Dagur - 05.11.1985, Side 2
2 - DAGUR - 5. nóvember 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUFt:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 35 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðarí____________________________
Stjómmála-
ályktun
Aðalmál kjördæmisþings framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra, sem haldið var
um helgina, voru byggðamál og flokksmál. Á
þinginu var samþykkt stjórnmálaályktun
þar sem segir:
Þingið leggur áherslu á að ekki verði vikið
frá því höfuðverkefni sem ríkisstjórnin var
mynduð um, að ná verðbólgunni niður á svip-
að stig og ríkir í nágrannalöndunum, svo og
að full atvinna haldist í landinu.
Þingið telur að áfram verði haldið heildar-
stjórnun fiskveiða og leggur m.a. áherslu á að
viðmiðunarreglur varðandi aflamark séu í
stöðugri endurskoðun. Stefna ber að niður-
fellingu kvóta á handfæra- og línuveiðum.
Þingið fagnar setningu framleiðsluráðslag-
anna og telur að með þeim sé landbúnaðinum
skapaður betri starfsgrundvöllur.
Þingið fagnar áformum stjórnvalda um að
stöðva erlenda skuldasöfnun íslendinga. Að
mati þingsins voru mistök að gefa vexti
frjálsa haustið 1984 eins og eftirspurn eftir
lánsfé var þá háttað í þjóðfélaginu. Núver-
andi þróun í vaxtamálum styður það mat.
Þingið hvetur til frekari jöfnunar lífskjara á
íslandi og styður sérstaklega í því sambandi
niðurfellingu tekjuskatts af almennum launa-
tekjum. Framsóknarflokkurinn styður jafn-
launastefnu svo og jafnréttisbaráttu kvenna.
Háskólakennslu ber að hefja á Akureyri nú
þegar. Leggja ber aukna áherslu á aukin
tengsl Háskóla íslands við atvinnulífið.
Erfið staða sjávarútvegs og landbúnaðar
hefur leitt til vaxandi misvægis á milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðis. í landinu býr
ein þjóð og Framsóknarflokkurinn telur rétt-
láta skiptingu verðmæta í þjóðfélaginu
grunnforsendu einingar hennar. Ríkisstjórn-
inni bert að leiðrétta áorðið misvægi nú -
þegar.
Kjördæmisþingið minnir á að Framsóknar-
flokkurinn er frjálslyndur umbóta- og félags-
hyggjuflokkur sem stefnir að þjóðfélagi þar
sem ávallt ríkir jöfnuður og félagslegt rétt-
læti. Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á
mikilvægi samvinnuhreyfingarinnar sem
virkrar þjóðfélagsstefnu en styður jafnframt
heilbrigt einkaframtak sem nauðsynlegt afl í
fjölbreyttu og framfarasinnuðu þjóðfélagi.
Framsóknarflokkurinn telur það höfuðskyldu
sína að standa vörð um fullveldi landsins og
varar við hverju sem orðið getur til þess að
það verði skert.
—viðtal dagsins.
„Kiwanis er enginn
klíkuklúbbur“
- Haukur Sigurðsson í viðtali dagsins
Fyrir þá sem ekki til þekkja
eru karlaklúbbar allir eins.
Hvort sem þeir heita Lions,
Rotary, Oddfellow, Frímúrar-
ar eða Kiwanis. Staðreyndin er
hins vegar sú að mikill munur
er á þessum klúbbum. Ekki er
meiningin að fara út í frekari
útlistanir. Hins vegar var hug-
myndin að fá örlitla innsýn í
starfsemi Kiwanismanna, jafn-
framt því að tala við formann
þeirra hér á Akureyri. Hann er
Haukur Sigurðsson viðskipta-
fræðingur. En hver er maður-
inn?
„Ég er blanda af Vestfirðingi
og Þingeyingi. Það telja margir
að það sé góð blanda, en það
verða aðrir að dæma hvort það
hefur heppnast hvað mig
varðar.“
- Hvaðan kemur maðurinn?
„Til Akureyrar kom ég frá
Akranesi þar sem ég starfaði sem
bæjarritari. Ef ég á að rekja slóð-
ina eftir mig, þá var hún á þá leið
að ég kom til Akraness frá Vest-
mannaeyjum, þangað frá
Reykjavík og þangað frá ísa-
firði.“
- Af hverju þessir flutningar?
„Það er gott og gaman að
skipta um starf. Auk þess fylgja
því alltaf miklar væntingar. Ég
hef aldrei flutt og skipt um starf
vegna þess að mér leiddist. Til
Akureyrar kom ég vegna þess að
mér bauðst nýtt starf hjá Akur-
eyrarbæ. Þar vann ég um það bil
2 ár en hóf þá störf hjá Híbýli og
hef verið þar síðan.“
- Hvernig þótti fjölskyldunni
að flytja svona oft?
