Dagur - 19.08.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 19. ágúst 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 250 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 30 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, GESTUR E. JÓNASSON, YNGVI
KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, MARGRÉT Þ.
ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Alheimsmóóursýki
gegn hvalveiðum
Þrátt fyrir það að íslenskir og erlendir sérfræð-
ingar telji, að veiðar hvala í vísindaskyni séu
nauðsynlegar til að komast að niðurstöðum um
það hvort hvalastofninn í höfunum sé í hættu, er
ljóst að andstaðan gegn þessari fyrirætlan er svo
mikil erlendis að við gætum lagt afkomu útflutn-
ingsatvinnugreina okkar í sjávarútvegi í stór-
kostlega hættu með því að halda þessum veið-
um til streitu. Geysiöflug hvalfriðunar- og nátt-
úruverndarsamtök um víða veröld virðast hafa
tekið höndum saman um að útrýma hvalveiðum
með öllu strax. Ekkert tilht er tekið til færustu
sérfræðinga og réttlát reiði flestra íslendinga
vegna þessara þvingana megnar sín lítils. Mál-
staður okkar á erfitt uppdráttar, enda við ramm-
an reip að draga, þar sem ofangreind samtök
hafa skapað einhvers konar alheimsmóðursýki
gegn hvalveiðum. Til þess hafa þessi samtök úr
geysilegu fjármagni að spila. Áróðurinn er
gegndarlaus og ekkert til sparað.
íslendingar hafa unnið stríð gegn stórveldum.
Fiskveiðideilurnar við Breta eru gott dæmi um
það. Svo sýnist þó sem nokkuð ólíku sé saman
að jafna í þeim málum og varðandi hvalveiðarn-
ar. í fiskveiðideilunum hafði ísland stöðu Davíðs
gegn Golíati. Málstaðurinn var pottþéttur gegn
yfirgangi breska ljónsins. Verndunarsjónarmið í
hávegum höfð og áróðursstríðið var því auðunn-
ið. í hvalveiðidæminu er annað uppi á teningn-
um, því þar er ísland komið í fótspor Golíats
gegn lítilmagnanum, hinum ofveiddu hvala-
stofnum. Takist ekki að snúa þessu áróðursstríði
við er baráttan fyrirfram töpuð og eins gott að
viðurkenna það strax.
Eins og einn af forsvarsmönnum selveiði-
manna í Kanada benti á í viðtali við Morgunblað-
ið fyrir skömmu, þá eru smáþjóðir sem lifað hafa
af gæðum náttúrunnar að glíma við gjörólíkan
hugsunarhátt stórborgarbúans, sem aldrei hef-
ur þurft að afla sér til matar með öðrum hætti en
þeim að teygja höndina ofan í frystikistu stór-
markaðar. Þetta fólk þekkir margt ekki náttúr-
una nema af afspurn - sér hvað þeirra eigin
þjóðir hafa skaðað hana - sér hvað þeir hafa
sjálfir fjarlægst hana - og vilja nú fyrir alla muni
koma í veg fyrir að aðrir geri slíkt hið sama. Þeir
gera sér litla grein fyrir því að það er hægt að lifa
í sátt og samlyndi við náttúruna, jafnframt því
að nýta hana sér til lífsviðurværis.
Ef íslendingar ætla að eygja einhverja von um
að fá að lifa í friði á gæðum lands og sjávar í
framtíðinni, verða þeir að upplýsa alheiminn um
eðli smáþjóðanna, sem verða að fá að nýta allar
þær auðlindir sem mögulegar eru. Þeir verða að
sýna fram á að þeim sé treystandi til þess að
ganga ekki of nærri þessu lífsviðurværi sínu. ís-
lendingar þurfa að kosta til nokkrum heilsíðu-
auglýsingum í víðlesnustu tímaritum heims í
þessum tilgangi.
Jónas Pétursson, fyrrverandi alþingismaður:
Ekki lengur unað við
þá fölsku hagsæld
- sem blómstrað hefur í innflutningsverslun og margs konar þjónustu
Það er jarðvegur um allt ísland.
Gróður skýtur rótum þar sem
jarðvegur er. Ræturnar eru frum-
skilyrði eftirtekju. Rætur
byggðahreyfingarinnar eru að
breiðast út, styrkjast og eflast.
Það finnum við glöggt við undir-
tektir fólks og áhuga. í markmið-
um byggðahreyfinga er rótin. Á
landsfundinum í Mývatnssveit
voru kynnt þau markmið sem hér
fara á eftir, en þeir sem lögðu
þau fram voru: Jónas Pétursson,
Magnús Einarsson, Vilhjálmur
Einarsson, allir af Héraði og
Matthías Gestsson frá Akureyri.
Jafnframt fylgir nú nánari skýring
á þeim hugmyndum sem uppi eru
um framkvæmd á margvíslegum
þáttum markmiðanna.
Tímahjólið snýst og allt áhuga-
fólk þarf að hugleiða í nánari at-
riðum það sem í þessu felst, getur
falist eða er nauðsynlegt til þess
að árangur hreyfingarinnar til
réttlætis í þjóðfélaginu náist sem
best, að rótin verði gróðursett
um allar byggðir. Hugleiðið
málin, ekki síst er því beint til
sveitarstjórnarmanna.
