Dagur - 12.04.1985, Qupperneq 9
12. apríl 1985 - DAGUR - 9
Ef þú erl á annað borð í bisness Hitt og þetta úr gömlu fatakistunni.
verður þú að hafa síma - það er
augljóst mál.
Það er gott að fá sér sæti ekki síst þegar stóllinn er hluti af buxunum.
Sæta trúðaparið hámaði í sig þjóðarrétt Hollendinga - franskar með majónesi.
# Raggi Bjarna
Vikur á undan er útvarpið búið
að vera að minna á hátíðina.
Slagarahöfundar eru löngu búnir
að semja fullt af karnivallögum
og berjast innbyrðis á öllum vin-
sældalistum. Þessi músík þeirra
er ansi skrýtin, svona sambland
af brasilískri sömbu, Ragga
Bjarna og vestmanneyskum
þjóðhátíðarslögurum, skondin
blanda en vel uppleysanleg í
bjór. Svo má ekki gleyma karni-
valbúðunum sem eru miklir
ævintýraheimar og bjóða upp á
allt milli himins og jarðar hvað
varðar grímubúninga, smink
o.s.frv. o.s.frv. en þeir frumleg-
ustu gera sína búninga sjálfir og
eru oft búnir að vinna að þeim
mánuðum saman. Ég dreif mig
suður til Maastrict en þar er eitt
mesta karnival í Evrópu haldið.
# Tra-la-la-la
Þegar ég kom á laugardaginn 17.
var fjöldi fólks þegar á öðrum
degi í „þjófstarti“ svo við félag-
arnir drifum okkur í gallann og
bættumst við þá fjölmörgu utan-
bæjarmenn og útlendinga sem
fyrir voru. Það eru margir siðir
sem tengjast karnivalinu, en
meginstefnan er þó ætíð sú að
skemmta sér sjálfur með fólkinu
við söng, dans og öl, öll húsgögn
eru fjarlægð úr kránum og svo
sjá gestirnir um stemmninguna.
Prins Karnival er tákn hátíðar-
innar klæddur í pell og purpura,
í byrjun hátíðarinnar fær hann
afhenta borgarlyklana úr hönd-
um borgarstjórans sem merki
þess að nú ríki hann og hin grímu-
klædda „hirð“ hans yfir borg-
inni í fjóra daga, þá er risastór
pappamarsakerling í hollenska
þjóðbúningnum hífð upp í flagg-
stöng og fær að dúsa þar í fjóra
daga þar til hátíðinni lýkur, enda
ekkert pláss fyrir svoleiðis
„streit" lið.
í Maastrict eru um 80 lúðra-
sveitir og trumbusveitir og setja
þær mikinn svip á hátíðina, sum
þessara banda hafa tæpast mikið
tónlistarlegt gildi en eiga þeim
mun betur heima á karnivalinu.
Það var mjög skemmtilegt að sjá
til dæmis tvær trumbusveitir mæt-
ast þá slógu allir sér saman í orðs-
ins fyllstu merkingu og kepptust
um hver hefði hæst, mér datt
helst í hug að þarna gilti sama
regla og í íslenskum karlakórum
að „sá syngur best sem syngur
hæst“.
# Fimmtán gráðu
frost
Það var mjög kalt, hitinn fór
niður í h-15 gráður en samt virtist
það ekki hafa áhrif á neinn. Bara
ein peysa í viðbót og hreyfa sig
hressilega. Allir sem á annað
borð fóru út tóku þátt, það er að
segja bjuggu sig út eða settu lit í
andlitið enda stakk sá illilega í
stúf sem lét sjá sig í hversdags-
búningi og svo er allt á þrjú þús-
und snúningum fram á miðviku-
dag þegar siður er að borða síld
svona rétt til að minna sig á föst-,
una og að tími sé kominn til að
lækka flugið.
Einu karnivalinu í viðbót er
lokið, sumir eru þegar farnir að
hugsa fyrir búningi næsta árs,
aðrir hugsa um það eitt að losna
við timburmennina eða högnann
(kater) eins og sú líðan heitir hér
um slóðir, en eitt er víst að karni-
valið í Maastricht verður á sama
tíma að ári.
Nú er stefnt að því að halda
sumarhátíð á Akureyri í júní
næstkomanda þá væri gráupplagt
að blanda hlutum sem þessum í
hæfilegu magni saman við ís-
lenskar hefðir.
Kveðjur.
Haraldur Ingi Haraldsson,
Amsterdam
NV VAXIAKIÖR
Innlán Ársávöxtun Útlán
Verðtryggðir sparireikningar:
(sérstakar verðbætur 2.0% á mánuði)
3ja mán. binding.......................... 1.0%
6 mán. binding............................ 3.5%
Tékkareikningar:
a) ávísanareikningar....................... 19.0%
b) hlaupareikningar........................ 12.0%
Sparisjóðsreikningar (alm.)................... 24.0%
Sparíveltureikningar.......................... 27.0%
Sparireikningar með 3ja mán. uppsögn........27.0%
Sparireikningar með 6 mán. uppsögn............ 31.5%
Innlánsskírteini 7.5% + alm. sparisjóðsvextir 31.5%
Hávaxtareikningur....................24.0% -32.5%
(eða verðtryggöur með vöxtum miöað við kjör 3ja og
6 mán. visitölubundinna reikninga hjá bankanum).
24.0%
27.0%
28.82%
33.98%
33.98%
35.14%
Innlendir gjaldeyrisreikningar:
innst. í bandaríkjadollurum............... 7.5%
innst. í sterlingspundum................. 10.0%
innst. í v-þýskum mörkum.................. 4.0%
innst. i dönskum krónum.................. 10.0%
Vfxlar (forvextir)........................... 31.0%
Viðsldptavíxlar (forvextir)....................32.0%
Hlaupareikningar.............................. 32.0%
þar af veröbótaþáttur 19.0%
Skuldabréfalán................................ 34.0%
Viðskiptaskuldabréf........................... 35.0%
Lán með verðtryggingu:
a) lánstimi allt að 2Vi ár..................... 4.0%
b) lánstími minnst 2Vi ár...................... 5.0%
Betri kjör bjóðast varla
Samvinnubankinn