Dagur - 23.01.1985, Blaðsíða 7
iRDEILD RAUÐA
LANDS 60 ÁRA
kross deildin annist það að veita
móttöku og skjóta skjólshúsi yfir
fólk sem flytja þarf af hættusvæð-
um. Gleggsta dæmið hér um er
skipulag Rauða kross íslands á
móttöku Vestmanneyinga nótt-
ina sem eldgosið hófst í Vest-
mannaeyjum. Til slíkrar móttöku
hafa verið skipulagðir fimm stað-
ir á svæði deildarinnar og tilbúnir
til starfa í þessum stöðvum eru
um 65 manns.
Á stríðsárunum og síðar hefur
Akureyrardeildin í samvinnu við
Rauða kross íslands annast fjár-
safnanir. 1939 söfnuðust rúmlega
11.000 krónur í samvinnu við
Norræna félagið til styrktar
Finnlandi vegna styrjaldarinnar
þar. 1944 fór fram fata- og fjár-
söfnun til Noregs. 1945 Dan-
merkursöfnun, fjársöfnun til bág-
staddra íslendinga heima og
heiman og söfnun til lýsisgjafa
handa börnum í Mið-Evrópu og
árið eftir var enn safnað til lýsis-
gjafa og til bágstaddra í Finn-
landi og Mið-Evrópu. 1948 Siglu-
víkursöfnun vegna bruna. 1951
vegna snjóflóðanna á Neskaup-
stað. 1981 var safnað til hjálpar-
starfs í Afríku.
Fjáröflun
í þessu sambandi er rétt að
geta þess að allt það fé sem
Rauði kross íslands hefur til af-
nota til þessarar starfsemi sinnar
er fengið frá almenningi. Fyrstu
árin sem Akureyrardeild Rauða
kross íslands starfaði var fjár afl-
að með samkomuhaldi, kvik-
myndasýningum, leiksýningum
og dansleikjum og komst um
tíma sú hefð að deildin héldi
dansleik á gamlárskvöld og hygg
ég að slíkur dansleikur hafi síðast
verið haldinn á gamlárskvöld
1945. Einnig var stofnað til tomb-
ólu eða hlutaveltu í nokkur skipti
og einnig aflað fjár með merkja-
sölu sem börn barnaskólanna
hafa annast á öskudaginn nær
eða alveg óslitið frá 1941. Nú síð-
ustu árin hafa fengist drjúgar
tekjur af ' peningaspilakössum
Rauða kross íslands sem settir
hafa verið upp á mörgum fjöl-
sóttum stöðum víða um landið.
við“ og lofaði Jakob Frímanns-
son kaupfélagsstjóri þá að annast
afgreiðslu bílsins á þeim grund-
velli, að hann legði til bílstjóra á
bílinn að degi til án endurgjalds
og bensín til sveitaferða gegn því
að sveitafólkið þyrfti ekki að
greiða fyrir þjónustu bílsins.
í janúar 1944 kom annar
sjúkrabíll deildarinnar í bæinn,
var reyndar ekki nýr. Það ár tók
Zophonías Árnason, síðar yfir-
tollvörður við akstri bílsins. Það
ár voru fluttir 196 sjúklingar, þar
af 80 ferðir utanbæjar, en halli á
rekstri bílsins 5.822,48 krónur.
1946 kom nýr sjúkrabíll sem
deildin keypti en hann reyndist of
stór og óhentugur.
í september það ár tekur lög-
reglan að sér akstur sjúkrabíls-
ins. í janúar 1952 kemur nýr
sjúkrabíll og er sagt í fundargerð
11. janúar 1952: „Bíllinn mun að
vísu ekki bæta úr hinum erfiðu
vetrarferðum, því að til þeirra
dygði ekki annað en sterkur
trukkur.“ Bíllinn er geymdur í
slökkviliðsstöðinni en lögreglu-
þjónar annast akstur. Eftir 1952
Akureyrardeild Rauða krossins fékk nýja sjúkrabifreið árið 1981. Myndin er frá afhendingu bifreiðarinnar:
söfnun til nauðstaddra í Pó-
dalnum. 1952 Hollandssöfnun.
