Dagur - 29.07.1985, Side 12
1^11 Alltaf vex vöruúrvalið Ö f
Akureyri, mánudagur 29. júlí 1985 Vinsamlegast komið og skoðið Bkl 1
Norðurland vestra:
Útsvarið
hæst á
Skagaströnd
Heildarálagning á einstaklinga
í Norðurlandskjördæmi vestra
nam 311.624 þús. kr. fyrir árið
1985 og er það 30.40% hækk-
un frá árinu áður. Hækkun
tekjuskatts milli ára nemur
25.8% og hækkun útsvars
33.46%. Gjöld félaga nemur
77.509 þús. kr. og er það
35.96% hækkun frá árinu
áður.
Þau fimm félög sem hæst gjöld
greiða í kjördæminu í ár eru:
1. Kaupfélag Skagfirðinga
Sauðárkróki, kr. 9.316.725.
2. Síldarverksmiðjur ríkisins
Siglufirði, kr. 3.827.732
3. Kaupfélag Austur-Húnvetn-
inga Blönduósi, kr. 3.405.485
4. Þormóður rammi hf. Siglu-
firði, kr. 2.724.781.
5. Sparisjóður Siglufjarðar
Siglufirði, kr. 2.651.641
Gjaldhæstu einstaklingarnir
eru:
1. Sveinn Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri Skagaströnd, kr.
803.721.
2. Jón Dýrfjörð vélvirkjameist-
ari Siglufirði, kr. 801.988.
3. Guðjón Sigtryggsson skip-
stjóri Skagaströnd kr. 750.145.
4. Erlendur Hansen iðnrek-
andi Sauðárkróki, kr. 694.976.
5. Kristinn Gunnarsson lyfsali
Siglufirði, kr. 608.404.
Ef borin er saman meðal
álagning útsvars í sveitarfélögum
kemur í ljós að hún er áberandi
hæst á Skagaströnd þar sem með-
al útsvar einstaklinga er 35.810
krónur, en það sveitarfélag sem
kemur næst í kjördæminu er með
meðal útsvarsálagningu innan við
28 þús. kr. -yk.
„Þegiðu þarna hundspottið þitt.“
Mynd: KGA
Hvar landa loðnubátarnir?
Seljendur vilja siqla
- til Færeyja eða Danmerkur með aflann
ef ekki fæst hærra verð hér heima
„Ef íslensku verksmiðjurnar
greiða ekki viðunandi verð þá
þýðir það að bátarnir munu
fara með loðnuna á erlendan
markað,“ sagði Sverrir
Leósson útgerðarmaður þegar
Dagur bar það undir hann hvar
hann teldi að loðnunni sem
veidd verður við Jan Mayen
yrði landað.
Sverrir sagði að ef miðað væri
við ákveðnar forsendur varðandi
fitu og þurrefnainnihald væri
verð í Danmörku 2700 krónur
fyrir tonnið, í Færeyjum 2000
krónur en kaupendur á íslandi
hefðu boðið 1530 krónur. Sverrir
tók undir það sjónarmið sem
komið hefur fram hjá Kristjáni
Ragnarssyni formanni LÍÚ um
Níu óku of hratt
- Tveir grunaðir um ölvun við akstur
Hundadagahátíðin fór að
mestu áfallalaust fram frá sjón-
arhóli lögreglunnar að sögn
Ingimars Skjóldal aðstoðar-
varðstjóra.
Þaðsem helst var athugavert við
framkomu þátttakenda hátíðar-
innar var að sumir þeirra gerðu
sig seka um átroðning á lóðum í
nágrenni við hátíðarsvæðið og
bárust lögreglunni einhverjar
kvartanir frá íbúum vegna þess.
Níu ökumenn voru kærðir fyrir
of hraðan akstur frá föstudegi og
þangað til síðdegis í gær og sagði
Ingimar að varla liði sá dagur að
ekki væru kærðir einhverjir öku-
menn fyrir of hraðan akstur, ann-
að hvort í bænum eða á vegunum
í nágrenninu.
Tveir ökumenn voru teknir
grunaðir um ölvun við akstur um
helgina. -yk.
að gefa ætti verð á loðnu frjálst
þessa tvo mánuði fram að því að
loðnuveiðar hefjast við ísland, til
reynslu.
Jón Reynir Magnússon fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
ríkisins telur að það sé ekki tíma-
bært að gefa loðnuverð frjálst á
meðan loðnukaupendur eru svo
„rígbundnir í sjóðakerfinu.“ Það
sem um væri að ræða væri að
setja lágmarksverð sem öllum
væri frjálst að fara upp fyrir.
Líklega munu um 10 íslenskir
bátar fara á loðnuveiðar við Jan
Mayen í ágúst og september eins
og fram kemur hér að framan.
