Dagur - 18.01.1985, Page 6
6 - DAGUR - 18. janúar 1985
„Fólk fer í sólarlampa til
að fá brúnan og hraust-
legan lit, en einnig til að
losna við streitu og
vöðvabólgu, liturinn er
sálfræðilega hliðin,
hverjum líður ekki betur
með hraustlegt og fallegt
útlit. “
Við erum komin í heimsókn
á einaaf nýjustu sólbaðsstofum
bæjarins, sem heitir því sólríka
nafni „Hawaii“. Pað er annar
eigandi hennar, Tryggvi Þórar-
insson, sem hefur orðið, en
meðeigandi hans er Gunn-
iaugur Einarsson. Tryggvi sér
um rekstur stofunnar, ásamt
Ingibjörgu Ingólfsdóttur eigin-
konu sinni. Tryggvi var spurður
um þær ásakanir sem sólar-
lampar hafa orðið fyrir að
undanförnu, sem sé að þeir
valdi húðkrabba.
B-geislarnir úr sögunni
„Til skamms tíma voru flestar
sólbaðsstofur með svonefndar
UVB perur, sem gefa frá sér
1,5% af B-geislum, en samsvar-
andi magn þeirra frá sólinni er
0,05-0,07%. Það eru þessir
geislar sem brenna húðina og
jafnframt er talið að þeir geti
valdið húðkrabba. Þessar perur
hafa verið notaðar í svonefnda
18 mínútna lampa, en nú hefur
innflutningur þeirra verið bann-
aður og í undirbúningi mun
vera að taka þær úr umferð.
Á síðustu mánuðum hefur
orðið bylting í þessum málum,
því smátt og smátt hafa svo-
nefndir 27 mínútna lampar ver-
ið að ryðja sér til rúms og við
hjá Hawaii bjóðum eingöngu
slíka lampa. Þeir eru betur bún-
ir en þeir gömlu, lengri og
breiðari. Auk þess eru í þeim
nýjar perur, svonefndar UVA
perur, sem gefa ekki frá sér B-
geisla nema 0,01% á móti 1,5%
í gömlu lömpunum. í staðinn
kemur A-geisli, sem er mildur
og skaðlaus, að því er talið er.“
- Hvernig á að nota þessa
lampa, hversu lengi í senn og
hvað oft?
„Hver tími er 27 mínútur og
það er í lagi, jafnvel fyrir byrj-
endur, að nota fullan tíma, því
þessir lampar brenna húðina
ekki. í byrjun er rétt að taka 5-
10 tíma kúra, en við ráðleggjum
nýliðum að fara ekki daglega,
láta líða a.m.k. einn dag á milli.
En eftir kúrinn hefur reynst
nægjanlegt að fara einu sinni í
viku í lampa til að halda
litnum.“
Anna Þórhallsdóttir, sem var
að „sóla“ sig í einum lampanum
á Hawaii þegar okkur bar að
garði, tók í sama streng. Hún
sagðist hafa notað mikið gömlu
gerðina af sólarlömpunum,
fyrst eftir að þeir komu. „Ég var
alveg sjúk í lampana til að byrja
með,“ sagði Anna, „en síðan
gafst ég upp á þeim, í og með
vegna þess hvað ég varð rauð og
þrútin í andliti eftir hvern tíma.
En ég byrjaði aftur eftir að
Hawaii byrjaði og bauð upp á
nýja gerð af lömpum. Og þetta
er allt annað líf, maður brennur
ekkert. Hverju sækist ég eftir,
litnum fyrst og frernst," sagði
Anna.
„Við leggjum áherslu á að
viðskiptavinir okkar noti lamp-
ana á réttan hátt. Sumir vilja til
dæmis tvöfaldan tíma, en við
ráðum fólki eindregið frá því,
þar sem það er alger misnotkun
og fer illa með húðina," sagði
Tryggvi.
Prifnaður mikið atriði
- Hvað með þrifnað?
„Já, þrifnaður er mjög mikið
atriði og við höfum svo sem
heyrt sögusagnir um sóðaskap-
inn hjá okkur, sem hlýtur að
vera kominn frá öfundsjúku
fólki, sem á illt með að þola vin-
sældir stofunnar. En ég get
fullyrt, að þrifnaður gerist ekki
meiri eða betri en hér hjá okkur
og þetta geta viðskiptavinir
okkar staðfest. Þeir hafa margir
lýst yfir ánægju með þann þrifn-
að sem hér ríkir. Við þvoum
bekkina sjálf eftir notkun, en
það tíðkast því miður ekki á
öllum sólbaðsstofum. Fyrst er
svitinn þurrkaður af, en síðan
er bekkurinn úðaður með
Hlýleg setustofa er í Hawaii. Á myndinni er Unnur Sigurðardóttir, starfsstúlka á Hawaii, Tryggvi
Þórarinsson og Anna Þórhallsdóttir. Myndir: GS
hreinsi- og sótthreinsivökva, og
loks þurrkaður í tvígang. Einn-
ig eru andlitsljósin þvegin eftir
hverja notkun. Auk þess er
stofan öll þrifin eftir hvern dag.
Er hægt að gera betur?“ '
- Hvað með verðið?
„Verð hjá sólbaðsstofum hef-
ur að sjálfsögðu verið mjög
misjafnt, enda er mikill munur
á því að selja tíma í 18 mínútna
lampa eða 27 mínútna. Fyrir
það fyrsta er hver tími lengri í
þeim síðarnefndu, en auk þess
eru lamparnir dýrari og skila
betri árangri. Tíminn hjá okkur
kostar 170 kr., sem þið á Degi
sögðuð helmingi dýrara en hjá
ódýrustu stofunni. Slíkt stenst
ekki, þar sem ekki er verið að
selja sömu þjónustuna, eins og
ég hef bent á. Algengt verð í
lampa eins og við erum með er
150-190 krónur í Reykjavík og
ég veit að hærri talan sést hér á
Akureyri líka. Okkar þjónusta
er því ekki okur og við bjóðum
5 og 10 tíma kort með veru-
legum afslætti; 5 tíma kortin á
750 kr. og 10 tíma kortin á
1.400 krónur. Hver og einn
bekkur er í sérklefa og gestir
okkar fá sér sturtuklefa og að-
stöðu til að vera út af fyrir sig
við snyrtingu. í lokin geta gestir
okkar síðan slappað hér af í
vistlegri setustofu," sagði
Tryggvi Þórarinsson í lok sam-
talsins.