Dagur - 23.01.1985, Page 3
23. janúar 1985 - DAGUR - 3
„Hækkunin vegur ekki
þungt á meðalíbúöir“
- segir Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi um hækkun fasteignaskatts
Ákvörðun meirihluta bæjar-
stjórnar um álagningu fast-
eignagjalda á árinu 1985 hefur
verið mikið til umræðu meðal
bæjarbúa að undanförnu,
einkum hækkun álagningar á
fasteignaskatt, en hann verður
nú innheimtur með 25% álagi
eins og Ieyfilegt er í stað 12,5%
álags í fyrra. Var t.d. gengist
fyrir undirskriftasöfnun í bæn-
um til að mótmæla raunhækk-
un fasteignaskatta á þeirri for-
sendu að launafólk hafi að
undanförnu mátt þola mikla
kjaraskerðingu og sé ekki í
stakk búið til að taka á sig
auknar byrðar, en flest búi það
í eigin íbúðum. Minnihluti
bæjarstjórnar setti sig upp á
móti þessari hækkun, þ.e.
sjálfstæðismenn í minnihlutan-
um.
„Það er eðlilegt að þetta sé
rætt meðal bæjarbúa, þó þessi
hækkun vegi ekki þungt á meðal-
íbúðurn," sagði Sigurður Jóhann-
esson, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins og talsmaður meirihlut-
ans í þessu máli. „Breytingin ger-
ir það að verkum að álagningar-
prósentan á fasteignamat íbúðar-
húsnæðis hækkar úr 0,5625 í
0,625. Fasteignaskattur af íbúð
sem er að fasteignamati kr.
1.500.000 hækkar því úr 8.438 kr.
í 9.375 kr. eða um 937 kr. vegna
þessarar hækkunar á álagningar-
prósentunni. Þessi hækkun á
milli ára verður svo auðvitað
meiri vegna hækkunar á fast-
eignamati um 25%.
Það má alltaf deila um það
hvort taka eigi fasteignaskatt af
eigendum íbúðarhúsnæðis, en
meðan eignir landsmanna eru
notaðar sem stofn til gjaldtöku
fyrir ríki og sveitarfélög þá er
fasteignaskattur tiltölulega rétt-
látur skattur. Hann skapar ekki
það sama misræmi milli skatt-
greiðendanna og þeir skattar sem
reiknaðir eru af framtöldum
tekjum. Óánægja skattgreiðenda
með skattgreiðslur sínar stafar
æði oft af því meinta misræmi í
skattalögum sem er milli hans og
nágrannans, en ekki endilega
vegna heildarupphæðar greiðsl-
anna. Þess vegna er skattur sem
reiknaður er af þinglýstum eign-
um tiltölulega réttiátur skattur.
í fyrra var útsvarsprósentan,
sem lögð var á hér á Akureyri
10,6%, ein sú lægsta sem þá var
notuð hér á landi. Ekki hefur enn
verið ákveðið hver álagningar-
prósentan verður í ár. Mín
skoðun er sú að stefna beri að
eins lágri útsvarsálagningu og
mögulegt reynist, því ég tel að sá
afsláttur sem gefinn er frá leyfi-
legri álagningu komi bæjarbúum
almennt betur heldur en minni
hækkun fasteignagjaldanna."
Varðandi undirskriftalistana
gegn hækkun fasteignaskattsins
sagði Sigurður Jóhannesson eftir-
farandi:
„Það er alltaf auðvelt að fá fólk
til að skrifa undir mótmæli gegn
einu eða öðru, þó þar sé alveg
einhliða tekið á málum, og
kannski einmitt þess vegna. Næg-
ir að minna á mótmæli gegn
byggingu álvers vegna hugsan-
legrar mengunar.
Menn verða að gera sér grein
fyrir hverju er verið að mótmæla.
Er verið að mótmæla hærri fram-
lögum til viðbyggingar við Dval-
arheimilið Hlíð eða framkvæmd-
um í Hlíðarfjalli eða e.t.v. skóla-
byggingu í Síðuhverfi, svo eitt-
hvað sé nefnt. E.t.v. er verið að
mótmæla hugsanlegri lækkun út-
svarsprósentunnar.
