Dagur - 10.12.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 10. desember 1985
Ó, þessi blessuð börn!!!
Paö er ýmislegt sem börnum dettur í hug og margt snið-
ugt sem þau segja. Það er alltaf veriö að brýna fyrir þeim
að segja satt, en svo eru þau stundum skömntuð fyrir að
segja satt. Þetta er óskiljanlegt fyrir litlar sálir, en hvað
um það. við ætlum að birta hér nokkur sýnishorn af því
hvað börn geta látið út úr sér. Skyldi ekki einhver kann-
ast við eitthvaö svipað?
Það segir maður líka!
Móðirin var úti að versla stuttu fyrir jöl og var rneð litla
döttur sína með. Það var rnargt sem þurfti að kaupa og
búinn að fara larigur tími í búðaráp. Allt í einu þurfti sú
stutta að pissa og tilkynnir það. Þær drifu sig af stað heim
á leið en komu aðeins við í sjoppu á leiðinni. Þar var
keyptur einn sleikipinni handa þeirri litlu. Þegar mamma
hennar rétti henni sleikipinnann spurði hún: Og hvað
segir maður svo? Ég þarf að pissa, svaraði sú stutta kot-
roskin.
Þessar ömmur!!!
Hún sat og horfði á kúrekamynd með barnabörnunum
sínum tveimur, 10 og 6 ára. Þetta var ein af þessum með
skotglöðum kúrekum og hestum sem féllu í valinn. Til að
róa þann minni sagði amman að þetta gerðist ekki allt í
raun og veru, sumt væri bara „blöff". Hann leit á sjón-
varpið og síðan á ömmu sína og spurði hárri röddu:
Heldurðu að þetta séu rugguhestar, eða hvað?
Snúðu honum við . . .
Börnin gátu engan veginn skilið af hverju pabbi þeirra
var svona afundinn.
Æi. krakkar mínir, sagði mamma þeirra, það getur vel
verið að pabbi ykkar sé svolítið argur af og til, en það
stafar bara af því að hann er þreyttur. Þið vitið það
ósköp vel að innst inni er hann alltaf góður og það er það
sem máli skiptir.
Mamma í alvöru, heldurðu ekki að við getum snúið
honum við?
Erfíðar mömmur!!!
Það er oft gaman að fylgjast með þegar verið er að kaupa
jólafötin á börnin. Eins og allir vita eru þau misfljót til að
sætta sig við ný föt og sum vilja atls ekki sætta sig við
neitt nýtt. Á dögunum var ein mamman að kaupa peysu
á strákinn sinn. Það var búið að koma með margar peys-
ur og sýna honum, en liann vildi enga þeirra. Að síðustu
var þolinmæðin á þrotum og mamma hans sagði: Annað
hvort færðu þessa eða enga.
Drengurinn leit rólega á mömmu sína og sagði: Ertu
ekki með erfiðara móti í dag, mamma?
í tilefni af aðventu. . .
Nú er búið að kveikja á tveim kertum á aðventukrans-
inurn og eftirfarandi saga er nátengd honum. Það var
verið að laga til fyrir jólin og allt fullt af smiðum, þar á
meðal einn sem var sköllóttur. Lítil stelpa virti hann
fyrir sér hálfundrandi, en allt í einu rennur upp fyrir
henni ljós, og hún kallar upp: Mamma, mamma þessi
maður hefur ekki mikið hár - hann hefur bara að-
ventukrans!!
• Hálf milljón
fyrir árið
Það hefur víst ekki farið
framhjá mörgum að hinn
18. ágúst á næsta ári
verður Reykjavíkurborg
200 ára og eru vegleg há-
tiðahöld fyrirhuguð af því
tilefni. Nú er hins vegar
allt komið i háaloft í borg
Daviðs og eru það minni-
hiutamenn í borgarstjórn
sem eru með „maus“ og
mas og þras vegna há-
tíðahaldanna sem þeir
kalla „Innihaldslausa
skrautsýningu" svo vitn-
að só í Þjóðviljann. Þjóð-
viljinn finnur auðvitað að
þvi að „óvini landsbyggð-
arinnar númer eitt“ Baldri
Hermannssyni og aðstoð-
armönnum hans eigi að
greiða tæpar 2 milljónir
króna fyrir að undirbúa
herlegheitin og þegar öll
kurl eru til grafar komin er
gert ráð fyrir að herleg-
heitin muni kosta um 100
milljónir króna, eða um
500 þúsund fyrir hvert ár
afmælisbarnsins. Minni-
hlutaflokkarnir í borgar-
stjórn hafa hótað að
hætta þátttöku í undir-
búningnum ef ekki verði
horfið frá þessari villu.
# „Saumað“
að Berta
Ólafur Ragnar Grimsson
„saumaði“ að Albert
Guðmundssyni í sjón-
varpsþætti á dögunum og
mátti sjá að Albert var
brugðið. Að sjálfsögðu
var Hafskipsmálið al-
ræmda til umfjöllunar en
Albert var á sínum tíma
bæði stjórnarformaður
Útvegsbankans og Haf-
skips. Er óhætt að segja
að þetta mál allt hafi vakið
umræður meðal „litla
mannsins“ í þjóðfélaginu,
enda virðist einsýnt að
sukkið og svfnaríið í
sambandi við þetta mál
allt sé með ólíkindum.
