Dagur - 29.07.1985, Blaðsíða 8
8- DAGUR-29. júlí 1985
t
Minning
Axel Bjöm Clausen
Fæddur 4. ágúst 1938 - Dáinn 18. júlí 1985
Það var glaður og hress vinnufé-
lagi er kvaddi okkur deginum
áður en hann lést svo sviplega og
snöggt sem raun varð á.
Hann átti sín spor, þau marka
leið á þeim veg er lífið leiðir til.
Axel var okkur ekki einungis
góður vinnufélagi, hann var sá er
vinnur trúnað með einlægni og
kærleiksríkri framkomu, hann
var okkur vinnufélögunum ein-
lægur vinur. Axel hafði gengið
með alvarlegan sjúkdóm í nokk-
ur ár er leiddi til þess að hinsta
kallið kom fyrirvaralaust er hann
var í sumarleyfi ásamt fjölskyldu
sinni. Kraftur hins góða er oft
hulinn, en birtist í þeim er gerir
vel. Með heilindum og lítillæti
starfaði Axel, hann óx með verk-
um sínum og er hann með léttri
kímni sinni og hlýlegri framkomu
okkur minnisstæður.
Axel bar ekki persónu sína eða
mótlæti á torg, en slíkir menn eru
virkir í kyrrþey. Þannig menn
kunna að sigrast á sjálfum sér og
geta verið frjálsir, það hefur ör-
ugglega verið Axel styrkur þegar
heilsu hans fór að dala, sjálfur
talaði hann lítið um sjúkdóm
sinn, sem lagði hann að velli að
lokum.
Axel fæddist á Akureyri þann
4. ágúst 1938. Hann var sonur
Jónasar Stefánssonar og Fannýj-
ar Clausen.
Hann nam ungur rafvirkjun og
gerðist meistari í greininni. Hann
var einn af stofnendum Ljósgjaf-
ans hf. á Akureyri. Árið 1974 hóf
hann störf á tæknideild F.S.A.
Þar starfaði hann sem traustur
fagmaður.
Nú er þessi vinnufélagi og vin-
ur horfinn yfir móðuna miklu,
hann hefur lagt í þá ferð sem við
öll að lokum verðum að halda,
gönguna til ljóssins, þess ljóss
sem við öll leitum að.
Það er von okkar og bæn að
hann sem öllu ræður veiti honum
blessun sína.
Konu hans Maggý Þorsteins-
dóttur, börnum, barnabörnum
^og nánum aðstandendum vottum
við okkar innilegustu samúð.
Vinnufélagar.
t
Minning
Páll Jónsson
Fæddur 12. nóvember 1908 - Dáinn 14. júlí 1985
Hann langafi er dáinn. Þetta voru
orðin, sem vöktu okkur upp þann
14. júlí sl.
Hver gat trúað því, að búið
væri að taka langafa frá okkur,
en það er huggun harmi gegn, að
öllum líður vel hjá Guði. Við get-
um lítið sagt, okkur langar aðeins
í þessum fáu orðum að þakka þér
elsku langafi fyrir árin, sem við
fengum að njóta meðal þín, þau
verða okkur alltaf kær, svo ljúfur
og góður varstu.
Grátum ekki, gleymum sorg,
gleðjumst, því að andinn lifir,
hann er sæll í himna borg,
hafínn jarðlífs þrautir yfir,
virðing í og vegsemd genginn,
verðlaun trúrra þjóna fenginn.
(Matthías Jochumsson.)
Góði guð haltu verndarhendi þinni
yfir elsku langömmu í hinni miklu
sorg.
Kveðja frá langafabörnum,
Páll Brynjar Pálsson,
Kristín Pálsdóttir.
Ódýrir
tQboðsréttir:
Mánudagur 29/7
Djúpsteikt fiskflök m/coktailsósu kr. 190,-
Lambakótelettur m/gulrótum kr. 280-
Þriðjudagur 30/7
-Djúpsteiktar vorrúllur m/súrsætri sósu lor. 170.-
Sænskar kjötbollur m/hrísgrjónum kr. 230,-
Miðvikudagur 31/7
Gratineruð fiskflök m/salati kr. 180.-
Svínaschnitzel m/steiktum kartöflum kr. 305.-
Fimmtudagur 1/8
Steiktur karfi mumiére kr. 180.-
Mínútubuffsteik á la Sjallinn kr. 330.-
Föstudagur 2/8
Marineruð fiskflök m/tómötum kr. 190,-
Lambasmásteik m/grænmeti kr. 230.-
Laugardagur 3/8
Steiktur silungur m/agúrkusalati
Reykt svínasneið Vowoii kr. 310,-
Verið ávallt velkomin í Kiallarann.
