Dagur - 19.08.1985, Page 12
Pakkningaefni
korkur, skinn og hercuies.
sími 96-22700
Ijj TZ V eitt b"rn öskaj&a*" o;'lf e»nstnanns-l
ð taka 2-3ja herb. íbúð íWPrb ‘bú& 6& -t sept- BeaW'*
'6,9U- Reð,USemi - s^rsu^e^-
tneð ei^ =Qm wrst.
Reglusemi og
greiöslum heiti, fyrirfn
Menntaskólanema vantar 2\a
herb. ibúð til leigu. Uppl. gefur
18 ára skólanemi (strákur) ósk-
|ar eftir herbergi á '®^a^erb.
!gög*5?£
Ung hjón með tvö börn óska eft- Ung h\bn ™ íbúó sem ^
ir íbúð sem fyrst, helst 3ja her- ett\r & wö ung rneö
herb.
anum- ha«,ösami
V\nsamlegaha"°------
SS ^tCSfeSSf fciSR
og reg'
Ausem'l
toand'
Óska
strax
eftir
Helst
á eth
Bre'
.kkunnu
Akureyri:
Leiguíbúðaskortur
- Aukin ásókn í leiguíbúðir Félagsmálastofnunar vegna „þenslu“ á markaðinum
Yfír 20 umsóknir bárust um
eina íbúð, sem Félagsmála-
stofnun Akureyrar auglýsti
nýlega við Keilusíðu. Það kom
fram í máli Sigríðar Stefáns-
dóttur, bæjarfulltrúa og for-
manns félagsmálaráðs, í bæjar-
stjórn í síðustu viku, að sumar
þessar umsóknir væru þess
eðlis, að nær ómögulegt væri
að hafna þeim.
Pað kom fram í samtali við
Guðrúnu Sigurðardóttur, félags-
málaráðgjafa, að löngum hefur
verið niikil ásókn í þessar íbúðir,
en hún færi vaxandi. Ástæðurnar
taldi hún in.a. þær, að leiguverð
á almennum markaði virtist fara
hækkandi, væntanlega vegna
aukinnar ásóknar í leiguhúsnæði
á Akureyri. Það yrði til þess, að
fólk með stórar fjölskyldur, t.d.
einstæðir foreldrar, réðu illa við
leigukjör á almennum markaði
og leitað til Félagsmálastofnunar.
Þar eru íbúðir leigðar á 3-5 þús-
und eftir stærð og staðsetningu,
en á almennum markaði munu
samsvarandi tölur vera 10-15
þúsund. Akureyrárbær á um
70-80 íbúðir, sem leigðar eru út
með þessum kjörum.
- Það er alltaf þannig, að það
er erfitt að velja úr þeim umsókn-
um sem berast, sagði Guðrún. -
Margir búa við þannig hag, bæði
fjárhagslega og félagslega, að
okkur finnst mjög erfitt að þurfa
að segja „nei“.
- Eru þá ekki of fáar íbúðir í
boði á vegum Félagsmálastofn-
unar?
- Það væri vissulega gott að
þær væru fleiri. Já, það væri mjög
gaman að geta sagt „já“ við alla
sem koma, sagði Guðrún Sigurð-
ardóttir.
Mikil ásókn er í leiguíbúðir á
Akureyri þessa dagana. Þannig
var auglýst eftir 14 íbúðum í
smáauglýsingum Dags í síðustu
viku, en aðeins 4 voru auglýstar
til leigu. Og þeir sem vildu leigja
fengu lítinn frið eftir að auglýs-
ingarnar birtust. Að hluta til
veldur skólafólk þessari auknu
eftirspurn, en einnig er um fjöl-
skyldufólk að ræða.
- GS
„Salan gengur
glimrandi vel“
- segir Aðalsteinn Jónsson, forstjóri Sjafnar
um söluna á nýju bleiunum og dömubindunum
„Salan hefur gengið alveg
glimrandi vel, en af því við
framleiðum fjórar stærðir í
sömu vélinni er ekki endanlega
útséð um hvað salan verður
mikil,“ sagði Aðalsteinn
Jónsson, forstjóri Sjafnar, að-
spurður um hvernig salan á
bleiunum og dömubindunum
frá Sjöfn hefði gengið.
Sjöfn framleiðir tvær stærðir af
bleium og tvær af dömubindum
og þarf alltaf að stilla vélina fyrir
hverja stærð. Sagði Aðalsteinn
að þessi framleiðsla virtist líka
vel, þeir hefðu einungis orðið
varir við jákvæð viðbrögð.
Framleiðslan á bleiunum og
bindunum er í hinu nýja húsnæði
Flutt í nýja skóla-
húsið nú í haust
„Húsnæðið er það langt komið
að klárað verður að innrétta
helminginn af því fyrir kennslu
í haust og flytja í þann hluta,“
sagði Guðjón Björnsson, sveit-
arstjóri í Hrísey um grunn-
skólabygginguna sem verið er
að reisa þar.
Húsnæði skólans er um 600
fermetrar á einni hæð. Ofan á
Nýja skólahúsið í Hrísey.
húsið kemur síðan viðbygging
sem hýsa mun skólabókasafn.
Þeir 300 fermetrar sem teknir
verða í notkun í haust eru stærri
en gamla skólahúsið sem nú
verður tekið undir aðra starf-
semi. Sagði Guðjón að ekki væri
afráðið hvað gert yrði við húsið,
en nóg væri með það að gera.
Það vantar húsnæði undir æsku-
lýðsstarfsemi, bókasafn, hrepps-
skrifstofur, sparisjóðinn, o.fl.
