Dagur - 23.01.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 23. janúar 1985
Islandsmótið í knattspymu innanhúss:
KS fór upp í fyrstu deild
KS tryggði sér um helgina rétt
til að leika í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu innan-
húss en þá fór keppnin í 2.
deild fram í Reykjavík. AIls
léku 16 lið í 2. deildinni og
komast fjögur þeirra upp í 1.
deild að ári.
Leikið var í fjórum riðlum og
komust sigurvegarar beint í 1.
deild en neðstu liðin féllu í 3.
deild. í a-riðli sigraði Grótta en
UMFN féll, í b-riðli sigraði Sel-
foss en Týr féll í 3. deild, í c-riðli
unnu Haukar en Afturelding féll
og í d-riðli sigraði KS og komst í
1. deild en Árroðinn hafnaði í
þessum riðli í neðsta sætinu og
féll í 3. deild.
KS lék fyrst gegn Þrótti Nes-
kaupstað og sigraði 7:2. Síðan
léku KS og Ármann og var þar
um mikinn hörkuleik að ræða og
„Kjarna-
gangan“
Ef skíðafæri helst óbreytt
næstu daga er áformað að
árlega skíðatrimmganga
„Kjarnagangan“, fari fram nk.
sunnudag og hefst hún kl. 14 í
Kjarnaskógi.
Þeir sem hafa hug á þátttöku
eru vinsamlega beðnir að skrá sig
í síma 22722 eða 24047 eða við
rásmark á sunnudag.
Kjarnagangan er við allra hæfi
og er vonast eftir þátttöku trimm-
ara á öllum aldri. Allir aldurs-
flokkar verða ræstir samtímis, 12
ára og yngri ganga 4,5 km, 13-16
ára ganga 6,7 km, 17-34ra ára
ganga 9 km og 35 ára og eldri
ganga 6,7 km.
Allir sem Ijúka göngunni fá
merki göngunnar. Auk þátttöku-
merkis gefur Skógræktarfélag
Eyfirðinga verðlaun fyrir þrjá
bestu í hverjum flokki.
Logi Einarsson verður í eldlínunni er KA mætir Þrótti á föstudagskvöldið.
Tekst KA að slá
Þróttarana út?
Ef KA tekst að sigra Þrótt í
Bikarkeppni handknattleiks-
sambandsins í leik liðanna á
föstudagskvöld í íþróttahöll-
inni, þá verður að telja mögu-
leika liðsins á að komast í 8
liða úrslit keppninnar verulega
góða. Það lið sem sigrar i Ieik
KA og Þróttar á nefnilega að
mæta Selfossi eða Reyni Sand-
gerði í 16 liða úrslitum.
En fyrst er það leikurinn á
föstudagskvöld sem hefst kl. 20 í
Höllinni. Sá leikur er geysilega
þýðingarmikill og við spurðum
Þorleif Ananíasson fyrirliða KA
hvernig leikurinn leggöist í hann.
„Þetta verður erfiður leikur,
það er alveg ljóst," sagði Þor-
leifur. „Þróttararnir eru óút-
reiknanlegir, eiga ýmist toppleiki
eða eru langt niðri svo það getur
allt gerst.
Þeir hafa sterkan leikmann
sem er Páll Ólafsson og hann
verðum við að taka föstum
tökum. Annars er þessi leikur
gott tækifæri bæði fyrir okkur og
áhorfendur að sjá hvar við stönd-
um gagnvart liðunum í 1. deild
og ég vona að áhorfendur styðji
vel við bakið á okkur. Við leggj-
um mikla áherslu á þennan leik,
höfum æft vel frá áramótum og
það eru allir heilir heilsu svo við
erum tilbúnir í slaginn," sagði
Þorleifur.
fór svo að honum lauk 4:4 og það
voru Ármenningar sem máttu
þakka fyrir þau úrslit. KS sigraði
síðan Árroðann 8:2 og þegar upp
var staðið hafði KS unnið sigur í
riðlinum.
4. deild:
Einnig var leikið í 4. deild um
helgina og þar mættu líka 16 lið
til keppni og léku í 4 riðlum.
í a-riðli sigraði Vorboðinn og
vann sér sæti í 3. deild að ári.
Önnur lið sem komust upp úr 4.
deild voru Hafnir, Víkverji og
Leiknir R.
Vorboðinn sigraði Geisla 10:4,
Eyfelling 9:4 og Stokkseyri 6:4.
Síðari hlutinn:
Þá er keppni eftir í 1. og 3. deild
karla og í kvennaflokki. KA, Þór
og HSÞ-b leika öll í 1. deild og í
3. deild leika m.a. Tindastóll,
Reynir Á og Magni. Keppnin í 1.
og 3. deild karla og í kvenna-
flokki fer fram í Laugardalshöll
helgina 15.-16. febrúar.
„Klórum
r
I
bakkann“
„Við ætlum okkur að reyna að
klóra grimmt í bakkannn núna,
enda þýðir ekkert annað,“
sagði Guðjón Magnússon
þjálfari Þórs í handknattleik,
en Þór á tvo erfiða leiki fyrir
höndum syðra um helgina í 2.
deildinni, gegn HK og Fram.
