Dagur - 19.08.1985, Page 6
6 - DAGUR - 19. ógúst 1985
Næsti leikur í 2. deild:
Valur -
Steingrímur Birgisson á góðan skalla að marki Breiðabliks, en boltinn fór
naumlega framhjá. Mynd: KGA
Toppbarátta
- í leik KA og Breiðabliks
sem endaði með jafntefli, 1:1
KA:ÍBÍ á
Akureyri
Næsti leikur KA í 2. deildinni er
gegn ísfirðingum og fer sá leikur
fram á Akureyri. KA er nú í
þriðja sæti deildarinnar en hefur
leikið einum leik færra en liðin
fyrir ofan, Breiðablik og ÍBV.
KA-menn verða helst að vinna
ÍBÍ ef þeir ætla að komast upp
fyrir annað hvort þessara liða
sem fyrir ofan eru í næstu um-
ferðum. Sigri KA í leiknum á
miðvikudaginn verður liðið enn
einu stigi undir Breiðabliki og er
því ljóst að það er á brattann að
sækja.
Úrslitakeppnin í
3. flokki:
KR sigraði
KAí
úrslitaleik
Urslitakeppni íslandsmótsins í
3. flokki drengja í knattspyrnu
fór fram í Vestmannaeyjum um
helgina. Þar keppti lið KA sem
sigraði í sínum riðli í undan-
keppninni og ávann sér þannig
rétt til þátttöku ■ úrslitakeppn-
inni.
Skipt var í tvo riðla í úrslitun-
um og vann KA sinn riðil, fékk
fimrn stig af sex mögulegum. KA
sigraði Fylki 5-0, ÍK 2-1 og gerði
jafntefli við Tý, 1-1. í úrslitaleik
um 1. sætið keppti KA við KR
sem sigraði í hinum riðlinum og
lauk þeirri viðureign með sigri
KR, 6-0. KR er því íslandsmeist-
ari í kriattspyrnu í 3. flokki
drengja en KA hreppti annað
sætið.
Völsungar
töpuðu
- fyrir Skallagrími
í Borgarnesi
Völsungar gerðu enga frægðarför
til Borgarness á laugardaginn.
Þeir spiluðu við Skallagrím og
töpuðu leiknum með 1 marki
gegn 4. Það með má segja að
endanlega sé úti um vonir Völs-
unga um 1. deildar sæti og eru
þeir nú fallnir niður í miðja deild.
Jón Leó skoraði eina mark
Völsunga í leiknum.
Það voru Vestmanneyingar sem
græddu mest á úrslitunum í
leik KA og Breiðabliks á Akur-
eyrarvelli á föstudaginn. Liðin
skildu jöfn, 1:1, og fyrir vikið
sitja Vestmanneyingar einir á
toppi 2. deildar með 29 stig.
Leikurinn á föstudaginn ein-
kenndist af mikilli baráttu fremur
en góðri knattspyrnu. Báðum lið-
um tókst að skapa sér nokkur
sæmileg færi í fyrri hálfleik án
þess þó að þeim tækist að koma
boltanum í netið. Sennilega hafa
KA-menn átt ívið fleiri færi en
þeir voru líka nærri búnir að
skora sjálfsmark. Sæmundur ætl-
aði að gefa boltann á Þorvald
markvörð en sendingin var bæði
heldur föst og ónákvæm og Þor-
valdur mátti taka undir sig helj-
armikið stökk til að ná að hremma
knöttinn.
í seinni hálfleik fjölgaði færum
nokkuð og virtust KA-menn enn
vera sterkari en þó ekki meira en
svo að markið gat komið hvoru
megin sem var, enda fór svo að
Breiðablik varð á undan að
skora. Jóhann Grétarsson komst
með boltann inn fyrir vörn KA
sem brást illa og Jóhann skoraði
nokkuð auðveldlega.
KA-menn svöruðu fyrir sig
þegar um 5 mínútur voru til leiks-
loka. Þeir fengu dæmda horn-
spyrnu sem Árni Freysteinsson
tók og sendi hann boltann vel inn
í markteiginn þar sem Hinrik
Þórhallsson var fyrir og skaut
viðstöðulaust í markið. Fallegt
mark.
Eftir þetta sóttu KA-menn því
sem næst látlaust á mark Breiða-
bliks til leiksloka en staðan hélst
óbreytt, jafntefli.
Bestu menn í liði KA voru
Njáll Eiðsson og Erlingur Krist-
jánsson.
Hringur með þrennu
- hart barist á toppi 3. deildar b
Það stefnir allt í tvísýna bar-
áttu á toppnum í 3. deild b.
