Dagur - 05.11.1985, Síða 9
5. nóvember 1985 - DAGUR - 9
JþróttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Haustmót HKRA yngri flokka:
Þórsarar sigmðu
í öllum flokkum
Á sunnudag fór fram haustmót
yngri flokka á vegum Hand-
knattleiksráðs Akureyrar.
Leikið var í íþróttahúsi Glerár-
skóla og léku lið Þórs og KA í
6. fl. a, 5. fl. a, b, og c og 4. fl.
a og b. Þórsarar sigruðu í öll-
um flokkum og yfirleitt með
mikliim mun.
Fyrsti leikur mótsins var viður-
eign 6. fl. a. Það kom mörgum á
óvart þegar sá leikur hófst að
þjálfari KA, Ljubo Lazic lét sína
menn spila maður á mann vörn
frá miðju. Þessi óvænta leikað-
ferð kom leikmönnum Þórs í
opna skjöldu og misstu þeir bolt-
ann strax í hendur KA-manna.
Það tók leikmenn Þórs dálítinn
tíma að átta sig á þessari vörn og
var oft broslegt þó ekki sé meira
sagt að sjá þann darraðardans á
gólfinu sem varð við þennan
varnarleik KA-manna. Liðin
skoruðu á víxl og var leikurinn
jafn og spennandi, en frekar illa
leikinn (sem kannski var eðli-
legt). En það voru Þórsarar sem
sigruðu með 7 mörkum gegn 6.
Bestir í liði Þórs voru þeir
Sverrir Rúnarsson og Ómar
Kristinsson, en hjá KA voru Leó
Þorleifsson og Þórhallur Hinriks-
son bestir.
Einnig áttu að vera leikir í 6.
fl. b og c, en forráðamenn KA
sáu sér ekki fært að mæta með
nema eitt lið í 6. fl. og létu þeir
ekki vita af því fyrr en þarna um
morguninn. Þórsarar voru mættir
með b og c lið og mátti sjá mörg
vonsvikin andlit á hinum ungu
leikmönnum þegar þeir fréttu af
því að engir leikir yrðu hjá þeim.
Hefðu forráðamenn KA mátt
standa betur að sínum málum og
afboða þá leiki sem þeir mættu
ekki með lið í, með meiri fyrir-
vara.
Þá var komið að 5. fl. a og er
skemmst frá að segja að Þórsarar
sigruðu með yfirburðum. Loka-
tölur leiksins voru 17:3, eftir að
staðan í hálfleik var 10:1. í liði
Þórs eru margir efnilegir hand-
knattleiksmenn eins og Guð-
mundur Benediktsson, Steindór
Gíslason, Árni Páll Jóhannsson
og markvörðurinn Ingólfur Guð-
mundsson sem varði mjög vel
eins og lokatölur leiksins gefa til
Það var hart barist í leikjunum:
Mynd: KK
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Þýski umboðsmaðurinn Willy
Rankie hefur ekki gefið upp
alla von um að geta troðiö
Halldóri Áskelssyni í atvinnu-
mennsku í knattspyrnu.
Willy var staddur hér á landi
um helgina vegna samnings Óm-
ars Torfasonar við svissneska lið-
ið Luzern, sem hann á aðild að.
Hafði hann samband við Halldór
norður og gerði honum grein fyr-
ir því að hann vildi fá hann með
sér út í heim í leit að liði fyrir
hann. Halldór tjáði Willy að
hann hefði ekki áhuga á atvinnu-
mennsku í bili og ætlaði að spila
með Þór næsta sumar.
Jónas sigraði
á hlutkesti
Nói og Jónas urðu jafnir í þriðja sinn, með 5 leiki rétta og eins
og fram kom síðast er ekki hægt að sömu tveir aðilarnir séu í
þessum getraunaleik endalaust. Því var gripið til þess ráðs að
varpa hlutkesti um það hvor héldi áfram og kom það í hlut
Jónasar Róbertssonar. Jónas hefur ákveðið að skora á móður
sína, Ingu Hrönn Jónasardóttur og er hún fyrsta konan sem
tekur þátt í þessum leik í vetur. Það er ánægjulegt og vonandi
gengur henni vel. Hér er svo spá þeirra mæðginanna.
