53. mínútu. Paul Cooper í marki Ipswich kom í veg fyrir stærri sigur Liverpool og þá átti Eric Gates snjallan leik á miðj- unni fyrir Ipswich. Southampton vann enn einn sigurinn og að þessu sinni var Newcastle fórnarlambið. Ensku landsliðsmennirnir Mark Wright og Steve Williams eiga í úti- stöðum við stjóra sinn og voru því settir út úr liðinu. Það kom ekki að sök því mark Dave Armstrong á 65. mínútu dugði til sigurs. Hörkuleikur var í Luton þar sem West Ham var í heimsókn. Brian Stein jafnaði mark Steve Whitton og náungi að nafni Em- aka Nwajiobi kom Luton yfir á 49. mínútu. Það stefndi í sigur Luton en rétt fyrir leikslok birtist kollurinn á Alvin Martin í teig Luton og fastur skalli hans jafn- aði metin. Markverðir beggja liða áttu góðan dag í líflegum og skemmtilegum leik. Vakti þó mesta athygli einvígi „litla og stóra“ í leiknum, miðherjans pínulitla hjá West Ham, Tony Cottie og hins gífurlega stóra Micky Droy. Luton-West Ham 2:2 x Norwich-Everton 4:2 1 QPR-Aston Villa 2:0 1 Southampton-Newcastle 1:0 1 Stoke-Watford 1:3 2 Sunderland-Man.Utd. 3:2 1 WBA-Coventry 5:2 1 Liverpool-Ipswich 2:0 1 Tottenham-Chelsea 1:1 x Sheff.Wed.-Arsenal 2:1 Leicester-N.Forest 2:1 2. deild: Birmingham-Barnsley 0:0 x Man.City-Portsmouth 2:2 x Oxford-Leeds 5:2 1 Shrewsbury-Sheff.Utd. 3:3 x Wimbledon-Grimsby 1:1 x Staðan í 1. deild: Everton 16 10 2 4 34:22 32 Man.Utd. 16 8 5 3 34:19 29 Arsenal 16 9 2 5 31:23 29 Tottenham 16 9 2 5 33:16 29 Sheff.Wed. 17 8 4 5 31:21 28 West Ham 16 7 5 4 23:22 26 Southampton 16 6 7 3 20:17 25 Liverpool 16 6 6 4 20:15 24 N.Forest 16 7 3 6 26:23 24 Chelsea 16 6 5 5 26:17 23 Sunderland 16 6 5 5 25:22 23 Norwich 16 6 5 5 25:23 23 WBA 16 6 4 6 28:23 22 Newcastle 16 5 6 5 28:30 21 Watford 16 4 6 6 33:34 18 QPR 16 4 6 6 21:25 18 A.Villa 16 4 5 7 20:32 17 Ipswich 16 3 7 6 17:23 16 Leicester 16 4 3 9 23:35 15 Coventry 16 4 3 9 15:28 15 Luton 17 3 5 9 21:37 14 Stoke 15 1 4 10 12:36 7 A .B. mikilvægur eins og hann sagði hér að framan. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um gang þessa leiks. KA hafði yfirburði á öllum sviðum handknattleiksins og er furðu- legur getumunur á þessum liðum sem bæði léku í 1. deild í fyrra. KA tók strax öll völd í sínar hendur, komst í 3:1 og7:2. í hálf- leik var staðan 12:9 og hafi Haukarnir gert sér einhverjar vonir um að geta unnið þann mun upp gerði „Gamli“ þær að engu strax eftir hlé. Þorleifur An- aníasson sýnir engin ellimerki og hann skoraði tvö fyrstu mörk hálfleiksins úr hraðaupphlaup- um. Staðan 14:9 og eftir það var ekki snúið. Helgi Ragnarsson gat leyft sér þann munað að leyfa öllum sín- um mönnum að spila í síðari hálf- leik, varamennirnir fóru að tínast inn á hver af öðrum og þeir héldu forskoti KA. Geysileg fagnaðar- læti brutust út er Ragnar „Sót“ Gunnarsson steig á fjalirnar, og þakið ætlað beinlínis af Höllinni er hann skoraði 23. mark KA. „Það er alveg sama hvar maður sýnir á sér trýnið, áhangendurnir eru alls staðar fagnandi," sagði Ragnar eftir leikinn. Þetta var stórleikur hjá KA, sá besti af mörgum góðum í „Ef við spilum eins og við best getum, þá eigum við að geta unnið hvaða lið sem er. Þetta sýndi sig á móti HK og Gróttu og við sýndum það nú með þessum