Dagur - 07.08.1985, Side 3

Dagur - 07.08.1985, Side 3
7. ágúst 1985 - DAGUR - 3 Krakkamót KEA í knattspyrnu haldið á Þórsvellinum á laugardaginn Laugardaginn 10. ágúst verður haldið krakkamót KEA í fót- bolta á Þórsvellinum. Mótið er fyrir krakka sem búa á félags- svæði KEA. Miðað er við að þátttakendur séu á aldrinum 10 ára og yngri - þ.e. í 6. flokki. Það er íþróttafélagið Þór sem annast framkvæmd mótsins. „Þessi hugmynd fæddist fyrir nokkrum mánuðum og eftir að forsvarsmenn KEA höfðu velt henni fyrir sér var ákveðið að láta til skarar skríða. Haft var sam- band við stjórnendur íþróttafé- laganna Þórs og KA og eftir að hafa rætt við þá var ákveðið að Þór skipulegði mótið,“ sagði Áskell Þórisson, blaðafulltrúi KEA í samtali við Dag. „Við ger- um okkur vonir um að alls komi rösklega 100 þátttakendur - víðs vegar af félagssvæði KEA - á mótið. Þórsarar hafa gert áætlun um gang mála og samkvæmt henni á mótið að hefjast kl. 10 um morguninn og því á að vera lokið laust fyrir klukkan 18. Spilað verður á þrem litlum völlum allt frá upphafi til loka mótsins." „Þar sem krakkarnir verða að allan daginn mun KEA sjá þeim fyrir einhverju í svanginn," sagði Áskell. „Þau munu t.d. fá pylsur frá Kjötiðnaðarstöðinni og sitt lítið af hverju frá Brauðgerð KEA og Mjólkursamlagi KEA. Foreldrar þeirra barna sem keppa á mótinu eiga því ekki að þurfa að senda þau með peninga á mótið.“ Að sjálfsögðu fá tvö efstu liðin verðlaunapeninga, en allir sem taka þátt í krakkamóti KEA fá boli með áíetrun til minningar. „Ég vona svo sannarlega að þetta mót heppnist vel. Ef allt gengur upp er síður en svo ólíklegt að hér verði um árvissan viðburð að ræða,“ sagði Áskell að lokum. Margir hraustir á hundadagahátíðinni: Bæjarlögmaöurinn reyndist „stálhraustur ' Það voru nokkrír sem tóku þá áhættu að sýna krafta sína op- inberlega er þeir tóku þátt í kraftamóti því sem lyftinga- menn okkar á Akureyri stóðu fyrir á hundadagahátíðinni. Það má segja að þar kom í Ijós margur dulinn krafturinn. Fyr- ir þá sem náðu árangri voru góð verðlaun í boði, t.d. árs- birgðir af kaffi, hundadagaöl í lítravís, bikarar af ýmsum stærðum og jafnvel peningar. Ekki var um þessar þekktu greinar kraftlyftinga að ræða að þessu sinni heldur ýmsar nýjungar sem kraftlyftinga- mennirnir fundu upp á. En úr- slit urðu þessi: Akureyrarmót í sjómanni 1. verðlaun 5.000 kr. & bikar og 10 kg af Bragakaffi. Þátttakendur í sjómanni voru alls um 40-45. Karlar: 1. Örn Traustason 2. Jóhannes Sumarliðason 3. Sigurður Þengilsson. Konur: 1. Inga Runólfsdóttir 2. Ingibjörg Guðlaugsdóttir. UHarballatog SÍS gaf vegleg verðlaun. 1. Eiríkur Sigurðsson 4,60 sek. 2. Frímann Guðmundss. 5,11 sek. 3. Örn Traustason 5,11 sek. Ölkassalyftingar á tíma (með hundadagaöli). Handleggjum haldið beint út. 1. Örn Traustason 1,14 mín. 2. Heimir Rögnvaldss. 1,05 mín. 3. Magnús Jónsson 1,03 mín. Hellusteinalyftingar 1. Sigurvin Jóhannesson 12 hellur 2.-3. Pálmi Guðmundss.(Bimbó) 10 hellur 2.-3. Frímann Guðmundsson 10 hellur. Kaffipokahlaup Verðlaun gefin af Kaffibrennslu Akureyrar. 1. Örn Traustason 18,29 sek. 2. Arnar Pétursson 19,11 sek. 3. Kjartan Aðalsteinss. 21,81 sek. Steinalyftingar Taka þá í fangið. Verðlaun fyrir tvo þyngstu 130 kg stálhraustan og 150 fílhraustan. Aðeins tveimur tókst að taka fílhraustan, það voru þeir Guðni Sveinsson frægur kraftamaður frá Siglufirði og Örn Traustason frá Hauganesi, sem sló í gegn í þessum aflraunum á hundadaga- hátíð. En hann mun vera bróðir hins kunna kraftajötuns Víkings Traustasonar. Það voru nokkrir sem tóku 130 kg stálhraustan í fangið - en mesta athygli vakti að skrifstofu- víkingurinn Hreinn Pálsson bæjarlögmaður skyldi afreka slíkt. - Heyrst hefur að bæjarbú- ar hafi verið yfir sig hrifnir af framtaki kraftlyftingamanna á hundadagahátíð. Vinsælasta tækið var aflmælir- inn. Fleiri hundruð manns reyndu sig. .jl IDBTVD Jl 0X3 ****** Félagsstarf aldraðra Þriðjudaginn 13. ágúst verður farin dagsferð í Laxárdal, S.-Þing. Skoðuð verður Laxárvirkjun, byggðasafnið að Grenjaðarstað o.fl. Verð kr. 600,- Hádegismatur að Laugum innifal- inn. Farið verður frá Húsi aldraðra kl. 10.00 f.h. Þátttaka tilkynnist í síma 25880. Félagsmálastofnun Akureyrar. Er fluttur Er fluttur að Geislagötu 1 (beint á móti bæjarskrifstofunum) Klæðningar k Viðgerðir k Nýsmíði k Plussáklæði Ullaráklæði k Leðurlíki. Geri tilboð í stærri verk. Bólstrun Björns Sveinssonar Geislagötu 1, sími 25322. Til sölu vel með farinn Ford Fairmont ár- gerð 1980 ekinn 46 þúsund km. Upplýsingar í síma 25821 eftir kl. 8.30 á kvöldin. Kynning verður í versluninni föstudaginn 9. ágúst frá kl. 2-6 e.h. Kynnt verður: Súkkulaði-María, kex frá Frón. Kynningarafslattur. ★ Athugið! í utileguna: Allar niðursuðuvörur frá Kjötiðnaðarstöð KEA á kynningarverði. Geríð góð kaup.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.