Dagur - 17.12.1984, Side 1

Dagur - 17.12.1984, Side 1
67. árgangur Akureyri, mánudagur 17. desember 1984 127. tölublað Skuldatogurunum biargað Togurunum sem mestar skuld- I ir hvíla á verður bjargað. Sennilega verða haldin uppboð á togurunum fljótlega upp úr áramótum en fyrri eigendum verður síðan gefinn kostur á að Isgolf Þótt nú sé miður desember láta kylfingar á Akureyri eins og ekkert sé og iðka íþrótt sína af kappi, enda var golfvöllurinn auður að mestu. Þessi mynd var tekin í gær, en þá voru um 20 kyifingar á vellinum. Flestum gekk vel, þótt sumir hafí hætt sér út á hálan ís, í orðsins fyllstu merkingu. Mynd: KGA. kaupa þá aftur af sjóðunum fyrir „sanngjarna upphæð“. Ríkisstjórnin hefur látið þetta mál til sín taka og nýlega var Fiskveiðasjóði ritað bréf þar sem beðið er um að sjóðurinn finni verð á skipin. Jafnframt er farið fram á að uppboðsbeiðnir verði ekki lagðár fram fyrr en sveitar- félög og eigendur skipanna séu tilbúnir til þess að „kaupa“ skipin aftur. Már Elísson, framkvæmda- stjóri Fiskveiðasjóðs sagði í sam- tali við Dag fyrir helgina að stjórn sjóðsins væri búin að fjalla einu sinni um bréf ríkisstjórnar- innar en ákvörðun yrði ekki tekin fyrr en á næsta fundi sem óráðið er hvenær verður haldinn. Már vildi ekkert segja um hvort fallist yrði á tilmæli ríkisstjórnarinnar enda væri alls óvíst að það breytti einhverju fyrir viðkomandi út- gerðarfélög. Þó væri ljóst að upp- boðsbeiðnir yrðu ekki lagðar fram fyrir áramót. Á Norðurlandi eru það togar- arnir Kolbeinsey ÞH og Sigur- björg ÓF sem eru í þessum flokki skuldugustu skipanna. Eru skuld- irnar mun hærri en tryggingar- verð og því fá útgerðirnar ekki Skulda- skipið sigldi Skuldaskipið mikla, Kol- beinsey ÞH er nú á leið til Englands og mun selja afla í Grimsby á morgun. Að sögn Kristjáns Ásgeirs- sonar, framkvæmdastjóra Höfða hf. sem gerir togarann út, hefur Kolbeinsey aðeins einu sinni áður siglt með afla. Sagðist Kristján vonast til þess að með þessum sölutúr, gætu orðið jól hjá öllum, sjó- mönnum og útgerð og vonandi yrði salan það góð að eitthvað væri hægt að grynnka á skuld- unum. Afli Kolbeinseyjar að þessu sinni er 130 tonn af góð- um þorski og það kemur í ljós á morgun hvaða verð fæst fyrir hann. Mjög gott verð hefur að undanförnu fengist fyrir góðan fisk á fiskmörkuðunum í Bretlandi. Þess má geta að Kolbeinsey hefur nú fyllt kvóta sinn. - ESE Uppboðsbeiðnir í Þingeyjarsýslum: Stórkostleg aukning á allra síðustu árum - Það er engin stórkostleg I vegar ef litið er nokkur ár aftur I sexföldun miðað við árið 1980, I og bæjarfógeti á Húsavík er aukning á uppboðsbeiðnum í tímann, er aukningin mjög sagði Sigurður Gizurarson, við forvitnuðumst um upp- miðað við síðasta ár en hins | mikil. Það hefur t.d. orðið um | sýslumaður í Þingeyjarsýslum | boðsbeiðnir á árinu. Útsýn geríst aðili að Ferðaskrifstofu Akureyrar Ferðaskrifstofan Útsýn á Akureyri ferðaskrifstofa á Akureyri hafa Eignaraðild Útsýnar að Ferða- hefur gerst aðili að rekstri Ferða-i stað'ið yfir að undanförnu. Til- skrifstofu Akurcyrar er 18%. Aðrir skrifstofu Akureyrar og starfsemi gangurinn með sameiningunni er - eigendur FA eru Jón Egilsson og skrifstofanna verið sameinuð. Kol- að stórefla og treysta ferðaþjónustu fjölskylda, Úrval, Flugfélag Norð- beinn Sigurbjörnsson, sem veitti á