Gamla skólahúsið var orðið
alltof lítið og auk þess gamalt og
þjónaði því illa hlutverki sínu.
íbúum eyjarinnar hefur fjölgað
talsvert frá síðasta ári og fleiri
hafa áhuga á að flytjast út í Hrís-
ey. Sagði Guðjón að atvinnu-
ástand væri gott og yrði væntan-
lega allt þetta ár. Nóg er að gera
við fiskvinnslu, gatnagerðina og
skólabygginguna. Ekki er búist
við atvinnuleysi í fiskvinnslunni,
eins og svo víða annars staðar.
- HJS
Sjafnar, sem ráðgert er að flytja
alla starfsemina í innan skamms.
„Ég get ekki svarað því nákvæm-
lega að svo stöddu hvenær við
flytjum, því erfiðlega hefur geng-
ið að fá mannskap á þessum tíma
til að taka upp vélar og setja
niður í nýja húsinu,“ sagði Aðal-
steinn. Húsnæðið undir fram-
leiðsluna og starfsmannaaðstaða
eru alveg tilbúin, en eftir er að
innrétta skrifstofur. Verður hús-
næði Sjafnar tæplega 10.000 fer-
metrar þegar allt verður komið í
gagnið. - HJS
Kennaraskorturinn:
Þrjá mála-
kennara
vantar til
Dalvíkur
„Okkur vantar enn þrjá
kennara að grunnskólanum,
til að kenna íslensku, ensku
og dönsku í efri bekkjun-
um,“ sagði Kristján Aðal-
steinsson, settur skólastjóri
Dalvíkurskóla, ■ samtali við
Dag.
Það kom fram í samtalinu
við Kristján, að Dalvíkurbær
býður kennurum 110 fermetra
raðhúsíbúðir fyrir 5.500 krón-
ur á mánuði. Það er því ekki
rétt, eins og skilja mátti á frétt
í Degi á miðvikudaginn, að
húsaleiga fyrir kennara á Dal-
vík sé 10-15 þúsund. Það átti
við um Akureyri. Auk þess er
hitunarkostnaður á Dalvík í
lægri kantinum, því það kostar
ekki nema 1.200 kr. að hita
áðurnefnda íbúð á mánuði.
En þrátt fyrir þessi „fríðindi“
hafa endurteknar auglýsingar
í dagblöðum og útvarpi ekki
borið árangur, að sögn
Kristjáns. Aðeins eínn rétt-
indakennari svaraði þeim og
hann hefur þegar verið ráðinn.
- GS
- Veðurstofa, verður rign-
ing áfram?
Já, þetta ætlar ekki að
verða ykkar sumar; ég sé ekki
annað en austan-og norðaust-
anátt með súld og rigningu
næstu fímm sólarhringa. En
það verður væntanlcga ekki
slydda, því það berst tiltölu-
lega hlýtt loft til ykkar. Þið
verðið bara að horfa á Ijósu
hliðarnar á þessu öllu saman.
0 Stórfellt rán
Dynheimar urðu fyrir gífur-
legu tjóni fyrir nokkru. Ein-
hver óprúttinn náungi lét sig
hafa það að nema á brott úr
húsinu rándýrt myndbands-
tæki af JVC gerð, tæki sem
nýlega hafði verið keypt.
Einnig greip sá hinn sami
með sér hljóðdósirnar úr
plötuspilurum diskóteksins
og eítt stykki kassettutæki
tók hann með. Ekkert hefur
síðan spurst til þessara
tækja, þrátt fyrir umfangs-
mikla rannsókn. Umsjónar-
menn Dynheima eru að von-
um svekktir yfir þessu tapi.
Á hinu furða þeir sig hins
vegar, að þjófurinn lét svo lít-
ið að skilja eftir fjarstýring-
una fyrir myndbandstækið,
og munu forráðamenn Dyn-
heima vera tilbúnir til að selja
þelm sem nú hefur mynd-
bandstækið undir höndum
fjarstýringuna fyrir lítinn pen-
ing - svo að full not fáist af
tækinu.
• Með
kúrekahatt
í tilefni þess að ákveðið hefur
verið að radarstöð verði stað-
sett á Gunnólfsvíkurfjalli, orti
„einn að austan“ þessa vísu:
Guði jafnt kóng skal gjalda sitt!
Geir er snjall - ekki satt?
Fjallið mitt, æskufjallið mitt
fær nú kúrekahatt.
0 Risaandvarp
Aðdáendur Duran Duran hér
á klakanum eru fjölmargir.
Þegar þeir sameinast i and-
anum er að vænta kraftmikils
andvarps. Og sú varð raunin
einn morguninn í fyrri viku,
þegar fréttist af þvf að skúta
Símonar Lebonn - songvara
Duran - hefði snúið upp kili
i illviðri suður af Englandi...
Það er ekki erfitt að ímynda
sér örvæntingu allra Duran
Duran aðdáendanna sem
heyrðu þessa véfrétt. Er
hann ...? En framhald frétt-
arinnar var á þá leið að allir
hefðu komist lífs af og
samanlagt andvarp aðdáend-
anna - sem önduðu léttara -
fór eins og hvlrfilbylur um
landið. Eða þannig.
0 Geographic
á íslandi
Hið þekkta og vandaða tima-
rit National Geographic
hyggst gera íslandi skil á síð-
um sínum, eftir því sem Þjóð-
viljinn segir. Nú eru hér á
landi Ijósmyndari og blaða-
maður tímaritsins og „fókus-
inn“ er á mannlífi og menn-
ingu mörlandans. Afrakstur
vinnu þeirra hér á landi mun
líta dagsins Ijós í september-
hefti tímarítsins á næsta ári.