Dagur - 18.01.1985, Blaðsíða 3
18. janúar 1985 - DAGUR - 3
Hannes
Hólmstdnn við
Dómkirkjuhomið
Eflaust minnast landsmenn atriðis úr áramótaskaupinu fúllrar minningar, þar
sem Hannes Hólmsteinn var að læðast fyrir Dómkirkjuhornið á meðan úti-
fundur BSRB-manna stóð við Alþingishúsið. Þar var hann sem fréttamaður
Valhallarútvarpsins og var ýmist að koma fyrir hornið, eða þá að fara fyrir það
aftur á bak. Ólíkt meiri húmor var í kvæðinu sem ég rakst á í NV - blaði alla-
balla í Norðurlandskjördæmi vestra. Áramótaskaupið var undir kvennastjórn
að þessu sinni og þótti fúlt. Það er svo sem í lagi þó þær hertaki Alþingi og
sveitarstjórnir blessaðar og komi þar öllu á kaldan klaka, en áramótaskaupið
gátu þær sko látið í friði! (Nú verð ég laminn í næsta kaffitíma.) En hér kemur
kvæðið um hann Hannes „frjálshyggna“ Gissurarson:
Við dómkirkjuhornið er dulítið skjól
og dolfallinn maður í skjólinu hjarir
með opið í hálsinn í októbersól,
uppglennta skjáina og titrandi varir,
hrollandi í bitru á helfrosnum tám,
hnýttur af kulda með rennsli úr nefi,
dofinn í krikum og dofinn í hnjám,
djúpt oní vösum er krókloppinn hnefi.
Pað gustar um Hannes H. Gissurarson
á gægjum við hornið að snapa eftir fréttum.
í svip hans er spurning og veikburða von
um Valhallarsigur á Béesserrbé-stéttum.
Hann leynist í skugga, hann vokir, hann veit
það er vissast að taka ekki áhættu neina
svo fjarri öllum vinum í frjálshyggjusveit,
þeim Friedman og Hayek og Davíð og Steina.
þá hefur nú kvenfólkið hertekið vöruflutningabransann líka, ef marka
má þessa mynd sem ég rakst á í myndasafninu á dögunum. Og þó. Við nán-
ari eftirgrennslan kom í Ijós að þær Hildur Kristófersdóttir og Regína Sigur-
óladóttir entust ekki í starfinu nema eina nótt, rétt á meðan þær voru að
forða skjölum Iðnaðarbankans frá brunanum í Sjallanum forðum daga.
Vígi
svindkircmm
Enn ætla ég að bæta vísum í blönd-
una og ætti hún þá að vera orðin
sæmilega sterk. Þessar vísur eru eftir
Kristján frá Djúpalæk eftir því sem
best er vitað. Hann vann um tíma
hjá svonefndu „setuliði“, en það lið
gekk að almennri verkamannavinnu
hjá KEA, oftast við skipaafgreiðslu.
Kristján lét fjúka margar lausavísur
á þessum árum, til að stytta mönnum
stundir og létta geðið. Bifröst hét hér
vörubílastöð og heitir enn, en er nú
orðin deild í KEA. Um þá sem þar
störfuðu orti Kristján þessa vísu:
Nafnið Bifröst valið var,
vígi svindlaranna.
Stýrir heimskur Helgi þar
hópi glæpamanna.
Bifreiðastjórar á Stefni fengu líka
sinn skammt, því um þá gerði Krist-
ján þessa vísu:
Vörubílastöðin Stefnir
stendur Polli hjá.
Ökuþórar illa gefnir
aka henni frá.
Og ekki sluppu þeir hjá Pétri og
Valdimar, því um Valda gerði Krist-
ján þessa vísu:
Heima ætti höfuðstór
í hálfvitanna röðum.
Vindi blásinn viskusljór
Valdi á Hallgilsstöðum.
Margar fleiri vísur mun Kristján hafa
gert, en þeim hefur ekki verið haldið
til haga. Ef einhverjir kunna þær þá
mættu þeir gjarnan hafa samband við
mig.
Úr bókviti malar hans krambúðarkvörn
í kapítalistanna gullpyngjur digrar,
en gott er að hafa af guðshúsi vörn
ef gerast þau ósköp að jafnréttið sigrar.
En Hannes minn Hólmsteinn, þótt kenning sé klár
mun Kristur ei taka neitt mark á þeim orðum,
og uppi þú verður jafn einmana og smár
og eitt sinn á dómkirkjuhorninu forðum.
THbod - Tfflboð
á inniskóm kvenna
Litur: Ljósbrúnn.
Kr. 655,-
Teg. 55A/198.
Litur: Ljósdrapp.
Kr. 549,-
Teg. PUW/45.
Litur: Ljósdrapp.
Kr. 655,-
Teg. 25/05.
Litur: Hvítur m/korksóla.
Kr. 290,-
Litur: Ljósdrapp
m/korksóla.
Kr. 549,-
Teg. 40/258.
Litur: Blár m/korksóla.
Kr. 449,-
Teg. 55A/11.
Litur: Hvíturm/korksóla.
Kr. 549,-
Sendum í
póstkröfu.
SÍMI
21400