Dagur - 01.10.1985, Síða 8
8 - DAGUR - 1. október 1985
Guðbjörg og Guðrún scm sjá um kápusöluna í Kápusölunni.
Kápusalan hf.
Utibú opnað á Akureyri
Síðastliðinn föstudag opnaði
ný verslun á Akureyri, Kápu-
salan hf. í björtu og rúmgóðu
húsnæði við Hafnarstræti 88.
Kápusalan hf. hefur lengi verið
starfandi í Reykjavík og þar hafa
konur af landsbyggðinni keypt
mikið af kápum. Með því að
opna útibú hér á Akureyri er
vonast til að geta veitt meiri og
betri þjónustu. í Kápusölunni
eru seldar Gazella kápur, jakkar
og frakkar sem framleitt er hjá
Hlín hf. dótturfyrirtæki Hildu hf.
sem framleiðir ullarvörur til út-
flutnings.
í Kápusölunni er hægt að fá
vandaðar flíkur frá kr. 4.500 fyrir
alla aldurshópa frá 14 ára aldri.
í Kápusölunni gefur nú að líta
nýju haustlínuna, en Hlín hf.
hefur reynt að framleiða eftir
hendinni og koma með nýjar
vörur jafnt og þétt. Von er á nýj-
um vörum úr nýjum efnum í
október. Hlín hf. hefur kapp-
kostað að framleiða vörur sem
öllum líki.
Akureyrskir iðnaðarmenn
unnu að breytingum verslunar-
innar og Davíð Jóhannsson að-
stoðaði við undirbúning að opn-
un hennar.
Um daglegan rekstur sjá Guð-
björg I. Jónsdóttir og Guðrún
Lárusdóttir.
Mikill uppgangur
í hestamennsku
í Húnaþingi
íþróttadeild hestamannafélagsins
Pýts hélt mót í hestaíþróttum 24.
ágúst sl. á nýjum velli félagsins
að Króksstaðamelum í Miðfirði.
Mjög mikil þátttaka var, alls
105 skráningar sem er ekkert
smáræði í 130 manna félagi. Til
dæmis voru 19 skráðir í hindrun-
arstökk og víðavangshlaup og
leyfi ég mér að fullyrða að ekki
hafi verið haldin fjölmennari
hindrunarstökkskeppni hér á
landi, alla vega ekki á þessu ári.
Verðlaun á mótinu voru mjög
vegleg. Fyrirtæki sýslunnar gáfu
farandbikara fyrir efsta knapa í
hverri grein.
Úrslit urðu sem hér segir:
Tölt unglinga: 1. Matthildur Hjálmarsdóttir á Smára 16 v. Stig
Eig. Hjálmar Pálmason 2. Vilhjálmur Ólason á Fálka 8 v. 55,44
Eig. María Sigurðardóttir 38,16
Fjórgangur unglinga: 1. Matthildur Hjálmarsdóttir Stig
á Smára 16 v. 2. Jón H. Kristjánsson 37,08
á Donnu 12 v. 31,98
Hindrunarstökk unglinga: 1. Matthildur Hjálmarsdóttir á Fífli 14 v. Stig
Eig. Hjálmar Pálmason 2. Berglind Hjálmarsdóttir 70,24
á Smára 16 v. 63,44
Hindrunarstökk: 1. Þórir ísólfsson á Hugin 11 v. Stig
Eig. Sigurður L. Þórisson 2. Sigríður Lárusdóttir á Gný 14 v. 72,56
Hlýðnikeppni Stig
1. Þórir Isólfsson á Hugin 11 v. 34,50
2. Jóhann Albertsson á Stimpli 13 v . 31,00
Tölt: Stig
1. Jóhann Albertsson á Suðra 8 v.
Eig. Sigríður og Jóhann 69,84
2. Herdís Einarsdóttir á Smyrii 11 v
Eig. knapi 71,44
Fjórgangur: Stig
1. Þórir ísólfsson á Rökkva 8 v. 48,96
2. Herdís Einarsdóttir á Smyrli 11 v. 44,88
Fimmgangur: Stig
1. Magnús Lárusson á Jarp 8 v. 54,60
2. Sverrir Sigurðsson á Tappa 7 v.
Eig. knapi 51,42
Gæðingaskeið: Stig
1. Herdís Einarsdóttir á Neista 7 v. 78,00
2. Magnús Lárusson á Kviku 6 v.
Eig. Rúnar Bragason 71,00
Víðavangshlaup: Mín.
