Dagur - 19.08.1985, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 19. ágúst 1985
90. tölublað
Biskup
heim að
Hólum?
Horfur eru nú til þess, að bisk-
upsstóll verði endurreistur að Hól-
um í Hjaltadal, með því að sr. Sig-
urður Guðmundsson, vígslu-
biskup, flytji heim í Hóla. Á aðal-
fundi Hólafélagsins í gær var sam-
þykkt eftirfarandi ályktun:
„Hólafélagið fagnar mjög fram-
komnum hugmyndum um að emb-
ætti vígslubiskups Hólastiftis verði
flutt heim að Hólum og fagnar um
leið yfirlýstum vilja núverandi vígslu-
biskups til þess að svo megi verða.
Hefur endurreisn biskupsstóls á Hól-
um verið eitt af höfuðmarkmiðum
Hólafélagsins allt frá stofnun þess og
bendir félagið á, að nú hafa skapast
þær aðstæður, sem hjálpa til að svo
megi verða. Fagnar félagið yfirlýst-
um vilja sóknarnefnda Hólapresta-
kalls í þessu máli og hvetur kirkjuyf-
irvöld til þess að taka mál þetta til af-
greiðslu, kirkju- og kristnilífi þjóðar-
innar til eflingar.“ - CS
í gær var í fyrsta sinn messað í nýbyggingu Glerárkirkju. Séra Pálmi Matthíasson predikaði. Kórinn söng við
undirleik Atla Guðlaugssonar og Atla Örvarssonar sem léku á trompet og Jóns Hlöðvers Askelssonar á píanó.
Kirkjugestir voru margir. Mynd: KGA
Hrísey:
Leikskóli
tekur til starfa
Innan fárra vikna mun leik-
skóli taka til starfa í Hrísey.
Keypti hreppurinn 92 fermetra
hús undir starfsemina. Er þetta
í fyrsta skipti sem dagvistun af
þessu tagi verður í Hrísey. Að
vísu var gerð tilraun fyrir
nokkrum árum með að reka
gæsluvöll eitt sumar, en ein-
hverra hluta vegna gekk það
ekki.
Guðjón Björnsson, sveitar-
stjóri sagði að verið væri að
kaupa húsbúnað og leiktæki.
Leikskólinn er fyrir 14 börn, en
hægt er að koma fleirum að ef
þörf er á. Hríseyingar voru svo
heppnir að þangað flutti fóstra í
vor og mun hún starfa við leik-
skólann. Sagði Guðjón að það
hefði verið orðið brýnt verkefni
að koma upp einhvers konar dag-
vistun fyrir börn. Það væru aðal-
lega konur í fiskvinnslunni sem
kæmu til með að hafa börn sín á
leikskólanum og hefðu þær oft
verið í vandræðum fram að
þessu. - HJS
Vegagerðin dæmd
til að greiða bætur
- vegna skekkju í verklýsingu við 1. áfanga Leiruvegar
Dómur er genginn í máli því
sem verktakafyrirtækið Gunn-
ar og Kjartan hf. sótti gegn
Vegagerð ríkisins vegna
meintrar skekkju í útboðs-
gögnum varðandi 1. áfanga
Leiruvegar. Vegagerðin var
dæmd til að greiða verktakan-
um 231 þús. kr. auk vaxta og
varð bótaupphæðin að með-
töldum vöxtum u.þ.b. 340 þús.
kr.
Mál þetta spannst út af því að
taka varð efni í burðarlag og síu-
lag vegarins á öðrum stað en ráð
var fyrir gert í verklýsingu Vega-
gerðarinnar og hlaust af því
nokkur aukakostnaður, að mati
verktaka. Samkvæmt verklýsingu
átti að taka efnið á Þveráreyrum
en þegar farið var að leita að efni
af réttri gerð kom í ljós að það
varð að fara út í ána til þess að
sækja efnið og var það þá gert að
beiðni Vegagerðarinnar.