„Ég fékk hana til að koma með
mér hingað til Akureyrar. Konan
mín Ásta Kjartansdóttir féllst á
þetta og börnin okkar fjögur eru
mjög sátt við þetta eins og það er
í dag. Þau eru á aldrinum eins og
hálfs til 17 ára. Auk þess var ég í
sveit sem strákur í Mývatnssveit.
Það er ekki hægt að leyna því að
Norðurland togaði í mig.“
- Nú ert þú formaður
Kiwanisklúbbsins Kaldbaks á
Akureyri. Hvað er Kiwanis og
hvar var það stofnað?
„Kiwanishreyfingin er stofnuð
í Bandaríkjunum árið 1914.
Nafnið Kiwanis kemur úr
indíánamáli og merkir, sá sem
vill byggja upp sjálfan sig. Hreyf-
ingin barst ekki út fyrir Banda-
ríkin fyrr en árið 1961. Fyrsti
Kiwanisklúbburinn á íslandi var
stofnaður í Reykjavík þremur
árum síðar. Það var svo árið 1968
sem Kaldbakur var stofnaður.
Eins og segir í lögum klúbbsins er
markmiðið: Að láta andleg og
mannleg verðmæti skipa æðri
sess, en verðmæti af veraldlegum
toga spunnin.
Stuðla ber að því að dagleg
breytni manna á meðal byggist á
hinni gullvægu reglu: „Eins og
þér viljið að aðrir menn gjöri
yður, það skuluð þér og þeim
gjöra.“
Að beita sér fyrir betri við-
skiptaháttum, starfsháttum og fé-
lagslegri hegðun.
Að efla borgaralegar dyggðir
með góðu fordæmi.
Að skapa með stofnun
Kiwanisklúbba leiðir til þess að
menn geti bundist varanlegum
vináttuböndum, og ósérplægnir
innt af höndum þjónustustörf og
stuðlað að betra samfélagi.
Að vinna saman að mótun og
eflingu heilbrigðs almenningsálits
og göfugrar hugsjónastefnu, sem
er undirstaða aukinnar ráðvend-
ni, bættrar réttvísi, vaxandi
þjóðrækni og bræðralags."
- Hvernig gengur að fá unga
menn til að starfa í sli'kum
klúbbi?
„Það hefur gengið mjög vel.
Hins vegar er alltaf mikið gegn-
umstreymi í svona félögum.
Menn koma og fara. Þess vegna
erum við hjá Kaldbaki að vinna
að því að fá fleiri menn til liðs við
okkur þessa stundina. Við erum
að fjölga í Kiwanis, því við erum
ekki nógu margir til að geta sinnt
þeim verkefnum sem unnið er
að.“
- Hvaða verkefni eru það?
„Það er nýbúið að afhenda fé
sem rann til Geðdeildar FSA.
Næsta verkefni er að safna fyrir
Bæklunardeildina. Það verður
farið í það verkefni fljótlega upp
úr áramótum. Við þurfum fleiri
félaga til að geta gengið í öll hús
í bænum. Hann er orðinn það
stór að við náum ekki að komast
yfir hann allan í einni atrennu."
- Margir vilja halda því fram
að klúbbar sem Kiwanis séu ekk-
ert annað en betliklúbbar. Það
sé almenningur sem gefur pen-
ingana sem klúbbarnir gefa í sínu
nafni.
„Það er mikið til í því. En hinu
má ekki gleyma að þessir pening-
ar kæmu aldrei að gagni í þeim
málum sem við söfnum fyrir, ef
klúbbarnir stæðu ekki fyrir því að
safna þessu saman. Það eitt er
mikið verk.“
- Er reynt að fá menn úr sér-
stökum stéttum þjóðfélagsins til
starfa?
„Kiwanis er enginn klíku-
klúbbur. Reynt er að fá menn úr
flestum stéttum þjóðfélagsins til
starfa. Þar er ekki farið í mann-
greinarálit. Það eru allir vel-
komnir í Kiwanis sem sýna
áhuga.“
- Hvert eiga menn að snúa sér
ef þeir vilja gerast félagar?
„Það er oftast í ekki stærri bæ
en Akureyri að maður þekkir
mann, sem þekkir annan mann,
sem er í Kiwanis. Ef slíkt er ekki
fyrir hendi er auðvelt að ná í mig
í vinnunni, eða heima,“ sagði
Haukur Sigurðsson Kiwanismað-
ur með meiru.
-gej
ÍJ
M
O
■
M
A
N
U
O
A
G
U
R
( HANN S/IGÐ/ST EKKERT MFti)
; /) MDT! F/?lMK&/)&irTU
} KVENtíA - SVO FK/)MAR- }
LEGti SEM Mi/EM- !
\ FOLK/Ð VÆK/ í
T/LFK/ÐS.}