Það eru Einherji frá Vopna-
firði, Magni frá Grenivík og
Tindastóll frá Sauðárkróki sem
berjast þar um efsta sætið.
Á laugardaginn var leikin heil
umferð í riðlinum og fóru leikar
þannig að Einherji vann HSÞ-b
með tveimur mörkum gegn
einu, Tindastóll vann Val með
tveimur mörkum gegn engu,
Huginn vann Austra með 4
mörkum gegn þremur og Magni
vann Þrótt N., 4:0. í leik Magna
og Þróttar bar það helst til tíð-
inda að Hringur Hreinsson skor-
aði þrennu eftir að Jón Stefán
Ingólfsson hafði gert fyrsta mark
Magna.
í næstu umferð sem leikin
verður á laugardaginn mætast
Tindastóll og Einherji á Vopna-
firði og er ekki að efa að þar
verður hart barist enda geta úrslit
í þeim leik haft mikið að segja
um það hvaða lið vinnur riðilinn.
í síðustu umferðinni mætir Ein-
herji svo Magna á Grenivík
þannig að þó Einherji sé nú efstur
í deiidinni þá á liðið eftir að leika
við tvo erfiðustu keppinautana í
deildinni sem ætla sér örugglega
báðir að sigra og því stefnir í tví-
sýna baráttu á toppi 3. deildar b.
þar sem þessi þrjú lið ættu að
hafa nokkuð jafna möguleika.
Úrslitakeppnin í 4.
Valsarar sign
- unnu alla sína leikL Selfoj
Algerir yfirbi
„Við vorum einfaldlega saltað-
ir, það er fátt annað um leikinn
að segja,“ sagði Jóhannes
Atlason þjálfari Þórs eftir leik
Iiðsins við Val í Reykjavík í
gærkvöld. Og orð þjálfarans
eru að sönnu. Yfirburðir Vals
voru algerir, frá upphafi til
enda. Þórsarar áttu vart við-
reisnar von. Lokatölur urðu
þrjú mörk gegn engu, fyrir
Val. Sigur þeirra var
sanngjarn, og þótt stærri hefði
verið.
Valsmenn hófu leikinn og strax
skapaðist nokkur hætta við Þórs-
markið, þegar Heimir Karlsson
átti skot úr þröngri stöðu. Bolt-
inn rúllaði eftir marklínunni og
Þórsarar náðu að bjarga í horn.
Fáum mínútum síðar mátti Þórs-
vörnin hafa sig við, þegar Bald-
vin markvörður missti yfir sig
sendingu fyrir markið. Á 19.
mínútu var Baldvin hins vegar
vel á verði og varði örugglega
lúmskt skot. Tíu mínútum síðar
komst Hilmar Harðarson einn
inn fyrir vörn Þórs, hann hafði
nógan tíma til að vanda sig, en
skaut framhjá frá vítateigslínu.
Á 32. mínútu eru Valsmenn enn
í sókn. Grímur Sæmundsen gaf
fyrir markið, Guðmundur Þor-
björnsson skallaði, en knötturinn
fór í stöng. Guðmundur fylgdi
vel á eftir og setti boltann í netið.
Eitt - núll.
Ef eitthvað var, þá lifnaði yfir
Þórsliðinu við þetta mark.
Nokkrum mínútum síðar, á 38.
mínútu, áttu Þórsarar sína fyrstu
eiginlegu sókn í þessum leik, og
Siguróli átti ágæta sendingu fyrir
Valsmarkið, en vörn Vals var
sterk fyrir og náði að hreinsa.
Þegar skammt var til leikhlés
voru Valsmenn með boltann á
eigin vallarhelmingi, há sending
- einn lélegasti lei
að vítateig Þórs, Heimir skallaði
boltann áfram, þá kom aðvífandi
Guðmundur Þorbjörnsson og
með þrumuskoti sendi hann
knöttinn í Þórsmarkið. Tvö -
núll.
Þórsarar hófu seinni hálfleik
með nokkuð góðri sókn, sem
endaði með ágætu skoti frá Hall-
dóri Áskelssyni. Stefán Arnars-
son varði vel.
Á 7. mínútu átti Baldvin illa
tekið útspark, Þórsurum mistókst
að hreinsa og Heimir komst einn
í gegnum vörnina. Skot hans
stefndi framhjá Þórsmarki, en
Iíklega hefur það verið ójafna á
Hér munaði litlu að Valsmenn bættu fjórða ma
Úr úrslitaleiknum, markvörður Selfyssinga stöðvar sókn Valsmanna.
Mynd: 1