Þegar ekki náðist samkomulag
milli Vegagerðarinnar og verk-
takans um greiðslur vegna þessa
var samþykkt af báðum aðilum
að vísa málinu til gerðardóms
Verkfræðingafélags íslands.
Verktakinn fór fram á að fá í
bætur kr. 681.474 en Vegagerðin
krafðist á móti sýknu af öllum
kröfum stefnanda. Eins og áður
segir varð niðurstaða gerðardóms
sú að Vegagerðinni var gert að
greiða verktakanum 231 þús. kr.
auk vaxta og verðbóta.
Þess má geta að í samninga-
umleitunum verktakans og
starfsmanna Vegagerðarinnar
hér fyrir norðan komust menn
það næst samkomulagi að Vega-
gerðin bauð 175 þús.'kr. í bætur
en verktakinn krafðist 450 þús-
unda króna.
Upphafleg kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar vegna þessa
verks hljóðaði upp á 2.897.500
miðað við verðlag í febrúar 1984.
Tilboð verktaka nam 58% af
kostnaðaráætlun. Verktaka og
Guðmundi Svafarssyni um-
dæmisverkfræðingi Vegagerðar
ríkisins á Akureyri, ber saman
um að aukakostnaður sem fram
kom vegna skekkju í verklýsingu
og leiddi hún til þessara deilna,
hefði fallið á Vegagerðina óháð
því hver hefði unnið verkið og á
hvaða verði. -yk
Unnið að gatnagerð í Hrísey.
Götur í Hrísey
malbikaðar
- framkvæmd upp
í Hrísey er nú unnið að varan-
legri gatnagerð. Er áætlað að
það taki um 2 ár að leggja
bundið slitlag á allar götur í
byggðinni á suðurhluta eyjar-
innar. Eru göturnar um 1 og Vi
km.
Að sögn sveitarstjórans, Guð-
jóns Björnssonar, er verkið vel
hafið og er nú unnið við að undir-
byggja göturnar. Er á áætlun að
á 4 milljónir króna
ljúka því fyrir veturinn. Fram-
kvæmd þessi er upp á 4 milljónir
króna, sem er mikil framkvæmd
í 270 manna byggðarlagi og mjög
gott að geta lokið þessu af á að-
eins tveimur árunt.
Segir Guðjón að gatnagerð
þessi sé aðallega umhverfis- og
hreinlætismál, en eins og flestir
vita er fremur lítið af bifreiðum í
Hrísey. - HJS
Jóhannes
fékk þann
stærsta
- Dró 27 punda og
115 cm hæng á
Hólmavaðsstíflunni
Stærsti laxinn sem dreginn hefur
verið á land hérlendis í sumar að því
er við best vitum fékkst úr Laxá í
Aðaldal á laugardagskvöldið. Það
var sjálf veiðiklóin, Jóhannes Krist-
jánsson, sem fékk laxinn við Hólma-
vaðsstífluna og fískurinn reyndist
hvorki meira né minna en 27 pund
og 115 cm að lengd.
- Þetta var hængur. sem greinilega
var búinn að liggja í ánni í einn til einn
og hálfan mánuð, sagði Jóhannes í
samtali við blaðið. Hann taldi víst, að
fiskurinn hafi verið yfir 30 pund þegar
hann gekk í ána. - Eg fékk hann á
svartan Toby þegar komið var fram í
myrkur á laugardagskvöldið. hálftíma
fyrir lokun. Hann var ekki nijög erfið-
ur, ætli það hafi ekki tekið mig um
þrjú korter að landa honum. Sigmund-
ur Ófeigsson hjálpaði mér við verkið.
dró laxinn upp á hól, þannig að öruggt
væri að hann kæmist ekki út í ána aftur.
sagði Jóhannes.
Góð veiði hefur verið í Laxá í sumar.
það eru komnir um 1350 laxar á land.
en í allt fyrrasumar fengust ekki nema
950 laxar. Veiði hefur hins vegar verið
treg að undanförnu. ekki síst vegna
þess hversu vatnsmikil áin er. - GS