Jónas
Inga
Birmingham-Newcastle 1
Chelsea-Nott. Forest • l
Coventry-Liverpool 2
Everton-Arsenal 1
Leicester-Southampton 2
Man.City-Ipswich 1
Oxford-West Ham 1
Sheff.Wed-Man.United 2
Watford-Aston Villa 1
W.B.A.-Q.P.R x
Huddersfield-Charlton 1
Sunderland-Wimbledon 1
Birmingham-Newcastle 1
Chelsea-Nott. Forest x
Coventry-Liverpool 2
Everton-Arsenal x
Leicester-Southampton x
Man.City-Ipswich 1
Oxford-West Ham x
Sheff.Wed-Man.United 2
Watford-Aston Villa x
W.B.A.-Q.P.R. 2
Huddersfield-Charlton 1
Sunderland-Wimbledon 2
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Willy vill fá
Halldór út
Þeir ungu lögðu sig alla fram
Mynd: KK
kynna. Þá er greinilegt að strák-
arnir eru í góðum höndum Árna
Stefánssonar þjálfara.
Hjá KA voru bestir Sveinn
Tryggvason, Gauti Einarsson og
Sigurður Ólason
Þórsarar sigruðu einnig örugg-
lega í 5. fl. b og c. í 5. fl. b fóru
leikar 14:5 Þór í vil, en í 5. fl. c
13:4. Bestir Þórsara í b liðinu
voru Mikael Jóhannesson, Sigur-
jón Sveinsson og Kári Jóhannes-
son. í c liði Þórs voru bestir þeir
Arnsteinn Jóhannesson, Ragnar
Reynisson og Birkir Sigurhjartar-
son markvörður.
I 4. fl. sigruðu Þórsarar einnig
örugglega, hjá a liðinu fóru leikar
13:10 Þór í vil. Þar voru bestir
Þórsara þeir Þórir Áskelsson,
Rúnar Sigtryggsson og mark-
vörðurinn Jónas Sigursteinsson.
Hjá KA bar mest á þeim Tómasi
Hermannssyni, Karli Karlssyni
og markverðinum Guðlaugi
Harðarsyni.
Hjá b liðinu fóru leikar 15:8
Þór í vil. Og hjá Þór voru bestir
þeir Aðalsteinn Pálsson, Gauti
Hauksson, Haukur Ragnarsson
og Þór Sverrisson. Hjá KA var
Kristinn Magnússon bestur.
Stórleikur í kvöld:
KA-FH
í 1
í kvöld klukkan 19.30 fer fram
í Höllinni leikur KA og FH í 1.
deild íslandsmótsins í hand-
knattleik.
Þessi lið eru nokkuð jöfn að
styrkleika, en FH-ingar hafa
misst sínar skærustu stjörnur í at-
vinnumennsku, þá Kristján Ara-
son og Hans Guðmundsson. KA-
menn verða á heimavelli og á það
að vera liðinu til góðs. Þeim
hefur ekki tekist að vinna heima,
en vonandi verður breyting á því
í kvöld. Og því fleiri áhorfendur
sem mæta og hvetja KA liðið því
meiri möguleiki á sigri. Eins og
áður hefur komið fram er Jón
deild
Kristjánsson ekki með KA í
kvöld vegna meiðsla, en í hans
stað mun Erlendur Hermannsson
leika og mun hann styrkja liðið
verulega.
Dagur hafði samband við Þor-
leif Ananíasson og spurði hann
hvernig leikurinn legðist í hann.
„Leikurinn leggst ágætlega í
mig og ég er hóflega bjartsýnn á
sigur. Það er skarð fyrir skildi að
Jón getur ekki leikið með. En ég
veit að sá er tekur stöðu hans
mun gera það vel, þá vona ég að
áhorfendur fjölmenni í Höllina
og hvetji okkur til sigurs gegn FH
í kvöld," sagði Þorleifur.