Dagur - 26.11.1984, Qupperneq 9
26. nóvember 1984 - DAGUR - 9
Þeir eru nú orðnir hátt í hundrað-
ið sem sagt hafa frá í bókaflokkn-
um „Aldnir hafa orðið“, sem Erl-
ingur Davíðsson hefur skráð af
mikilli elju. Þrettánda bindi
þessa flokks er komið út hjá
Skjaldborg, svipað í forminu og
áður, enda virðist lítil ástæða til
að breyta neinu þar um; ritsafnið
hefur orðið óhemju vinsælt, jafn-
vel svo að með ólíkindum má
teljast. „Aldnir" eru meðal efstu
bóka á vinsældalistum bókakaup-
enda ár eftir ár. Frásagnirnar eru
eins mismunandi og fólkið sem
segir frá, því Erlingur leyfir stíl
hvers og eins að koma fram - sem
er ef til vill gleggsta persónulýs-
ingin.
Þessi bókaflokkur varðveitir
frásagnir eldra fólks af atburðum
löngu liðinna ára og um það
sjálft. Brugðið er upp myndum af
atvinnuháttum og siðvenjum,
örum breytingum og stórstígum
framförum. Varðveittur er mikill
fróðleikur, sem að jafnaði hverf-
ur þegar menn týna tölunni, en
leitast er við að geyma í þessu rit-
safni. Þeir sem segja frá í 13.
bindi eru sprottnir úr ólíkum
jarðvegi, eins og í fyrri bindum,
en þeir eru: Guðni Ingimundar-
son, Jóhannes Jónsson, Jónína
Steinþórsdóttir, Skarphéðinn Ás-
geirsson, Steinþór Eiríksson,
Sveinn Einarsson og Sæmundur
Stefánsson. Oft er það gott sem
gamlir kveða og á það við í fyllsta
máta um þetta ritsafn. HS
Skjaldborg gefur út bókina
„Háski á Hveravöllum", eftir
Birgittu H. Halldórsdóttur, en
áður hefur komið út bókin
„Inga“ eftir sama höfund.
Hér er á ferðinni ekki lakari
bókmennt en þeir fjölmörgu
ásta- og læknarómanar sem svo
vinsælir hafa orðið með þjóðinni,
einkum kvenþjóðinni. Með þessu
er þó ekki verið að segja að karl-
menn geti ekki haft gaman af
lestri þessarar bókar - hún segir
nefnilega svolítið um „kvenleg-
an“ hugsunarmáta sem konur
leyna oft karlmönnum, en skrafa
þeim mun meira sín á milli - að
því er sögur herma. Bókin hefur
að geyma sitt lítið af hverju; kyn-
lífi, framhjáhaldi, ofbeldi og
spennu. Söguþráðurinn er ekki
allt of hnitmiðaður, en heldur
lesandanum við efnið engu að
síður. Höfundurinn hefur mikið
hugarflug og með meiri ögun og
yfirlegu gæti hún orðið býsna vin-
sæll afþreyingarskríbent. HS
Einu sinni voru sjómenn á varð-
skipum nefndir „mublusjómenn"
af fiskimönnum, vegna þess að
þeir áttu að hafast lítið annað að
en mála og snurfusa. Nú er kom-
in út bók hjá Erni og Örlygi um
einn þessara „mublusjómanna",
Guðmund Kærnested, fyrrver-
andi skipherra. Málið er bara það
að þegar um þennan mann er að
ræða verður uppnefnið argasta
vitleysa og öfugmæli. Guðmund-
ur varð hálfgerð þjóðsagnapers-
óna þegar hann barðist við Bret-‘
ann í baráttunni um landhelgina.
Hann var geðug þjóðsagnapers-
óna, vegna þess að alltaf skein í
gegn hógværð og „sjentil-
mennska". Útlendingar furðuðu
sig á þreki og staðfestu skipherr-
ans þegar hann barðist við ofur-
eflið og gafst aldrei upp.
Saga Guðmundar er baráttu-
saga allt frá barnæsku, eins og
segir á bókarkápu. Saga sem
hann segir skrásetjara, Sveini
Sæmundssyni, og lesendum án
allrar tilgerðar og tæpitungu,
hvort heldur það snertir hann
sjálfan eða helstu ráðamenn
þjóðarinnar. Sveinn Sæmunds-
son er gamall sjómaður og vafa-
laust hefur tekist mikið trúnaðar-
samband milli hans og Guð-
mundar, en bækur sem þessi eru
tveggja manna verk. Þessi bók,
sem er fyrra bindi, er vænleg til
vinsælda og hjálpast flest að, fal-
leg er hún og vönduð, fjölda
sögulegra ljósmynda er þar að
finna og maðurinn sem segir frá
sérlega áhugaverður og vel
kynntur með allri þjóðinni. HS
Hverjum hefði nú dottið í hug að
Ágústi stórbónda á Brúnastöðum
hafi á unga aldri verið ráðstafað
af hreppsnefnd Eyrarbakka til
uppeldis hjá sveitarómögum og
mátt una því fyrstu árin að vera
uppnefndur og flokkast til óæðri
stiga samfélagsins?