1953 Grikklandssöfnun og
söfnun til fólksins á Heiði eftir
bruna og til fólksins að Auðnum
í Svarfaðardal vegna snjóflóða.
1954 söfnun til fólksins á Sand-
hólum eftir bruna og 1955 söfnun
vegna snjóflóða í Svarfaðardal og
Skíðadal. 1956 Ungverjalands-
söfnun, einnig Alsírsöfnun og
Pakistansöfnun. 1965 safnað fyrir
blóðbankabíl og 1968 Vietnam-
söfnun og Biafrasöfnun. 1973
Vestmannaeyjasöfnun og 1974-
1975 safnað til kaupa neyðarbíls
í samvinnu við Blaðamannafélag
íslands og einnig fjársöfnun
Rekstur sjúkrabíla
Vorið 1931 gaf Rauði kross ís-
lands Akureyrardeildinni
sjúkrabíl og var Bifreiðastöð Ak-
ureyrar falin geymsla og akstur
bílsins og „ákveðið að taka sama
gjald fyrir bifreið þessa og tekið
væri nú hér í bænum", en frá því
vorið 1935 og til ársloka 1936
annaðist Andrés G. ísfeld akstur
sjúkrabifreiðarinnar, en síðan
Helgi Schiöth þar til vorið 1939
að BSA var á ný falið að annast
reksturinn. í janúar 1941 er skráð
í fundargerð „að oft hefði dregist
svo klukkutímum saman að geta
fengið bílinn af stað þótt líf lægi
er samið um afnot af ferðafé-
lagsbíl til vetrarflutninga.
1957 kemur enn nýr sjúkrabíll.
1966 er keypt talstöð í sjúkrabíl-
inn. 1968 keyptur nýr bíll og eru
í honum súrefnistæki. Það ár
tekur slökkviliðið við rekstri bíls-
ins og hefur annast hann með
miklum ágætum síðan. 1973 var
samið við Flugbjörgunarsveitina
um aðgang að björgunarbíl
þeirra ef á þyrfti að halda. í des-
ember 1973 er tekinn í notkun
nýr sjúkrabíll.
Pann 27. ágúst 1974 var sam-
þykkt á stjórnarfundi að þiggja
sjúkrabíl sem Blaðamannafélag-
ið vill safna til og gefa. Síðar
23. janúar 1985 - DAGUR - 7
samþykkti deildin að fela Guð-
mundi Blöndal, framkvæmda-
stjóra sínum, að stjórna söfnun
til bílsins hér norðanlands. Það
varð strax í upphafi að samkomu-
lagi milli Blaðamannafélagsins og
Akureyrardeildar Rauða kross-
ins að keyptur yrði bíll af gerð-
inni Range Rover og að bíllinn
yrði vel búinn sem fullkominn
neyðarbíll, en ekki sérstaklega
sem hjartabíll og þóttust menn í
þessu atriði draga lærdóm af
reynslunni í Reykjavík.
Árið 1981 annaðist Akureyrar-
deildin kaup á fjórum nýjum
sjúkrabílum af fullkomnustu
gerð beint frá framleiðanda í
Texas. Við þessi kaup spöruðust
allmiklir peningar. Einn þessara
bíla var keyptur gagngert fyrir
Akureyrardeildina, en hinir voru
fyrir Patreksfjörð, Grundarfjörð
og Blönduós. Nú er í pöntun nýr
sjúkrabíll sem væntanlegur er í
apríl. Bíllinn er af Mercedes
Benz gerð, yfirbyggður í Noregi
og er hinn vandaðasti að allri
gerð og verða í honum nokkrar
nýjungar sem kynntar verða í
fyrsta skipti hér á landi.
Sjúkrabíllinn hér á Akureyri er
sem sagt eign Akureyrardeildar
Rauða kross íslands og deildin
stendur undir rekstrarkostnaði
a.ö.l. en því að bærinn veitir
bílnum húsaskjól á slökkvistöð-
inni og starfsmenn slökkviliðsins,
sem annast aksturinn, hljóta sín
laun frá bænum.