Þeir sigruðu í pollamóti KSÍ og Eimskips og eru því óopinberir íslandsmeistarar í 6. flokki a. Njáll Eiðsson og strák-
arnir hans í KA. Mynd: gej
Pollamót KSÍ og Eimskips:
KA-pollamir sigursælir
Pollamótinu sem KSÍ og Eim-
skip stóðu fyrir ásamt KA lauk
á félagssvæði KA kl. 16.00 í
gær. Þótti mótið og öll fram-
kvæmd takast hið besta. Einn-
ig voru veðurguðirnir í góðu
skapi þá daga sem mótið stóð
yfir.
Keppt var í tveimur riðlum, a
og b. I a riðli sigraði KA en í b
riðli voru það KR stubbarnir sem
sigruðu. KR var í öðru sæti í a
riðli, en ÍA var í þriðja. í b riðli
voru Framarar í öðru sæti, en
KA í þriðja.
Einnig eru kosnir bestu ein-
staklingar í mótinu og urðu KA
menn sigursælir þar. I a riðli var
markakóngur Andri Sigþórsson
úr KR skoraði 7 mörk. Besti
markmaður mótsins var kosinn
Magnús Ásgeirsson úr Þrótti
Neskaupstað. Besti varnarmaður
mótsins var síðan Ingólfur
Áskelsson úr KA.
í b riðli var Þórhallur Hinr-
iksson markakóngur, skoraði 6
mörk. Besti markmaður í b riðli
var Eiríkur Karl Ólafsson úr KA
og besti varnarmaðurinn var síð-
an Ingimar Karlsson úr KA.
Annars urðu úrslit sem hér
segir:
Laugardagur 27. júlí.
A: UBK - ÍA 0:1
A: KA - ÍBK 2:0
B: Víkingur - ÍBK 0:2
A: UBK - KR 2:2
A: ÍA - ÍBK 0:2
B: ÍBK - KA 0:3
A: KR - Þróttur N. 4:1
B: Fram - Þróttur N. 5:0
B: KA - KR 2:2
A: Þróttur N. - KA 0:2
B: Fram - Víkingur 2:1
B: Þróttur N. - KR 0:8
Sunnudagur 28. júlí.
A: KA - UBK 2:0
A: KR - ÍA 1:7
B: KR - ÍBK 1:1
A: UBK - ÍBK 1:2
A: ÍA - Þróttur N. 0:0
B: Fram - KR 0:2
A: Þróttur - UBK 1:3
A: ÍBK - KR 0:3
B: KA - Þróttur N. 6:0
A: ÍBK - Þróttur N. 3:0
B: KA - Fram 0:0
B: Víkingur - Þróttur N. 6:0
A: KR - KA 3:2
B: Vfldngur - KA 3:2
B: Þróttur - ÍBK 0:1
A: KA - ÍA 1:1
B: ÍBK - Fram 1:3
B: KR - Víkingur 0:0
3. deild, b-riðill:
Magni skaust
í toppsætið!
iMagni frá Grenivík fékk
I Tindastól í heimsókn á laugar-
daginn og lyktaði viðureign
liðanna með því að heima-
menn sigruðu með tveimur
mörkum gegn einu. Reyndar
skoruðu Grenvíkingar öll
mörkin því að þeir gerðu
sjálfsmark Magni er því kom-
inn með 26 stig og er í efsta
sætinu í riðlinum.
í Neskaupstað léku Þróttur og
Austri og endaði sú viðureign
með markalausu jafntefli.
Leiknir sigraði HSÞ b með 4
mörkum gegn 2 og virðist nú fátt
geta bjargað Mývetningum frá
falli.
Valur frá Reyðarfirði sigraði
Hugin með 4 mörkum gegn
engu. „Þetta var mjög sanngjarnt
og við hefðum átt að vinna þá
stærra. Þeir voru mjög daufir,“
sagði Sigmar Methúsalemsson,
einn leikmanna Vals eftir leik-
inn.
Eins og áður segir er Magni
frá Grenivík nú í efsta sæti riðiis-
ins með 26 stig. Einherji er með
23 stig og á einn leik til góða.
Tindastóll er með 22 stig og ef að
líkum lætur munu þessi þrjú lið
berjast hart um sigurinn í deild-
inni. Á botninum situr HSÞ b
með 4 stig. Þar á eftir koma Val-
ur og Huginn með 9 stig hvort lið
og stendur baráttan líklegast um
það milli þeirra hvort liðið fellur
með Mývetningum. -yk.
Mark
með
glæsimark
UMFS - KS 0:2
Siglfirðingar gerðu góð ferð í
Borganes um helgina. Þeir
tóku með sér 3 stig heim. Að
sögn tfðindamanns okkar á
þessum leik áttu Siglfirðingar
leikinn eins og sagt er á knatt-
spyrnumáli.
Ólafur Agnarsson og Mark
Duffield skoruðu fyrir Siglfirð-
inga, en eitt mark var dæmt af
þeim sem sagt var að skorað
hefði verið úr rangstöðu. En að
sögn sumra var það mark gert
eftir öllum reglum knattspyrn-
unnar. Markið sem Duffield
skoraði þótti sérlega glæsilegt.
En hann tók viðstöðulausan
bolta og þrykkti honum í vinkil-
inn - algjör þruma.