Dagur - 05.11.1985, Blaðsíða 5
_bækuL
5. nóvember 1985 - DAGUR - 5
Haustheimar
ur yfir myrkvaðan og einangrað-
an sveitabæ, sögusvið sem er ís-
lensk hliðstæða við miðaldakast-
alann dimma þar sem framliðnir
líða um skuggalega ganga og
tungl varpar blárri birtu um
skýjarof. Aðrar eru sálfræðilegar
eða tilvistarlegar hrollvekjur þar
sem persónurnar berjast gegn
ógninni en árangurslaust því hún
er lífið sjálft, martröðin jafn
óumflýjanleg og andardráttur-
inn. Enn aðrar sækja óhugnað
sinn í átök dýrslegra og
mennskra þátta í manneskjunni.
Þessar sögur eru hver annarri
ólíkar en eiga þó allar það sam-
eiginlegt að lýsa inn í myrkan
heim sem að jafnaði er dulinn.
Þær skekkja og setja úr skorðum,
vekja óró og ugg, en eru um leið
flestar hverjar spennandi og
skemmtilegar aflestrar, fullar af
kynjum og skáldskap."
íslenskar hrollvekjur eru 317
bls. að stærð og prentaðar í
Prentsmiðjunni Odda.
Sæmundssonar sem einnig ritar
formálsorð.
Allar þessar hrollvekjur eru frá
þessari öld, höfundar þeirra eru
17 talsins og 2 sögur eru eftir 3
þeirra, þá Halldór Stefánsson,
'Pórberg Þórðarson og Þóri
Bergsson.
Matthías Viðar Sæmundsson
endar formála sinn á þessa leið:
„Sumar þessara sagna eru ná-
skyldar hefðbundnum drauga-
sögum og lýsa skelfingu sem dyn-
íslenskar
hrollvekjur
- eftir 17 höfunda
Bókaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins hefur sent frá sér bókina
íslenskar hrollvekjur gerða undir
umsjá Matthíasar Viðars
HAUSTHEI
STEFAN
SIGURKARLSSON
- ný Ijóðabók
Haustheimar nefnist ný ljóðabók
eftir Stefán Sigurkarlsson lyfsala
á Akranesi. Stefán er fæddur í
Reykjavík 1930. Hann lauk prófi
í lyfjafræði frá D.F.H. í Kaup-
mannahöfn 1957 og starfaði eftir
það sem lyfjafræðingur í Reykja-
vík, stundakennari við Mennta-
skólann í Reykjavík, lyfsali í
Stykkishólmi og síðan á Akra-
nesi.
Haustheimar er fyrsta ljóð-
abók Stefáns, en áður hafa birst
eftir hann á prenti tvær ritgerðir
auk nokkurra ljóða. Bókin er 44
bls. unnin í Prentverki Akraness
hf. Kápumynd bókarinnar er eft-
ir Sgurborgu Stefánsdóttur.
Friðrik Gwðni Þórieifsson
MITT
HEIÐBLÁA
TJALD
Mitt
heiðbláa
tjald
- ný Ijóðabók
Hörpuútgáfan 'nefur sent frá sér
nýja ljóðabók „Mitt heiðbláa
tjald“ eftir Friðrik Guðna Þór-
leifsson söngstjóra og tónlistar-
kennara á Hvolsvelli.
Friðrik Guðni er fæddur á ísa-
firði 1944. Hann ólst upp þar og
á Akranesi til ársins 1969. Stúdent
frá M.A. 1964. Stundaði almennt
kennara- og tónmenntanám.
B.A. í sagnfræði og bókasafns-
fræði frá H.í. Hefur starfað sem
kennari við Gagnfræðaskólann á
Hvolsvelli og við Tónlistarskóla
Rangæinga frá 1973.
„Mitt heiðbláa tjald“ er fjórða
ljóðabók höfundar, en áður hef-
ur Hörpuútgáfan gefið út eftir
hann Ijóðabækurnar: Ryk 1970,
Augu í svartan himin 1973. Og
aðrar vísur 1977.
Bókin er 60 bls. unnin í Prent-
verki Akraness hf.
KAPPERBEST
MEÐ FORSIA
Nú í ár hefur Húsnæðisstofnun reynt með ýmsu móti
að koma þeim til aðstoðar sem hafa átt í verulegum örðugleikum með greiðslu húsnæðislána.
Nefna má viðbótarlán, sérstaka þjónustu ráðgjafa og greiðslujöfnun skulda.
í beinu framhaldi af þessari starfsemi allri mun stofnunin nú
efla mjög fræðslu- og upplýsingastarf til að aukin þekking forði fólki frá að leiðast
út í slíkar ógöngur.
fíi'RÁÐGIAFARSIÖÐ
St HÚSWEÐISSTOFNUNAR
hefur verið komið á fót
og forstöðumaður hennar er Grétar J. Guðmundsson, verkfræðingur.
Stöðin mun annast beina ráðgjöf til einstaklinga sem til hennar leita,
áður en þeir ráðast í að eignast húsnæði.
Hún mun aðstoða þá við gerð áætlana um fjármögnun og gefa þeim góð ráð í
hvívetna þannig að fullrar forsjár megi gæta í framkvæmdum.
Þá mun Ráðgjafarstöðin taka saman og gefa út fræðsluefni
um t.d. greiðslubyrði og gjaldþol. Einnig um tæknileg efni og ráð til sparnaðar
í byggingu húsnæðis og búnaði þess.
^Húsnæðisstofnun ríkisins