Dagur - 29.07.1985, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 29. júlí 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 250 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 30 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, GESTUR E. JÓNASSON, YNGVI
KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, MARGRÉT Þ.
ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRIMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Spamaður eykst
Svo virðist sem íslendingar séu farnir að
spara og þótt margir eigi erfitt með að skilja
það, þá hafa samt einhverjir peningaráð svo
að þeir geti lagt fyrir. Fréttir hafa borist af
því upp á síðkastið að ekki sé nægjanlegt
framboð á ýmiss konar verðbréfum. Peninga-
framboðið sé meira en svo að sparnaðar-
löngun fólks sé fullnægt. Innistæður almenn-
ings í bönkum vaxa nú hraðfara, enda kepp-
ast bankarnir um að falbjóða ýmsar sparnað-
arleiðir, sem eiga að geta gefið góða ávöxtun.
Það er greinilega af sem áður var, þegar all-
ir kepptust við að eyða hverri krónu jafnóðum
og hún barst þeim í hendur. Létu það raunar
ekki nægja heldur stofnuðu til skulda í stór-
um stíl. Þetta kemur líka fram í öðru, nefni-
lega því að vöxtur innflutnings er hægari nú
en hann var fyrir nokkrum mánuðum. Við-
skiptahallinn hefur farið minnkandi og er nú
um helmingi minni en í fyrra. Frá áramótum
hefur með hverjum mánuði dregið úr svo-
nefndum almennum innflutningi.
Að vonum eru menn ánægðir yfir því að
innlendur fjárhagslegur sparnaður skuli vera
að aukast og þar með framboð á innlendu
lánsfé. Það verður líklegast að segja háu
vöxtunum það til hróss, að þeir eigi mestan
þátt í þessari þróun. Þeim til lasts má svo
hins vegar ótvírætt kenna þeim um mjög erf-
iða rekstrarstöðu fjölmargra fyrirtækja, raun-
ar alls atvinnureksturs í landinu. Því má segja
að deilur um háu vextina séu enn ekki út-
kljáðar.
Margir óttast nefnilega að þessi sparnaður
sé aðeins tímabundinn og að með haustinu
rjúki eyðsluæðið af stað á nýjan leik. Aðeins
sé um að ræða árstíðabundna hvíld frá hinu
hefðbundna neyslumunstri.
Hvað svo sem gerist á haustdögum, þá hef-
ur orðið mjög jákvæð breyting í þessum
málum. Ef sparnaðarhneigð fólks hefur aukist
svo varanlegt sé hefur orðið sú hugarfars-
breyting sem var orðin löngu tímabær og
nauðsynleg. Hún bendir til þess að almenn-
ingur í landinu sé að öðlast nýja trú á það
þjóðfélag sem við lifum í. Betur væri ef satt
reyndist.
Á undanförnum árum hefur neyslan ekki
dregist saman í neinu samræmi við tekjusam-
dráttinn, sem þýðir að fólk hefur haldið neysl-
unni uppi með lántökum eða með því að
ganga á innistæður sínar. Vonandi bendir
þetta til þess að fólk sé að rétta sig af fjár-
hagslega og að það sé jafnframt farið að
hugsa með öðrum og skynsamlegri hætti um
fjármál sín.
Bikarmót Norðurlands í hestaíþróttum:
Þetta á að vera úrvalið
af hrossum á Norðurlandi
„Það var almennt álit manna
að mótið hafi farið mjög vel
fram í heildina og skipulagning
verið mjög góð,“ sagði Rafn
Arnbjörnsson, sem keppti fyr-
ir hestamannafélagið Hring á
bikarmóti Norðurlands í hesta-
íþróttum. Var mótið haldið á
nýju mótssvæði Hrings að
Flötutungum í Svarfaðardal
um helgina og er þetta stærsta
mótið sem þar hefur verið
haldið.
„Aðstaðan á vellinum er mjög
góð og dómarar höfðu það á orði
að völlurinn væri upplagður til að
halda á íslandsmót í hestaíþrótt-
um. Ég held að mér sé óhætt að
segja að mótið hafi tekist mjög
vel og menn voru mjög spenntir
fyrir þessu keppnisformi," sagði
Rafn. Formið var þannig að
íþróttadeildir 6 hestamannafé-
laga af Norðurlandi sendu 3ja
manna sveitir til keppni og sigr-
aði sú sveit sem fékk hæstan
samanlagðan stigafjölda. Það var
sveit Léttis frá Akureyri sem fór
með sigur af hólmi, hlaut 914,27
stig. „Þetta er mjög skemmtilegt
form, það þjappaði mönnum
saman, því þarna voru félögin að
keppa hvert við annað, en ekki
einstaklingar úr félögunum inn-
byrðis. Velgengnin var því öllum
metnaðarrriál. Þetta var mjög
spennandi, t.d. var íþróttadeild
Hrings efst áður en gæðinga-
skeiðið byrjaði. Hún var þá með
40 stigum meira en íþróttadeild
Léttis, en síðan töpuðu Hrings-
menn á gæðingaskeiðinu og
misstu niður forskotið, þannig að
úrslit ráðast ekki fyrr en á síðustu
stundu.“
Sagði Rafn að veðrið hefði sett
nokkurt strik í reikninginn, að
því leyti að fólk kom ekki til að
gista á mótssvæðinu. Á laugardag
og sunnudag kom þó nokkuð af
fólki, en mun færra en vonast
hafði verið til.