Það er ekki nóg með að verk-
smiðjurnar í Danmörku bjóði
hærra verð fyrir loðnuna heldur
hefur verið bent á að þar er
olíuverð mun lægra en hér heima
þannig að íslensku verksmiðjurn-
ar þurfa að fara eitthvað upp fyrir
ákveðið lágmarksverð ef þær ætla
að fá loðnu til verkunar. -yk.
Ólafsfjörður:
Bættum-
gengni á
soiphaugunum
í síðasta mánuði fóru fulltrú-
ar heilbrigðiseftirlits í eftir-
litsferð til Ólafsfjarðar. í
skýrslu þeirra kom fram að
töluvert hafí miðað í rétta átt,
en þó hafí það aðallega verið
tvennt sem lagfæra þurfti.
Umgengni þurfti að bæta á
ruslahaugunum og komast
fyrir rottugang sem þar hefur
orðið vart.
„Það vildi svo til að á þessum
tíma hafði liðið heldur langur
tími frá því að rutt hafði verið
yfir sorpið, annars er það alltaf
gert annað slagið,“ sagði Vaitýr
Sigurbjarnarson bæjarstjóri á
Ólafsfirði. „Og við höfum upp-
rætt rotturnar með því að eitra
fyrir þær“. Valtýr sagði að gera
þyrfti átak hvað varðaði rusla-
haugana. í athugun væri að Ól-
afsfjörður og Dalvík sameinuð-
ust um sorpeyðingarstöð eða
þró. „Það mál er í skoðun, við
erum að bera saman kostnaðinn."
- KGA.
Það má búast við hægviðri
hjá ykkur fyrir norðan alveg
fram á fímmtudag. Skýjað og
þokkalegt veður inn til
landsins, en súld stöku sinn-
um úti við strönd. Breytingin
á fimmtudag verður vind-
snúningur til sunnan-suð-
austanáttar, sagði okkar
maður á Veðurstofunni.
# Fótaskortur
á tungunni
Þeir voru margir sem hlust-
uðu á Útvarp Síríus um helg-
ina og höfðu gaman af. Menn
höfðu á orði að þetta útvarp
gæfi t.d. Rás 2 ekkert eftir. Og
það er ekki fjarri iagi. Mikið
var talað um að mönnum yrði
fótaskortur á tungunni á Rás
2, en að því er heimildarmenn
S&S sögðu var ekki mikið um
slíkt hjá Útvarpi Síríus. Þó
eru til um það dæmi, þannig
var þaulvanur útvarpsmaður
að kynna lag með hinum
látna söngvara, Marvin Gey
og sagði: Þessi maður varð
fyrir slæmri lífsreynslu því
hann varð fyrir föður sínum,
sem hreinlega drap hann.
Vissulega slæm reynsla. Ætli
maðurinn hafi nokkurn tíma
beðið þess ban... nei, bætur
síðan.
# Hundakuldi
Þá er henni lokið, hunda-
dagahátíðinni. Það var létt
yfir veðurguðunum um helg-
ina og allir í besta skapi. í
undangengnu kuldakasti hef-
ur það verið mál manna að
vonda veðrið hafi verið
hundadögum að kenna. Fólk
hefur þyrpst í Ijósalampa
tautandí, fara þeir ekki að
hætta við þessa hátíð, veðrið
batnar ekki fyrr.
En nú geta hundadaga-
menn endanlega sannað og
sýnt að vont veður á ekkert
skylt við hátíðina. Á meðan á
hátíðinni stóð var þetta Ifka
fína veður, en strax nú á
mánudegi er komið sama
leiðindaveðrið og var allsráð-
andi fyrir hundadagahátíð.
• „Skota-
stúkan"
Skotar hafa orð á sér fyrfr að
vera nískir og þess vegna
hefur stæði það sem margir
Akureyringar velja sér í
Brekkugötunnl þegar knatt-
spyrnuleikir fara fram fengið
nafnið „Skotastúkan". Þar
hefur verið nokkurt fjölmenni
þegar leikir hafa farið fram í
sumar og um þverbak hefur
keyrt nú upp á síðkastið. í
Brekkugötunni er fólk í
hundraða tali sem ekki tímir
að greiða aðgangseyri og
íþróttafélögin í bænum sem
þurfa svo sannarlega á
jgreiðslu frá áhorfendur að
halda sitja eftir með sárt
ennið. Það er ekki fjarri lagi að
setja dæmlð þannig upp að á
hvern heimaleik þurfi að
koma það margir áhorfendur
að aðgangseyrir þessf nægi
viðkomandi félagi til að greiða
ferðakostnað við næsta úti-
leik, sem nemur tugum þús-
unda.