Þannig var þetta nú samt og
frá því og ýmsu öðru er greint í
bókinni um Ágúst, sem lítur yfir
farinn veg með Halldóri Krist-
jánssyni á Kirkjubóli. Ágúst
fæddist ekki með silfurskeið í
munni, eins og margir gætu
ætlað, en flestir sem komnir eru
til vits og ára kannast við þennan
bónda og fyrrum alþingismann,
stórlundaðan og stæðilegan og
mikinn félagsmálamann. Ágúst
segir meiningu sína í þessari bók
og varla hefur Halldór Kristjáns-
son dregið úr honum í þeim
efnum. HS
Það er nú af sem áður var þegar
íslendingar borðuðu soðna ýsu í
hvert mál á virkum dögum og
soðið eða steikt lambakjöt um
helgar, með brúnuðum kart-
öflum og rauðkáli. Áhugi alls al-
mennings fyrir matargerð hefur
stóraukist og vafalítið hafa stór-
auknar utanferðir átt þar stærst-
an þátt.
Bækur um matargerð hafa
komið á markaðinn og nú er
komin út ný forvitnileg bók um
meðferð á lambakjötinu, sem
hingað til hefur reynst þjóðinni
svo drjúgt. „220 ljúffengir lamba-
kjötsréttir“ heitir þessi bók og er
eftir Kristínu Gestsdóttur. Útgef-
andi er Bókaklúbbur Arnar og
Örlygs. Áður hafa komið út hjá
forlaginu „220 gómsætir sjávar-
réttir" eftir sama höfund. ^essi
nýja bók er prýdd fjölda lit-
mynda og teikninga eftit Sigurð
Þorkelsson. íslenskt lambakjöt
hefur þá sérstöðu að fé okkar
gengur á fjaili sumarlangt og gef-
ur það kjötinu sérkennilegt bragð
og er bókin samin með það í
huga.
Þarna er hægt að finna fjöl-
margar skemmtilegar aðferðir til
að matreiða lambakjötið og einn-
ig er bent á skemmtilegt meðlæti
með réttunum. Meðal forvitni-
legs efnis í bókinni eru uppskrift-
ir að því hvernig matreiða má
saltkjöt og hangikjöt á annan
hátt en þann hefðbundna. Góð
bók í eldhússkápinn. HS
Hjá Bókaklúbbi Almenna bóka-
félagsins er komið út fimmta
bindi um „íslenskar smásögur".
Fyrstu þrjú bindin voru með
sögum Islendinga 1874—1974 en
tvö hin síðari með þýddum smá-
sögum. Sjötta og síðasta bindið
kemur út snemma á næsta ári.
Kristján Karlsson er ritstjóri
þessa safns. Þeir sem það eignast
hafa þar með aðgang að flest-
öllum íslenskum smásögum sem
einhverju skipta og því besta sem
þýtt hefur verið af erlendum
tungum á móðurmálið. Þetta er
mjög eigulegt ritsafn, hrein ger-
semi fyrir þá sem unna þessu
sagnaformi, sem talið hefur verið
það erfiðasta, en getur jafnframt
gefið það besta sem gerist í bók-
menntum. HS
Tölvuöld er runnin upp og nú
þýðir ekkert fyrir þá, sem héldu
að reiknistokkurinn og síðan
vasatölvan væri hámark tækninn-
ar, að streitast lengur á móti.
Tölvan á eftir að halda innreið
sína á nær öll svið þjóðlífsins og
það er eins gott að fara að átta sig
á því hvernig eigi að tala við þessi
tæki, þannig að rétt svör fáist.
Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins hefur gefið út bókina
„Einkatölvur" sem er mjög væn-
leg til að auðvelda mönnum að
aðlagast hinni óhjákvæmilegu
framtíð. Þetta er afar handhæg
og glögg handbók um örtölvur,
val þeirra og notkun. Bókin er
mjög vel myndskreytt og upp-
setning hennar með þeim hætti
að auðvelt á að vera fyrir hvern
sem er að kynnast þessum fyrir-
bærum. Orðin kunna að vísu að
vefjast fyrir mönnum fyrst í stað,
en að öllu jöfnu ættu þeir byrjun-
arörðugleikar að hverfa fljótt.
Skipulag bókarinnar er sveigjan-
legt þannig að lesandinn getur
haft sinn hátt á við notkun henn-
ar - þarf ekki að lesa hana alla í
striklotu, heldur getur notað
hana sem uppflettirit. Orða-
skýringar aftast í bókinni auð-
velda mjög notkun hennar. Bók-
in er 208 bls. eftir enska tölvu-
fræðinginn Peter Rodwell, þýdd
af Birni Jónssyni. HS
Nýr möguleiki
fyrir auglýsendur!
Með útgáfu nýs blaðs á fimmtudögum hafa
opnast fleiri möguleikar fyrir þá sem auglýsa í
Degi.
Aðeins 20% gjald verður reiknað fyrir allar
auglýsingar er þar birtast, jafnt stórar sem
smáar, enda hafi þær áður verið birtar í Degi
og þurfi ekki að taka breytingum.
dagsbrot birtir dagskrá útvarps og sjón-
varps og er dreift á hvert heimili á Akureyri og
til áskrifenda Dags utan Akureyrar.
Auglýsingadeild Dags veitir nánari upplýsing-
ar.
Sími 24222.
dagsbrot kemur út í 8.000 eintökum.
Símí 24222
Strandgötu 31 Ákureyri