„Þetta voru góð hross, þetta á
að vera úrvalið af hrossum af
Norðurlandi og ég held að það
megi segja að þetta hafi verið
nokkuð sterkt mót. Nú verður
þetta árviss viðburður og næsta
mót verður á Húsavík. Það verð-
ur keppikefli allra að ná bik-
arnum af Létti og Léttir reynir
svo að halda honum,“ sagði Rafn
að lokum.
Úrslit:
Hindrunarstokk:
Sæti Stig
1. Þór Ingvarsson, Hringur 79,80
2. Þórir kólfsson, Þytur, 69,70
3. Hugrún ívarsdóttir, Léttir, 77,80
Hlýðnikeppni:
1. Þórir ísólfsson, Þytur 38,50
2. Þorsteinn Stefánss., Hringur 34,50
3. Ingimar Ingimarss., Stígandi 32,50
Fjórgangur:
1. Ármann Gunnarss., Hringur 56,51
2. Þorsteinn Stefánss., Hringur 54,66
3. Stefán Friðgeirss., Hringur 49,75
Tölt:
1. Ármann Gunnarss., Hringur 86,60
2. Ragnar Ingólfsson, Léttir 84,80
3. Jóhann Magnússon,
Léttfeti og Stígandi 79,80
Fimmgangur:
1. Magnús Lárusson, Þytur 62,80
2. Stefán Friðgeirss., Hringur 57,20
3. Ingimar Ingimarsson,
Léttfeti og Stígandi 59,0
Gæðingaskeið:
1. Þórarinn Illugason,
Þjálfi og Grani 76,05
2. Ingimar Ingimarsson,
Léttfeti og Stígandi 74,05
3. Stefán Friðgeirss. Hringur 74,05
Sveitakeppni:
1. íþróttadeild Léttis 914,27
2. íþróttadeild Þyts 888,73
3. íþróttadeild Hrings 881,16
- HJS
Minning
Sigríður Soffía Ásgeirsdóttir
F. 16. febrúar 1966 - D. 21 .júní 1985
Þegar ung stúlka deyr í litlu
byggðarlagi er áfallið þar öðru-
vísi en í stærra samfélagi.
Allir vita strax hvað gerst hefur
og setur hljóða, því bönd skyld-
leika og vinsemdar, tengja þar
alla á einhvern hátt. Missirinn er
allra.
Það var þetta sem gerðist þeg-
ar fréttin um að Sigríður Soffía
væri látin. Síssa eins og við köll-
uðum hana, var farin í aðra og
lengri ferð en áætlað var heima á
Grenivík, á björtum vordögum
þegar Þýskalandsferðin var
ákveðin.
Öll eigum við okkar minningar
um Síssu hvert með sínum hætti.
Fyrir mér var hún ímynd hinnar
glöðu æsku, frjálsleg í framkomu
jafnt sem í leik og starfi, sýndi
ávallt að manndómur réði ferð-
inni.
Eitt er sem mig langar sérstak-
lega að minnast á sem einkenndi
Síssu ætíð og það var hugsunin
um aðra og í þessu tilfelli var það
þannig að hún skrifaði mjög sér-
staka ritgerð um frænda sinn og
mág minn, sem slasaðist alvar-
lega í bílslysi en þessi ritgerð var
svo vel gerð að með eindæmum
þótti og það sérstaka við þetta
var að hún skrifaði hana rétt á
eftir sínu eigin fyrra sjúkdómstil-
felli.
Tilgangurinn með því að nema
á brott svo vandaða stúlku í
blóma lífsins er mér óskiljanlegur
en líf Síssu hafði sannarlega
tilgang. Það vita allir sem henni
kynntust að hún var sannur vinur
vina sinna. Hún var líka ástkær
vinkona Guðbjargar dóttur
minnar. Margar svipmyndir lið-
innar tíðar standa ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum og þar á meðal
skírnin og man ég glöggt þegar
komið var heim frá henni, að við
Lísa móðir hennar kölluðumst á
milli húsanna og hún sagði mér
að ekki ætti að kalla hana Siggu
heldur Síssu, eftir nöfnu sinni.
Þetta er ein margra minninga
sem leita á hugann, en þessi þó
sérstaklega tengd kirkjunni sem
kallaði okkur nú saman með
sorgarhljómi, til að kveðja Síssu
hinstu kveðju.
Ég og fjölskylda mín vottum
Ásgeiri, Lísu, Heimma, Inga og
öðrum aðstandendum okkar
innilegustu samúð.
Megi fögur minning um góða
stúlku verða huggun harmi gegn.
Sigríður Arnþórsdóttir.
Hví var þessi beður búin,
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Pað er kveðjan: „Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Pú ert blessuð hans í höndum.
hólpin sál með Ijóssins öndum.
B.Halld.