sigri á Haukum,“ sagði Árni Stefánsson eftir leikinn gegn Haukum. „Við verðum að einbeita okk- ur að því að spila handbolta en megum ekki vera að eyða kröft- unum í annað. Það er aðalvanda- málið að menn eru ekki nógu samstilltir og samtaka þegar illa gengur, en við erum búnir að sýna það að við getum ef við viljum,“ sagði Árni, þessi nýja „súperstjarna" Þórs í handbolt- anum. Erlingur Kristjánsson hefur hér brotist í gegnum vörn Hauka, en ekki virðast hafnfirskir vera á því að sleppa honum. Mynd: KGA „Þetta var nauðsynlegur sigur og hann kom á réttum tíma. Það er andlega hliðin sem skiptir öllu máli, við vorum óhemjuslakir í fyrri hálfleik en rifum okkur síðan upp og unn- um kærkominn sigur,“ sagði Guðjón Magnússon þjálfari Þórs eftir að Þór vann sinn fyrsta sigur í 2. deildinni á laugardag. Fórnarlömbin voru Haukar úr Hafnarfirði og fóru Haukarnir því „halaklipptir“ og stigalausir heim frá Akur- eyri. Leikur Þórs og Hauka var er á heildina er litið alveg óhemju- slakur, og það sem var til sýnis á fjölunum langtímum saman átti lítið skylt við handbolta. Þórsar- ar alveg ömurlegir í fyrri hálf- leiknum og afar slakt lið Hauka náði þá yfirburðaforustu, Haukar komust í 10:6 og 13:7 en í hálf- leik var staðan 14:10 fyrir Hauka. vetur. Liðið er geysilega jafnt en menn eins og Erlingur, Jón, Friðjón, Þorleifur og Erlendur eru kjölfestan. Þá komu þeir Pét- ur Bjarnason og Hafþór Heimis- son vel frá leiknum. Mörk KA: Jón 6, Friðjón 6 (2), Þorleifur 4, Erlendur 3, Pét- ur 2, Logi, Erlingur, Ragnar og Hafþór 1 hver. Markahæstur Haukanna var Jón Hauksson með 9 (6). „Mjög ánægður“ við Hauka. „Þessi leikur, og leikurinn við Fram er það besta sem við höfum sýnt í vetur. Við stefnum að því að vera með fullt hús stiga um áramót, eigum eftir Fylki heima og Ár- mann og Gróttu á útivelli. Síðan koma fjórir erfiðir útileikir eftir áramótin og þá er að duga eða drepast. Ég er mjög ánægður með að við náum að rífa okkur upp ef á móti blæs í leikjunum og slæmir kaflar koma. Þá er úthaldið meira en nóg hjá okkur þannig að ég get leyft mér þann munað að vera hóflega bjartsýnn á fram- haldið,“ sagði þessi síungi leik- maður sem nálgast nú óðum þann merka áfanga á ferli sínum að leika 500. leikinn með meist- araflokki KA. „Ég er mjög ánægður með Ieikinn og úrslitin,“ sagði Þor- leifur Ananíasson eftir leikinn Þorleifur Ananíasson. Þrír valdir til æfinga Þrír piltar úr KA hafa verið valdir til æfinga með unglingalandsliðinu í handknattleik 18 ára og yngri, en það lið á að taka þátt í Norðurlanda- mótinu í vor. Piltarnir úr KA eru Jón Krístjánsson, Óskar Elfar Óskarsson og Anton Pétursson. Anton er sonur Péturs Antonssonar sem hér fyrr á árum gerði garðinn frægan með „gullaldarliði“ FH og lék fjölda landslcikja. Þcgar piltunum var tilkynnt það í síðustu viku að þeir ættu að mæta á landsliðsæfingu hjá Gcir Hallsteinssyni þjálfara liðsins varð því miður einn þeirra að boða forföll, Óskar Elfar. Hann meiddist á æfingu þann sama dag og getur svo farið að hann leiki ekki handknattleik meira í vctur. Ormar fer Þorvaldur kemur Ormar Örlygsson KA-maður í knattspyrnu hef- ur ákveðið að leika með Fram í 1. deildinni næsta keppnistímabil. Ormar hefur að