Dagur - 29.07.1985, Side 3
Endurskoðun bifreiða á verkstæðum á Akureyri:
29. júlí 1985 - DAGUR - 3
Hefur gefið góða raun
- að sögn Sigurðar Indriðasonar bifreiðaeftirlismanns
í ár og í fyrra hefur staðið yfir
tilraun á vegum Bifreiðaeftir-
litsins og Bflgreinasambands-
ins með skoðun bifreiða á
verkstæðum. Nú er skoðun
inni á verkstæðum lokið í ár og
Sigurður Indriðason bifreiða-
eftirlitsmaður var spurður um
reynsluna af þátttöku bifreiða-
verkstæðanna í öryggisskoðun
bifreiða.
Þar sem skammt er liðið frá
því að skoðun verkstæðanna lauk
og þau skiluðu sínum skýrslum
var Sigurður ekki búinn að taka
saman neinar tölulegar niður-
stöður en hann sagði að samstarf-
ið við verkstæðin hefði gengið
með ágætum og að menn hefðu
leitað töluvert til verkstæðanna.
í ár var sú breyting gerð frá því í
fyrra að verkstæðin fengu hvíta
miða til að láta á þá bíla sem
komu þangað til endurskoðunar
en í fyrra var það þannig að
menn fengu hvíta miða hjá
eftirlitinu með athugasemdum
um það sem að var og áttu að
framvísa athugasemdunum á
verkstæði. Nokkur brögð voru að
því að menn hundsuðu það að
fara með bílana á verkstæði þar
sem þeir voru komnir með hvítan
miða og sagði Sigurður að það
hefði gefist mun betur að verk-
stæðin fengju hvíta miða sem þau
gátu Iátið á bílana í stað grænna
miða sem menn fengu hjá eftirlit-
inu þegar einhverju var áfátt í
ástandi bílanna.
Af fyrstu 2400 bifreiðunum
sem færðar voru til skoðunar
með A-númeri á þessu ári fengu
166 græna miða. Stór hluti þeirra
leitaði til verkstæðanna til að
fá fullnaðarskoðun. „Mér sýnist
að þetta hafi sérstaklega verið
notað á Dalvík, Ólafsfirði og
Siglufirði," sagði Sigurður en á
þessum stöðum eru ekki staðsett-
ir bifreiðaeftirlitsmenn.
Hvítu miðarnir sem verkstæðin
hafa sett á bíla eru auðkenndir
með gati til að hægt sé að þekkja
þá bíla frá þeim sem hlotið hafa
sína skoðun hjá Bifreiðaeftirlit-
inu.
„Mér sýnist að þetta fyrir-
komulag geti orðið til þæginda
fyrir alla aðila ef þetta gengur
svona snurðulaust,“ sagði Sigurð-
ur. -yk.
Harmonikusnillingur á ferð
- leikur á Norðurlandi
Sænski harmonikusnillingur-
inn Lars Ek er væntanlegur til
landsins í boði Landssambands
harmonikuunnenda. Mun tríó
hans halda tónleika víðsvegar
um land. Fyrst að Varmalandi
í Borgarfirði laugardagskvöld-
ið 3. ágúst kl. 8.30. A Akur-
eyri í Sjálfstæðishúsinu 6. ág.
og á Húsavík í félagsheimilinu
7. ág.
Þá verður haldið til Reykjavík-
ur og þar kemur Lars Ek fram á
tónleikum í veitingahúsinu Ár-
túni föstudagskvöldið 9. ág. kl.
8.30. Tónleikaferðinni lýkur svo
í Gunnarshólma í Landeyjum 10.
ág. Það eru félög harmonikuunn-
enda á stöðunum auk nýstofnaðs
félags í Árnes og Rangárvalla-
sýslum, sem sjá um tóleikana, en
eftir þá flesta verður efnt til dans-
leikja og munu sveitir heima-
manna og gestir spila fyrir dans-
inum.
i
í Fjörður um Verslun-
armannahelgina
Pólar-hestar sem aðsetur hafa í Grýtubakka í HöfðahverB
hafa í sumar haldið úti ferðum í Fjörður, ásamt annarri
þjónustu sem hestaleigur almennt veita.
Um Verslunarmannahelgina fara Pólar-hestar í sína 5.
ferð í Fjörður. Lagt verður af stað um hádegisbil á laug-
ardag og komið til baka seinni hluta mánudags. Pólar
hestar leggja til fæði nema um annað sé samið, en þátttak-
endur mega gjaman hafa með sér veiðistöng.
Hlý föt og regnföt er nauðsynlegt að hafa meðferðis og
einnig svefnf>oka, en um annan búnað verður séð.
Mjög er þátttakendafjöldi takmarkaður og ekki verður
tekið við pöntunum eftir miðvikudagskvöld.
Nánari upplýsingar veittar í síma 33213 og 33179. Fyrir-
hugað er að fara þessar ferðir allar helgar út ágústmánuð.
Fyrir
Verslunarmanna-
Gefjunar
svefnpokar
Caravan
svefnpokar
og bakpokar
Tjöld í úrvali
Mikið úrval af ódýrum bama-
strigaskóm.
Vomm að taka
upp sendingu af
hinum sívinsælu
gúmmískóm
SÍMI
(96) 21400
Lars Ek er einn vinsælasti
harmonikuleikari á Norður-
löndum um þessar mundir. Hann
spilar í stíl gömlu meistaranna
Pietros Frosinis, Ragnars Sund-
quists og Nisse Lind, sem er lítt
þekktur hér, en hann var frægur
fyrir sína léttu sveiflu á árunum
fyrir síðari heimsstyrjöld. Lars
Ek þykir ná blæ þessara snillinga
einkar vel og ýmsir hafa líkt hon-
um við Toralf Tollefsen hvað
snertir tækni og léttleika. Lars
Ek er tæplega fertugur, hann
byrjaði að spila á harmoniku 5
ára og kom fyrst fram á tón-
leikum aðeins 11 ára gamall.
Síðustu árin hefur Lars Ek
ferðast um Norðurlöndin og
komið fram á hundruðum hljóm-
leika og hlotnast meiri frægð, en
dæmi eru um harmonikuleikara
síðan á gullaladarárum harmo-
nikunnar á fyrri hluta aldarinnar.
Með Lars Ek munu leika tveir ís-
lenskir hljóðfæraleikarar Þor-
steinn R. Þorsteinsson á gítar og
Þórður H. Högnason á bassa.
Notum ljós í auknum mæli
Dagana 29. júlí- 2.ágúst verður sérstök
tölvubankakynning í Iðnaðarbankanum
við Geislagötu, Akureyri.
Kl. 12-18
Komið og reynið sjálf lykilkortið.
Iðnaðaibankiim
/