Dagur - 05.11.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 5. nóvember 1985
Marbvðin búin...
- Ég fékkröddina aftur-og getsvo sannarlega sungið!!
betur?. . . Nei, ég
bara spuröi.. .
„Það lítur út fyrir að ferða
mannatímabilið sé hafið.“
Mætt í slaginn aftur, eftir sex mánaða fjarveru, Dolly Parton. Þeir voru
hræðilegir þessir séx mánuðir sem ég gat ekki sungið segir hún. Og
ástæðan: Þrálát háisbólga. „Ég var ferlega hrædd, því ég hélt um tíma
að ég gæti aldrei aftur haldið tónleika," segir Dolly. Já, þetta var erfiður
tími, Dolly gat ekki talað heilu dagana, ekki sungið í sturtu eða neitt. Eins
og hún elskar það.
Læknir Dollyar sagði henni að hún yrði að hætta að syngja, ellegar
taka áhættuna um að missa röddina endanlega. Hún tók hana ekki.
Steinhætti að syngja, hljómleikaferð með Kenny Rogers fyrir bi.
„Ég vildi leysa þetta vandamál sjálf, hætti að taka öll meðöl, síðan
hætti ég að tala (sem var mér mjög erfittl). Ég keypti mér skilaboðamiða
sem ég hengdi upp út um allt og þegar fólk talaði við mig, skrifaði ég
svarið á miðana.“
Jæja, Dolly vildi líka losa líkama sinn við óheilnæma fæðu og meðala-
gums sem hún hafði innbyrt. Þannig að hún hætti að borða í tíu, tuttugu,
þrjátíu daga! En drakk þess meira af vatni. Fór svo til Kaliforníu og flat-
magaði þar á strönd, hafði það gott, borðaði heimabakað brauð og
kjúklinga og grænmeti og ... vafraði um.
En nú fer eitthvað að gerast... Einn daginn ákvað Dolly að horfa á
sólina koma upp og hafa það dálítið næs. Tekur hún ekki þá mikilvægu
ákvörðun að hvísla örfáum orðum út í eilífðina. Bara til að heyra. Og
hvað haldiði að hún hafi heyrt... dadada þessa líka dásamlegu mjúku
rödd.
„Ég var svo hamingjusöm, mig langaði að æpa úr mér lungun! - En í
staðinn fór ég með litla bæn og þakkaði guði.“
En það er ekki allt búið enn, hafandi ekkert borðað missti Dolly hálfan
annan helling af kílóum, „mér líður svo vel núna!“ segir hún og við skul-
um bara trúa því. Þá var kominn tími fyrir Dolly að koma sér heim. Eigin-
maðurinn Carl náði í sína ástkæru. „Hann leit út eins og jólatré þegar
hann sá mig fyrst, svona granna og ánægða og sæta, og brosti. Svo
keyrðu þau um öll Bandaríkin.
Á meðan beið Kenny Rogers við símann. Og hann hringdi einn
daginn, Dolly á línunni: „Ég er að koma!“ Og þau af stað. Gekk svona
glimrandi vel. Allt í lagi með röddina. Guð fékk litlar bænasendingar öðru
hvoru. Þá er þessi saga búin. Hún var ágæt, þó hún sé gömul.
• Ekki
veitir af!
Þeir íbúar Lundahverfis
sem tengdir eru við kap-
alkerfið þar, Videólund,
veittu því athygli um helg-
ina að búið er að hækka
áskriftargjaldið um hvorki
meira né minna en 33,3%,
úr 300 krónum í 400
krónur. Þetta er að sjálf-
sögðu mikil hækkun, alla
vega samanborið við
hækkun kaupgjalds, og
menn ekki á eitt sáttir um
ástæður hennar. Einn íbú-
anna í Lundahverfl hafði
samband við ritara S&S
og sagðist hafa skýring-
una á hreinu. Forráða-
menn Videólundar ættu
nefnilega yfir höfðí sér
málshöfðun, samkvæmt
fréttum, vegna útsending-
ar frá tónleikum Bubba
Morthens sem haldnir
voru í Dynheimum fyrir
skömmu og mættu búast
við að þurfa að punga út
töluverðri summu vegna
þess. Þeír væru þess
vegna byrjaðir að safna
strax! Ekki er ráð nema í
tíma sé tekið.
# Sveitaball
Hún var stödd á fjörugu
sveitaballi á laugardags-
kvöldi og langt liðið á
dansleikinn. Hún var ung
og óframfærin þar sem
hún sat við borð skammt
frá dansgólfinu og horfði
á fóikið dansa.
Allt í einu snaraðist að
henni ungur maður og
bauð henni upp i dans.
Hann hafði staðið álengd-
ar nokkra stund á meðan
að hann safnaði kjarki til
að bera upp þessa ein-
földu ósk. Stúlkan lét
hann ekki fara bónleiðan
til búðar og þau drifu sig í
dansinn. Þau skiptust á
einni og einni athuga-
semd á milli laga og fyrr
en varði voru þau farin að
nálgast hvort annað æ
meira og hann gerðist
meira að segja svo djarfur
að smella léttum kossi á
kinn hennar þegar þau
rákust saman (troðningn-
um á gólfinu.
Tíminn æddi áfram og alit
í einu var hljómsveitin far-
in að leika lokalagið, ró-
legt og íallegt vangalag.
