Dagur - 12.04.1985, Blaðsíða 6
6-DAGUR-12. apríl 1985
Dömupeysa
fyrir sumarið
Efni:
Zareska Malaga; 2 hnotur grátt, 1
hnota bleikt, 1 hnota hvítt, 1 hnota
gult, 1 hnota ferskjulitað og 1 hnota
ljósblátt.
Prjónar no. 4 og 5. Ath; prjónað er
úr garninu tvöföldu.
Bolur:
Fitjið upp með gráu 160 1. á hring-
prjón no. 4. Prjónið brugðningu; 1
1. sl. 1 1. br. 5 cm. Skiptið þá yfir á
prjón no. 5 og prjónið 1 umf. slétt
prjón. Pá tekur við munsturprjón.
Ferningarnir eru prjónaðir í eftir-
farandi litaröð: Bleikur, hvítur,
ferskjulitur, blár, gulur. Þetta er
síðan endurtekið einu sinni. Þá er
prjónuð 1 umf. með gráu og boln-
um síðan skipt í fram- og aftur-
stykki (80 + 80 1. ) og hvor hluti
prjónaður fyrir sig, fram og til baka
með brugðningu, 1 1. sl. 1 1. br. 5
cm. Að lokum fellt af.
Hœgri ermi:
Fitjið upp með gráu 36 1. á sokka-
prjóna no. 4. Prjónið brugðningu; 1
Í. sl. 11. br. 5 cm. Skiptið þá yfir á
prjóna no. 5 og prjónið 1 umf. slétt
prjón og aukið út 1 1. í byrjun og 1
Í. í enda hennar, og síðan eins í 4.
hverri umf. Prjónið nú 15 cm með
bleiku þá 3 umf. grátt síðan 6 cm
með hvítu. Þá eru aftur prjónaðar 3
umf. með gráu og að lokum 15 cm
með gulu. Þá er fellt af.
Vinstri ermi:
Er prjónuð eins og sú hægri. Nema
að í staðinn fyrir bleikt er not'að
ljósblátt og ferskjulitað fyrir gult.
Frágangur:
Saumið í saumavél fyrir handveg.
Saumið tvisvar sinnum með þéttu
beinu spori tvo samliggjandi sauma
og einn þvert neðst. Berið ermina
við bolinn svo hún passi nákvæm-
lega. Klippið síðan milli saumanna.
Saumið axlarsauma og saumið erm-
ar í með aftursting. Felið alla lausa
enda.
" ■ ■ - X x x X
x x x x
x x x
►14 &I4^ x x V x
iSSÍSíi x x V K X
íiSigSSS X 2 x x X X
_
tm
Ég hef alla
tíð haft mjög
gaman af
prjónaskap
- segir Halla Einarsdóttir
„Ég var farin að prjóna
sem barn, œtli ég hafi verið
nema 5-6 ára þegar ég
lœrðifyrstu handbrögðin, “
sagði Halla Einarsdóttir í
samtali við Dag.
Halla hefur getið sér orð fyrir
prjónaflíkur sínar, sem margar
hverjar hafa komið í blaðinu „Lopi
og band“. Nú höfum við fengið
Höllu til liðs við okkur á Helgar-
Degi og ætlunin er að birta prjóna-
uppskriftir eftir Höllu í blaðinu mán-
aðarlega að minnsta kosti. Halla var
spurð hvernig uppskriftirnar yrðu til
og hvort hún hefði alltaf jafn gaman
af prjónaskapnum.
„Já, já, ég hef alltaf jafn gaman af
því að prjóna, því annars væri ég
ekki að eyða tíma mínum í þetta.
Þetta er mitt „hobby“ og ég prjóna
gjarnan samhliða því að horfa á sjón-
varpið. En það vill nú brenna við að
ég tapi úr.því sem þar fer fram,
þannig að þeir sem með mér horfa
þurfa að vera mér innan handar við
að halda söguþræðinum. Fyrir vikið
er mér sagt, að það geti verið svolítið
þreytandi að horfa á sjónvarp með
mér!
Venjulega koma þessi munstur af
sjálfu sér. Ég byrja bara á flíkinni og
læt svo hugmyndaflugið um fram-
haldið. Ég geri engar teikningar af
munstrinu fyrirfram."
- Notar þú lopa frekar en annað?
„Nei, nei, ég nota hvað sem er. Ég
hef meira að segja reynt að prjóna úr
leðri. Þá fór ég út á verksmiðjur og
keypti mér leðurpjötlur, sem ég
klippti niður í reimar, síðan teygði ég
á reimunum og prjónaði úr þeim eins
og hverju öðru garni. En þetta var
mikil þolinmæðisvinna og ég varð að
sitja úti á svölum á meðan á verkinu
stóð, því það kom svo mikið kusk úr
leðrinu. Ég á tvær prjónaðar leður-
peysur, en ég held að ég leggi ekki í
að prjóna fleiri slíkar," sagði Halla
Einarsdóttir.
Halla Einarsdóttir.
Mynd: GS