Dagur - 18.01.1985, Side 15
18. janúar 1985 - DAGUR - 15
PRACTICAL. STYLISH. LUXURIOUS
A mm ivacitcsl >»•»ion ron won'i lnxl l>»> »*v
Sulutfu 4WD SlAtiixi Wxyvm IH uH«t« aii otxMKUix.a u* dokKG a|i|tolnlmsiiU
Th« load oiixt Is pwfw-dy «i« »<x >U| uikI *|>M»«mcMn« liMdlna
r»ie dual raixje Hl oixl 1» 4W0 troiiMnxmKm ixu.xlee » a«a» r«IK> 1«
Mhnost i«i>y r.oixlrtkjn. on or oH rosd Aoil Ux» snyxio uixlsrouun
Nýr og betri
Subaru ’85
- Bílasýning hjá Sigurði Valdimarssyni um helgina
Um helgina verður bílasýning
á Bifreiðaverkstæði Sigurðar
Valdimarssonar að Óseyri 5a.
Þar verða sýnd nýjustu mód-
elin af Subaru og Nissan
bílum.
Nýjasta árgerðin af Subaru
sr verulega breytt frá árgerð
1984. Bíllinn er bæði stærri og
straumlínulagaðri, auk þess
sem hann er kominn með afl-
meiri vél og fimm gíra kassa
með háu og lágu drifi, eins og
var. Þar að auki er vökvastýri
í nýja bílnum og hann er hægt
að fá sjálfskiptan. Þótt nýja
vélin sé aflmeiri er hún samt
hljóðlátari, sparneytnari en
sú gamla, sem þakkað er því
að vélin er með yfirliggjandi
knastásum. Og nú er Subaru-
inn orðinn mýkri, því slag-
lengri fjöðrun hefur verið sett
undir hann að aftan.
Subaru 1800 Leone kostar
489 þúsund kr., en fólksbíll-
inn, sem nú er einnig fjórhjóla-
drifinn, kostar 559 þúsund
kr. Þá er kominn á markaðinn
minni Subaru, sem nefnist
“Justyinn", en hann er 5 dyra
og með fjórhjóladrifi. Hins
vegar hefur hann ekki hátt og
lágt drif. Hann kostar 372 þús-
und kr.
A bílasýningunni hjá Sig-
urði Valdimarssyni verða
einnig tvær gerðir af Nissan
bílum. Fyrst er þar að nefna
Bluebirdinn, sem er með dís-
elvél og kostar 628 þúsund, en
til leigubílstjóra kostar hann
ekki nema 469 þ. kr. Nissan
Cherry verður einnig á sýning-
unni, en hann kostar frá 327 þ.
kr. og bílinn er hægt að fá 3ra
og 5 dyra, 4ra, 5 gíra eða sjálf-
skiptan, og hægt er að velja
milli þriggja vélarstærða.
Margar aðrar gerðir af Nissan
bílum verða kynntar á sýning-
unni.
Þór mœtir
FHí
handbolta
Lítið verður um að vera á
íþróttasviðinu á Akureyri um
helgina. Tveir leikir voru fyrir-
hugaðir í 1. deild íslandsmóts-
ins í körfuknattleik á milli
Þórs og UMFL en þeim hefur
verið frestað.
Hins vegar verður leikur
Þórs og FH í 1. deild kvenna í
handknattleik, og hefst hann í
íþróttahöllinni kl. 19.15 í
kvöld. Um aðra íþróttavið-
burði á Akureyri um helgina
sem í hönd fer er ekki vitað.
STATION WACON 1,8 DL
Tónleikar Tónlistarfélagsins:
Málmblásturs-
hljóðfœri í öndvegi
Laugardaginn 19. januar
verða þriðju tónleikar Tónlist-
arfélagsins á þessu starfsári.
Verða þeir í Akureyrarkirkju
og hefjast kl. 17.00.
