Dagur - 30.10.1985, Side 1
68. árgangur Akureyri, miðvikudagur 30. október 1985 131. tölublað
Kaupstaðirnir á Norðurlandi eystra:
r
Utsvarstekjur
hæstar á Húsavík
- Akureyri rekur lestina
íbúar á Húsavík skila mestum
tekjum á mann til bæjarsjóðs.
Þetta kemur í Ijós ef heildar-
álagning útsvara í kaupstöðum
á Norðurlandi eystra er athug-
lega langhæst eða 198.131.102
krónur. íbúar eru hins vegar
13711 og útsvarstekjur á íbúa því
einungis 14.450 krónur.
Það munar því 4.740 krónum
á íbúa hvað útsvarstekjur eru
lægri á Akureyri en á Húsavík.
BB.
Fíkniefnaneysla á Akureyri:
„Efnin eru
til staðar
- Staða okkar þó betri en víða
annarsstaðar, segir Daníel Snorrason
„Við höfum ekki orðið varir
við fíkniefni í umferð á Akur-
eyri í nokkurn tíma, en ég
veit hreinlega ekki hvort cg á
að segja sem betur fer,“ sagði
Daníel Snorrason rannsókn-
arlögreglumaður á Akureyri í
samtali við Dag í gær.
Daníel sagði í vor að hann
teldi að neysla fíkniefna á Ak-
ureyri væri þá meiri en hún
hefði áður verið. Síðan þá hefur
hins vegar ekkert borið á fíkni-
efnum í umferð í bænum.
„Það er afar erfitt að átta sig
á stöðu þessara mála," sagði
Daníel. „Ég er rcyndar sann-
færður unt að efnin eru til stað-
ar hérna ennþá, það er ekki
spurning, en það er erfitt að
gera sér grein fyrir í hversu
miklum mæli það er og efnanna
er sennilega neytt í lokuðum
þröngum hópum sem erfitt er
að komast að. Ég hef hins vegar
alltaf sagt að staða okkar í þess-
um rnálum sé betri en víða ann-
ars staðar og hallast þá að því
að það sé vegna stöðugs at-
vinnulífs, en neysla þessara
efna fylgir oft farandverkafólki
í útgerðarstöðum." gk-.
uð.
Gengið er út frá fyrstu tölum
um álagningu útsvara en þær töl-
ur geta breyst lítillega við kærur
o.fl., ýmist til hækkunar eða
lækkunar.
Útsvarstekjur á íbúa eru
fundnar út með því að deila íbúa-
fjölda skv. manntali 1. desember
’84 upp í heildarálagningu út-
svara á hverjum stað.
Þannig kemur í ljós að heildar-
álagning útsvara á Húsavík nem-
ur 47.854.832 krónum en íbúar
þar eru 2494. Útsvarstekjur á
íbúa eru því 19.188 krónur.
Siglufjörður er í öðru sæti. Þar
var heildarálagning 33.147.940
krónur en íbúar 1916 talsins. Út-
svarstekjur á íbúa þar eru því
17.300 krónur.
Ólafsfjörður er í þriðja sæti
með 15.960 krónur á íbúa. Þar
var heildarálagning 18.465.740
krónur og íbúafjöldi 1157.
Dalvík kemur skammt á eftir
með 15.420 krónur á íbúa. Þar
nam heildarálagning 21.095.600
krónum en íbúar eru 1368 að
tölu.
Akureyri rekur svo lestina. Þar
er heildarálagning útsvara eðli-
Það bar fleira fyrir augu í ferð sveitarstjórnarmanna af Norðurlandi til Skotlands en það sem tengist byggðamálum,
þótt ferðin hafí fyrst og fremst verið gerð í þeim tilgangi að kynnast þeim. Þessi óvenjulcga rokkhljómsveit lék fyrir
vegfarendur í miðborg Glasgow. Athygli vakti hljóðfæri bassaleikarans, sem var kassi, kústskaft og strengur - og
hljómurinn var býsna góður. Mynd: HS
„Ekki
áhuga á
að verða
ráðherra“
- segir Ingvar Gíslason
í viðtali sem svæöisútvarpið á
Akureyri átti við Ingvar Gísla-
son, alþingismann, í gær, gaf
Ingvar yfirlýsingar varðandi
ráðherradóm og áframhald-
andi þingmennsku.
Ingvar var spurður að því
hvort hann hefði hug á að verða
ráðherra á ný og kvaðst hann
ekki hafa áhuga á því að verða
ráðherra aftur. Hann sagðist hins
vegar ekki hafa tekið neina
ákvörðun unr að hætta í þing-
mennsku. „Ég er á fullu í pólitík
og mun halda því eitthvað
áfram." sagði Ingvar í viðtalinu
við svæðisútvarpið.