1. Jóhann Albertsson á Stimpli 13 v. 1:50,30
2. Einar Björnsson á Varða 10 v.
Eig. Björn Einarsson 2:06,46
Islensk tvíkeppni: Stig
Þórir ísólfsson 123,92
íslensk tvikeppni unglinga: Stig
Matthildur Hjálmarsdóttir 92,52
Skciðt víkcppni: Stig
Herdís Einarsdóttir 127,98
Olympíutvíkeppni: Stig
Þórir ísólfsson 106,56
Stigahæsti knapi unglinga Stig
Matthildur Hjálmarsdóttir 162,76
Stigahæsti knapi: Stig
Þórir ísólfsson 323,29
fokdreifar
Gera foreldrar nýgiftra
hjóna þeim ógreiða?
- með því að leyfa þeim ekki að losna frá sér
Kristin siðfræði lætur sér fátt
mannlegt óviðkomandi. í
Bjarma birtist nýlega greina-
flokkur um fjölskylduna og var
litið til hennar frá ýmsum sjón-
armiðum. Þar var einnig grein
eftir séra Jón Dalbú Hró-
bjartsson um þetta mál út frá
hjónabands- og kynlífshlið
þess. Sr. Jón segir m.a. að nú
á dögum eigi hjónabandið í
vök að verjast og komi meðal
annars til erfiðar þjóðfélagsað-
stæður, léttúð, dvínandi vitund
um kristið siðferði og tíðarandi
sem jafnvel er andstæður
hjónabandinu. Hann fjallar
einnig um nýgifta og samband
þeirra við foreldra sína með
þessum hætti:
Fyrstu ár hjónabandsins eru
oft erfið. Tveir einstaklingar, oft
mjög ólíkir, eru að kynnast og
aðlagast hvor öðrum. Við þessi
nánu kynni koma upp nýjar hlið-
ar á makanum, sem oft valda;
árekstrum. Makamir taka með sér
ýmislegt úr uppeldi sínu sem set-
ur svip á allt dagfar þeirra. Sumt
er gott og jákvætt, annað kann að
vera slæmt og tii þess eins að
skapa erfiðleika.
Eitt atriði hefur t.d. orðið
mörgum hjónaböndum mikil
hindrun, en það er þegar ein-
staklingar ná ekki að slíta böndin
við foreldrana. Þetta er oft
ómeðvitað en getur verið svo
mikill fjötur að til stór vandræða
kemur. Foreldrar bregðast iðu-
lega börnunum sínum í þessu
sambandi. Þeir gefa börnunum
ekki tækifæri til að losna frá
þeim. Þeir binda börnin svo ræki-
lega við sig, að þau hafa ekki
möguleika á að þroskast sem
sjálfstæðir einstaklingar. Þetta er
oftast ómeðvitað eða gert af mis-
skilinni umhyggju og ástúð.
Það er ekki tilviljun, að Jesús
skuli vitna til orðanna í 1. Mós.,
þegar hann talar um hjónabandið
og segir: „Fyrir því skal maður
yfirgefa föður og móður og bind-
ast konu sinni, og þau tvö skulu
verða einn maður.“ (Mt. 19:5).
Fólk sem hyggst stofna til hjú-
skapar þarf því nauðsynlega að
gera sér grein fyrir hve sterkum
böndum það er tengt föðurhús-
unum. Þetta á að vísu bæði við
einstaklinga sem ganga í hjóna-
band og aðra, því allir þurfa að
losna undan áhrifavaldi foreldra
á eðlilegu þroskastigi. Nú má
ekki skilja orð mín þannig, að
frá og með brúðkaupsdegi skuli
skorið á öll tengsl við foreldrana.
Nei, börnin fara að heiman, yfir-
gefa föður og móður til þess svo
að geta tengst þeim á nýjan leik
sem sjálfstæðir einstaklingar.
Með öðrum orðum, við höldum
áfram að elska og virða foreldra
okkar án þess að þau ráði yfir
okkur. Hjónin bera nú ein
ábyrgð á lífi sínu og verða að
læra að standa á eigin fótum.
mínir dagar og annarra.