undan- förnu verið fastamaður í liði KA. Þorvaldur Þorvaldsson sem hefur leikið með Þrótti Reykjavík um árabil hefur hins vegar ákveðið að flytja sig norður á Akureyri og leika með KA. Þorvaldur er vel liðtækur leikmaður og getur leikið nánast hvar sem er á vellinum. Völsungar verða steifcir Það er Ijóst að lið llúsvíkinga verður allt annað en árennilegt í 2. deild knattspyrnunnar næsta sumar. Liðið, sem var « baráttu efstu liða í 2. dcildinni sl. sumar hefur nú fengið til liðs við sig a.m.k. 4 nýja leikmenn og þá ekki af lakara tag- inu. Eins og frain hefur komið mun Sigurður Hall- dórsson frá Akrancsi þjálfa liðið og lcika með því. Með honum frá Skipaskaga kemur Jón Leó Ríkharðsson, sonur Rikharðs Jónssonar. Þá hefur landsliðsbakvörðurínn Ómar Rafns- son ákveðið að halda til Húsavikur og leika þar með Völsungi. Er Ijóst af þessari upptalningu að andstæðingar Völsungs geta átt á ýmsu von næsta sumar, því ekki má gleynia þvi að fyrir í liðinu eru margir snjallir leikmenn og nægir að nefna nöfn eins og Kristján Olgeirsson, Helgi Helgason, Gunnar Straumland og Jónas Hall- grímsson í því sambandi. Völsungar hafa sett stefnuna á 1. deild og cf miða má við þcnnan mannskap verður varla langt að bíða þess að þeir nái áfangastað. Arsenal tapaði Tveir leikir voru í ensku knattspyrnunni í gær. Nottinghum Forest sigraði Leiccster 2:1, og Sheffield Wednesday sigraði Arscnal með sömu markatölu. Leikur Wednesday og Arsenal var ansi fjörugur. Sóknarleikur í hávcgum hafður og ckkert gefið eftir. Lee Shapman skoraði fyrst fyrir Wednesday, Tony Woodcock jafnaði fyrir Arsenal en Mark Smith átti síðasta oröiö og Sheffield Wednesday hafði stigin þrjú. Staðan á toppi l. deildar er því óbreytt enda töpuðu Everton og Manchester United einnig. Everton með 32 stig, Manchester Un- ited, Arsenal og Tottenham með 29 stig. Á botni deildarinnar virðist sem ntál ætli að þróast þannig að Stoke falli, og þá er spurn- ingin hvaða tvö lið fylgja liðinu niður. Uaiilrar icirft ndUKdl „JdíU aUII Sigur og tap - hjá Þór í körfuboltanum „Leikurinn gegn Fram var af- leitur hjá okkur en á sama tíma gekk allt upp hjá Fram. Við vorum óhemju „stressaðir“ og því fór sem fór,“ sagði Eiríkur Sigurðsson þjálfari 1. deildar- liðs Þórs í körfuknattleik er við ræddum við hann um Ieiki 3. flokkur Þórs í körfuknatt- leik stóð sig mjög vel í íslands- mótinu um helgina, en liðið lék þrjá leiki í Reykjavík. Það fyrirkomulag er viðhaft að leikið er í „turneringum" og er liðunum skipt í nokkra riðla. Þór leikur með Tindastóli, ÍR og Haukum og er þetta talinn vera sterkasti riðillinn í mótinu. Þór lék fyrst gegn Haukum og tapaði 59:70. Síðan var leikið Þórs gegn Fram og UMFL sem fram fóru um helgina. Þór lék gegn Fram á laugardag og er skemmst frá því að segja að Fram hafði algjöra yfirburði. í leikhléi voru Framarar búnir að gera út um leikinn og tryggja sér stigin tvö, staðan þá 54:31 Fram gegn ÍR og nú vann Þór 59:50. Loks sigraði Þór svo Tindastól 69:33. Af öðrum úrslitum má nefna að ÍR sigraði Hauka og er staðan því sú í riðlinum eftir þessa leiki að Þór, Haukar og ÍR hafa öll 4 stig en Tindastóll ekkert. Verður því að telja að Þór eigi að hafa þarna möguleika á sigri í riðlinum og