Þau stóðu þótt saman og
hreyfðu síg í takt við tón-
listina og þeim fannst
sem þau væru ein f heim-
inum. Þau kysstust létt
við og við, en smám sam-
an urðu kossarnir inni-
legri og lengri.
Eftlr einn slíkan segir
stúlkan upp úr eins
manns hljóði: „Heyrðu, ég
er með tyggjóið þitt uppi í
mér.“
„Nei, nei,“ svarar hann,
„þetta er ekki tyggjóið
mitt. Ég er bara svona
hroðalega kvefaður!“
Ijósvakanum
Roy Marsden sem Adam Dalgliesh í myndinni
Vargur í véum.
ýónvarpY
ÞRIÐJUDAGUR
5. nóvember
19.00 Aftanstund.
Endursýndur þáttur frá 28.
október.
19.25 Ævintýri Olivers
bangsa.
10. þáttur.
Franskur brúðu- og teikni-
myndaflokkur í 13 þáttum
um víðförlan bangsa og
vini hans.
Þýðandi: Guðni Kolbeins-
son, lesari með honum
Bergdís Björt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Nýjasta tækni og vís-
indi.
Umsjónarmaður: Sigurður
H. Richter.
21.30 Vargur í véum.
(Shroud for a Nightingale).
Lokaþáttur.
Breskúr sakamálamynda-
flokkur í fimm þáttum
gerður eftir sögu eftir P.D.
James.
Aðalhlutverk: Roy Mars-
den, Joss Ackland og
Sheila Allen.
Adam Dalgliesh lögreglu-
maður rannsakar morð
sem framin eru á sjúkra-
húsi einu og hjúkrunar-
skóla.
Þýðandi: Kristrún Þórðar-
dóttir.
22.15 Ónæmistæring
(AIDS).
Fræðslu- og umræðuþáttur
um útbreiðslu þessa vá-
gests og fyrirbyggjandi
aðgerðir gegn honum.
í þættinum koma fram
ýmsir þeir sem gleggst
þekkja til þessa sjúkdóms
hérlendis.
Umsjónarmaður: Ög-
mundur Jónasson.
23.05 Fréttir í dagskrárlok.
lútvarpl
ÞRIÐJUDAGUR
5. nóvember
11.30 Úr söguskjóðunni -
Um minningar Louisu
Magneu Ólafsdóttur.
Agnes Siggerður Arnórs-
dóttir stjórnar þætti Fé-
lags sagnfræðinema. Les-
ari: Auður Magnúsdóttir.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn -
Heilsuvernd.
Umsjón: Jónína Bene-
diktsdóttir.
14.00 Miðdegissagan:
„Skref fyrir skref“ eftir
Gerdu Antti.
Guðrún Þórarinsdóttir
þýddi. Margrét Helga Jó-
hannsdóttir les (11).
14.30 Miðdegistónleikar.
15.15 Barið að dyrum.
Inga Rósa Þórðardóttir sér
um þátt frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér.
- Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri).
17.00 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.50 Síðdegisútvarp.
- Sverrir Gauti Diego.
Tónleikar • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál.
Sigurður G. Tómasson flyt-
ur þáttinn.
19.50 Úr heimi þjóðsagn-
anna - „Skemmtilegt er
myrkrið" (draugasögur).
Stjórnendur: Anna Einars-
dóttir og Sólveig Halldórs-
dóttir. Lesari með þeim:
Arnar Jónsson.
Val og blöndun tónlistar:
Knútur R. Magnússon og
Sigurður Einarsson.
20.20 Minningar ríkisstjóra-
ritara.
Pétur Eggerz les fyrsta
lestur af þremur úr minn-
ingabók sinni.
20.50 „Andartak hallar í
tón."
Guðbrandur Siglaugsson
les úr óprentuðum ljóðum
sínum.
21.05 íslensk tónlist.
21.30 Útvarpssagan: „Saga
Borgarættarinnar" eftir
Gunnar Gunnarsson.
Helga Þ. Stephensen les
(12).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir • Orð
kvöldsins.
22.25 Spjall á síðkvöldi -
Þáttur um jarðskjálfta.
Umsjón: Einar Þorsteinn
Ásgeirsson og Inga Birna
Dungal.
23.05 Kvöldstund í dúr og
moll
með Knúti R. Magnússyni.
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
6. nóvember
7.00 Veðurfregnir • Fréttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir • Tilkynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Litli tréhestur-
inn" eftir Ursulu Moray
Williams.
Sigríður Thorlacius þýddi.
Baldvin Halldórsson les
(8).
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Sig-
urðar G. Tómassonar frá
kvöldinu áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugrein-
um dagblaðanna.
10.40 Hin gömlu kynni.
Valborg Bentsdóttir sér
um þáttinn.
11.10 Úr atvinnulífinu -
Sjávarútvegur og fisk-
vinnsla.
Umsjón: Gísli Jón Krist-
jánsson.
I rás 21
ÞRIÐJUDAGUR
5. nóvember
10.00-10.30 Kátir krakkar.
Dagskrá fyrir yngstu
hlustendurna frá barna-
og unghngadeild útvarps-
ins.
Stjórnandi: Ragnar Sær
Ragnarsson.
10.3d-12.00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
Hlé.
14.00-16.00 Blöndun á
staðnum.
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00-17.00 Frístund.
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ing-
ólfsson. •
17.00-18.00 Sögur af svið-
inu.
Stjómandi: Þorsteinn G.
Gunnarsson.
3ja mín. fróttir kl. 11, 15, 16
og 17.