Akureyrardeildin hefur lagt
kapp á að sjúkraflutningamenn
séu vel undir það búnir að stunda
starf sitt og hafa allir starfandi
sjúkraflutningamenn á slökkvi-
stöðinni farið á sjúkraflutninga-
námskeið og nú eigum við Akur-
eyringar jafnbest menntuðu
sjúkraflutningamenn á landinu.
Árið 1953 hófst söfnun í
sjúkraflugvélarsjóð og árið eftir
gaf Slysavarnafélag íslands flug-
vél sem átti að vera að hálfu eign
Akureyrardeildar Rauða kross-
ins og að hálfu eign Slysavarna-
deildarinnar hér á Akureyri og
áttu þessi félög að annast rekstur-
inn. Síðar kom í ljós að ekki var
grundvöllur fyrir því að reka
þessa vél og var hún því seld 1955
og söluverðið lagt í sjúkraflugvél-
arsjóð. 1958 keyptu Akureyrar-
deild Rauða kross íslands og
kvennadeild Slysavarnafélags ís-
lands á Akureyri sjúkraflugvél en
bræðurnir Tryggvi og Jóhann
Helgasynir borguðu síðan helm-
ing kaupverðsins gegn því að þeir
rækju vélina fyrir eigin reikning
næstu 5 ár enda væru sjúkraflutn-
ingar þá ávallt látnir sitja fyrir
öðru.
Lokaorð
Hér að framan hefur verið
stiklað á stóru úr sextíu ára sögu
Akureyrardeildarinnar. Sú starf-
semi sem nú ber hæst í starfinu
eru sjúkraflutningarnir og
skyndihjálparkennslan sem áður
er minnst á, en auk þess starfar
innan deildarinnar hópur sem
kallar sig sjúkravini og annast
heimsóknarjjjónustu til aldraðra
og sjúkra sem einangrast hafa.
Um leið annast sjúkravinir ýmsar
útréttingar fyrir fólkið, svo sem
matarinnkaup, bókasafnsferðir,
upplestur og fleira.
Árið 1981 keypti Akureyrar-
deildin átta sjúkrarúm af full-
komnustu gerð og lánar í heima-
hús fyrir milligöngu hjúkrunar-
fræðings. Leiga á rúmunum er
engin og stendur deildin að öllu
leyti undir þessum rekstri. Verið
er að innrétta kennslusal í hús-
næði deildarinnar, en námskeiða-
hald er orðinn umfangsmikill
þáttur í starfinu. Fyrirhugað er
að halda framhaldsnámskeið fyr-
ir sjúkraflutningamenn, hið fyrsta
sinnar tegundar á landinu, nám-
skeið fyrir verðandi sumarbarn-
fóstrur, námskeið um önnun
aldraðra í heimahúsum og nám-
skeið fyrir verðandi skyndihjálp-
arkennara. Auk þess hefur Akur-
eyrardeildin aðstoðað deildir við
kaup á sjúkrabifreiðum en segja
má að miklar upplýsingar liggi
nú fyrir hjá deildinni um þau mál
og hafa menn verið sendir til ná-
grannalanda á vegum deildarinn-
ar til að kynna sér sjúkrabílamál.
í tilefni af 60 ára afmæli Akur-
eyrardeildarinnar sem var fyrsta
og eina deildin innan Rauða
kross íslands allt til 1940 að
Skagafjarðardeildin var stofnuð,
verður aðalfundur Rauða kross
íslands haldinn á Akureyri í maí
næstkomandi.
Sjúkrahótel Akureyrardeildar
RKÍ var starfrækt frá ársbyrjun
'11 í Skólastíg 5 fyrir 13 einstakl-
inga. Nýting sjúkrahótelsins var
þó svo léleg að rekstri var hætt í
feb. '19. í samvinnu við Félags-
málastofnun Akureyrar rak
deildin fjölskylduheimili eða
sambýli í þessu húsnæði frá 1.
mars '19 til ágúst ’81.