Dagur - 23.01.1985, Side 5
23. janúar 1985 - DAGUR - 5
Verður færeyskur
bjór seldur hér?
Verður hægt að slökkva þorst-
ann með svalandi flösku af
Færeyjabjór á íslandi innan
skamms? Ekki útilokað en enn
sem komið er verða þyrstir að
láta sér létta ölið nægja þó
flugáhafnir, farmenn og sendi-
ráðsfólk geti teygað sterkari
veigar.
í færeyska blaðinu Dimmalætt-
ing þriðjudaginn 15. janúar sl. er
rætt við Einar Waag, yngri, fram-
kvæmdastjóra hjá Föroya Bjór
um fyrirtækið, en í viðtalinu tæp-
ir Einar á því að fyrir dyrum
standi útflutningur á bjór til
íslands. Að sögn Einars eru skip-
verjar á íslenskum loðnuskipum
sem landað hafa í Færeyjum að
undanförnu mjög góðir við-
skiptavinir fyrirtækisins og
reynslan frá Norröna sýni að ís-
lendingar kunni að meta fær-
eyska ölið. Of snemmt sé þó áð
segja til um hvort eða hvenær út-
flutningur hefst.
Föroya Bjór framleiddi alls öl
og gosdrykki á tíu milljón flöskur
í fyrra og er það tvöföldun frá ár-
inu 1974. Mest var framleitt í
fyrra af gosdrykkjum, fjórar
milljónir flaska, þrjár og hálf
milljón fl. af léttum pilsner en af
sterku öli seldust tvær milljónir
flaska.
í viðtalinu segir Einar Waag að
menn hafi reiknað með því að
salan á pilsner myndi minnka
þegar framleiðsla var hafin á
sterkum bjór en það hafi ekki
orðið raunin. Salan á pilsner hafi
aukist um 20% frá árinu 1979 eða
frá því að framleiðsla á sterku öli
hófst.
20 manns starfa hjá fyrirtækinu
sem er í Klakksvík. - ESE
Yfirlýsing verkfræðinga
Blaðinu hefur borist yfirlýsing
frá samninganefnd verkfræðinga
hjá Akureyrarbæ í tilefni af um-
mælum Arnar Gústafssonar, for-
manns samninganefndar bæjarins
í Degi sl. föstudag.
í yfirlýsingunni segir: í tilefni
af viðtali við formann Kjarasamn-
inganefndar Akureyrarbæjar
óskar samninganefnd verk-
fræðinga hjá Akureyrarbæ eftir
að upplýsa að einungis er farið
fram á sömu kjör og aðrir starf-
andi verkfræðingar á Akureyri
hafa, meðal annars verkfræðing-
ar hjá fyrirtækjum og stofnunum
sem Akureyrarbær er aðili að.
Samstarfshópur ’85:
Lok kvennaáratugs
rædd á fundi
í haust komu fram hugmyndir
um að eyfirskar konur tækju
höndum saman um aðgerðir á
lokaári kvennaáratugar Sam-
einuðu þjóðanna.
í Reykjavík er unnið ötullega
að undirbúningi listahátíðar
kvenna, kvikmyndahátíð, þróun-
arhjálp og fleiru. Konur við
Eyjafjörð vilja ekki láta sitt eftir
liggja, og hafa margar góðar hug-
myndir nú þegar komið fram.
Frá þeim hefur verið sagt í bréfi
til formanna allra félaga og sam-
taka kvenna á Akureyri og við
Eyjafjörð, og voru þeir beðnir að
kynna hugmyndirnar fyrir félags-
mönnum sínum. Samstarfshópur
’85 boðar nú til fundar að Hótel
KEA laugardaginn 26. janúar kl.
14, og eru allar eyfirskar konur
hvattar til að mæta. Fulltrúi úr
framkvæmdahópi ’85-nefndar
mun segja frá undirbúningsstarfi
syðra. Einnig verða umræður,
skemmtiatriði og seldar kaffiveit-
ingar.
Skákþing Akureyrar:
Amar með unnið
gegn Gylfa Þ
- Akureyrarmeistarinn á í vök að verjast
Gylfi Þórhallsson stendur
höllum fæti í biðskák sinni við
hinn unga og efnilega skák-
mann Arnar Þorsteinsson úr
fyrstu umferð á Skákþingi Ak-
ureyrar.
Skákþingið hófst í efsta flokki
á sunnudag og vakti skák þeirra
Gylfa og Arnars einna mesta at-
hygli. Augu margra beindust
einnig að skák núverandi Akur-
eyrarmeistara, Kára Elísonar og
Áskels Kárasonar. Skákin var
hörkuspennandi og er hún fór í
bið eftir 50 leiki höfðu báðir
kóng, riddara og þrjú peð. Kári
á þó í vök að verjast en í samtali
við Dag sagðist hann vonast til að
geta haldið jöfnu.