Þeir sem fram koma á þess-
um tónleikum eru Málmblás-
arakvartett Reykjavíkur, en
hann skipa trompetleikararnir
Lárus Sveinsson og Jón Sig-
urðsson, Þorkell Jóelsson
hornleikari og William Greg-
Edward J. Fredrikssen
verður meðal hljóðfæra-
lcikara blásara.
ory básúnuleikari og Málm-
blásarakvintett Tónlistarskól-
ans á Akureyri, en hann skipa
trompetleikararnir Atli Guð-
laugsson og Halldór Halldórs-
son, Emil Friðfinnsson horn-
leikari, Edward J. Frederiksen
básúnuleikari og Roar Kvam
túbuleikari. Þessum blásurum
til aðstoðar verður Guðlaugur
Baldursson básúnuleikari.
Leikin verða verk eftir Pál
P. Pálsson, Herbert H.
Ágústsson, Matthew Locke,
Hoagy Carmiehael o.fl.
Akureyrar
Skákþing Akureyrar, hið 67. í ustu skákmönnum bæjarins
röðinni hefst nú um helgina.
Var upphaflega ráðgert að
mótið hæfist um síðustu helgi,
en því var frestað um eina viku
af óviðráðanlegum ástæðum.
Keppni í almennum flokki
hefst sunnudaginn 20. janúar
kl. 14.00, en unglingaflokkur-
inn byrjar þegar í kvöld 18.
jan. kl. 20.00. Teflt verður í
Barnaskóla Akureyrar. Þátt-
takendum verður raðað í
flokka eftir styrkleika og er
gert ráð fyrir að flestir af sterk-
verði meðal þátttakenda, en
mótið er að sjálfsögðu öllum
opið og nýir félagar sérstak-
lega boðnir velkomnir. Enn er
hægt að láta skrá sig til þátt-
töku í símum 22897 (Albert)
og 23926 (Gylfi) fyrir laugar-
dagskvöld. Keppendur í ungl-
ingaflokki (15 ára og yngri)
mæti til skráningar við upphaf
fyrstu umferðar í kvöld. Nú-
verandi skákmeistari Akureyr-
ar er Kári Elíson.
Nýi Subaruinn er rennilegur bíll.
Búast má við miklum heilabrotum á Skákþingi Akureyrar.
LETTin
1h
Hestamenn
Hestamannafélagið
Léttir
hefur fengið til útleigu til félags-
manna videóspólur frá landsmót-
unum 1978 og 1982, Hesta-
dögum í Garðabæ og Kirkju-
bæjarhrossin.
Verð 100 kr. hver spóla. Spólurn-
ar eru til leigu hjá Ragnari Ing-
ólfssyni Grundargerði 2c, sími
24628.
Hestamannafélagið Léttir.
Tónlistarskólinn
á Akureyri
Kennsla á vorönn hefst mánudaginn 28.
janúar.
Unnt er að bæta við nokkrum nemendum í eftir-
töldum greinum:
Forskóladeild, 6 ára aldur.
Einnig gítar, orgel, trompet, althorn, túbu og klari-
nettleik.
Innritun og upplýsingar á skrifstofu skólans sími
21788 eða 21460 mánudag, þriðjudag, fimmtu-
dag og föstudag frá kl. 13-17 og miðvíkudag kl.
9-12 í næstu viku.
Skólastjóri.
Allir velkomnir
í Laxdalshús.
Opið föstudag,
laugardag og sunnudag
Tileinkað Sólon íslandus verða eingöngu kertaljós á borðum
og munir frá gamalli tíð á veggjum.
Auk þess ljósmyndir úr umræddu leikriti.
Hafa matreiðslumeistarar Sjallans veg og vanda
af matreiðslu kvöldsins. Máisverður frá kr. 450,-
Opið á föstudag og laugardag til kl. 01. Léttar veitingar.
Opið á sunnudag frá kl. 2-6 e.h. Kaffiveitingar.
Vegna frábærra undirtekta viljum við benda gestum á að panta
borð tímanlega, og teikhússmatargesti biðjum við vinsamlegast
að mæta tímanlega, svo þeir geti notið veitinganna
sem best í ró og næði.
Pantanir í síma 26680 eða 22644.