Dagur - 16.01.1985, Qupperneq 9
16. janúar 1985 - DAGUR - 9
Frábært hjá judóstrákunum
Akureyringar slógu heldur
betur í gegn á drengjameist-
aramóti íslands í júdó sem
haldið var í Reykjavík um
helgina, en þar kepptuy 9-14
ára júdóstrákar víðs vegar af
landinu, alls 78 strákar.
Sem dæmi um frammistöðu
Akureyringanna má nefna að af 8
gullverðlaununum hirtu þeir 6,
þeir tóku helminginn af 8 silfur-
verðlaununum og 7 af þeim 15
bronsverðlaunum sem í boði
voru. Samtals unnu Akureyring-
arnir því til 17 verðlauna af 31 á
mótinu.
Margir piltanna vöktu mikla
athygli vegna frammistöðu
sinnar, en enginn þó eins og
Gauti Sigmundsson sem keppti í
11-12 ára flokki. Þessi ungi piltur
sýndi á mótinu slík tilþrif að með
ólíkindum má telja af ekki eldri
júdómanni og voru menn hrein-
lega gapandi af undrun yfir
frammistöðu hans. En lítum þá
á hvaða Akureyringar komust á
verðlaunapall, en þeir voru sem
fyrr sagði 17 talsins af þeim 21
keppanda sem fór til mótsins frá
ÍBA.
í -t-34ra kg flokki 9-10 ára sigr-
aði Júh's Arnarson og Kristófer
Einarsson varð í 2. sæti. í +34ra
kg í þessum aldursflokki varð
Rúnar Jósepsson annar og Guð-
mundur Rafnsson þriðji.
í +37 kg þyngdarflokki 11-12
ára hirtu Akureyringar öll verð-
launin, Jón Ó. Árnason sigraði,
Hans R. Snorrason annar og
Gunnlaugur Sigurjónsson þriðji.
Ekki voru yfirburðirnir síðri í
37^15 kg floicki 11-12 ára en þar
voru 20 keppendur. Keppt var í
fjórum fimm manna riðlum og
komst sigurvegarinn úr hverjum
riðli í undanúrslitin, og þessir
fjórir voru allir úr ÍBA. Þeir
enduðu síðan í þessari röð: Gauti
Sigmundsson sigraði, Auðjón
Guðmundsson annar, Baldur
Jóhannsson og Stefán Guð-
mundsson skiptu síðan með sér
3.-4. sætinu.
í +45 kg flokki 13-14 ára sigr-
aði Baldur Stefánsson ÍBA og
Ólafur Herbertsson varð þriðji.
í 45-58 kg flokki varð Árni
Ólafsson þriðji og í +58 kg flokki
vann Karl Jónsson og Trausti
Harðarson varð þriðji.
Það er því óhætt að segja að
menn mótsins hafi komið frá Ak-
ureyri og er Ijóst að um miklar
framfarir er að ræða í þessari
íþrótt. Þjálfari drengjanna er Jón
Óðinn Óðinsson.
Þór gegn
UMFL
Tveir leikir verða í 1. deildinni í
körfuknattleik á Akureyri um
næstu helgi. Leikirnir verða báðir
á milli Þórs og UMFL sem er í
neðsta sæti deildarinnar og hefur
ekki hlotið stig.
Leikirnir verða kl. 20.45 á föstu-
dagskvöld og aftur kl. 13.30 á
laugardag. Telja verður Þórsara
nokkuð örugga með sigur í þess-
um ieikjum, þó vonandi mæti
leikmenn ekki til leiks að leikirn-
ir séu unnir fyrirfram..
Skagamenn hefja titil-
vömina á Akureyri
Mótanefnd knattspyrnusam-
bandsins mun nú fara yfir töfluna
og sennilega gerir hún einhverjar
smávægilegar breytingar á leikja-
niðurröðun, sérstaklega með til-
liti til þess að ekki séu margir
leikir á sama stað f einu eins og
svo auðveldlega getur komið upp
á á höfuðborgarsvæðinu.
i.ins og i iyrra Kemur pao i mui
Þórsara að taka á móti Skaga-
mönnum í 1. umferð 1. deildar
keppninnar í knattspyrnu.
Um helgina var töfludregið í 1.
og 2. deild og er ljóst hvaða lið
ieiKa saman i 1. umtero.
deild eru það:
Þór-Akranes
Víkingur-Valur
Fram-ÍBK
Víðir-FH
KR-Þróttur.
l J. 12. deild leika saman í 1.
umferð:
KS-ÍBV
UMFS-KA
Fylkir-ÍBÍ
Völsungur-Leiftur
UMFN-UBK.
sig úr KA!
„Ég veit ekkert fyrir hvaða fé-
lag ég mun keppa en ég ætla
ekki að reyna að fara í Þór því
ástandið er sennilcga ekkert
betra þar en í KA. Ég vona
bara að það verði stofnað
hérna lyftingafélag í bænum
eins og rætt hefur verið um og
það félag verði aðili að ÍBA.“
- Þetta sagði Kári Elíson
kraftlyftingamaður, en Kári sem
hefur keppt fyrir KA hefur nú
sagt sig úr félaginu. Við spurðum
hann um ástæður þess.
„Ég fór að finna það í fyrravor
þegar stjórnarskipti urðu í félag-
inu að andinn gagnvart okkur
lyftingamönnum breyttist. Við
vorum jafnvel látnir finna það að
KA væri fyrst og fremst knatt-
spyrnufélag og það var fyllilega
gefið í skyn að við værum ekkert
velkomnir þar.