er m.a. eftir að leika á Akureyri. í vil, lokatölur 90:70. Stig Þórs í þeim leik skoruðu Konráð Óskarsson 19, Jón Héð- insson 17, Guðmundur Björns- son og Jóhann Sigurðsson 8 hvor, Björn Sveinsson 9, Stefán Rögn- valdsson 1 og Björn Sigtryggsson 1. Á sunnudag léku Þórsarar svo á Selfossi gegn UMFL. Þór hafði álíka yfirburði í þeim leik og Fram hafði haft í fyrri leiknum enda tefla Laugdælir nú fr.am nær alveg nýju liði frá í fyrra. Þór hafði yfir í hálfleik 42:22 en loka- tölur urðu 74:59. Aðstaðan sem boðið er upp á á Selfossi er ekki burðug, önnur karfan á vegg hússins en hin úti á miðju gólfi, og ekki hefur verið haft fyrir því að merkja 3-stiga línu á gólfið. Stig Þórs gegn Laugdælum skoruðu Konráð Óskarsson 22, Björn Sveinsson 17, Stefán Frið- leifsson, Þórarinn Sigurðsson og Jóhann Sigurðsson 8 hver, Guð- mundur Björnsson 6, Björn Sig- tryggsson 4, Halldór Arnarsson 1. Næstu leikir Þórs eru á dagskrá um miðjan desember og eru það útileikir gegn UMFG og ÍBK. Þór á hins vegar ekki heimaleik fyrr en eftir áramótin. Gott hjá 3. flokki Norwich stöðvaði sigurgöngu Everton Þórsarar mættu hins vegar ákveðnir til leiks í síðari hálfleik, og hvað sem segja má um þann handknattleik sem boðið var upp á, þá var baráttan í lagi. Ólíkt því sem var í fyrri hálfleik, þá var engin barátta, innbyrðis rifrildi og kjaftagangur og það hefur ekkert lið efni á slíku. Þórsarar söxuðu á forskot Hauka í síðari hálfleik og voru búnir að jafna er 12 mín. voru eftir, staðan þá 19:19. Síðan má segja að jafnt hafi verið á öllum tölum upp í 24:24 en Þórsarar yfirleitt á undan að skora. Sigur- mark Þórs skoraði svo Gunnar Gunnarsson er 30 sek. voru til leiksloka. Dýrmæt stig til Þórs sem kunna að vega þungt er upp verður stað- ið í vor. Leikur liðsins þó óhemju köflóttur og það er forsenda fyrir áframhaldandi sigrum að leik- menn eyði kröftum sínum í eitt- hvað annað en innbyrðis átök. Bestu menn liðsins að þessu sinni voru Nói Björnsson sem varði mjög vel í síðari hálfleik, Guðjón Magnússon og Árni Stefánsson. Mörk Þórs: Sigurður Pálsson 6 (6), Guðjón 6, Rúnar Stein- grímsson 4, Árni Stefánsson 3, Oddur Sigurðsson 3, Kristján Kristjánsson 2 og Gunnar Gunn- arsson 1. Markahæstur Hauk- anna var Jón Hauksson með 9 (6). „Getum ef við viljum“ - segir Ámi Stefánsson frá Reykjavík fylgdu hlaupurunum eftir og bíl- stjórarnir brugðu einnig undir sig betri fætinum þegar þá fór að syfja! Áætlað hafði verið að koma til Akureyrar á sunnudagsmorgun en allar áætlanir fóru úr sam- bandi. Hlaupararnir voru röskari en gert hafði verið ráð fyrir og seint á laugardagskvöld skokkaði hópurinn inn á Ráðhústorg á Ak- ureyri. Um 500 aðilar höfðu heitið því að leggja fram 300 krónur hver ef hópnum tækist að hlaupa þessa vegalengd, og hafa því safnast um 150 þúsund krónur með hlaupinu. Sjálfsagt verða ekki vandræði með að koma þeim peningum fyrir, UMSE keppir í 1. deild næsta sumar og er jafnvel ætlunin að komast með lið félagsins í æfingabúðir erlend- is fyrir keppnina í 1. deildinni. Ur leik Þórs og Hauka. Guðjón Magnússon Þórsari gnæfir yfir Haukavörn- ina og Ámi Stefánsson bíður eftir sendingu inn á línuna. Mynd: KGA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.