Markmið
1. Að styðja og vernda byggð um
allt land.
2. Að styðja og vernda þjóðlíf
sem byggir á heimaöflun í sam-
ræmi við lífbeltin tvö, gróður-
beltið og hafið umhverfis, í ljósi
þekkingar á samhengi nota og
verndar.
3. Að í stjórnarskrá komi svæða-
skipting, fylki eða þing og stjórn-
un og vald á svæðunum hvíli á
sveitarfélögunum. Þar tilheyrir
land, vatn- og hitaorka, sem ekki
er í einkaeign, hverju svæði og
verður sameign fólksins. Megin
þeirra umsvifa í samfélagsmál-
um sem nú eru á valdi ríkisins
falli í hlut sveitarfélaga á hverju
svæði í réttlátu hlutfalli skyldu og
réttar. Reyna skal til hlítar hvort
enn er traust í því sem forðum
hét: „Bestu manna yfirsýn.“
4. Að á hverju svæði komi sjálf-
stæður viðskipta- og gjaldeyris-
banki og verði staða þeirra
banka, skyldur og réttur, tryggt í
stjórnarskrá.
5. Manngildi er meira en auð-
gildi.
Skýringar um
frekari útfærslu
1. Stuðningur og verndun byggð-
ar felst í aðstoð og hvatningu við
átthagatryggð og nýtingu nátt-
úrugæða, hlunninda, sérstæðra
búhátta, gæslu minja og sér-i
stæðrar náttúru.
2. Til þess að gildi lífsafkomu til
lands og sjávar komi til nytja
efnahagslega og þjóðfélagslega í
náttúrulegu uppeldi og margvís-
legri skólun án kennslustofnana,
þar með dvöl barna og unglinga
við störf lifandi gilda.
3a. Þau samfélagsverkefni sem
falli að fullu í hlut sveitarfélaga:
Skóla- og menntastofnanir og
rekstur þeirra að öllu leyti, aðrar
en háskólastigin sem þó séu ekki
bundin við höfuðborgina eina.
Heilbrigðisstofnanir og sjúkra-
stofnanir aðrar en Landspítali og
Landakotsspítali. Löggæslu- og
lögreglumál svæðanna og sýslu-
mannsembætti. Margvíslegur
stuðningur við snilli sem almennt
er táknuð sem menning og kemur
fram á margvíslegum sviðum.
3b. Þetta er sett fram í ljósi
norskra fyrirmynda og ekki tæm-
andi. Svæðaskipan verður að
sníða eftir hugmyndum íbúa á
hverju svæði. Nefna má: Múla-
og Skaftafellsþing. Sunnlend-
inga- og Suðurnesjaþing. (Suður-
lands-, Vestmannaeyja- og
Suðumesja.) Höfuðborgarþing,
frá Hafnarfirði í Hvalfjarðar-
botn. Vesturlands- og Vest-
fjarðaþing (eða Vestfirði sér),
Norðurþing, Norðlendingafjórð-
ung.
3c. Aðalfundir sambanda sveitar-
félaga verði ráðgefandi stofnanir.
Vald í málum hvers svæðis,
þings, verði hjá fundi eða þingi,
sem kosið sé til sameiginlega á
svæðinu eftir tilnefningu, fram-
boði, úr hópi sveitarstjórnar-
manna og hver kjósasndi velur að-
eins tvo menn úr hópnum. Fjöldi
í þessa stjórn verði 2 fyrir 1000
eða 1500 íbúa. Þótt listar séu
boðnir fram verði aðeins kosin
tvö nöfn, óháð á hvaða lista
nafnið stendur.
3d. Hið réttláta hlutfall skyldu og
réttar miðist við að gjaídeyris-
öflun hvers svæðis skapi réttinn
tii hlutdeildar í tekjum ríkisins v
beinu hlutfalli við hlut svæðisins
í gjarldeyrisöflun. Gjaldeyris-
öflunin er bein undirstaða ríkis-
teknanna. Jöfn hlutdeild heildar-
teknanna fari fyrst til samfélags-
| þáttanna sem verða í hlut ríkis-
ins. Finna skal út frá uppskurði
ríkisreiknings 2-3 seinni ár, skipt-
ingu liðinna ára á þessum grund-
velli sem gefur myndir af fram-
kvæmdum þessara hugmynda.
Hér að framan er allmörgum
spurningum ósvarað.
4. Gjaldeyrisbankar á hverju
svæði eru trygging þess að ljósar
liggi fyrir öflun verðmætanna á
hverju svæði, auk þess að ótví-
ræður réttur verði sameiginlega
til ákvörðunar á raungildi undir-
stöðunnar. Verður með engu
móti unað lengur við þá fölsku
hagsæld sem blómstrað hefur í
innflutningsverslun og þjónustu
margs konar og hefur skapað
þeim sem verðmætanna afla
þurfalingsstöðu í fávísi yfirborðs-
kenndrar skólamenntunar.
5. Velferð íslensks menningar-
og manndómsþjóðfélags er ekki
síst háð því að skilningurinn á
manngildi nái yfirtökunum á
auglýsinga- og gróðahyggju sem
uppruna sinn á í orðum Kains:
„Á ég að gæta bróður míns?“