Þórsarar hafa átt í hinu mesta
basli með mannskap að undan-
förnu, verið með menn í meiðsl-
um og um helgina bættist Guðjón
á þann lista. „Ég teygði dálítið á
liðböndum en er ákveðinn í að
vera með um helgina," sagði
hann. Þá er Sigurður Pálsson
orðinn góður af þeim meiðslum
sem hann hefur átt við að stríða.
Oddur Sigurðsson er hins vegar
hættur, og þeir Gunnar E. Gunn-
arsson og Kristinn Hreinsson
komast ekki í leikina um helgina
vegna prófa.
Garðar sigraði í
Stokkhólmsmótinu
Garðar Gísiason lyftingamað-
ur sem býr í Svíþjóð ásamt
Gylfa tvíburabróður sínum
hefur æft af miklum krafti að
undanförnu
mótum.
og tekið þátt
Bautamótið
innanhúss
Hið árlega Bautamót i innan-
hússknattspyrnu verður haldið
dagana 9.-10. febrúar nk. í
Iþróttahöllinni á Akureyri,
mótið er öllum opið.
Þátttökugjald er kr. 2.000 fyrir
hvert lið.
Heimilt er að senda fleiri en
eitt lið frá hverju félagi, til þátt-
töku í mótinu.
Þátttaka tilkynnist eigi síðar en
1. febrúar til Stefáns Gunnlaugs-
sonar, heimas. 21717, vinnus.
21818, eða Indriða Jóhannsson-
ar, heimas. 21913, vinnus. 23400.
Um síðustu helgi keppti hann
á miklu móti í Stokkhólmi en þar
var um að ræða liðakeppni allra
lyftingaklúbba af Stokkhólms-
svæðinu. Gylfi keppti þar í 100
kg flokki og lyfti 145 kg í snörun
og 175 kg í jafnhöttun. Samtals
var hann því með 320 kg og þessi
árangur sem er 10 kg frá hans
besta árangri nægði honum til
sigurs.
„Ég hef æft stíft að undanförnu
með það markmið að vera í topp-
æfingu um næstu helgi, en þá
keppi ég á Sweden-Cup, geysi-
lega sterku móti þar sem margir
af bestu lyftingamönnum heims
mæta til leiks,“ sagði Garðar er
við ræddum við hann í gær.
Haraldur Ólafsson lyftinga-
kappi mun einnig taka þátt í
þessu móti en hann býr einnig í
Svíþjóð og æfir grimmt þessa
dagana.
Æfing hjá
Skíöaráöi
Fyrsta æfing Skíðaráðs Akureyr-
ar fyrir 12 ára og yngri verður í
Fjallinu á föstudaginn. Rútuferð
verður úr bænum kl. 16.
Skíðafólk hefur lítið sem ekk-
ert getað hreyft sig á skíðunum í
vetur, en nú hefur snjóað í Hlíð-
arfjalli þótt menn þar efra vildu
gjarnan fá meiri snjó.
1—X—2
Guðmundur Frímannsson.
„Norwich
ekkiá
seðlinum?“
„Það skiptir í sjálfti sér litlu
máli þótt ég lendi á bikar-
leikjum og það sé ekki 100%
vitað hvaða lið leika saman,
þetta liggur allt jafn vel fyrir
mér,“ segir spámaður vikunn-
ar, Guðmundur Frímannsson,
skipvcrji á togaranum Kaldbak
sem nú fer í „spámannsgall-
aim“.
„Mér verður varla skota-
skuld úr því að taka efsta sætið,
það ætti að liggja nokkuð Ijóst
fyrir,“ sagði Guðmundur. -
„Ha, er Norwich ekki á seðlin-
um, liðið mitt? Nú getur það
verið að þeir séu dottnir út úr
bikarkeppninni? Ég er svo
aldeilis hissa.“
Guðmundur mun hafa haldið
með Norwich i áratugi enda
man hann ekki hvers vegna mál
þróuðust þannig. Hvað um
það, hapn fær að glíma við
bikarleiki og eins og sjá má er
ekki á hreinu hvaða lið eigast
við í óllum leikjum.
Barnsley-Brighton
Darlington-Teleford
Leicester-Carlisle
Liverpool-Charlton
eða Tottenham
Luton-Wolves
eða Huddersfield
Man.Utd.-Coventry
N.Forest-Wimhleton
Orient-Southampton
Oxford-Blackburn
eða Portsmouth
Sheff.Wed.-Oldham
Watford-Grimsby
W.Ham-Norwich
eða Birmingham
Hlnrik á toppinn!
F.kki voru leiknir nema þrír
leikir á síðasta getraunaseðli og
kom því til kasta „sérfræðinga“
í Englandi að segja til um
önnur gctraunaúrslit. Þeir
reyndust nokkuð sammála
Hinrik Þórhallssyni sem spáði
fyrir okkur í síðustu viku því út-
koman hjá Hinrik var 9 leikir
réttir og Hinrik situr því einn i
efsta sætinu og lætur sér vel
líka.
1—X—2