Menn verða að gera sér grein
fyrir að tekjuskerðingu á fast-
eignagjöldum verður að mæta
með skerðingu framlaga til fram-
kvæmda eða með minni afslætti
frá leyfilegri útsvarsálagningu.
Ég vil einungis ítreka það sem ég
hef áður sagt, að afsláttur á út-
svarsálagningu komi flestum
bæjarbúum betur en minni hækk-
un fasteignagjaldanna."
- Er ekki mögulegt að ákveða
álagningu fasteignagjalda og út-
svars á sama tíma?
„Við afgreiðslu á fjárhagsáætl-
un 1984 var mjög til umræðu að
reyna að hafa frumgögn vegna
fjárhagsáætlunar bæjarins tilbúin
það tímanlega að mögulegt væri
að gera sér grein fyrir heildar-
ramma fjárhagsáætlunar þegar
taka þyrfti ákvörðun um álagn-
ingu fasteignagjalda.
Þetta tókst ekki vegna verkfall-
anna í haust og þeirra breytinga
á verðlagsforsendum sem fylgdu
nýjum kjarasamningum. Veruleg
seinkun varð því á allri upplýs-
ingaöflun. En eins og fram kom
á fundum bæjarstjórnar er erfitt
að þurfa að ákveða einn tiltekinn
tekjustofn bæjarsjóðs löngu áður
en upplýsingar liggja fyrir um
aðra tekjustofna bæjarsjóðs -
eða heildarramma útgjaldanna.
Ákvörðun um fasteignagjöld
bæjarins varð að liggja fyrir um
áramót,“ sagði Sigurður.
Að sögn Sigurðar Jóhannes-
sonar liggja áætlanir flestra
bæjarstofnana nú fyrir og má því
fara að gera ráð fyrir að bæjarráð
fari að vinna að fjárhagsáætlun
fyrir 1985 á næstu dögum. Sjálf-
stæðismenn hafa lýst því yfir að
fulltrúar þeirra í bæjarráði muni
ekki vinna að fjárhagsáætlun og
var hann spurður að því hverju
það breytti?
„Undanfarin ár hafa þeir tekið
fslenskur skipa- og vélarúmshermir:
Býður upp á fjölda
áhugaverðra möguleika
Fimm íslensk fyrirtæki sem
gera sameiginlegt tilboð í
skipa- og vélarúmshermi fyrir
Verkmenntaskólann á Akur-
eyri, hafa sent frá sér eftirfar-
andi fréttatilkynningu.
JHM almenn verkfræðiþjón-
usta, Verk- og kerfisfræðistofan
hf. og Rafhönnun frá Reykjavík
ásamt Akureyrarfyrirtækjunum
Raftákni og Slippstöðinni hafa
gert sameiginlegt tilboð í
hönnun, framleiðslu og uppsetn-
ingu vélarúmshermis fyrir Verk-
menntaskólann á Akureyri.
Tilboð fyrirtækjanna inniheld-
ur stjórnskápa fyrir skipstjóra og
vélstjóra, aðaltöflu, aðalvélbún-
aðartöflu, hjálparvélbúnaðar-
töflu, tölvukerfi með litaskjám
og prenturum ásamt nauðsyn-
legum tölvuforritum. Aætlaður
afhendingartími er 18 mánuðir,
þannig að gert er ráð fyrir að
skipa- og vélarúmshermirinn
verði tekinn í notkun haustið
1986.
