Dagur - 19.08.1985, Side 9
19. ágúst 1985 - DAGUR - 9
Nokkrír valinkunnir og atorkusamir skátar frá Akureyri. Leiðinlegt veður
hefur greinilega ekki áhrif á góða skapið.
Pallavú! Kvöldvakan á laugardagskvöldið var fjölmenn og tókst með ein-
dæmum vel.
Um síðastliðna helgi héldu skátar
heljarinnar mót í Hrísey. Var
mótið sett á fimmtudegi og stóð
fram á hádegi á sunnudag. Mótið
var skipulagt af skátum á Akur-
eyri og var Jóhannes Árnason
mótsstjóri.
Almennir þátttakendur voru
um 260 á aldrinum 11-16 ára. Þar
fyrir utan voru milli 50 og 60
starfsmenn mótsins og nokkrir
voru í fjölskyldubúðum. Lét nærri
að íbúatala eyjarinnar tvöfaldað-
ist um helgina. Skátarnir voru frá
Reykjavík, Akureyri, Akranesi,
Borgarnesi, Blönduósi, Sauðár-
króki, Ólafsfirði, Þórshöfn,
Vopnafirði og Neskaupstað. Að
sögn Jóhannesar, mótsstjóra var
þetta ágætís æfing fyrir næsta
landsmót sem haldið verður í ná-
grenni Reykjavíkur á næsta ári.
Á mótinu var boðið upp á
nýjung, sem voru tölvur. Voru
þær settar upp í gömlum skóla í
eynni og gátu skátarnir verið þar
í tölvuleikjum. Nutu tölvurnar
mikilla vinsælda og hefur veðrið
eflaust átt stóran þátt í því. Veðr-
ið var leiðinlegt, en þó rigndi ekki
fyrr en á sunnudag. Sagði Jóhann-
es að skátarnir hefðu lítið látið
veðrið á sig fá og sýndi það best
hvað þeir eru þrautseigir.
Eins og vaninn er á skáta-
mótum var boðið upp á ýmiss kon-
ar leiki og þrautir og margt hægt
að gera sér til skemmtunar. Það
var vatnasafarí, þrautabraut og
rennibraut, svo eitthvað sé nefnt.
Menn skrá sig í ýmis verkefni og
síðan er farið í að leysa þau.
Alla mótsdagana var gefið út
blað, sem bar nafnið Heilinn. Var
því dreift í öll hús á eynni og mun
vera fyrsta dagblaðið sem þar er
gefið út. Á laugardagskvöldið var
varðeldur og kvöldvaka sem fram
fór í stóru tjaldi. Rúmlega 300
manns voru á kvöldvökunni sem
tókst mjög vel.
Sagði Jóhannes að Hrísey væri
mjög vel fallin til að halda þar mót
af þessu tagi. Heimamenn væru
mjög hjálplegir og þeir hefðu
mætt þarna mikilli vinsemd. Mót-
ið hefði á allan hátt tekist mjög
vel, nema hvað veðrið hefði mátt
vera betra. Vildi hann koma á
framfæri þakklæti til allra sem
hönd hefðu lagt á plóginn.
-HJS
Það má greinilega nýta dekk á ýmsan máta, t.d. hengja þau upp og troða sér
svo í gegn.