„Halelujabruðkaup
Sjónvarpið gladdi okkur nýlega
mcð ógleymanlegum brúð-
kaupsþætti þar sem ástvinir ts-
lcnsku þjóðarinnar, þau Joðerr
og Ellen voru gefin saman í
annað sinn í Dallas. Þetta gerð-
ist með mikilli viðhöfn og hefur
vakið marga til umhugsunar um
hvort ekki væri ráðlegt að punta
upp á langvarandi og leiðagjörn
íslensk hjónabönd með því að
endurtaka giftingarathöfnina og
brúðkaupsnóttina og nefna til-
standið halelújabrúðkaup.
Mér þykir ánægjulegt að geta
sagt frá því, að ég hefi verið svo
lánsamur að hafa verið staddur
í brúðkaupi, sem nefndist svo
viðhafnarmiklu nafni.
Það mun hafa verið síðla
vetrar árið 1957 eða veturinn
eftir að í vikublaðinu Degi á
Akureyri birtist auglýsing þar
sem Hjálpræðisherinn bauð
bæjarbúum að vera viðstaddir
halelújabrúðkaup í húsakynn-
um hersins í grennd við Strand-
götuna. Þetta vakti töluverða
eftirtekt. Bæjarlífið var ekki
eins fjölbreytt og líflegt þá, eins
og það er orðið núna og það,
sem nú er farið að nefna „uppá-
komur“ þekktist ekki. Halel-
újabrúðkaup hlaut að vera af
hinu jákvæða og ég gat ekki
hugsað mér að láta slfkt fágæti
fram hjá mér fara. Á tilsettum
tínia mætti ég hjá hernum og
förunautar mínir voru tveir eða
þrír piltar sem voru mennta-
skólanemar. Þarna voru tölu-
vert rúmgóð húsakynni, sem
þörf var á, því að aðsókn var
mikil. Fljótlega voru öll sæti
skipuð og herfólkið var á þön-
um við að ná í stóla í önnur hús,
og auðsjáanlega mjög ánægt
Einar Kristjánsson skrifar
með að fá svo niarga brúð-
kaupsgesti.
Brúðhjónin minnir mig að
væru norsk eða dönsk, en höfðu
bæði verið hér um nokkurt
skeið. Svo hófst athöfnin. Ekki
veit ég hvort áhorfcndur hafai
búist við einhverjum fágætum
íagnaði eins og „engladansi“
sem Þórbergur Þórðarson gerði
frægan í draumsýn.
Allt fór hér fram með hátt-
prýði og sóma.
Mikill hluti gestanna var
nemendur úr Menntaskólanum,
en þetta fólk hegðaði sér hið
besta.
Nú hefur oft skort á að sam-
komugestir á hersamkomum
tækju þátt í athöfninni með við-
eigandi alvöru, en hér var ekki
yfir neinu að kvarta.
Það var mikill söngur með
orgel- og gítarleik og athöfnin
hátfðleg. Lítið man ég cftir
prestinum, og vera má að þarna
hafi ekki verið neinn alvöru-
prestur.
Hitt er víst að brúðguminn
gekk fram og hélt langa ræðu,
sem var túlkuð á íslensku, svo
athöfnin gcrðist tímafrek. En nú
gerðist það að prúður mennta-
skólamaður kvaddí sér hljóðs,
þakkaði fyrir hönd mennt-
skælinga að hafa fengið að njóta
þessarar stundar, en kvað þau
skyldug til að mæta í heimavist-
inni eftir nokkrar mínútur, og
síðan gekk út inikill skari brúð-
kaupsgesta og þynntist þá mjög
lið á áhorfendabckkjum.
Ég varð því feginn að iosnaði
sæti handa mér því að ég hafði
staðið allan tímann og aftan við
mig stóð menntskælingur og hló
lágværum hlátri látlaust, þó að
þarna gerðist í rauninni ekkert
almennilega skoplegt.
Næst kvaddi brúðurin sér
hljóðs og flutti langa guðsorða-
ræðu með söng og hljóðíæraieik
í bak og fyrir.
Þegar loksins leið að lokum
þessa ágæta haleiújabrúðkaups
Itefur sennilega fleiri en brúð-
hjónin verið farið að langa til að
komast í sængina.
Ég sá aldrei eftir að hafa sctið
brúðkaup mcð svona svífandi
og fallegu nafni, enda verður
það mér vafalaust minnisstæð-
ara en halelújabrúðkaup Joð-
errjoðs.