Dagur - 05.11.1985, Page 3
5. nóvember 1985 - DAGUR - 3
Rannsókn á hollustugildi landbúnaðarafurða:
Akureyrarmjólkin
er vítamínríkust
Um þessar mundir er að Ijúka
langítarlegustu rannsókn sem
gerð hefur verið á næringar- og
hollustugildi hinna ýmsu land-
búnaðarafurða. Rannsókn
þessi var unnin af fæðudeild
Rannsóknarstofnunar land-
búnaðarins með styrk frá
Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins.
Við rannsókn á efnainnihaldi
mjólkur voru tekin sýni frá sex
svæðum á landinu, Akureyri,
Borgarnesi, Egilsstöðum, Húsa-
vík, Sauðárkróki og Selfossi. f
ljós kom að mjólkin er mismun-
andi næringarrík eftir svæðum og
þótt munurinn sé ekki mikill er
hann marktækur í sumum tilfell-
um.
í grófum dráttum má segja að
mjólk unnin á Akureyri annars
vegar og Selfossi hins vegar komi
best út. Þannig er Akureyrar-
mjólkin vítamínríkust en Selfoss-
mjólkin steinefnaríkust og í báð-
um tilfellum er marktækur
munur. Einnig kom fram að tals-
verðar árstíðarsveiflur eru í
mjólkinni, t.d. hvað varðar magn
A-vítamíns, en það reyndist vera
Sendibíll valt
Það var fremur gott hljóð í lög-
reglumönnum víðast hvar á
Norðurlandi eftir helgina.
Þrátt fyrir leiðindaveður var
ekki mikið um óhöpp.
Fyrir hádegið í gær valt sendi-
ferðabíll á Svalbarðsströndinni.
Ökumaður var ejnn í bílnum og
kvartaði hann um eymsli í baki
og var fluttur á sjúkrahús. Við
veltuna kviknaði í bílnum og er
hann töluvert brunninn.
Á Dalvík v,arð einn árekstur í
gær, fólksbíll og jeppi skullu
saman. Engin slys • urðu á
mönnum, en fólksbíllinn er mik-
ið skemmdur. Lítilsháttar um-
ferðaróhapp varð á Ólafsfirði í
gær, en eignartjón varð lítið.
Hjá lögreglunni á Blönduósi varð
eitt útkall er ekið var á hross á
Hrútafjarðarhálsi. -mþþ
SVAfær aðstöðu
við Strandgötuna
„Það má segja að þessi mál séu
enn í deiglunni,“ sgði Finnur
Birgisson er Dagur ræddi við
hann í gær. „Þegar við vorum að
skýra þessar hugmyndir voru
menn að velta fyrir sér fleiri en
einum stað, en mér þykir senni-
legt að endirinn verði sá að þessi
aðstaða verði á milli Nýja bíós og
BSO við Strandgötu."
Finnur sagði að nú væru menn
að velta fyrir sér smærri atriðum
varðandi fyrirkomulag á hinni
nýju aðstöðu SVA á þessum
stað. Ætlunin er að þarna verði
veglegt biðskýli fyrir farþega og
ýmis aðstaða sem tengist rekstri
SVA. „Stjórn Strætisvagnanna
bað um að ákveðin atriði varð-
andi þessa aðstöðu yrðu könnuð
nánar og við erum að vinna að
þeim athugunum núna,“ sagði
Finnur Birgisson.
Á fundi stjórnar Strætisvagna Jóhannesson verkfræðingur
Akureyrar sem haldinn var 14. hugmyndir að nýrri aðstöðu
október skýrðu Finnur Birgis- fyrir strætisvagnana í miðbæn-
son skipulagsstjóri og Gunnar um.
70% hærra á haustin en á vorin.
Jón Óttar Ragnarsson hjá
Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins sagði að tilgangur þessara
rannsókna væri að fá sem ná-
kvæmastar upplýsingar um efna-
innihald landbúnaðarafurða til
þess að stuðla að aukinni vöruþró
un og nákvæmari og betri vöru-
merkingum.
„í framhaldi af þessum rann-
sóknum verða vörumerkingar
stokkaðar upp að verulegu leyti
og bað er mjög lofsvert framtak
hjá mjólkuriðnaðinum að ætla að
byggja sínar merkingar á íslensk-
um rannsóknum í stað þess að
notast við erlendar mælingar,"
sagði Jón Óttar. Hann sagði að
niðurstöður rannsóknarinnar
kæmu til með að fara mjög víða
t.d. inn í kennslubækur og neyt-
endabæklinga auk þess sem á
þeim yrði byggt við frekari
vinnslu mjólkurafurða.
Nánar verður greint frá niður-
stöðum rannsóknarinnar síðar.
BB.
Mjólkin úr kúnum á Eyjafjarðarsvæðinu er næringarríkust. Hér er hin fræga
Fía frá Húsum í Eyjafirði.
Atvinnumál ungs
fatlaðs fólks
Það má segja að svipað ástand
sé gagnvart dvalarmálum aldr-
aðra og dagvistunarmálum
barna. Það er biðlisti. Sá bið-
listi sem hefur myndast við
dvalarheimilin Skjaldarvík og
Hlíð á Akureyri telur nú ná-
kvæmlega þrjú hundruð
manns.
Eftir því sem komist verður
næst eru ekki allir aðilar sem á
listanum eru í bráðri þörf fyrir
dvalarpláss. Reikna má með því
að 10% af þessum fjölda sé sá
hópur sem þurfi að komast til
dvalar. Hinir vita hvernig ástand-
ið er í þessum málum hér í bæ og
eru að tryggja sig í framtíðinni,
með því að skrifa sig á listann.
Hreyfing er ekki mikil á pláss-
um dvalarheimilanna. Það eru
um 13 breytingar á ári að meðal-
tali. Þannig að þrjátíu manns af
þrjú hundruð manna biðlista er
stór hópur þegar 13 dvalarpláss
bjóða. gej
SIEMENS
heimilistæki stór og smá.
Heimsþekkt gæðavara.
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
NÝLAGNIR
VIDGERDIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Simi 26400.
Verslið hjá fagmanni.
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miövikudaginn 6. nóvember 1985 kl. 20-22 verða
bæjarfuiltrúarnir Jón G. Sólnes og Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir til viðtals í fundastofu bæjarráðs í
Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarstjóri.
Námskeið
í raddstyrkingu
Þreytist þú við upplestur?
Þarft þú oft að ræskja þig?
Ert þú oft þurr í hálsinum?
Hvernig er öndunin?
Hvað með að taka námskeið í raddstyrkingu?
Hafðu þá samband við Þóreyju Eyþórs. talmeina-
fræðing í síma 25774.
Hönnuð
augfýsing
selur meira
Hendið ekki háum fjárupphæðum
í birtingarkostnað án þess að
hugsa málið. Látið gera fast
verðtilboð í hönnun hjá Delfi
delíi
DELFI AUGLÝSINGASTOFA • GEISLAGATA 5
SÍMI 25845 OG HEIMA í SÍMA 24849