Dagur - 03.12.1984, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 3. desember 1984
Oddur Sigurðsson fær harkalegar viðtökur hjá Fylkisvörninni.
Þórsarar
■ ■ flj
stigunum
- Fylkir sigraði Þór 22:19
Staðan í 2. deild íslandsmótsins í
handknattleik er nú þessi:
Þór-Fylkir KA-Fylkir Grótta-Ármann 19:22 17:11 28:26
Fram-HK KA 6 6 0 0 24:15 144:114 12
HK 6 3 1 2 126:129 7
Fram 7 4 1 2 166:142 9
Fylkir 5 2 1 2 99:109 5
Grótta 5 1 2 2 105:113 4
Þór 6 1 1 4 133:142 3
Haukar 5 10 4 107:120 2
Ármann 4 0 0 4 83:94 0
leikur
Þegar KA hefur leikið 5
heimaleiki í 2. deildinni í hand-
boltanum er loksins komið að
því að liðið leiki útileik.
Liðið fer suður um næstu helgi
og leikur gegn Gróttu og Ár-
manni. Verður fróðlegt að sjá
hvort KA-menn halda sínu striki
á útivelli, en eins og fram kemur
á töflunni hér á síðunni er KA
eina lið deildarinnar sem hefur
ekki tapað stigi.
Þórsarar eiga frí um helgina og
þeir eru á sama báti og KA, allir
útileikirnir eru eftir og Þór spilar
ekki syðra fyrr en eftir áramótin.
góðri forustu. Sjá mátti 7:3 á
markatöflunni og Þórsarar
skoruðu ekki mark í heilar 12
mínútur. í hálfleik munaði þó
ekki nema tveimur mörkum,
staðan þá 11:9 fyrir Fylki.
í síðari hálfleik misstu Þórsar-
ar Fylkismenn langt frá sér. Fylk-
ir komst í 19:13 en þá var eins og
Þórsarar gerðu sér fyrst ljóst að
þeir gætu tapað þessum leik eða
þyrftu að hafa fyrir sigrinum.
Skipti engum togum að Þór skor-
aði 6:1 og munaði því aðeins einu
marki er fimm mínútur voru
eftir, staðan 19:20 fyrir Fylki. En
Þórsarar skoruðu ekki meira.
Fengu þeir þó til þess fjöldamörg
gullin tækifæri og t.d. vítakast
sem Jón Gunnarsson varði snilld-
arlega. Lokatölur 19:22.
Þetta verður langur og erfiður
vetur hjá Þór. Það er eins og það
vanti neistann í liðið og menn
taki hlutunum með meiri yfirveg-
un. Þórsliðið hefur sýnt að það
getur leikið vel ef mannskapur-
inn tekur á öllu. Lið sem hefur
ekki stjörnur innanborðs verður
að treysta á baráttuviljann og ef
hann er í lagi þá geta Þórsarar
tekið stig af hvaða liði sem er.
MÖRK ÞÓRS:
Guðjón Magnússon 6, Oddur
Sigurðsson 4, Rúnar Steingríms-
son 4, Sigurður Pálsson 2, Árni
Stefánsson 2, Kristján Kristjáns-
son 1. a-gk-.
þegar KA sigraði Fylki 17:11
KA lenti í miklu basli með lið
Fylkis í 2. deildinni um helg-
ina. Þetta var mikill baráttu-
leikur og lengi vel leit ekki
dæmið vel út hjá KA. En
undir lok leiksins sýndu KA-
menn klærnar svo um mun-
aði og er upp var staðið
mátti sjá á markatöflunni
17:11 fyrir KA.
Fylkir skoraði 3 fyrstu mörk
leiksins en KA náði að jafna 3:3.
Síðan var jafnt aftur 4:4, KA
komst svo yfir 6:4, jafnt var 7:7
og í hálfleik leiddi Fylkir með
einu marki 8:7.
Síðari hálfleikurinn var sögu-
legur. Fylkir skoraði fyrsta mark-
ið og var því yfir 9:7. En þá
sögðu KA-menn hingað og ekki
lengra, þeir lokuðu öllu í vörn-
inni en það sem komst í gegn
lenti í öruggum höndum Þorvald-
ar markvarðar. Fylkir skoraði
ekki mark í 15 mínútur og staðan
breyttist úr 9:7 Fylki í vil í 12:9
fyrir KA. Þegar 10 mínútur voru
eftir hafði Fylki þó tekist að
minnka muninn, staðan 12:11 en
Loks
úti-
þá skoraði KA fimm síðustu
mörk leiksins og sigraði því
17:11. Fylkir skoraði því aðeins
þrjú mörk í síðari hálfleiknum.
KA-liðið hefur oftast leikið
betur en að þessu sinni. Senni-
lega hefur verið um vanmat að
ræða, KA-menn með fullt hús
stiga hafa álitið Fylkismenn auð-
velda bráð en sá hugsunarháttur
er afleitur. KA lék afar slakan
fyrri hálfleik en í síðari hálfleik
bar mest á Jóni Kristjánssyni sem
var drjúgur og Þorvaldi Jónssyni
í markinu sem varði vel á kafla.
MÖRK KA:
Jón Kristjánsson 6, Friðjón Jóns-
son 3, Erlingur Kristjánsson 3,
Pétur Bjarnason 3, Þorleifur An-
aníasson 1 og Anton Pétursson 1.
KA er nú með örugga forustu
í 2. deildinni og hefur liðið ekki
tapað stigi. Menn skyldu þó vera
við öllu búnir, liðið á eftir alla
leiki sína syðra en aðeins Ár-
mann á eftir að koma norður.
Staðan
Jón Kristjánsson í dauðafæri. - Fylkismenn koma engum vörnum við.
Mynd: KGA.
Endaspretturinn
réði úrslitum
Þórsurum tókst ekki að sigra
Fylki í 2. deildinni um helg-
ina eins og liðið hefði þó átt
að geta með sæmilegum leik.
Þórsurum voru afar mislagð-
ar hendur svo ekki sé meira
sagt og má segja að í fyrri
hálfleik hafi „fastir liðir ver-
ið eins og venjulega“ hjá lið-
inu.
Eftir að staðan var jöfn 2:2
komust Fylkismenn yfir og náðu
Erlendur
„fastur“
Erlendur Hermannsson leik-
maður KA var fluttur á sjúkra-
hús sl. laugardag áður en leikur
KA og Fylkis hófst í íþróttahöll-
inni.
Erlendur var að hita upp fyrir
leikinn er hann „festist“ skyndi-
lega. Eitthvað fór aflaga í baki
hans þannig að hann gat ekki
hreyft sig. Hann var sem fyrr segir
fluttur á sjúkrahús og þar lagaðist
þetta smátt og smátt. Mætti Er-
lendur á leikinn í hálfleik en lék
ekki með liði KA.