Ég fékk þó tvívegis styrk á ár-
sagði
inu 1983 til keppni erlendis. Síð-
an er ég bað um styrk fyrir HM í
haust ef mögulegt væri fékk ég
neitun og þá var gefið í skyn að
ekki yrði um slíkt að ræða fram-
vegis, þeir væru hættir að styrkja
einstaklinga. Mér fannst því rök-
rétt framhald að hugga þessa
menn með því að losa þá við mig
og sagði mig því úr KÁ.
Ég gerði það bréflega og e.t.v.
má segja að ég hafi gert það að
nokkru leyti með háðsglósum.
Þannig óskaði ég knattspyrnu-
mönnum félagsins alls góðs og
kvaðst vona að þeir héldu sæti
sínu í 2. deild næsta sumar án
þess að það væri illa meint! Ég
benti líka á þá staðreynd að ég
hefði náð sambærilegum árangri
í minni íþrótt t.d. á mótum er-
lendis við þann árangur sem
knattspyrnumenn KA hafa náð.“
- Hvaða mót eru framundan
hjá þér?
„Það eru Akureyrar- og ís-
landsmót en það sem ég horfi
aðallega til er Evrópumótið f
Hollandi. Ég var í 2. sæti á síð-
asta Evrópumóti og þótt ég hafi
saxað nokkuð á Evrópumeistar-
ann þá reikna ég ekki með því að
vinna hann, heldur stefni að því
að halda 2. sætinu."
Íþróttasíðan sneri sér til aðal-
stjórnar KA og spurðist fyrir um
það hvort það væri stefna stjórn-
arinnar að styrkja ekki íþrótta-
menn í einstaklingsgreinum eins
og Kári víkur að. Svar stjórnar-
innar var á þessa leið:
„Aðalstjórn KA lítur svo á að
félagið sé deildaskipt og stjórnir
viðkomandi deilda sjá um að
reka þær og annast fjármál, þar
með talið að greiða ferðakostn-
að. Aftur á móti fara peningar
aðalstjórnar fyrst og fremst í að
byggja upp aðstöðu og var millj-
ónum varið til þeirra hluta á síð-
asta ári eins og margir vita, og
þeirra á meðal Kári Elíson. Þó
skal tekið fram að þeir einstakl-
ingar innan liðsins sem aðalstjórn
hefur veitt styrki hafa verið lyft-
ingamenn.
Þar sem Kári hefur sérstaklega
beint skeytum sínum að knatt-
spyrnudeildinni skal tekið fram
að sú deild hefur eigin stjórn og
aðalstjórn hefur ekki styrkt ein-
staka knattspyrnumenn til ferða-
laga hvorki innanlands né utan
síðastliðin ár.
Þrátt fyrir að Kári Elíson hafi
sagt sig úr KA óskum við honum
góðs gengis sem og öðrum lyft-
ingamönnum og vonumst til þess
að þeir geti stofnað sitt eigið
íþróttafélag á Akureyri eins og
hugur þeirra virðist stefna til. Þá
ættu ekki að koma upp fjárhags-
vandamál né fararstjóravanda-
mál hjá þeim í framtíðinni.“
Hinrik Þórhallsson.
„Fylgdi
Mariner
til
Highbury"
Við verðum víst að gera smá
undantekningu að þessu sinni.
Hinrik Þórhallsson sem hefur
verið á blaöi hjá okkur sem Ips-
wich-maður hefur nefnilega
skipt um fclag í enska boltanum
eins og reyndar hérna heima
eins og reyndar hérna heima.
Svo seint koin þetta í Ijós að
ekki var hægt að finna annan
Ipswich-mann í fljótheitum.
„Ég var búinn að halda með
Ipsnich nokkuö lengi og hélt
mikið upp á Paul Mariner. Svo
þcgar hann fór til Arsenal var
ég iiú ckki fastari stuðnings-
maður Ipswich en það að ég
fylgi Mariner yfir á High-
bury,“ sagði Ilinrik er við
rædduiii við hann uin ástæð-
urnar.
„Ætli við segjuin ekki aö
Arsenal vinni deildina, ég get
ekki verið þckktur fyrir annað.
Þaö vcrða þarna finun lið sem
bcrjast, Arsenal, Tottenham,
Everton, Liverpool og Man-
chester IJnited."
Og þá lítum við á spá
Hinriks:
Chelsea-Arsenal I
Ipswich-West Ham 1
I.iverpool-Norwich I
N.Forest-Shcff.Wed. I
Stoke-Luton x
Tottenham-Everton x
Watford-Man.Utd. x
Harnsley-Grimsby I
Middlcsb.-Portsmouth \
Oxford-Huddersfíeld 1
Sheff.Utd.-Wolves x
Schrewsbury-Kiilham \
Árni með 3 rétta
Árni Jónsson QPR-maður náði
ekki nenia þremur reltum i sið-
ustu viku. Reyndar var sáralítið
spilað af þeim leikjum sem á
seðlinum voru og kom þá til
kasta einhverra spekinga i
Englandi að segja forráða-
mönnum Gctrauna á Islandi
hvernig úrslitaröð skyldi vera!
Þess varð Árni aö gjaldu eins
og svo margir aðrir.
Stuða efstu inannu er þannig
að Sigurður Pálsson er meö 6
réttu. og siöun koma 5 speking-
ar með 5 rétta hver.
1—X—2