Dagur - 18.01.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 18. janúar 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 25 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Búseturöskun
og eignaupptaka
Sú gífurlega búseturöskun
sem orðin er og virðist fara
vaxandi er stórkostlegt
áhyggjuefni öllum þeim
sem eitthvað hugsa um
þessi mál. Þessi þróun
hófst í byrjun þessa áratug-
ar og er sífellt að koma bet-
ur og betur í ljós. Sem dæmi
má nefna að á síðasta ári
fækkaði um 41 í ekki stærri
bæ en Ólafsfjörður er, sem
er mikil blóðtaka. Árið 1983
varð fólksfækkun á Akur-
eyri í fyrsta skipti í eina
þrjá áratugi og líkur eru á
að enn hafi fækkað á síð-
asta ári, eða a.m.k. ekki orð-
ið fjölgun.
Mörg ár á undan hafði
Akureyri haft fólksfjölgun
yfir landsmeðaltali, eða um
eitt og hálft prósent á ári.
Ef allt hefði verið með
felldu hefði því fjölgað á
Akureyri um 400 manns á
síðustu tveimur árum. Með
öðrum orðum má segja að
Akureyri hafi misst 400
manns og þar með orðið af
miklum tekjum og veltu,
sem nemur líklega á annað
hundrað milljónum króna
þessi tvö ár.
Margar samverkandi
ástæður eru fyrir þessari
óheillavænlegu þróun.
Samdráttur í efnahagskerf-
inu hefur leikið lands-
byggðina verr en höfuð-
borgarsvæðið. Þegar launa-
skriðið var stöðvað hafði
það meiri áhrif úti á landi,
þar sem sjaldgæfara er að
menn geti einhverju ráðið
um tekjur sínar og hlutfalls-
lega fleiri stunda launastörf
heldur en á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem meira er
um það að menn geti ráðið
tekjum sínum með sjálf-
stæðum atvinnurekstri. Á
sama tíma og efnahagsráð-
stafanirnar voru gerðar
kom til samdráttur í sjávar-
útvegi og landbúnaði, sem
einnig verka miklum mun
meira á landsbyggðinni.
Þessi öfugþróun hefur
haft þau áhrif að verðmæti
fasteigna á landsbyggðinni
hafa stórlega rýrnað í verði.
Má jafnvel segja að um
hálfgerða eignaupptöku sé
að ræða, því það þýðir lítið
fyrir stjórnvöld að bera það
á borð að um óhjákvæmi-
lega þróun sé að ræða.
Hægt er að hafa veruleg
áhrif á þá stefnu sem þessi
mál taka með markvissri
stjórnun, m.a. í efnahags-
og gengismálum. Það sem
meira er: Breytt stefna í
þessum málum kæmi allri
þjóðinni til góða því þjóð-
flutningar á einn stað á
landinu, eins og nú er stað-
reynd, eru óhagkvæmir frá
öllum sjónarmiðum.
Spurningin er sú, í hvert
óefni þessi mál þurfi að
komast til þess að stjórn-
völd taki loks við sér og
hefjist handa? Verður þá
ekki of seint í rassinn
gripið? Það er þegar orðið
of seint fyrir þá sem hafa
þurft að selja fasteignir sín-
ar á hálfvirði, undir kostn-
aðarverði, og flytjast búferl-
um gegn vilja sínum. Það er
ekki hægt að kalla þetta
annað en eignaupptöku.
Henni verður að linna.
Það er með öllu vonlaust að lýsa
þeiri stemmningu sem ríkti í
Sjallanum í gær. Það var Mezzo-
forte sem framdi þar gjörning á
öllum viðstöddum, enginn gat
setið kyrr. Klukkan átta byrjuðu
tónleikar fyrir „alla unglinga
bæjarins", og það var sannarlega
stuð á mannskapnum. Klukkan
tíu tóku við tónleikar fyrir 18 ára
og eldri, og ekki var fjörið minna
þá. Fimm klukkustunda stanslitl-
ir tónleikar með Mezzoforte eru
stórkostlegri upplifun en orð fá
lýst - við skulum prófa að kíkja
á myndirnar. - KGA
Myndir: KGA.