Dagur - 03.05.1985, Side 17
3. maí 1985- DAGUR - 17
í tilefni af Evrópudeginum 5.
maí og ári tónlistarinnar í
Evrópu, hafa allir tónlistar-
skólar landsins verið hvattir til
að efna til sérstakrar kynning-
ar á starfsemi sinni helgina 4-
5. maí.
Af þessu tilefni mun Tón-
listarskólinn á Akureyri efna
til fjölskylduhátíðar í húsnæði
sínu Hafnarstræti 81 og einnig
í Dynheimum Hafnarstræti 73
á morgun laugardag.
Á þessum degi munu á
þriðja hundrað nemendur
flytja fjölbreytta tónlist, bæði
á tónleikum og hljóðfæra-
kynningum sem hefjast kl. 10
um morguninn og standa yfir
allan daginn. Einnig verður
boðið upp á veitingar á vægu
verði og barnagæsla verður til
staðar.
Dagskráin hefst í Dynheim-
um kl. 10 en þar leikur sinfón-
íuhljómsveit skólans og kynnir
starfsemi sína, og veitingar
verða kl. 12. Kl. 13.30 verður
skrúðganga frá Dynheimum á
Ráðhústorg og þaðan inn í hús
Tónlistarskólans, blásarasveit-
ir leiða gönguna.
Tónleikar nemenda verða í
skólanum á klukkustundar
fresti frá kl. 14 til 17 og alhliða
kynning fer fram á starfsemi
.skólans. Kl. 14.30 hefst í Dyn-
heimum leikur og kynning
forskóladeildar, hálftíma síðar
verður leikur eldri og yngri
strengjasveitar og kl. 15.30
leikur 5 blásarasveita. Kl.
17.45 leikur svo „Big-band“
jasshljómsveit skólans en
dagskránni lýkur með fjöl-
skyldudiskóteki og dansi. Áð-
gangur að öllum dagskrárat-
riðum er ókeypis.
Málverkasýning
í golfskálanum
Listadagar MA:
Gítartónleikar
Símonar og Kobilza
Hinir árlegu Listadagar
Menntaskólans á Akureyri
standa nú um mánaðamótin. í
tengslum við Listadaga MA
verða tónleikar á Sal skólans
sunnudaginn 5. maí nk. og
hefjast þeir kl. 20.30. Þar leika
gítarleikararnir Símon H.
Ivarsson og Siegfried Kobilza
verk eftir Johann Sebastian
Bach, Ludwig van Beethoven,
Manuel de Falla, Luigi
Boccherini og fleiri. Tón-
leikarnir á Sal Menntaskólans
á Akureyri eru öllum opnir.
Símon H. ívarsson er fædd-
ur í Reykjavík 1951. Hann hóf
gítarnám 19 ára gamall hjá
Gunnari H. Jónssyni við Tón-
skóla Sigursveins D. Kristins-
sonar.
Vorið 1975 lauk hann prófi
þaðan með vel heppnuðum
tónleikum, og sama ár tók
hann inntökupróf í einleikara-
deild Tónlistarháskólans í
Vínarborg. Paðan lauk hann
síðan einleikaraprófi vorið
1980 með mjög góðum vitnis-
burði.
Símon starfaði sem gítar-
kennari í 1 ár við Tónlistar-
skólann í Luzern í Sviss, en
fluttist heim til íslands haustið
1981, og hóf þá strax kennslu
við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar, þar sem hann
kennir ennþá.
Símon H. ívarsson og Sieg-
fried Kobilza hafa tvisvar sinn-
um farið saman í tónleika-
ferðalag um ísland, fyrst árið
1979, síðan aftur árið 1982.
Einnig hafa þeir leikið saman
á nokkrum tónleikum í Aust-
urríki.
Siegfried Kobilza er fæddur
í Kárnten, Austurríki 1954.
Hann byrjaði mjög uitgur að
fást við gítarleik upp á eigin
spýtur, og er einn þeirra fáu
sjálfmenntuðu nemenda, sem
hefur tekist að ná inntökuprófi
í einleikaradeild Tónlistarhá-
skólans í Vínarborg. Hann
lauk einleikaraprófi með ágæt-
um árið 1981, en þá hafði hann
þegar hafið tónlistarferil sinn,
bæði í heimalandi sínu og er-
lendis.
Siegfried Kobilza er einn
virtasti gítarleikari Austurríkis
í dag. Hann hefur haldið tón-
leika víða um Evrópu, m.a. í
Englandi, íslandi, Hollandi,
Frakklandi, Þýskalandi, Ung-
verjalandi, Tékkóslóvakíu,
Sovétríkjunum og einnig í
Carnegie Hall, New York.
Hann hefur leikið einleik
með þekktum austurrískum
hljómsveitum, svo sem
Mozarteum-Orchester í Salz-
burg og Wiener Symphoniker.
Með tilkomu hins nýja golf-
skála Akureyringa að Jaðri
hefur opnast möguleiki á góðri
sýningaraðstöðu fyrir listmál-
ara, og þegar er komin í gang
fyrsta sýningin þar í salnum.
Það er Gunnar Dúi listmál-
ari sem hefur opnað þar sýn-
ingu, og sýnir hann 26 verk,
olíumálverk og myndir úr
acryl og epoxy.