Akureyri og Norðurlandi í heild. urlands og Flugleiðir. Ferðaskrif- Akureyrarskrifstofu Útsýnar for- Ekki síst er ætlunin að vinna að stofan er til húsa að Ráðhústorgi 3 stöðu hefur verið ráðinn sölustjóri auknum ferðamannastraumi til og auk símanúmersjns 25000 hefur Ferðaskrifstofu Akureyrar en Gísli Norðurlands og skapa þar með símanúmerið 22911 er Útsýn hafði Jónsson verður áfram fram- aukna atvinnu í þessum landshiuta á Akureyri verið flutt til FA. kvæmdastjóri FA. jafnhliða tekjuaukningu einstakl- Akureyri 13. dcsember 1984. Viðræður um samruna þessara inga, fyrirtækja og sveitarfélaga. Ferðaskrifstofa Akureyrar Ferðaskrifstofan Útsýn. Að sögn Sigurðar hafa nú bor- ist 272 uppboðsbeiðnir og því væri ekki óeðlilegt að ætla að þessi tala yrði komin upp í um 300 í árslok. í fyrra voru upp- boðsbeiðnir 251 talsins en árið 1980 voru þær aðeins 47. Sigurður sagði að erfitt væri uð segja til um hvernig innheimta opinberra gjalda hefði gengið í ár. Útgerðarfyrirtækin vægju þungt á metunum og ef þau fengju skuldbreytingu fyrir ára- mót eins og rætt hefði verið um, mætti segja að staðan væri þokkaleg. Ef ekki, þá yrði inn- heimtuhlutfallið fremur slakt um áramót. - ESE hjálp í formi skuldbreytingar. Að sögn Kristjáns Ásgeirsson- ar, framkvæmdastjóra Höfða hf. á Húsavík sem gerir út Kolbeins- eyna, á hann ekki von á uppboðs- beiðni fyrir jól. Skuldir Kolbeins- eyjar eru allar við sjóðina og Kristján sagðist ekki hafa trú á öðru en að fyrirtækið héldi togar- anum þó að til uppboðs kæmi. - ESE Vilja byggja skóla í Reykja- hlíð „Það má segja að framkvæmd- ir hér í Mývatnssveit á árinu hafí beinst að fleiri verkcfnum en oft áður en umfang hvers fyrir sig verið heldur minna,“ sagði Arnaldur Bjarnason sveitárstjóri í Skútustaða- hreppi er við ræddum við hann í vikunni. Við höfum verið að vinna við sundlaugina hér í Reykjahlíð, við tókum þetta mannvirki í notkun fyrir um tveimur árum og höfum verið að vinna þar í kjailara, en þar er ætlunin að koma upp þrek- þjálfunaraðstöðu. Þá hefur verið unnið við íþróttavöllinn og er ætlunin að þeim framkvæmdum ljúki á næsta ári, hlaupabrautum og þess háttar. Það var lokið við að leggja slit- lag á þjóðveginn hér í þéttbýlinu og steyptir um 700 metrar af gangstéttum við þessar götur. Við unnum við fjallskilamann- virki, gangnamannakofa og lögðum vegarslóða að þeim. Við héldum áfram framkvæmdum við félagsheimilið Skjólbrekku, endurnýjuðum hitaveitulögn frá Reykjahlíð í Voga og jafnframt tengdust Vogar vatnsveitu Reykjahlíðar. Fleira mætti tína til en þetta er það helsta. Það er of snemmt að segja til um framkvæmdir á næsta ári, þar hanga saman hagsmunir okkar við fjárlög. Við höfum lengi þrýst á það að fá að hefja framkvæmdir við skóla í Reykjahlíð, má segja að við höfum verið að berjast við það í fimm ár að fá að byrja. Skólinn hefur verið hannaður af Svani Eiríkssyni arkitekt á Akur- eyri og við bíðum nú eftir því hvað ríkisvaldið vill gera í mál- inu. Þá hefur verið rætt um stækkun hitaveitu Reykjahlíðar og fara með hana suður með vatninu, alla leið í Skútustaði og Álftagerði. Það er stór fram- kvæmd á okkar mælikvarða. Ef af þessu hvoru tveggja verður, byggingu skólans og stækkun hitaveitunnar þá yrðu það ærin verkefni,“ sagði Arnaldur Bjarnason.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.