Dagur - 29.07.1985, Síða 1
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 29. júlí 1985
o*. luiuuiao
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
l SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
Óvíst hvað verður um gamla veginn
„Það er fímm milljón króna
fjárveiting í ár til að hreinsa
frá berginu þar sem munnarnir
eiga að koma,“ sagði Guð-
mundur Svavarsson umdæmis-
verkfræðingur hjá Vegagerð-
inni aðspurður um hvaða fram-
kvæmdir væru fyrirhugaðar á
næstunni við gerð jarðganga
í gegn um Ólafsfjarðarmúlann.
Búið er að velja munnunum
staði, sá eystri verður í Kúhaga-
gili í 60 metra hæð yfir sjávar-
máli en sá vestari verður í Tófu-
gjá í 130 metra hæð yfir sjávar-
máli. Göngin verða 3,2 km á lengd
og lengst af 2,5% halli á þeim. Að-
staða til jarðgangagerðar er talin
vera nokkuð góð á þessum stað.
Engin fjárveiting hefur fengist til
verksins á næsta ári ein árið 1987
á að byrja á sjálfum göngunum.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á
350-400 milljónir króna.
ins að húsið fengi að standa eitt-
hvað lengur, en þó ekki lengur en
til 15. september. Beiðni þessi er
tilkomin vegna þess að aðili sá er
kaupir húsið til niðurrifs er ekki
tilbúinn að fjarlægja það alveg
strax. En um miðjan september
ætti húsið að vera horfið og þessi
langa þræta sem um það hefur
staðið milli bæjaryfirvalda og
eigenda þar með úr sögunni.
-yk.
Guðmundur var spurður um
það hvað yrði um gamla veginn
fyrir Múlann þegar göngin kom-
ast í gagnið. „Pað er ekkert búið
að ákveða um það. Honum verð-
ur sennilega haldið eitthvað við
svo lengi sem það er hægt með
góðu móti en ef hann verður illi-
lega ófær vegna skriðufalla, þá
veit ég ekki hvað verður lagt í
mikinn kostnað við að opna
hann. Ég held að reynslan verði
að skera úr um það,“ sagði Guð-
mundur. -yk.
Stubbur tók þátt í hundadaga-
hátíðinni - fékk að mála sig og allt.
Mynd: gej
--------------------------->
Einhver frestur verður líklega
enn á því að gamla Eimskipa-
félagshúsið á mótum Skipagötu
og Kaupangsstrætis verði rifíð
þó að Hæstiréttur hafí staðfest
dóm undirréttar þar um.
Alþýðuhúsið nýja var vígt með viðhöfn síðastliðinn föstudag. Flestir þeir aðilar sem eiga lilut að byggingunni eru
komnir þar inn með sína starfsemi. Hér sést yfir salinn á 4. hæð hússins þar sem saman var kominn fjöldi fólks ævið
vígsluna. Mynd: -yk.
Húsið átti samkvæmt dómsorði
Hæstaréttar að vera farið fyrir 4.
ágúst en að sögn Hreins Pálsson-
ar bæjarlögmanns barst um það
munnleg beiðni frá eiganda húss-
Göng um Ólafsfjarðarmúla:
Gamla „Eimskipafélagshúsið“:
Rifið fljótlega
Nýr mettúr hjá
Akureyrinni
- Giskað á að aflaverðmætið sé um
27 milljónir króna
í gær kom Akureyrin að landi
á Akureyri með 230 tonn af
frystum þorskflökum. Áður
var búið að Ianda úr skipinu 60
tonnum af grálúðu á Isafirði.
Giskað er á að aflaverðmæti
farmsins sé um 27 milljónir
króna og er það verðmætasti
farmur sem íslenskt fískiskip
hefur borið að landi. Það stóð
ekki lengi fyrra metið sem sett
var í síðasta túr Akureyrarinn-
ar.
„Petta er þrælavinna og það
lögðu allir á sig,“ sagði Porsteinn
Vilhelmsson skipstjóri og einn af
eigendum Akureyrarinnar í gær.
Þeir byrjuðu veiðiferðina á grá-
lúðuveiðum en skiptu svo yfir í
þorskinn eftir nokkra daga og
jókst jafnt og þétt allan tímann.
Veiðiferðin var 24 dagar, ná-
kvæmlega jafnlöng og sú síðasta.
Það eyðist sem af er tekið og
Þorsteinn var spurður að því
hvað væri eftir af þorskkvóta Ak-
ureyrarinnar. Hann reyndist vera
búinn en Samherji hf. er búinn
að taka skip á Ieigu sem er ætlað
að leggja upp hjá Hvaleyri í
Hafnarfirði. í staðinn eru þeir að
vinna að því að fá hluta af kvóta
Maí og Júní fluttan yfir á Akur-
eyrina.
Óþarft er að fjölyrða um það
hvaða hagur það er fyrir bæjar-
félagið að hafa fyrirtæki í bænum
sem skilar jafn miklum verð-
mætum og útgerðarfyrirtæki Ak-
ureyrarinnar og nægir að minna
á að Samherji var í fimmta sæti
yfir hæstu gjaldendur í Norður-
landskjördæmi eystra. -yk.
Engin fjárveiting
á næsta ári
Akureyri:
Tjaldstæðagestir
færri en í fyrra
„Aðsóknin hefur ekki verið
svipur hjá sjón miðað við síð-
asta sumar,“ sagði Svanhildur
Konráðsdóttir, starfsstúlka á
tjaldstæðum Akureyrar að-
spurð um aðsóknina í sumar.
Það sem ræður úrslitum um að-
sóknina er veðrið, að sögn Svan-
hildar og hafa að meðaltali 100-
170 gist á hverri nóttu á tjald-
stæðunum í þessum mánuði.
Strax og veðrið batnaði fyrir
helgina fjölgaði gestum mikið.
Búið er að koma upp nýju húsi
með snyrtingum fyrir efra svæðið
og einnig hefur verið gert átak í
að bæta aðstöðu fyrir hópa.
Svanhildur sagðist telja að að-
staða fyrir tjaldstæðagesti væri
orðin mjög góð.
Það er vakt á tjaldstæðunum
frá klukkan átta á morgnana til
klukkan 12 á kvöldin og auk þess
er næturvarsla um helgar. -yk.