Dagur - 10.12.1985, Blaðsíða 11
10. desember 1985 - DAGUR - 11
-bækuc
Gunnar Guðmannsson kominn inn fyrir vörn Akureyringa. Margir töldu hann rangstæðan og einnig Gunnar Fel-
ixsson en Gunnar Guðmannsson gaf boltann á hann og síðan var hið umdeilda mark skorað.
„Réttast væri að berja
ykkur alla saman"
- Sagt frá uppþoti áhorfenda á Akureyri
í knattspyrnubókinni
„Mörk og sætir sigrar"
Sigmundur Steinarsson blaða-
maður hefur sent frá sér bók-
ina „Mörk og sætir sigrar“ og
er þetta fyrsta bindið í sögu
knattspyrnunnar á íslandi.
Saga Sigmundar „SOS“
hefst árið 1955 þegar deilda-
skipting var tekin upp í knatt-
spyrnunni hér á landi og nær
fyrsta bindið yfir árin 1955-
1963. Þar er farið yfir hvern
leik fyrir sig, getið marka-
skorara og rætt við menn sem
voru í eldlínunni um eftir-
minnileg atvik. Mikill fjöldi
mynda er í bókinni sem er
prentuð á ákaflega vandaðan
pappír og öll er bókin hin
myndarlegasta.
Aftast í bókinni er svo 80 síðna
„bókarauki“ um knattspyrnuna í
1. deild árið 1985. Þessi bók er
hin mesta „gullnáma" fyrir knatt-
spyrnuáhugamenn, og ekki er til
annar eins fróðleikur um knatt-
spyrnu á íslandi á einum stað.
Sem fyrr sagði er þetta fyrsta
bindi bókaflokks, það næsta
kemur út í vor og hið þriðja fyrir
næstu jól.
Árið 1962 dró heldur betur til
tíðinda á Akureyrarvelli er ÍBA
og KR léku þar. Leiknum lauk
með jafntefli 1:1 og vildu.
.áhorfendur meina að KR-ingar
hefðu skorað sitt mark eftir rang-
stöðu. Við skulum líta niður í
þennan kafla bókarinnar sem ber
heitið „Réttast væri að berja ykk-
ur alla saman“.
„Það sauð heldur betur upp úr
á Akureyri eftir að KR-ingar
mmmmmrnrnmmm^m
höfðu jafnað 1:1. Áhorfendur
höfðu ekki taumhald á skapi sínu
og ruddust inn á völlinn að leik
loknum. Umkringdu leikmenn
dómarann Einar Hjartarson.
Mátti þar sjá þekktan íþrótta-
frömuð Akureyringa snara sér að
öðrum línuverðinum - Jörundi
Þorsteinssyni - taka Jörund stein-
bítstaki með þeim orðum „að
réttast væri að berja ykkur alla
saman“.
Ekki varð þó úr frekari handa-
lögmálum þar sem spakir menn
gengu á milli. Það var mikill hiti í
mönnum og seinna um kvöldið
safnaðist allmargt manna út á
flugvellinum á Akureyri í þeim
erindagjörðum „að tala við dóm-
arann“ þegar hann færi. Menn
voru með ýmis ókvæðisorð og
hótuðu dómaranum lífláti.
Viðtöl voru í blöðunum um
þennan atburð og hafði Jón-
Stefánsson fyrirliði Akureyrar-
liðsins þetta að segja: „Ég tel að
markið hafi verið ólöglegt. Út frá
mínum sjónarhóli séð. virðist
enginn vafi leika á þvf. Hins veg-
ar bar þetta svo skjótt að, að
erfitt er að fullyrða nokkuð og má
eflaust lengi deila um þetta atvik.
Framkoma áhorfenda, hvað
sem rétt getur talist, er til lítils
sóma, bæði fyrir þá og okkur.
Það má kannski segja að þeir hafi
haft nokkra ástæðu til þess arna
þar sem spenningurinn var geysi-
legur og markið var skorað rétt
fyrir leikslok.
En það er engin afsökun og
bæði ég og félagar mínir í liðinu
fordæma framkomu þeirra áhorf-
enda sem höguðu sér dólgslega
og hreyttu ónotum í gesti okkar,"
sagði Jón.“
Umdcilt mark
á Akureyri
Mikið fjör var á Akureyri, þegar KR-ingar
lléku þar gegn heimamönnum. Jafntefli varð
11 1, sem varð til þess að bæði liðin misstu af
1 lestinni - í baráttunni um meistaratitilinn. KR-
ingar gáfu ekki teflt fram sínum bestu mönn-
um, þar sem Heimir Guðjónsson, Bjami Fel-'
ixson, Hreiðar Ársælsson, Sveinn Jónsson og
Garðar Ámason voru meiddir. Þetta var mikil
I blóðtaka fyrir KR.
Leikurinn var mjög jafn og harður, enda
þýðingarmikill. Gunnar Guðmannsson átti
fyrsta orðið í leiknum, þe9^^^JP
Frá Heimaey
k Fl
/ \ Kaupmenn - Kaupfélög
1Birgið ykkur upp af hinum
frábæru Heimaeyjarkertum.
Látið hinn hreina loga
j^BKjj^mBsm^Heimaeyjarkertanna veita
°9
HEIMAEY, kertaverksmiðja,
Faxastíg 46, 900 Vestmannaeyjum. Sími 98-2905.
Fróði antikvariat gallery
Umboö og afgreiðsla á bókum Máls og menningar.
Félagsmenn frá 15% afslátt
Jólabókamarkaður. Málverkasala.
FrnAi antlkvariat gallery.
riUUI Gránufélagsgötu 4, sími 26345.
Opið á laugardögum í desember.
Ert þú komin
í jólaskap?
Við líka.
Nýkomin finnsk
gæðavara
Falleg og vönduð ullar-
pils í sérflokki.
Svört ullarcrepe pils
í yfirstærðum.
Frábært snið.
Þýskar blússur koma
á morgun.
Fyrir ungu dömuna
Svört samkvæmisdress
Satínblússurnar
væntanlegar í vikunni.
Vel klædd
erkonan ánægð.
Greiðslukort
Visa Eurocard
MólaiwilLiLn ^teínunnat.
Hafnarstræti 98 • Akureyri • Sími (96) 22214 -
Húsvíkmgar -
Þingeyingar
Dagur hefur fastráðið starfsmann á Húsavík. Það er Ingibjörg
Magnúsdóttir, sem auk blaðamannsstarfa mun sjá um dreif-
ingu og auglýsingamóttöku fyrir blaðið.
Við hvetjum lesendur blaðsins til að hafa samband við Ingi-
björgu varðandi ábendingar um fréttir og efnisval.
Einnig bendum við lesendum á, að Ingibjörg tekur á móti smá
auglýsingum og tilkynningum í dagbók, t.d. varðandi stór-
afmæli og dánarfregnir (mynd má fylgja) svo eitthvað sé
nefnt. Sú þjónusta er lesendum að kostnaðarlausu.
Ingibjörg hefur aðsetur í Garðarsbraut 5, II hæð, sími 41225.
Fastur skrifstofutími kl. 9-11, en er auk þess við á skrifstof-
unni á öðrum tímum.
Heima: Sólbrekka 5, sími 41529.