Ofannefnd fyrirtæki telja sig
sameiginlega hafa starfsmenn
með umfangsmikla starfsreynslu
á þeim sérsviðum, sem nauðsyn-
leg eru til að þróa þennan véla-
rúmshermi. Fyrirtækin munu
þróa þennan hermi í samstarfi
við Háskóla íslands og erlenda
tækniháskóla.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna
fimm benda á áhugaverða mögu-
leika fyrir Verkmenntaskólann til
að nýta þann tölvubúnað, sem
þau bjóða til kennslu og nám-
skeiðahalds á mörgum öðrum
þátt í að deila út öllum þeim
fjármunum sem aflað hefur verið
með gjaldtöku á bæjarbúa og
ekki verið eftirbátar annarra í
þeim efnum. Þeir hafa hins vegar
reynt að láta meirihlutann taka á
sig þær óvinsældir sem því fylgja
að afla teknanna, a.m.k. hvað
varðar fasteignagjöldin. Það
verður að koma í ljós hvernig
þessi mál þróast. Ég hef ekki séð
að fulltrúar sjálfstæðismanna í
nefndum hinna ýmsu bæjarstofn-
ana hafi verið nitt hógværari í
kröfum um fjármagn úr bæjar-
sjóði en fulltrúar meirihlutans
Sigurður Jóhannesson.
þegar unnið hefur verið að fjár-
hagsáætlun þessara stofnana í ár
eða á fyrri árum,“ sagði Sigurður
Jóhannesson.
Hann gat þess að lokum að
reynt yrði að rýmka þær reglur
sem gilda um lækkun og niður-
fellingu á fasteignaskatti elli- og
örorkulífeyrisþega, þannig að
fleiri fái nú notið þessara fríðinda
en áður hefur verið. - HS
sviðum. Má hér nefna kennslu í
stýribúnaði fyrir fjarvarmaveitur,
rafveitur, virkjanir, stóriðjufyrir-
tæki, fiskimjölsverksmiðjur, fisk-
vinnsluhús og fiskeldisstöðvar.
Telja má að öll þessi svið verði
áhugaverð fyrir Verkmennta-
skólann á Ákureyri í náinni
framtíð.
Þá telja fyrirtækin að margir
áhugaverðir framleiðslumögu-
leikar geti skapast hérlendis með
þessu þróunarverkefni í sam-
bandi við tölvu- og stýribúnað
fyrir skip og verksmiðjur og kem-
ur þá vel til greina að framleiða
slíkan búnað á Akureyri. Mun
það geta skapað nemendum
Verkmenntaskólans meiri mögu-
leika á áhugaverðum störfum í
framtíðinni.
MYNDLISTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Almenn námskeið Myndlistaskólans
hefjast 5. febrúar.
Teiknun og málun fyrir fullorðna
Byrjendanámskeiö I. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeiö I. Tvisvar í viku.
Myndlistardeild I. Tvisvar í viku.
Byrjendanámskeiö II. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið II. Tvisvar i viku.
Myndlistardeild II. Tvisvar í viku.
Markmið kennslunnar á námskeiðum fyrir byrjendur er að veita nemendum
alhliða undirbúningsmenntun í almennum myndlistum.
í upphafi er lögð áhersla á teiknun frumforma og hlutateiknun. Síðan greina
nemendur þessi frumform í umhverfinu og beita við það mismunandi
taekniaðferðum. Að áferðaræfingum loknum er tekið til við að teikna
uppstillingu og hún síðan færð yfir I lit.
Á framhaldsnámskeiðum er byrjað á greiningu mannslíkamans.
Teiknað er eftir lifandi fyrirmynd og áhersla lögð á hlutföll, línu og form.
Við teikningu mannslíkamans er beitt mismunandi tækniaðferðum.
í myndlistardeildum er myndlistarnámið eflt og dýpkað.
Notuð eru ný efni og ýmsar tilraunir gerðar með þau.
Kennd eru grundvallaratriði litfræði auk myndskipunar.
Víða er leitað fanga og miða verkefnin að því að örva nemendur
til sjálfstæðrar myndsköpunar.
Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958
alla virka daga kl. 13.00-18.00.
Skólastjóri.
Sóló-húsgögn
Sterk og stílhrein
Eldhúsgögn, borð, stólar, kollar
Einnig tilvalið í kaffistofur, veitinga- og samkomuhús
Borð og stólar í öllum stærðum og gerðum
Alls kyns litir
og áferð
Allt eftir eigin vali
Hrísalundi 5