Ingvar sagði að þótt hann hefði
verið lengi í pólitík væri þó engin
hætta á því að hann ánetjaðist
henni algjörlega, HS
90 daga
fresturinn
orðinn 2 ár!
Kolbeinsey verður
boðin upp á morgun
- Starfsfólk Fiskiðjusamlags Húsavíkur samþykkti í gær að leggja
fram hlutafé í fyrirtæki um kaup á skipinu aftur til staðarins
Fangageymslur lögreglunnar á
Siglufirði hafa verið mikið I
sviðsljósinu að undanförnu,
enda ekki hægt að segja að
þær séu mönnum bjóðandi.
Víða annars staðar mun
ástandið í þessum málum vera
mjög slæmt, þótt það sé ekki
eins afleitt og hjá Siglfirðing-
um.
„Við fengum aðvörunarbréf frá
heilbrigðisfulltrúa þann 31. októ-
ber 1983, þar sem hótað var að
loka fangaklefum hér ef úrbætur
hefðu ekki farið fram innan 90
daga,“ sagði Björn Mikaelsson
yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki
er við spurðum hann hvernig
ástandið í þessum málum væri
þar á staðnum.
- 90 daga fresturinn er því á
morgun orðinn að tveimur árum
og að sögn Björns hefur ekkert
verið bætt úr þessum málum í
fangaklefunum á Sauðárkróki.
„Ástandið hér er þó mun betra
en á Siglufirðísagði Björn.
„Klefarnir eru í sjálfu sér ekki
óvistlegir, en það vantar í þá
mðurfall, ofnar eru á veggjum og
rimlar fyrir gluggum að innan-
verðu.
Því hefur verið slegið fram að
það kosti um hálfa milljón króna
að koma fangaklefunum í viðun-
anlegt horf. Það hins vegar ekk-
ert vit í því að fara út í þessar
breytingar vegna þess að við
erum í allt of litlu húsnæði. Lög-
reglustöðin er einnig illa staðsett,
aðkomuleið hingað er erfið og
við erum í miðju íbúðarhverfi,“
sagði Björn. - gk.
Kolbeinsey ÞH 10 landaði í
gær um 60 tonnum af físki á
Húsavík en á morgun fer fram
annað og síðara uppboð á skip-
inu. í dag á Kolbeinsey að fara
til veiða og þegar skipið kemur
úr þeirri veiðiferð 11. nóvem-
ber er reiknað með að Fisk-
veiðasjóður taki við því og
skipið fari í slipp á Akureyri.
„Það lítur mjög illa út með
hráefnisöflun," sagði Tryggvi
Finnsson framkvæmdastjóri
Fiskiðjusamlags Húsavíkur í
samtali við Dag í gær. „Við fáum
aflann sem Kolbeinsey kemur
með úr næstu veiðiferð, og ef til
vill berst eitthvert hráefni sem
gæti enst framundir 20. nóvem-
ber. Eftir það verður um sáralítið
eða ekkert hráefni að ræða fram
að áramótum. Bátarnir eru að
mestu leyti búnir með sinn kvóta
og við höfum enga valkosti eins
og málin horfa í dag. En það er
verið að vinna að því að ná skip-
inu aftur og að það komist í út-
gerð hér eftir áramótin."
Undirbúningur stofnunar
hlutafélags um kaup á skipinu er
nú að hefjast og hefur starfsfólk
Fiskiðjusamlags Húsavíkur geng-
ið þar á undan með góðu for-
dæmi. Við bónussamningana í
haust var ákveðið að Fiskiðju-
samlagið greiddi sem svarar 3,60
kr. á unna dagvinnustund frá 1.
mars til 20. september. 85 manns
úr vinnslusal fyrirtækisins sam-
þykktu á fundi eftir hádegið í gær
að leggja fram þessa afturvirku
greiðslu sem hlutafé í hið nýja
fyrirtæki um kaup á Kolbeinsev
eða öðru skipi.
Skilyrði var að Fiskiðjusamlag
Húsavíkur legði fram sömu upp-
hæð eða hærri. Verkalýðsfélag
Húsavíkur mun síðan leggja fram
upphæð jafnháa framlagi starfs-
fólksins og Fiskiðjusamlagsins.
„Þetta gæti komið til með að
skipta nokkrum milljónum."
sagði Snær Karlsson hjá Verka-
lýðsfélagi Húsavíkur í gær.
„Þetta sýnir að fólkið hefur
áhyggjur af atvinnumálunum.
Þarna slær púlsinn í atvinnu- og
fjármálalífi bæjarins og ef eitt-
hvað bilar þar kemur það til með
að hafa ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar í bænum. En nú er að
sjá hvað aðrir bæjarbúar gera í
málinu," sagði Snær.
IM-Húsavík/gk-.