Gunnar Dúi Júlíusson hóf
nám í myndlist hjá Hauki Stef-
ánssyni á Akureyri og síðan
stundaði hann nám við Hand-
íða og myndlistaskólann í
Reykjavík. Hann hefur einnig
stundað nám erlendis í 10 ár,
m.a. í listaskólanum Escula
DeArtes Aplicadas í Malaga
á Spáni og stúderað myndlist í
Hollandi, Frakklandi og víðar.
Hann hefur tekið þátt í mörg-
um samsýningum heima og er-
lendis en sýningin að Jaðri er
hans 10. einkasýning hér
heima.
Sýning Gunnars Dúa að
Jaðri er opin virka daga kl. 20—
22, laugardaga og sunnudaga
kl. 14-22 og er aðgangur
ókeypis.
Maraþonskák
í Dynheimum
Maraþonæði virðist hafa grip-
ið ungviði bæjarins. Fyrir
skömmu efndu krakkar úr
Barnaskóla Akureyrar til
maraþonkeppni í því að
„verpa eggjum" og nú um
helgina ætla skólafélagar
þeirra að tefla í heilan sólar-
hring.
Átta ungir skákmenn úr
Skákklúbbi Barnaskóla Akur-
eyrar setjast að tafli kl. 20 á
laugardagskvöld í Dynheim-
um og er ætlunin að tefla nær
stanslaust fram til kl. 20 á
sunnudagskvöld. Ástæðan fyr-
ir þessari „þráskák" er sú að
krakkarnir ætla að safna pen-
ingum fyrir skákklúbbinn og á
þriðjudag höfðu þau þegar
safnað 27 þúsund krónum í
áheitum.
Þeir sem vilja sjá langar og
spennandi skákir ættu því að
leggja leið sína í Dynheima
annað kvöld.
Merkjasala
Slysavarnadeild kvenna á Ak-
ureyri varð 50 ára 10. apríl sl.
og í tilefni af því munu slysa-
varnafélagskonur selja merki
deildarinnar á morgun, laugar-
dag. Merki þetta er sérhannað
fyrir deildina og gefið út í til-
efni af 50 ára afmælinu. Merk-
ið sýnir konur er haldast í
hendur og mynda hring og er
það táknrænt fyrir samtaka-
mátt kvenna og það sem þær
hafa fengið áorkað með 50 ára
starfi. Því næst er björgunar-
hringur, einkenni Slysavarna-
félagsins, og er hann rammi
utan um Súlur og Glerána,
sem eru á miðju merkisins og
gefa til kynna að deildin sé á
Akureyri. Allur ágóði af
merkjasölunni rennur til slysa-
varnamála.
Photo
Fréttaljósmyndasýningin
World Press Photo verður
opnuð í Möðruvöllum MA, í
dag klukkan fjögur. Á sýning-
unni eru 137 myndir eftir er-
lenda fréttaljósrayndara, allt
myndir sem World Press
Photo stofnunin í Amsterdam
hefur verðlaunað. Auk þess
eru á sýningunni myndir eftir
21 íslenskan ljósmyndara.
Samtök fréttaljósmyndara
á Islandi tóku þátt í þessari sýn-
ingu með nánast engurn fyrir-
vara og því var ákvcðið að
hver félagsmaður sýndi eina til
tvær myndir eða ntyndaröð.
Það er hugmynd Listasafns Al-
þýðu og Samtaka fréttaljós-
myndara að gera þctta að ár-
legum atburði - að fá hingað
World Prcss Photo verðlauna-
myndirnar og sýna um leið bestu
ísiensku fréttaljósmyndirnar,
sem yrðu valdar af sérstakri
dómnefnd. Án efa gæti það
haft góð áhrif á verkcfnaval ís-
lenskra fréttaljósmyndara.
f inngangsorðum sýningar-
skrár segir Sigurjón Jóhanns-
son meðal annars: „Ljósmynd-
unin er það sterkur og sjálf-
stæður tjáningarmiðill, að all-
ar vangaveltur um hvort
Ijósmyndun sé listgrein eða
ekki skiptir í raun engu máli.
Ljósmyndin er svo margt - all-
ir geta tekið myndir og haft af
þvf ánægju, sumir taka góðar
myndir með listrænum áhersl-
um og aðrir nota myndavélina
til að skrá atburði líðandi
stundar af íhygli og raunsæi.
Einstaka maður beitir Ijós-
myndavélinni af snilid.“
Sýningin verður opin kl. 4-9
í dag, á morgun og sunnudag
frá kl. 2 til 9 og á mánudaginn
frá kl. 4 til 9, aðgangseyrir cr
100 kr. Þá verður til sölu ár-
bók World Press Photo, en í
henni eru ýmsar fleiri myndir
en þær scm á sýningunni eru.
Þetta er hin glæsilegasta bók.
Talsverður kostnaöur er
því samfara að fá sýningu
þessa til iandsins og er Arnar-
flugi þakkaður stuðningur í
þeitn efnum, og það var
Flugfélag Norðurlands sem sá
um að flytja sýninguna til Ak-
ureyrar, og fær félagið bestu
þakkir fyrir.
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Fjölskylduhátíð í
skólanum og Dynheimum