Dagur - 05.11.1985, Síða 11
5. nóvember 1985 - DAGUR - 11
með í Ársskýrslu safnsins því til
staðfestingar.
Að frumkvæði nefndarinnar
var fyrst ráðinn nátturufræðingur
í fullt starf við safnið, og byrjað
var að taka verkefni eða selja
vinnu starfsmanna, til að kosta
reksturinn, en sá þáttur hefur
síðan vaxið mjög.
Nefndin átti viðræður við ráð-
herra um aukinn ríkisstyrk til
safnsins, og leiddi það til þess, að
hann skipaði þriggja manna
nefnd, til að athuga stöðu nátt-
úrugripasafna í landinu og gera
tillögur um framtíðarskipun
þeirra. Skilaði nefndin áliti í
formi lagafrumvarps (1973), en
síðan hefur lítið af því frést.
Ástæðan mun vera sú, að í frum-
varpinu var gert ráð fyrir veru-
lega aukinni þátttöku ríkisins í
rekstri safnanna, einkum þeirra
sem stunda rannsóknir.
4. Eins og fram hefur komið,
er Náttúrugripasafnið eins konar
upplýsingabanki, sem lýtur að
ýmsu leyti sömu reglum og
venjulegir bankar. Bankar búa
að jafnaði ekki til peninga, held-
ur lána þeir út það fé sem þeir fá
til ávöxtunar. Ef ekkert fæst inn-
lagt er heldur ekki um nein útlán
að ræða.
Síðasta áratuginn hefur safnið
aflað sér verulegra tekna með
því að selja þekkingu þá, sem
það og starfsmenn þess hafa aflað
sér. Hefur sú tekjuöflun numið
allt að fjórðungi heildartekna
síðustu árin, og staðið undir
launum eins starfsmanns. Eftir-
spurn eftir slíkri sérfræðiþekk-
ingu hefur farið vaxandi, og er
raunar meiri en hægt er að sinna.
Hér er um alls konar leiðbein-
ingu og ráðgjöf að ræða, auk
sérstakra rannsókna eða könnun-
arverkefna.
vömí
Fyrír Mð verð
s
A miðvikudag og fimmtudag (6. og 7. nóv.) seljum við
staka baðskápa með 40% afslætti.
Einnig notuð skrifborð og fundarborð með 6 stólum.
HAGIf
Oseyri 4 (gengið inn að austan)
Opið 8-16
Umboðsmenn Dags
Sauðárkrókur: Sísí Steindórsdóttir, Furuhlíð 1, sími 5828.
Siglufjörður: Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Blönduós: Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581.
Olafsfjörður: Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Hrísey: Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728.
Dalvík: Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Grenivík: Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112.
Húsavík: Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbakka 5, sími 41529
Mývatnssveit: Þuríður Snæbjömsdóttir, sími 44173.
Kópasker: Anna Pála Kristjánsdóttir, Boðagerði 10, sími 52128.
Raufarhöfn: Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.
Teppahreinsun
og
hreingerningar
á íbúðum, stigahúsum,
veitingahúsum og stofnun-
um. Pantið tímaniega fyrir
jól.
Leitið upplýsinga.
Síminn er 21719.
Snúum
sókn“
- Greinargerð frá Náttúrugripasafnsnefnd Akureyrar
Á liðnu sumri urðu nokkrar
umræður í bæjarstjórn Akur-
eyrar um hlutverk Náttúru-
gripasafnsins á Akureyri, og
þá stefnu sem fylgt hefur verið
við uppbyggingu þess á undan-
förnum árum eða áratugum.
Sumir bæjarfulltrúar gagn-
rýndu þessa stefnu og einn
þeirra kom fram í fréttatíma
Ríkisútvarpsins, þar sem hann
lýsti þeirri skoðun sinni, að
leggja ætti safnið niður í nú-
verandi mynd. Náttúrugripa-
safnsnefndin telur, að í þessum
umræðum gæti nokkurs mis-
skilnings á eðli og uppruna
þessarar stofnunar, og sam-
hengi fræða (rannsókna) og
fræðslu, sem einnig er mikil-
vægt að íhuga í tengslum við
fyrirhugaða háskólastofnun á
Ákureyri.
Inngangurinri hér að framan
eru aðfaraorð að greinargerð,
sem Náttúrugripasafnsnefnd Ak-
ureyrar hefur sent frá sér. Grein-
argerðin er samin af Helga Hall-
grímssyni, forstöðumanni
safnsins, og fer hún óstytt hér á
eftir.
1. Vísindastarfsemi (rannsókn-
arstarf) safnsins er fólgin í öflun
þekkingar um náttúrufar þess
umhverfis, sem við lifum í og
byggjum tilveru okkar á, þ.e.
jarðlög þess, gróður, dýralíf
o.s.frv., og hvernig nýta megi
þessar náttúruauðlindir, án þess
að valda varanlegum skemmdum
á þeim (náttúruvernd).