Einni skák var frestað vegna
fjarveru Pálma Péturssortar.
- ESE
J| Notumljós \
í auknum mæli
— í ryki, regni,þoku
og sól.
J
Gjafir
og áheit
Á árinu 1984 veitti ég viðtöku
eftirtöldum gjöfum:
Til Akureyrarkirkju, ágóði af
hlutaveltu frá Hólmfríði, Aðal-
heiði, Ernu Björk og Helgu
kr. 550.
Áheit á Strandarkirkju frá V.
kr. 2.000.
Áheit á Strandarkirkju frá Á.B.
kr. 250.
Áheit á Strandarkirkju frá
S.Á.E. kr. 500.
Áheit á Strandarkirkju frá
ónefndum kr. 200.
Gjöf til Rauða krossins frá N.N.
kr. 400.
Áheit á Akureyrarkirkju frá J.P.
kr. 300.
Áheit á Strandarkirkju frá G.B.
kr. 1.500.
Áheit á Strandarkirkju frá
Á.J.B. kr. 200.
Áheit á Strandarkirkju frá G.B.
kr. 2.000.
Áheit á Akureyrarkirkju frá
N.N. kr. 500.
Söfnunarfé til Hjálparstofnunar
kirkjunnar alls kr. 10.928.
Samskot til Æ.F.A.K. kr. 700.
Gjöf til Inga Steinars Ólafssonar
kr. 500.
Gjafir til Æskulýðssambandsins
kr. 700.
Gefendum öllum færi ég bestu
þakkir.
Þórhallur Höskuldsson.
Nú er hálkan að koma aftur
MANNBRODDARNIR
frá Continental eru komnir.
Léttir og þægiiegir, skemma ekki gólf. Póstsendum.
Brynjóífur Sveinsson hf.
Skipagötu 1 • Sími 23580.
Frá öldungadeild M. A.
Innritun á vorönn 1985 lýkur 30. janúar,
innritunargjald er 2.200.
Skrifstofa skólans er opin virka daga frá kl. 8-12 og kl.
13-15. Þar er kennslustjóri til viðtals frá kl. 17-18 til
mánaðamóta.
Skólameistari.
Sólarkaffi
Vestfirðingafélagsins
verður haldið föstudaginn
25. janúar ki. 8.30 í Lóni fé-
lagsheimili karlakórsins Geysis.
Sólakaffi, söngur og skemmtiatriöi.
Dans. Hljómsveit Pálma Stefánssonar leikur.
Vestfirðingar, fögnum hækkandi sól. Nefndin
Hjá okkur færðu öll tæki og efni til logsuðu og rafsuðu.
Við bjóðum aðeins viðuikenndar og vandaðar vörur.
WALLIUS
Vandaðar rafsuðuvélar. Margar gerðir.
Transar, jafnstraumsvélar og Mig/Mag vélar.
Hentugartil nota í smiðjum og á verkstæðum.
Einnig fyrir bændur. Litlar vélar tii tómstunda-
starfa sem stórar iðnaðarvélar Gott verð.
Gasmælar. Margar gerðir.
Fyrir acetylen, oxygen, kolsýru,
argon, blandgas og própan.
Logsuðutæki til iðnaðar-
og tómstundastarfa.
Mjög hentugt til
að nota við alls
konar viðgerðir gm
og nýsmíðar
t.d. í landbúnaði.
Rafsuðuvír.
Margar tegundir.
Pinnasuðuvír
og vír á rúllum.
130plus jafnstraumsvél (likriktari).
130A/20% DC fyrir suðu með 1,5-3,25 mm
rafsuðuvír. 1 fasa 220v. Vélin er loftkæld.
Vikt 25 kg.
LKC-160 Mig/Mag hálfsjálfvirk.
160A/25% DC rafsuðuvél fyrir suðu með
0,6-0,8 mm stálþræði og 1,0 mm álvír.
Stiglaus straumstilling. Hefur tvo aðskilda
straumstilla annars vegar fyrir punktsuöu og
hins vegar fyrir punkttíma, einnig straumstilli
fyrír C02/argon. Og rofa fyrir eftibrennslu.
Vélin hefur straumsvið fyrir „Krymping"
Sænska
gæðamerkið.
Sölustaðir:
Véladeild KEA Akureyri
Bílaverkstæði Dalvíkur
Dalvík
Vélaverkstæði
Jóns og Erlings Siglufirði
Kaupfélag N.-Þingeyinga
Kópaskeri
Foss hf. Húsavík, sími 41345
Tangi hf . Vopnafirði
Söluumboð á Norðurlandi:
G.B.J. sf.
Gránufélagsgötu 48, Akureyri.
Sími 22171.