Síðustu „uppljóstranir“
skýra t.d. frá því að mán-
aðarlaun forráðamanna
félagsíns hafi numið allt
að 800 þúsund krónum.
á Ijósvakanum
í tilefni þess að þrjá-
tíu ár eru liðin síðan
Halldór Laxness
fékk Nóbelsverð-
launin verður endur-
tekinn lestur hans á
smásögunni Jón í
Brauðhúsum. Hall-
dór las þessa sögu
fyrst í útvarpið 1974,
en hún birtist í Sjö-
stafakverinu árið
1964. Lestur sögunn-
ar hefst kl. 20.30.
isionvarpm
ÞRIÐJUDAGUR
10. nóvember
19.00 Aítanstund.
Endursýndur þáttur frá 2.
desember.
19.20 Ævintýri Olivers
bangsa.
Ný syrpa - Fyrsti þáttur
Franskur brúðu- og teikni-
myndaflokkur um víðförl-
an bangsa og vini hans.
Þýðandi: Guðni Kolbeins-
son, lesari með honum
Bergdís Björt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.45 Hver var að hlæja?
(Survival - No Laughing
Matter)
Bresk dýralífsmynd um hí-
enur í Austur-Afríku.
Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
21.25 Til hinstu hvíldar.
(Cover Her Face).
Fimmti þáttur.
Breskur sakamálamynda-
flokkur í sex þáttum gerð-
ur eftir sakamálasögu P.D.
James.
Aðalhlutverk: Roy Mars-
den.
Adam Dalgliesh rannsakar
dauða manns sem grunað-
ur er um fíkniefnasölu.
Hann rekur slóðina heim
á sveitasetur þar sem ekki
reynist allt með felldu.
Þýðandi: Kristrún Þórðar-
dóttir.
22.30 Kastljós
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaður Ögmund-
ur Jónasson.
23.10 Fréttir í dagskrárlok.
útvarpM
ÞRIÐJUDAGUR
10. desember
11.10 Úr atvinnulífinu -
Iðnaðarrásin.
Umsjón: Gunnar B. Hinz,
Hjörtur Hjartar og Páll Kr.
Pálsson.
11.30 Úr söguskjóðunni -
Hafnargerðarkaupgjalds-
málið 1913.
Þáttur í umsjá Þorláks A.
Jónssonar. Lesari: Oddný
Yngvadóttir.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn -
Heilsuvernd.
Umsjón: Jónína Bene-
diktsdóttir.
14.00 Miðdegissagan:
„Feðgar á ferð“ eftir Heð-
in Brú.
14.30 Miðdegistónleikar.
15.15 Barið að dyrum.
Einar Georg Einarsson
ræðir við Einar Karl Guð-
jónsson á Höfn í Horna-
firði.
15.45 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mór.
17.00 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.50 Tónleikar • Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fróttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál.
Sigurður G. Tómasson flyt-
ur þáttinn.
19.50 Lestur úr nýjum
barna- og unglingabók-
um.
20.30 „Jón í Brauðhúsum",
smásaga eftir Halldór
Laxness.
Höfundur les.
(Áður útvarpað 1974, en
endurflutt nú, þegar þrjá-
tíu ár eru liðin frá því að
Halldór tók við Nóbels-
verðlaunum).
20.50 „Humáttir".
Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson les þýðingar sínar
á ljóðum eftir norska
skáldið Paal Helge Haug-
en.
21.05 íslensk tónlist.
21.30 Útvarpssagan: „Saga
Borgarættarinnar" eftir
Gunnar Gunnarsson.
Helga Þ. 'Stephensen les
(26).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir • Orð
kvöldsins.
22.25 Frá tónleikum ís-
lensku hljómsveitarinnar
í Langholtskirkju 21. f.m.
„Konur í íslensku tón-
listarlífi".
Stjórnandi: Jean Pierre
Jacquillat.
Einsöngur: Anders Jos-
ephsson.
Einleikur: Anna Guðný
Guðmundsdóttir.
Kynnir: Ásgeir Sigurgests-
son.
24.00 Fróttir • Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
11. desember
7.00 Veðurfregnir • Fróttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fróttir • Tilkynningar.
8.00 Fróttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Elvis, Elvis" eftir
Mariu Gripe.
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir. '
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna.
10.40 Land og saga.
Ragnar Ágústsson sér um
þáttinn.
rás 2 ■
ÞRIÐJUDAGUR
10. desember
10.00-10.30 Ekki á morg-
un ... heldur hinn.
Dagskrá fyrir yngstu
hlustendurna frá barna-
og unglingadeild útvarps-
ins.
Stjórnendur: Kolbrún Hall-
dórsdóttir og Valdís Ósk-
arsdóttir.
10.30-12.00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
Hlé.
14.00-16.00 Blöndun á
staðnum.
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.0(^-17.00 Frístund.
Ungiingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ing-
ólfsson.
17.00-18.00 Sögur af svið-
inu.
Stjórnandi: Þorsteinn G.
Gunnarsson.
3ja mín. fréttir kl. 11, 15, 16
og 17.
17.00-18.30 Ríkisútvarpið á
Akureyri - Svæðisútvarp.