Hér er um undirstöðuþekkingu
að ræða, sem ekki er nema að
litlu leyti tiltæk í heimildum, og
ekki er unnt að afla, nema með
beinum rannsóknum og söfnun-
arstarfi. Sá þekkingarsjóður sem
þannig hefur verið dreginn
saman, getur síðan notast við
hvers konar framkvæmdir eða
skipulagningu, og er því í raun-
inni ómetanlegt verðmæti.
Álitamál getur verið, hver eigi
að kosta slíka starfsemi, sem ekki
skilar skjótfengnum arði, en er
þó flestu mikilvægari, þegar til
langs tíma er litið. Eðlilegt er að
menn líti til ríkisheildarinnar í
því sambandi, enda er viður-
kennt, að ríkissjóður skuli standa
undir grundvallarrannsóknum í
landinu.
Á þetta hefur yfirvöldum
landsins margoft verið bent,
varðandi umrædda vísindastarf-
semi, en þar höfum við ekki haft
árangur sem erfiði, því hlutur
ríkisins í rekstri safnsins hefur
farið minnkandi með árunum.
Verulegur hluti af rannsókna-
starfi safnsins hefur samt verið
kostaður af opinberum styrkjum
(s.s. úr Vísindasjóði), og sama er
að segja um flest rannsóknatæki,
sem safnið hefur eignast, og sér-
fræðilegan bókakost.
2. Sú stefna sem fylgt hefur
verið, við uppbyggingu safnsins,
undanfarna tvo áratugi, byggist
að nokkru leyti á aldargamalli
rannsóknahefð, sem mótuð var
af áhugasömum kennurum við
Möðruvallaskólann og síðar við
gamla Gagnfræðaskólann og
Menntaskólann á Akureyri, og
fáeinum öðrum áhugamönnum
þar. Voru nokkrir þeirra í röð
hinna fremstu náttúrufræðinga
landsins, sem alkunnugt er, þótt
rannsóknir þeirra væru stundaðar
í hjáverkum og að mestu á eigin
kostnað.
Þessi norðlenska rannsókna-
hefð á sér enga hliðstæðu hér-
lendis, og hlýtur það að vera
metnaðarmál höfuðstaðar fjórð-
ungsins að viðhalda henni og
rækta hana.
Fyrri grein
Að öðru leyti hefur þessi upp-
bygging mótast af sérmenntun og
áhuga starfsmanna safnsins, sem
hafa flestir verið grasafræðingar.
Þannig hefur safnið á vissan hátt
þróast upp í grasafræðistofnun,
þar sem sérstök áhersla hefur
verið lögð á lægri plönturnar,
einkum fléttur og sveppi, enda
hefur þeim greinum ekki verið
sinnt á Náttúrufræðistofnun ís-
lands í Reykjavík.
Á síðasta áratug hefur þróun
safnsins svo tekið nýja stefnu,
sem kalla má landfræði í víðustu
merkingu, og byggist á söfnun
upplýsinga um landslag og hvers
konar umhverfisaðstæður, jafn-
vel sögulega þætti, auk hinna
hefðbundnu náttúrufræða. Orsak-<
)<ast þetta af þjóðfélagslegum
breytingum, síaukinni sókn í
náttúrugæði og auknum kröfum
um náttúruvernd.
3. Rétt er að geta þess hér, að
bæjarfulltrúar á Akureyri hafa
átt verulegan þátt í því að móta
þá uppbyggingu eða þróun sem
hér var á drepið. Árið 1970 til-
nefndi bæjarstjórn Akureyrar
þrjá menn í nefnd, til að athuga
málefni Náttúrugripasafnsins og
Lystigarðsins og gera tillögur um
hlutverk og framtíðarskipan
þessara stofnana, ásamt starfs-
mönnum þeirra. Til þess voru
valdir bæjarfulltrúarnir Ingólfur
Árnason og Sigurður Óli Brynj-
ólfsson, auk Stefáns Stefánssonar
bæjarverkfræðings.
Á vegum nefndarinnar var
m.a. sett ný reglugerð fyrir safnið
árið 1973. í 3. grein hennar segir
svo um hlutverk safnsins:
a) Að halda uppi föstum sýn-
ingum á náttúrugripum og
vinna á annan hátt að miðl-
un þekkingar á náttúru
landsins, svo sem með fyrir-
lestrum, sérsýningum, út-
gáfustarfsemi, samstarfi við
skóla o.s.frv.
b) Að safna sem ýtarlegustum
heimildum um náttúru
landsins, einkum Norðlend-
ingafjórðungs, og varðveita
þær.
c) Að annast grundvallarrann-
sóknir á náttúru landsins í
samráði við Náttúrufræði-
stofnun íslands.
d) Að taka að sér önnur rann-
sóknaverkefni, sem aðkall-
andi eru á hverjum tíma.
Leitast hefur verið við að vinna
eftir þessum markmiðum, eftir
því sem takmarkað vinnuafl og
húsnæði hefur leyft, og vísast hér